Einherji - 29.02.1968, Side 6
6
EINHERJI
DAGUR
50 ára
Blaðið Dagur á Akureyri
átti fimmtugsafmæli þann 12.
febrúar s. 1. Dagur minntist
hálfrar aldar starfs síns með
myndarlegu afmælisblaði. í>ar
eru rifjuð upp tildrög að
stofnun blaðsins og segir:
„Dagur var til læss stofn-
aður fyrir hálfri öld að vera
opinbert málgagn Norðlend-
inga og norðlenzkt fréttablað
og hefur verið það síðan“.
....Og það er rétt. Dagur hef-
ur ætíð verið sterkasta fram-
fara- og baráttublað þess
fólks, er Norðlendingafjórð-
ung byggir. Bitstjórar Dags
hafa verið hver öðrum snjall-
ari með pennann, enda studd-
ir mörgum og góðum mönn-
um og málefnum.
Einherji vill ílytja Degi
beztu afmælisóskir og væntir
þess að Norðlendingar megi
á næstu 50 árum njóta og
nota Dag góðum málum til
framdráttar.
Prestskosning
á Siglufirði
Eins og áður er getið
fhitti sóknarprestur Sigl-
firðinga, sr. Ragnar Fjalar
Lárusson, til Reykjavíkur
um s. 1. áramót. Honum var
veitt 'þar Hallgrímspresta-
kall. Umsóknarfrestur um
Siglufjarðarprestakall var
útrunninn 1. febr. s. 1. Að-
eins einn umsækjandi sótti
um brauðið, séra Kristján
Róbertsson. Prestskosning
fer fram sunnudaginn 10.
marz n. k. og hefst kl. 10
f. h. í Siglufjarðarkirkju.
Séra Kristján er nú prest-
ur í Ameríku, en 'hann var
sóknarprestur hér 4 undan
sr. Ragnari Fjalar. Sr. Krist-
ján var vinsæll og vel met-
inn af sóknarbörmnn sínum,
sem nú hafa allmörg óskað
eftir að hann sækti og heitið
honum stuðningi sínum.
Nú sem stendur þjónar
séra Ingþór Indriðason,
prestur í Ólafsfirði Siglu-
fjarðarprestakalh og verður
svo þar til séra Kristján
er tekinn við.
Flugfélag íslands
flutti yfir 180.000
farþega á s. 1. ári
MILLILAND AFLU G
Farþegar Flugfélags íslands í
áætlunarflugi milli landa voru á
síðastliðnu ári 59.600, en voru
48.604 í fyrra. Aukning er 22.6%.
Vöruflutningar milli landa námu
752 lestum á móti 614 síðastliðið
ár. Aukning 22.5%. Póstflutning-
ar milli landa námu 182 lestum,
en 149 lestum árið áður. Aukn-
ing 22%.
INNANLANDSFLUG
Farþegar félagsins í áætlunar-
flugi innanlands voru síðastliðið
ár 117.778, en voru 111.052 árið
áður. Aukning er rúmlega 6%.
Vöruflutningar innanlands juk-
ust hinsvegar verulega. Fluttar
Karlakórinn Vísir hlýtur alþjóðlsg verðlaun fyrir söng á hljómplötu
Vísir veitti verðlaimum viðtöku á tónlistarhátíð í Cannes þann 27. janúar s.l.
Lagt upp í langa ferð.
Aðfaranótt sunnudags 21. jan.
s. 1. lagði Karlakórinn Vísir, 47
manna hópur, af stað frá Siglu-
firði og var förinni heitið til
Cannes i Suður-Frakklandi. Hafa
varð hraðann á, því að norðan
hríð hafði skollið á síðari hluta
dags, og var hætta á að leiðin
til Sauðárkróks tepptist, en á
Á undanförnum árum hef-
ur það orðið föst venja að
Leikfélag Gagnfræðaskóla
Siglufjarðar sýni einn gam-
anleik á vetri til fjáröflunar
fyrir ferðasjóð skólans. Þá
hefur Leiikfélag Menttaskól-
ans á Akureyri einnig kom-
ið og sýnt leik 1 sama til-
gangi fyrir sinn skóla. Er
það mikill tími og erfiði sem
fer í þetta hjá hinu unga
námsfólki.
voru 2656 lestir, á móti 1925 ár-
ið áður. Aukning. 38%. Póstflutn-
ingar námu 428 lestum á móti
351 lest árið áður. Aukning 22%.
