Einherji


Einherji - 30.08.1968, Síða 3

Einherji - 30.08.1968, Síða 3
EINHERJI 3 ^CM DAGINN* Élto.G VEGINNPH jarðsett 9. ág. s. 1. STEENUNN JÓNSDÓTTIR frá Þangstöðum 77 ára, var jarðsett 17. ágúst og JÓHANN SKÚLASON, fyrrver- andi bóndi að Geirmundarstöðum, Sléttuhlið, 74 ára. Allt var þetta mesta sæmdar- fólk. Vel látið af öllum er til þekktu, með langan og farsælan starfsdag að baki. N.H. Hafís fram í júlí. Afla heyja suður á Hvanneyri. 130 nem endur í Reykjaskóla. Reykjaskóla i Hrútafirði 19. ág. Hafís var hér í Hrútafirði fram í júií, en eftir að hann fór og hlýnaði og vætti, spratt allt það sem sprottið gat. Sum tún mjög mikið kalin. Heyskapur hófst hér um slóðir í síðustu viku júlí og hefur gengið vel síðan. Horfur með heyfeng betri en búizt var við framan af sumrl. Nokkrir bændur héðan eru nú suður á Hvanneyri að heyja og flytja síð- an fenginn heim. ReykjaskóU er löngu fullsetinn fyrir næsta skólaár og varð að vísa mörgum frá. Um 130 nem- endur verða í skólanum á kom- andi vetri. 3. bekkur og lands- prófsdeUd hefja nám 1. okt., en aðrir bekkir 15. okt. Kennaralið skólans er hið sama og s. 1. vet- ur. Við skólann starfa 6 kennar- ar auk skólastjóra. Engar fram- kvæmdir hafa orðið við skólann á þessu ári, þrátt fyrir mikla þörf. Góð aðsókn hefur verið að BySgðasafni Húnvetninga og Strandamanna. Safnið verður op- ið fram I september. Ferðaskrif- stofan hefur starfrækt gistihús í skólanum í sumar, en það hætt- ir nú um mánaðamótin. Er það í fyrsta skiptl sem Ferðaskrif- stofan sér um slíkt, en skólinn hefur sjálfur, áður, haft slíka starfsemi. Ó.Þ. Kýr látnar út í júnílok. — Spretta orðin góð. Hey flutt sunnan úr Rangárvallasýslu. Laxveiði góð. Mjólk meiri en í fyrra. Hvammstanga 19. ágúst Heyskapur hér í Vestur-Húna- vatnssýsiu er nú í fuUum gangi, en byrjaði ekki almennt fyrr en í seinustu viku júU, eða um þrem vikum seinna en venjulega. Er nú orðin góð spretta þar sem kal er eltki. Mest er kalið í Staðar- hreppi og svo á einstaka bæ víða um sýsluna. Þar sem ekki er stórkalið getur heyskapur orðið í meðaUagi, en háarspretta verð- ur lítil eða engin. Heyfyrningar frá s. 1. vetri voru engar tU í sýsl- unni. Kýr voru yfirleitt eklú látn- ar út fyrr en seint £ júní, en viku af júU, eða svo, kom ágæt sprettutíð og hefur haldizt síðan. MjóUuirframleiðsIa er heldur meirl í sumar það sem af er, en í fyrra. Mun það Uklega stafa af því, að kýr voru seint látnar út og greri fljótt eftir það, og svo meiri fóðurbætisgjöf. Verið er þessa daga að flytja hey inn I sýsluna sunnan úr RangárvaUa- sýslu. Eru það fyrst og fremst bændur á þeim jörðum, sem kal- ið er mest, sem fá það hey. Laxveiði gengur vel í Miðfjarð- ará og Víðidalsá. Farnar hafa verið skemmti- ferðir fram á helðar, fram að Arnarvatni. Farið er upp eftir Víðidal og fram á afréttir Víði- dælinga. Álögð úsvör hér í Hvamms- tangahreppl voru 3,1 miUj. kr. á 99 gjaldendur. Var lagt á eftir lögboðnum útsvarsstiga og síðan veittur 14% afsláttur þar frá. Er útsvarsupphæðin svipuð að krónu- tölu og árið áður. B.S. Heyskapur gengur vel. Spretta orðin ágæt. Haganesvík 20. ágúst ÚtUt er fyrir að heyfengur verði vel í meðaUagi. Það spratt seint, en frá 10. júU má segja að sprettutíð hafi verið góð og nú orðið vel sprottið víðast hvar. Sláttur byrjaði með seinna móti, en góð heyskapartíð hefur verið þar til nú fyrir noklirum dögum. Einstaka bændur eru búnir með fyrri slátt og aðrir langt komnir. Almennt náðust hey upp nú fyrir norðanáttina og eru bændur að flytja þau í hlöður. Fram í döl- unum sést eklú kal í túnum, en út við sjóinn er aUmikið kal í sumum túnum. Tveir bændur eru byrjaðir seinni slátt, en yfirleitt byrjuðu bændur það seint slátt, að.. ekld.. verður almennt um seinni slátt að ræða. E.