Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.1938, Side 11

Freyr - 01.11.1938, Side 11
FRE YR 169 ar rófur og Þrándheimsrófur hér vel í sumar, en rússneskar rófur og Bang- hólmsrófur illa. Dálítið bar á sniglanagi í káli og róf- um, en þó miklu minna en í fyrra, vegna þurrari veðráttu, að minnsta kosti sunn- anlands. Norðanlands hlupu kál og rófur víða í njóla í sumar. Eiga vorkuldarnir sjálfsagt sök á því. Kuldaáhrif flýta oft fyrir blómgun plantna. Nokkuð var um kartöflukvilla, en skæðasti kvillinn, myglan, olli þó engum teljandi skaða að þessu sinni. Þurrviðrin á myglu-svæðinu forðuðu því fári. Svo kom einnig sumstaðar næturfrost, er eyði- lagði bæði sveppinn og kartöflugrasið. Skæð verður myglan aðeins í röku og sæmilega hlýju veðri. En myglunnar varð víða vart í sumar. Sást hún hér um 20. ágúst á Rósinni, Gullperlu, Gullauga, Júlí, Webbs og Sagerud. Vanrækið því ekki varnirnar. Nokkrir hlýjir og rakir dagar nægja til þess að myglan fari sem logi yfir akur. Er hún skæðust á snemm- vöxnum kartöflum að jafnaði, og flestar eða allar íslenzkar kartöflur þola hana illa. Dálítið bar á stöngulveiki, einkum í Jubel, en þó minna en í fyrra. Eyvindur er einnig nokkuð næmur fyrir stöngul- veiki og allmikið var um hana í Jarðar- gulli í fyrra. Stöngulveiki getur stundum leynst illa, einkum ef vel er borið í garð- ana. Kemur hún þá í Ijós á næsta ári. Þannig var t. d. um ögn af Jubel-útsæði frá í fyrra. Sást þá ekkert á grösunum eða kartöflunum, en mikil stöngulveiki kom fram í því í sumar. Venjulega verð- ur þá stöngull sjúkra grasa svartur og linur. Þarf að grafa slík grös upp og flytja burt eða brenna. — Talsverð brögð urðu að kláða, einkum í heitum görðum og sandgörðum. Reynið að bera stækju (brennisteinssúrt ammoniak) í kláða- garðana, en varist að láta kalk eða ösku í þá. Hafi verið borið á mikið af köfnun- arefnisáburði, getur verið vafasamt að nota stækju — sem er köfnunarefnisá- burður — í þessu skyni, en þá er reyn- andi að nota heldur superfosfat til varnar gegn kláðanum, — T;gSaveiki var talsverð í ýmsum kartöflutegund- um. Berst hún með útsæði eingöngu að heita má, en lifir ekki í görð- unum. Verst leiknar voru íegundirn- ar Favourite og Jórvíkurhertogi (Duke of York), en veikin sást einnig í Böhms, Webbs, Júlí, Deodara, Ergold, Jubel, Sagerud og Ackersegen. Þetta er alls ekki skaðlítil veiki. Kartöflurnar eru að vísu hér um bil jafngóðar til matar og heilbrigðar væru, en veikin dregur mjög mikið úr uppskerunni. Sérstaklega verða kartöflurnar smáar. Varist því að nota smátt útsæði, ef veikin er í garðinum og takið alls ekki útsæði undan sjúkum grösum. Hjá Favourite voru 4 af hverj- um 5 grösum tiglaveik í sumar, en þriðja hvert gras hjá ,,hertoganum“. Kom í ljós að hjá Favourite var helmingi minni uppskera að jafnaði undan veiku grösunum en hinum heilbrigðu. Hjá ,,hertoganum“ voru hlutföllin 3:5. Ef- laust mætti losa þessar og aðrar tegund- ir við tigalveikina með því að rækta út- sæðið hér heima. Er hér lítið af skordýr- um þeim, sem mest bera veikina milli grasanna að sumrinu víða erlendis, og því hægara um að þessu leyti. Þarf nauð- synlega að hefja útsæðisrækt undir eft- irliti hér á landi. Er jafnan hætt við að kvillar berist með útlendu útsæði, þótt reynt sé að gæta varúðar. Sumstaðar sást að kartöflur aflöguðust á ýmsan hátt og sprungur komu í þær. Bar helzt á þessu í tegundunum Jubel og Alpha. Orsök þessa er talin vera sveiflur á rakanum í moldinni, og ber mest á því í þurrkasumr- um. Þegar jarðvegurinn ýmist er blautur

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.