Einherji - 20.04.1967, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 20. apríl 1967
EINHERJI
3
GlSLI MAGNÚSSON.
Búnaðarþing
Búnaðarþing, hið 49. í röðinni,
hófst í Bændahöllinni £ Beykja-
vík 20. febrúar sl. og var slitið
hinn 11. marz. Var þingið annað
hið skemmsta, frá því er upp var
tekið árlegt þinghald. Kosið var
til Búnaðarþings á síðasta ári.
Hurfu þaðan 8 fulltrúar af 25 alls
flestir með langa þingsetu að
baki. Munu fæstir þeirra hafa
gefið lcost á sér til endurkjörs,
talið rétt að víkja fyrir yngri
mönnum. Er það að sjálfsögðu
heilbrigt sjónarmið, enda þótt
mikil og löng reynsla sé stundum
minna metin en skyldi.
Fyrir þetta þing voru lögð rösk
40 mál, og öll afgreidd nema eitt.
Þingfundir voru 18, nefndarfund-
ir margir tugir. Búnaðarþing er
æðsta stofnun bændanna sjálfra
og fjallar jafnan um mörg mik-
ilsverð mál. Því þyrftu bændur
að eiga þess kost að kynna sér
gerðir þingsins gerr en nú á sér
stað. I*ví miður skortir Einherja
rúm til þess að þar sé hægt að
gera þessum málum viðhlítandi
skil. Hér verður þvi aðeins laus-
Iega getið þeirra ályktana og
samþykkta, er Búnaðarþing lét
frá sér fara. Tilgreint er innan
sviga, hverjir málin sendu eða
báru fram.
REIKNINGAR B.I. 1966
(Stjórn B. 1.))
Tekjur námu hartnser 14.4 millj.
kr. og gjöldin nálega sömu fjár-
hæð. Skuldlaus eign 13.6 millj. kr.
FJÁRHAGSÁÆTLUN B.l. 1967
(Stjórn B. í.)
Tekjur áætlaðar röskar 16 millj.
kr., gjöld um sömu fjárhæð.
VINNUAÐSTOÐ
(Stjórn B. I.)
Ásgeir L. Jónsson og Ólafur
Stefánsson ráðunautar höfðu, að
tilhlutan B. 1., samið „frumvarp
til laga um vinnuaðstoð til bænda
í viðlögum:" Búnaðarþing mælti
með að frumvarpið yrði lögfest
með lítils háttar breytingum.
Heitir það nú „Frumvarp til laga
um vinnuaðstoð til bænda vegna
sjúkdóma, slysi o.fl.“
JtJGURBÓLGA
(Mjólkursamsalan)
Ályktun Búnaðarþings:
„Búnaðarþing telur, að Mjólk-
ursamsalan hafi unnið mjög þarft
verk í heilbrigðismálum þjóðar-
innar með því að koma upp
rannsóknarstofu til skipulagðrar
útrýmingar á júgurbólgu í mjólk-
urkúm. — Til þess að þessi
starfsemi nái tilætluðum árangri,
er nauðsynlegt að gert verði
heildarskipulag um útrýmingu
júgurbólgu í kúm á öllu landinu,
o gað tryggt verði nægilegt fjár-
magn til þeirrar starfsemi. —
Búnaðarþing felur stjórn B. í. að
vinna að framgangi þessa máls
við yfirdýralæknisembættið og
landbúnaðarráðuneytið."
LAX- og SILUNGSVEIÐI
(Alþingi)
Alþingi sendi Búnaðarþ. til um-
sagnar frv. til laga um breyting-
ar á lax- og silungsveiðilöggjöf-
inni (stjórnarfrumv.). Búfjár-
ræktarnefnd, sem hafði þetta mál
til meðferðar á Búnaðarþ., eyddi
í það mjög miklum tíma. Kom
margt manna, með hin ólíkustu
stjónarmið, til viðtals við nefnd-
ina. Gerði nefndin fjölda breyt-
ingartillagna við frumvarpið og
féllst Búnaðarþing á þær allar.