Á. Sláttur hófst 3 vikum seinna en venjulega. Heyskapur gengur vel. Skroppið á land- búnaðarsýninguna. Flatatungu 19. ágúst Hér eru sæmilegustu horfur með heyskap. Spretta er orðin góð, þar sem ekki er skemmt af kali. Sláttur hófst ekld fyrr en vika var eftir af júlí og er það hálfum mánuði til þrem vikum seinna en venjulega. Margir eru að mestu búnir að slá túnin og ná því upp, en víða mikið úti. Heyfengur getur því orðið í góðu meðallagi. Háarspretta verður hins vegar lítii eða engin, nema þá á einstaka blettum. Göngur byrja hér um 20. september, en slátrun sauðfjár alltaf viku fyrr. Allmargir bændur skruppu suður á landbúnaðarsýninguna, en gátu ekki stoppað nema stutt. Um 120 manna hópur fór með tveim flugvélum, þar af var allmargt frá Sauðárltróki. Skagfirðingar sáu um kvöldvöku á sýningunni. Karlakórinn Heimir söng. Svo var tvísöngur og vísnaþáttur og fleira til skemmtunar. G.Ó. Blöndu er góð og betri en í fyrra. J.T. Spretta varð góð. Heyhirð- ing gengur vel. Hólaskóli fullskipaður. Hólum í Hjaltadal 20. ág. Mikið hefur breytzt til batnað- ar með heysltapinn. Spretta varð að lolcum góð á ræktuðu og ó- skemmdu landi. Hér að austan- verðu í Skagafirði voru litlar kal- skcmmdir, en í Hegranesi og £ vestanverðum firðinum voru túna- köi á mörgum bæjum tilfinnan- leg. Heyhirðing hefur nú um tima gengið með ágætum og er hey- skapur sums staðar langt kom- inn. Hér á Hólum verða meiri hey en £ fyrra, og er þv£ gott að geta miðlað öðrum er á þurfa að halda. — Gestamóttaka var £ húsakynnum Hólaskóla £ sumar eins og undanfarin sumur. Skól- inn er fullskipaður nemendum fyrir næsta skólaár, og varð það fyrir iöngu. H. J. Meiri fiskafli en áður. Ráð- gert að kaupa 150—200 t. bát. Skagaströnd 20. ágúst Fiskveiðar hafa gengið mjög sæmilega hér £ sumar. Helga Björg hefur verið á togveiðum síðan £ apr£l og fiskað vel, 60—80 tonn á viku, en eitthvað dregið úr veiði nú siðast. Færabátar hafa lika fiskað sæmilega. Hefur þvi verið mikil vinna £ hraðfrystihús- inu, Hólanesi h. f., en það er eina hraðfrystihúsið hér. Mildl þrengsli i frystigeymslum, en ..bó ..ekki stöðvast. Dettifoss tók 3000 kassa af frystum fisld £ byrjun ágúst. Frystihúsið tekur ekki á móti minni fiski en 50 sm. Ráðgert er að kaupa hingað annan stóran bát, 150—200 t. til togveiða. Mundi það alveg tryggja hráefnisöflun tU frystihússins og sæmilega at- vinnu hér. Verið er að setja ljósaútbúnað á hafnargarðinn og gera við bryggju. — Heyskapur gengur vel. Spretta er orðin góð, þar sem jörð er óskemmd. Slátt ur hófst ekki fyrr en £ ágúst, en heyfengur getur orðið i meðaUagi brátt fyrir það. J.P. Miklar kalskeuundir.. Gróð- urlítið í júnílok. Ágæt spretta á hundadögum. Góð veiði í Blöndu. Ártúni 20. ágúst Það eru betri horfur með hey- skapinn en noldtur þorði að vona fyrir rúmum mánuðl siðan. Vet- urinn var fádæma langur og gjafafrekur. ÖU hey gáfust upp og bændur urðu að kaupa mjög mUdð kjarnfóður til að fram- fleyta bústofninum. Vorið var eindæma kalt og £s hér við fjör- ur fram eftir öUu. Iíalskemmdir mjög miklar og sum tún hálf- ónýt af þeim sökum. 