Einherji


Einherji - 30.08.1968, Síða 5

Einherji - 30.08.1968, Síða 5
EINHER JI 5 -------------------+------------------------ Alúðar þakkir fyrir auðsýnda vinsemd og hlut- tekningu vegna andláts og jarðarfarar eiginmanns míns, föður og tengdaföður, SVANBEBGS PÁESSONAB Bagnheiður Bogadóttir Þóra Svanbergsdóttir Guðleifur Svanbergsson Hallfríður Guðleifsdóttir Bryndís Guðmundsdóttir Svanberg Pálsson — Dáinn 9. júlí 1968. Man ég ljúfu æskuárin, aldrei hrundu sorgártárin, engin blæddu svööusárin, sólin skein um hæð og mó. 1 ungum hjörtum æskan bjó. Æskan hvai-f og árin liðu, okkar jiroskastörfin biðu, brátt l>ór reynslusárin sviðu. Sólin hvarf á bak við ský. Og þrautabyrðin l>ung sem blý. Eöng og sár var sjúkdóms- gangan, sælt var því um vordag langan þegar blærinn blómaangan, breiddi yfir dal og fjöll, að liðin var þín æfin öll. Hvíldu nú í kyrrð og næði, þó konu og vinum sárin blæði. Legg ég þetta litla kvæði, sem liljukrans á beðinn þinn. Far vel kæri frændi minn. Kveðja frá ANTONI SIGUBBJÖENSSYNI Fæddur 26. sept. 1919. SVANBEBG PÁLSSON Farinn, horfinn frændi og vinur falla tár og hjartað stynur, ávallt þegar yfir dynur, ástvinurinn horfinn skjótt, dagur snýst í dimma nótt. fullyrði hins vegar ekkert um það. Stofninn í þessum byggingum er gamla ibúðar- húsið, sem hér var fyrir og út frá því er síðan byggt. Slíkum viðbyggingum er oft erfitt að koma fyrir svo að vel fari. Samt má segja, að þessi skólabygging hér sé furðu haganleg og á ýmsan hátt skemmtileg. En hún ber það með sér, að hafa verið byggð rneir af áhuga en efnum. EJfnaskorturinn er ekki sök þeirrar konu, sem borið hefur hitann og þung- ann af framkvæmdum hér á Löngumýri undamfarinn aldarfjórðung, en áhuga hennar og dugnaði er það hinsvegar að þakka, að skól- inn hefur þó starfað og á- reiðanlega lagt drjúgan skerf til menntunar og þroska þeirra ungu stúlkna, sem hér hafa dvahð. — Gerirðu þér vonir um að hafizt verði handa innan skamms um byggingu nýs kólahúss ? — Það verður naumast al- veg á næstunni, en þó hefur nú á tvennum síðustu fjár- lögum verið framlag 'til nýrr ar skólabyggingar hér. — Nú hafa verið, eða voru a. m. k. nokkuð skiptar skoð- anir um það, hversu vel skólinn væri settur hér á Löngumýri. Pinnst þér e.t.v. koma til álita að færa hann, þegar horfið verður að bygg- ingu nýs skólahúss? — Ég er nú ný hér í starfi og sennilega ekki rétt að ég sé að leggja neinn dóm á þetta mál, að svo komnu. Þó vil ég segja, að ég hef ekki enn komið auga á neina knýjandi ástæðu til þess að flytja skólann héðan. Hér er hann mjög vel í sveit settur, í miðju héraði en samt of- urlítið afsíðis, en þó ekki svo mikið að neinn bagi sé að. Hér er rúmt um skólann, því að honum fylgja 10 ha. lands. Sennilegt tel ég, að byggt verði hér. Og hér kann ég vel við mig. Líkar vel við norðlenzka loftslagið, Skagafjörð og Skagfirðinga, það sem ég hef kynnst þeim. mhg- Félagsræktun til að tryggja fóður- öflurs Þótt kals og brigðullar grassprettu gæti efalaust minna í Skagafirði en ýms- um héruðum öðrum, þá árar þar þó misjafnlega, eins og annars staðar. Eru það eink- um útnesjajarðir og þær, sem hátt Hggja yfir sjó, sem þá verða fyrir þeim áföllum öðrum fremur. Skagfirzkir bændur hafa nokkuð velt því fyrir sér, hvernig við þessu skuli brugðizt og hvaða aðgerðir séu vænlegastar til þess, að tryggja fóðuröflim í hérað- inu betur en nú er. Hefur helzt verið staðnæmst við þá hugmynd, að koma á fót félagsræktun einhvers stað- ar þar frammi í héraðinu, sem unnt er að ná eignar- haldi á nægilega stóru, sam- felldu og álitlegu ræktunar- landi. Er norðvesturhlut Vallhólmsins nú einkum und- ir smásjánni í þessu augna- miði. Fyrir nokkru kom stjórn Búnaðarsambands Skagfirð- inga, oddvitar og búnaðar- félagsformenn saman til fundar á Hólum til umræðu um þetta mál. Var þar kos- in framkvæmdanefnd til þess að hafa með höndum frek- ari undirbúning og athugun málsins, gerð kostnaðar- áætlun, en afgreiðslu að öðru leyti vísað heim 1 