Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1938, Page 14

Freyr - 01.11.1938, Page 14
172 FRE YR sitt, er algerlega komið undir velgerðar- tilfinningu þess kaupmanns eða fyrir- tækis, sem veitir því móttöku. Bændur leggja inn smjör sitt til kaupmanns, en taka í þess stað út vörur. Einu sinni á ári, eða svo, er gert upp. Kaupmaðurinn á- kveður þá verðið nokkurnveginn eftir sín- um eigin geðþótta. Hinsvegar stendur kaupmaðurinn berskjaldaður fyrir smjör- gæðunum, því hver smáaðfinsla getur valdið flutningi viðskiftanna yfir til næsta kaupmanns. Engar tvær húsmæður, er nú fram- leiða smjör, tilreiða það á sama hátt, lit- un, söltun og umbúnaður fer eftir skap- gerð og fegurðartilfinningu húsmóður- innar í það og það skiftið. Af því er sprottinn talshátturinn: ,,Ég kaupi að- eins smjör frá þeim bæjum er eg þekki“. Það sem hjer þarf að gera er: Alþingi ætti að setja lög til verndar og styrktar smjörsamlögum. Hugsanlegt væri t. d. að í landinu væri ein aðalsölumiðstöð, er hefði útibú þar sem þörf væri á. Á sölumiðstöðinni skal smjörið metið, það sem nær settu gæða- lágmarki, skal selt tilsettu lágmarksverði og því skal leyfilegt að blanda í smjör- líki. Sölumiðstöðin semur reglur um framleiðslu smjörsins og mjólkurfram- leiðslu heimilanna, og heldur uppi leið- beiningastarfsemi þar að lútandi. Einn- ig skal hún sjá um innkaup allra vara, sem til framleiðslunnar þarf s. s. salt, umbúðir o. fl., útvegun hnoðunartækja, skilvindna o. s. frv. Ég varpa þessari hugmynd fram til alþjóðar og skora á þá, sem hafa áhuga og aðstæður til, að athuga hvort þjóðin þarfnast ekki einrnitt þessa fyrirkomu- lags á smjörframleiðslunni. Landið- okkar er fátækt og strjálbýlt, og samgöngur víða slæmar. í Noregi hafa smjörsamlögin blómgast í þessu Nokkur orð til bænda á mæðiveikisvæðinu. Víða í Borgarfirði og sumstaðar annar- staðar hefir mæðiveikin geysað á þriðja og fjórða ár í sauðfje bænda. Bændur hafa nokkuð lært af reynslu þessara ára. Margir þeir, sem lengst hafa haft mæðiveikina í fé sínu, missa nú orð- ið hlutfallslega færra fé árlega af henn- ar völdum, heldur en í byrjun. Ber það vott um, að nokkur hluti fjárins muni þó líklega geta staðið af sér veikina. Fjár- stofnar sumra bænda virðast líka mun ónæmari fyrir þessari plágu, en annara. Sömuleiðis segja margir, sem halda ætt artölur yfir fé sitt, eða þekkja það vel, að vissar ættir í fénu sé ónæmari en aðr- ar. Allt þetta hefir gefið bjartsýnu bænd- unum von um að sumt af fénu geti ekki drepist úr mæðiveiki, og hægt yrði að ala stofn upp að nýju út af því fé. Nokkur reynzla hefir líka fengist um það, hvernig takast myndi með uppeldi lamba. Sumir bændur hafa alltaf látið lifa nokkur lömb, þótt veikin hafi verið í fé þeirra. Hefir reynsla þeirra margra orðið sú, að tiltölulega margt drepst á fyrsta og öðru ári, af lömbum þeim, sem sett voru á, meðan veikin var að byrja í fé þeirra, en meiri hlutinn af lömbum þeim, sem alin hafa verið upp, eftir að veikin hefir geysað í stofninum tvö til þrjú ár, lifir enn. Því miður hefir þessi til- raun með að ala upp stofn að nýju ekki staðið enn nógu lengi yfir, til þess að hægt sé að fullyrða um, hvernig hún muni heppnast. Nokkrir bændur segja, að þótt mæði- umhverfi og þau munu einnig gera það hjer, 1 Sveinn Tryggvason,

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.