1 júnilok var engin spretta og varla gróð- ur £ haga. 31eð komu hundadaga gjörbreytist tíðarfarið. Brá til sunnan- og suðvestanáttar með hita og hæfUegri úrkomu, og ár- angurinn lét ekki á sér standa. Á þrem vikum, frá miðjum júli til 10. ágúst, var sprettan ótrú- lega ör. Grasið þaut upp, þar sem jörð var óskemmd af kali. Sláttur hófst ekki almennt hér um slóðir fyrr en £ siðustu viku júlí. Og á stöku bæ munu ekki vera nema 7—10 dagar siðan slátt ur hófst. En nú er hann aUs staðar i fuUum gangi og gengur vel. Því að þótt nokkuð liafi rignt hafa hey ekld hrakizt og verður þvi nýting góð. Vegna hinna miklu kalskemmda.. og.. hversu seint spratt, verður heyfengur minni en áður og geta bænda tU kjamfóðurkaupa engin. Laxveiði £ Svartá er frekar dauf, þó meiri en tvö s. I. ár, enda þá i Iágmarki. Veiði i ERFIÐLEIKAR FRYSTI- HÚSANNA Framliald af 1. s£ðu öllu hjá hraðfrystihúsi SR, nema um 270 t. Siglfirðing- ur SI 150 var á togveiðum í rúma 4 mánuði og lagði á land um 1180 t. Fór síðan í slipp í byrjun júlí, en er nú aftur byrjaður á togveiðum. Hringur, 60 lesta bátur, hef- ur lagt upp hjá húsinu síð- an um árarnót. Var fyrst á línu og síðan á ufsaveiðum. Vonin GK 2, 250 t. bátur, hefur stundað togveiðar fyr- ir Norðurlandi síðan í apríl og lagt aflann upp hjá SR. Auk þessa hafa fleiri tog- bátar lagt upp afla einstaka sinnum. sinnum, og hafði frystihúsið, á tímabili, meiri fisk itil vinnslu en það komst yfir með góðu móti. Þá hef- ur frystihúsið tekið á móti fiski af allmörgum handfæra bátum, sem hafa aflað vel í júlí og ágúst. Hegur afh þeirra oft verið 13—18 tonn á dag. Vinna í frystihúsinu hefur því verið mjög mikil í vor og sumar. Erfiðlega hefur gengið að losna við framleiðsluna og frysti- geymslur svo til fullar, en ekki komið til stöðvunar enn, og von um að losna við eitthvað í þessum mánuði. Um síðustu mánaðamót tak- markaði frystihúsið móttöku fiskjar, þannig að nú er ekki tekinn smærri fiskur í fryst- ingu en 50 sm. HUGHEILAR ÞAKKIR sendum við öllum, sem sýndu okkur ómetanlega vináttu og samúð við fráfall HELGA VALDIMARS JÓNSSONAR og SIGURÐAR HELGASONAR, sem fórust með trillubátnum Njáli frá Siglufirði. — Sérstaklega þökkum við Slysavarnafélagi íslands og Slysavarnadeild Siglufjarð- ar, svo og öllum þeim mörgu, sem tóku þátt £ leitinni að þeim. Einnig þökkum við öllum Siglfirðingum fyrir höfðinglegar gjafir og vinarhug. — Guð blessi yldiur öll. Fyrir hönd foreldra, tengdafox-eldra og systkina: DRÖFN PÉTURSDÓTTIR OG BÖRN JÓHANNA SIGSTEINSDÓTTIR OG BÖRN f Ðánardægur og jarðarfarir Laugardaginn 24. ág. var jarðsungin frá Siglufjarðar- kirkju Kristrún Hallgríms- dóttir, Lindargötu 17, Krist- rún var elzti borgari Siglu- fjarðar, er hún lézt. F. 3. des. 1878 og því tæplega ní- ræð. Kristrún var kona Boga Jóhannessonar fyrrv. bónda frá Minni-Þverá í Fljótum. Bogi lézt fyrir þremur árum síðan. Þau Kristrún og Bogi áttu 10 börn, sem öll eru á lífi og fjöldi afkomenda þeirra er búsettur á Siglufirði. — Kristrún var blind og rúm- föst 6 síðustu