FLUGIÐ í HEILD
Samanlagður fjöldi farþega
Flugfélags Islands á áætlunar-
flugleiðum innanlands og milli
landa árið 1967 var því 177.380.
Auk þess nokkuð á fimmta þús-
und farþegar í leiguflugferðum,
þannig að samanlagt fluttu flug-
vélar Flugfélags Islands árið 1967
yfir 180.000 farþega.
Sauðárkróki var ákveðið að flug-
vé lfrá Loftleiðum tæki hópinn
kl. 8 á sunnudagsmorgun. Ferðin
þennan 1. áfanga gekk vel og
með aðstoð snjóýtu skiluðu lang-
ferðabílar Siglufjarðarleiðar
hópnum til Sauðárkróks i tæka
tíð. Þaðan var flogið til Kefla-
víkur og stanzan þar nokkra
stund, en kl. 10,30 var haldið af
SAKLAUSI SVALLARINN
Að þessu sinni sýndi Gagn
fræðaskóli Siglufjarðar
gamanleikinn Saklausi svall-
arinn eftir Arold og Bach.
Leikstjóri var Júlíus Júlíus-
son. Með aðalhlutverkin
fóru Jónas 'Valtýsson, Guð-
mundur Pálsson, Sigurlaug
Þórhallsdóttir og Hrafnhild-
ur Guðnadóttir, en alls voru
leikendur 12. Yfirleitt fóru
hinir ungu leikendur vel með
hlutverk sín og sumir ágæt-
lega. Það sem einkum var
áfátt var framsögnin.
HALLÓ, DOLLÝ
Þá kom leikflokkur frá
Menntaskólanum á Akur-
eyri og sýndi gamanleikinn
Halló, Dollý, eftir Thomton
Wilder. Leikstjóri var Arnar
Jónsson. Hið unga fólk sýndi
góðan leik.
Öllu þessu unga f ólki j
þakka Siglf irðingar góða
skemmtun.
stað aftur og nú var fiogið í ein-
um áfanga til flugvallarins við
Nice, og þar lent eftir 7 klst.
flug.
Aðdragandi verðlaunaveitingar-
innar
er sá, að skömmu fyrir jólin
1966 komu út á vegum Fálkans
h. f. í Reykjavík tvær hljómplöt-
ur sungnar af Karlakórnum Vísi,
önnur platan með 4 lögum, en
hin með 14. Hljómplötur þessar
náðu strax mjög miklum vin-
sældum og á rúmlega hálfu ári,
eða til 1. júlí 1967, munu hafa
selzt af stærri plötunni um 3500
eintök, og mun það vera hæsta
sala á íslenzkri hljómplötu hér
á landi.
Alþjóðasamband hljómplötu-
framleiðenda, M.I.D.E.M., veitir
árlega verðlaun þeim aðila i
hverju landi, innan sambandsins,
sem hefur mesta hljómplötusölu.
Að þessu sinni varð það því
Karlakórinn Vísir, sem þessi
verðlaun hlaut, og í desember-
mánuði s. 1. kom bréf frá Har-
aldi Ólafssyni, forstjóra Fálkans,
þar sem MIDEM kunngerði að
Vísir hefði .hlotið þessi alþjóð-
legu verðlaun og jafnframt var
kórnum boðið að koma til Cann-
es, kynna sig þar með söng og
veita verðlaununum viðtöku.
Móttaka verðlaunanna.