Hins vegar ályktaði Búnaðarþ.
að leggja til „að afgreiðslu máls-
ins á Alþingi verði frestaö, til
þess að tími vinnist til að gera
heildarendurskoðun á laxveiðilög-
gjöfinni,“ ella yrði frumvarpinu
breytt í það horf, er Búnaðarþ.
samþykkti.
FERÐAKOSTNAÐUR
DÝRALÆKNA
(Búnaðarsamb. Austfjarða)
Skorað á Búnaðarþ. að beita
sér fyrir því, „að ferðakostnaðui'
dýralækna vegna sjúkravitjana
verði greiddur af því opinbera,
þegar um langar og kostnaöar-
samar ferðir er að ræða.“
Málið afgreitt í sambandi við
næsta mál.
FRUMVARP TIL LAGA UM
DÝRALÆKNA
(Dýralæknafél. Isi.)
Frumv. samið af nefnd dýra-
lækna. 15. gr. frumv. er á þessa
leið: „Nú er héraðsdýralæknis
leitað í brýnni nauðsyn um. lang-
an veg frá heimili hans (yfir 40
km). Greiðir þá sá, sem vitjunar
beiðist, ferðakostnað allt að 40
km frá heimili dýralæknis, en
ferðakostnaður fyrir það, sem um
fram er 40 km, greiðist af opin-
beru fé samkvæmt reglum, er
ráðherra setur."
Búnaðarþ. samþ. að mæla með
að frumv. yrði lögfest svo til
óbreytt.
ÁBURÐARMÁL
(4. erindi: Búnaðarsamb. Dalam.,
S.-Þing., Snæf. og Vestfj.)
Ályktun Búnaðarþings:
„1. Búnaðarþ. leggur áherzul á,
að fyrirhuguðum breytingum og
stækkun Áburðarverksmiðjunnar
h.f. í Gufunesi verði hraðað svo
sem kostur er. Við þær framkv.
verði ákveðið að korna áburðinn
og framleiða kalkblandaðan á-
burð, t.d. kalkammonsaltpétur, á-
samt blönduðum, alhliða áburði.
2. Búnaðarþing krefst þess, að
bændur fái aukið valfrelsi um á-
burðarkaup, enda safni verk-
smiðjustjórn áburðarpöntunum
það tímanlega, að þær liggi fyrir
hjá verksmiðjustjórn áður en
ganga þarf frá framleiðsluáætlun
og innkaupum.
3. Að áburður sömu tegunda
verði verðjafnaður og seldur á
sama verði á öllum verzlunar-
stöðum.
4. Áburðarverksm. h.f. verði
þjóðnýtt og í stað hluthafa, sem
nú eru, komi í stjórn hennar
tveir menn, annar tilnefndur af
Búnaðarfél. Isl. og hinn af Stétt-
arsamb. bænda.
Þingið felur stjórn Búnaðarfél.
Isl. að vinna að framgangi fram-
anskráðra atriða."
UMFERÐARLÖGGJÖF
(Alþingi)
1 frumv. til laga um breytingu
á umferðarlögunum, sem nú
liggur fyrir Alþingi (fl. af Einari
Olg. og Geir Gunnarss.), er lagt
til að aðeins þeir unglingar, sem
náð hafa 14 ára aldri, megi „án
ökuskírteinis aka dráttarvél, þeg-
ar hún er notuð við jarðyrkju-
eða heyskaparstörf utan alfara-
vegar.“
Ályktun Búnaðarþ.:
„Búnaðarþ. mælir ekki með
samþ. frumvarpsins. — Hins
vegar mælir Búnaðarþ. með að
eftirlit með öryggisútbúnaði
dráttarvéla verði aukið frá því,
sem nú er."
Húnvetningar!
SAMVINNUMENN !
Verzlið í eigin búðum. — Verzlið í kaupfélaginu.
Kjörbúðir kaupfélagsins veita yður beztu og
öruggustu þjóuustuna í öllum viðskiptum. -
Samvinnuverzlun skapar sannvirði.
Aukin umsetning skapar ódýrari verzlun.
SAMVINNAN skapar betri lífskjör og
eykur öryggi hvers byggðarlags.