árin. — Séra Kristján Róbertsson jarð- söng. Þriðjudaginn 27. ág. voru jarðsettir frá Siglufjarðar- kirkju þeir Helgi Valdimar Jónsson og Sigurður Helga- son. Báðir fórust þeir með lítilli trillu frá Siglufirði 12. júní s. 1. Víðtæk leit fór fram, en ekkert fannst fyrr en nú fyrir nokkrum dögum, að bæði líkin rak á land á Siglunesi. Er því líklegt, að slysið hafi orðið einhvers staðar skammt út af Siglu- firði. Helgi var frá Keflavík, en nýfluttur til Siglufjarðar. Fæddur 1. marz 1946 og því 22 ára er hann lézt. Sigurður var fæddur og uppalinn á Siglufirði. Fædd- ur 24. júní 1946 og því tæpra 22 ára er hann lézt. Báðir láta eftir sig konu og tvö ung börn hvor. Er mikill harmur kveðinn að hinum ungu konum og börnum þeirra, svo og for- eldrum og öðrum aðstand- endum, við hið sviplega frá- fall þessara ungu efnis- manna. Leitað eftir neyzluvatni Að undanfömu hefur far- ið fram byrjunarleit eftir neyzluvatni í Siglufirði. Bor- aðar vom 6 holur, misdjúp- ar, með liltlum jarðbor. Fór leitin fram á malareyrum vestan Fjarðarár. Jón Jóns- son jarðfræðingur stjórnaði leitinni og taldi hann að ár- angur réttlætti framhalds- bomn með stærri bor. Mun slíkur bor væntanlegur til Siglufjarðar næstu daga. Er hann á vegum Jarðhitadeild- ar raforkumála og mun þá frekari borun hefjast fljót- lega. Er vonandi, að sú bor- un beri jákvæðan árangur, því að brýn þörf er á að ná í jarðvatn til neyzlu og notk- unar í Siglufirði, því mest af því vatni sem nú er not- j að, er yfirborðsvatn og mjög mengað. BÆNDUR! Það eru hyggindi sem í hag koma að verzla við SöluféL Austur Húnvetninga Blönduósi Síldveiði sáralítil Talið er, að um 60—70 skip hafi verið við síldveiðar norðaustur í hafi um tíma, en nú séu þar um 50 skip. 1 ágústmánuði hefur verið sáratreg veiði og skipin reynt að salta um borð, það li'tía sem aflast hefur. Um síðustu helgi var aflinn orð- inn 38 þús. lestir og búið að salta um 15 þús. tunnur. Á sama tíma í fyrra var heild- arafhnn um 156 þús. lestir, en þá , hafði ekkert verið saltað á sama tíma. Mest hefur verið landað á Siglufirði, eða um 15.800 lestum. Af því hafa flutn- ingaskipin Haförninn og Nordgart flutt til S.R. um 15.400 tonn. Kaupfélög sameinuð Blöruiuósi 19. ágúst. Bændur fjöl- menntu á landbúnaðarsýninguna og létu mjög vel af sýningunni. Heyskapur gengur vel og útlit á því hér í A.-Hún. að heyöflun verði sæmileg í heild. Á ýmsum bæjum er þó kal tilfinnanlegt. Byrjað er að steypa eitt eða tvö ker á Skagaströnd, sem not- uð verða í höfninni og sett niður næsta sumar. Fáeinir reiðhestar voru seldir hér í sýslu til útflutnings, nú í sumar og fengu bændur 20 þús. kr. fyrir þá beztu. Nú mun eiga að velja 60 stóðhryssur, band- vanar en að öðru leyti ótamdar, einnig til útflutnings. Þær eiga að vera 4—8 vetra og fá bændur 9—12 þús. kr. fyrir hverja. Ekki er enn vitað hve margar þeirra verða keyptar hér. Búið er að samþykkja hjá Kaup félagi Húnvetninga á Blönduósi og Kaupfélagi Skagstrendinga, að sameina þessi félög. En Kaup- félag Skagstrendinga náði yfir þrjá hreppa: Vindhælishrepp, Höfðahrepp og Skagahrepp, og er sjálfstæðum rekstri þess lokið. Á. J. MIKH) LESEFNI biður næsta blaðs, sem út kem- ur i siðustu viku september. EINHERJI

x

Einherji

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.