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika við
að fara í svo langt og dýrt
ferðalag, ákváðu Vísismenn samt
að taka boðinu, og var lagt af
stað, eins og áður getur, þann
21. janúar og komið heim 28.
janúar. Var þá lent á Akureyri
og flutti hinn góðkunni Drangur
hópinn síðasta áfangann til
Siglufjarðar.
Verðlaunaafhendingin fór fram
laugardaginn 27. janúar á mikl-
um hátíðahljómleikum, í sam-
komusal, sem tekur um 1700
manns í sæti. Var hvert sæti
skipað í þessum stóra sal. Vísir
var fyrstur á dagskránni, kynnti
sig með söng og veitti söngstjór-
inn, Gerhard Schmidt, verðlaun-
unum viðtöku. Var það kl. 18,10
eftir íslenzkum tíma, en hátíða-
dagskráin hófst hálfri klst. fyrr
en augiýst hafði verið, vegna
mjög mikillar þátttöku. Verð-
launin eru líkan af hljómplötu,
með áletruðu nefni þess, er þau
hlýtur.
Öllu, sem fram fór á þessum
hátiðahljómleikum, var samstund-
is útvarpað um þrjár útvarps-
stöðvar í Vestur-Evrópu, þ. e.
Monte Carlo, Luxemburg og Ev-
rópa I. Auk þess var því einnig
sjónvarpað um franska sjónvarp-
ið, bæði í litum og svarthvítu.
Þátttaka í þessari hátíðadag-
skrá var talin hafa mikið aug-
iýsingagildi fyrir þá, sem þar
komu fram, en meðal skemmti-
krafta á dagskránni mátti sjá
mörg heimsþekkt nöfn. Verðlaun
MIDEM-sambandsins voru veitt
í 29 lönd og voru fulltrúar frá
þeim viðstaddir á þessari hljóm-
leikahátíð og veittu verðlaunum
viðtöku.
Vikuna frá 21.—28. janúar var
samfelld tónlistarhátíð í Cannes.
Voru á hvxerju kvöldi tónleikar
í tveimur samkomuhúsum, í öðru
klassískir tónleikar en í hinu tón-
leikar af léttara tagi. Voru þá
hljómleikar hvers kvölds í um-
sjá einnar þjóðar, og tónlist þess
lands flutt, og komu þar fram
úrvals listamenn.
Það, sem vakti sérstaka ánægju
Vísismanna — auk þess að nafh
Vísis var á skemmtiskránni með-
al heimsþekktra skemmtikrafta,
— var að sjá fána íslands blakta
meða lfána stórþjóðanna. Voru
fánar þátttökuþjóðanna dregnir
að hún á aðalsamkomuhúsinu,
og vildi svo skemmtilega til, að
fáni Islands var staðsettur í miðri
fánaborginni. Er vafalaust, að
þessi þátttaka Vísis hefur verið
ánægjuleg og vel heppnuð land-
kynning.
Að lokum
vill Karlakórinn Vísir færa
þakkir menntam.ráðherra Gylfa
Þ. Gíslasyni fyrir ágæta aðstoð,
einnig Haraldi V. Ólafssyni for-
stjóra Fálkans fyrir mikið undir-
búningsstarf vegna ferðarinnar.
Þá færa Vísismenn fararstjóran-
um, frú Láru Zóega, beztu þakkir
fyrir ágæta fararstjórn og marg-
víslega fyrirgreiðslu, svo og
fjölda mörgum öðrum er unnu
að þessari ferð Visis.
Ferðaskrifstofan Útsýn skipu-
lagði ferðina mjög vel og örugg-
lega, en Loftleiðir lögðu til far-
kostinn.
Söngstjóri Vísis er Gerhard
Schmidt, en formaður Sigurjón
Sæmundsson. — 1 Karlakómum
Vísi eru nú um 50 söngmenn.
Skólafólkið leikur
Leikstjóri (Júlíus Júliusson) og leikendur Leikfélags G. S.