SAMVINNAN LYFTIR GRETTISTÖKUM
. SAMVINNA í VERZLUN OG FRAMLEIÐSLU.
ER LAUSN VANDANS
Kaupfélag Húnvetninga
BLÖNDUÓSI
JARÐAKAUP RÍKISINS
(Alþingi)
Lögð var fram á Alþingi „Til-
laga tii þingsályktunar um end-
urskoðun laga um jarðakaup rík-
isins o.fl.“ (fl. af Helga Bergs,
Ólafi Jóh. og Ág. Þorv.). Búnað-
arþing samþ. að mæla með að
tillagan yrði samþ. á Alþ. lítið
eitt breytt.
JARÐVEGSRANNSÓKNIR
og TILRAUNIR
(Búnaðarsamb. S.-Þing.)
Skorað á Búnaðarþ. að hlutast
til um „að aukið fjármagn og
starfslið verði fengið til þess að
vinna að jarðvegsrannsóknum og
tilraunum í sambandi við þær.“
Búnaðarþing ályktaði að beina
því til stjórnar B. í., „að hún
beiti sér fyrir því við Alþingi og
ríkisstjórn, að Rannsóknarstofn-
un landbúnaðarins fái aukafjár-
veitingu til þess að ráða sérfræð-
ing, er hefði með höndum rann-
sóknir á eðli og orsökum kals. —
Jafnframt vill þingið benda á, að
eðlilegt er að sérfræðingur sá, er
að þessum rannsóknum vinnur,
verði staðsettur í nánd við aðal-
kalsvæðin, t.d. á Akureyri, þar
sem hann hefði aðstöðu til að
vinna í samvinnu við Tilrauna-
stöðina og Efnarannsóknarstofu
Norðurl. að rannsóknum og til-
raunum.
LÆKKUN TOLLA
(2. erindi: Búnaðarsamb. S.-Þing„
Þórarinn Kristjánsson).
Erindi um lækkun tolla á snjó-
bílum, snjósleðum og snjóbeltum
á dráttarvélar.
Samþ. að fela stjórn B. I. að
vinna að því,
a) „að tollur af snjóbílum, sem
læknishéruð hafa keypt á
tveimur sl. árum og kaupa
framvegis, verði eftir gefinn
að fullu,
b) að tollur af vélknúðum snjó-
sleðum verði lækkaður veru-
lega og eftir gefinn að fullu
upprekstrarfélögum eða sveit-
arfélögum, sem kaupa þá í þvi
augnamiði að nota þá við fjár-
leitir á heiðum, þegar snjór er
kominn, og
c) að tollur af snjóbeltum á drátt
arvélar verði sami hundraðs-
hluti af verði og er á vélunum
sjálfum."
(Framhald í næsta blaði).
Kaupfélag Eyfirðinga
VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA vor afgreiðir til
yðar í heildsölu vörur frá:
Efnagerðinni Flóru
Pylsugerðinni
Brauðgerðinni
Smjörlíkisgerðinni
Reykhúsi KEA
Efnaverksmiðjunni SJÖFN
Kaupfélag Eyfirðinga
Akureyri — Sími 21400 — Símnefni: KEA
Rörasteypan, Hvammstanga
Framleiðum og höfum þegar til sölu
STEINRÖR 4“, 6“, 10“ og 12“
GANGSTÉTTAHELLUR og
MILLIVEGGJAPLÖTUR
50x50 cm, bykkt 7 cm.
Nánari upplýsingar veittar í síma 53
HVAMMSTANGAHREPPUR
ÞAKKARÁVARP
Innilegar þakkir færum við öllum þeim ein-
staklingum, samstarfsmöimum, Verkstjórafélagi
Skagfirðinga og Húnvetninga og Vegagerð ríkis-
ins, fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa,
RÖGNVALDAR JÓNSSONAR, verkstjóra
er lézt 11. marz 1967.
Ingveldur Rögnvaldsdóttir Guttormur Óskarsson
Árni Rögnvaldsson Jónína Antonsdóttir
Guðrún Rögnvaldsdóttir Ragnar Jóhannesson
og barnabörn.