hreppana. Framkvæmdanefndina skipa: Jóhann Lárus Jóhannesson, oddviti á Silfrastöðum, Björn Gunnlaugsson, oddviti Brim- nesi, Björn Egilsson, oddviti Sveinsstöðum, Pétur Jó- hannsson, oddviti, Glæsibæ og sr. Gunnar Gíslason, alþm., Glaumbæ. Hefur mál- ið nú verið rætt í flestum hreppum og búnaðarfélög- um sýslunnar og yfirleibt fengið góðar undirtektir. Samkvæmt þeim tillögum, sem lágu fyrir nefndum fundum, er svo til ætlazt, að hreppabúnaðarfélögin leggi fram árlega, næsitu 10 ár, þriðjung þess jarðræktar- framlags, sem í hlut þeirra kemur. Auk þess leggi hreppsfélögih sameiginlega fram kr. 400.000,00 á ári næstu 5 ár og skal þeirr upp hæð jafnað niður á hrepp- ana eftir landverði jarða, samkvæmt hinu nýja fast- eignamati. Að sjálfsögðu verður að gera ráð fyrir því, að ríkis- valdið styrki þessar fram- kvæmdir verulega, enda naumast eðlilegt, að það styðji frekar við bakið á öðr- um landnámsaðgerðum en þeim, sem miða að því að tryggja fóðuröflun í landinu. Kæmi sér nú vel að hafa í handraðanum þá fjárhæð, Kappreiðar á Vallabökkum Sunnudaginn 21. júlí s. I. fóru fram á Vallabökkum hinar árlegu kappreiðar hestamannafélagsins Stíg- anda í Skagafirði. Framan af degi rigndi nokkuð og óttuðust ýmsir, að það drægi úr aðsókn á „bakkana", en úr hádegi stytti upp og hélzt þurrt veður úr því til kvölds. Segja má, að veður hafi ver- ið í svalara lagi fyrir fólk, sem langtímum saman stóð hreyfingarlítið, en þeim mun betra fyrir hestana. Fjöl- menni var mikið, svo sem venja er á þessum hestamót- um Stíganda. Samkoman hófst með því, að góðhestum var. riðið hóp- reið eftir skeiðvellinum og tóku þátt í henni um 40 ridd arar. Úrslit í einstökum hlaupum urðu sem hér segir: Folahlaup, 250 m, (hlaup- tími í undanrás er milli sviga). 1. Hringur Friðriks Stefánssonar, Glæsibæ, 20,5 sek. (20,2), 2. Neisti Krist- jáns Gunnarssonar, Varma- læk, 20,9 sek. (21,0), 3. Kyndill Rafns Sveinssonar, Áshildarholti og Jóns Hjör- leifssonar, Kimbastöðum, 21,5 sek. (20,7). 300 m hlaup: 1. Fjalla- Skjóni Stefáns Jónssonar, Miklabæ, 23,7 sek. (24,1), 2. Goði Hrefnu Magnúsdótt- sem Landnám ríkisins var svift, þegar átti að fara að spara á Aiþingi í vetur. mhg- Jónas Jónsson frá Hriflu lézt 19. júlí s. 1., 83 ára að aldri. IJltför hans fór fram 26. júlí og hvilir hann í Foss- vogskirkjugarði. Með Jónasi er horfinn af sjónarsviðinu fjölhæfasti og stórbrotnasti áhrifamaður í íslenzku þjóð- lífi á þessari öld og þó-tt lengra sé leitað. Hér eru ekki möguleikar á, enda áður gert og óþarft að endurtaka um uppruna hans, ættir og einstök störf í þágu alþjóðar. Sagan mun geyma Jónas Jónsson frá Hriflu sem áhrifaríkasta og stórbrotnasta stjómmála- mann þjóðarinnar á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar. Og áhrif hans voru miklu víðtækari en dugmikils stjórnmálamanns. Hann hlaut í vöggugjöf óvenjuleg- ar gáfur og aJtgervi. Vaxinn af kjarnameiði íslenzkra bændaætta og fóstraður í þeirri menningu, sem á ræt- ur sínar í íslendingasögunni, og varð jafnframt heims- borgari sinnar tíðar. Úr Jón- asi mátti gera marga menn og hefði hver þó orðið, sjálf- krafa, góður foringi sinnar sveitar. Hann var sterkasti samstarfsmaður íslenzks sjálfstæðis. Andlegur leið- togi tveggja áhrifamestu ur, Mælifelli, 23,8 sek. (23,4) 3. S-kjóni Sigurjóns Jónas- sonar, Syðra-Skörðugili, 23,9 sek. (23,4). 350 m hlaup: 1. Sörli Jóns Gíslasonar, Sauðárkróki, 27,0 sek. (27,1), 2. Skugga- blakkur Bærings Hjartar- sonar, FjaUi, 27,4 sek. (27,3) 3. Svanur Hrólfs Jóhannes- sonar, Sauðárkróki, 27,6 sek. (28,3). Dómnefnd kappreiða skip- uðu: Sveinn Guðmundsson, Sauðárkróki, sr. Gunnar Gíslason, Glaumbæ og Jó- hann Jóhannesson, Sólheim- um. Að kappreiðum loknum fór fram sýning góðhesta og jafnframt var lýst dóm- um um þá. Komu þeir að venju fram í tveimur flokk- félagsmálahreyfinga: Ung- mennafélaganna og Sam- vinnuhreyfingarinnar. Rit- snilld hans var með sérstök- um yfirburðum og þekking hans á sögu og bókmennt- um með hreinum ólíkindum. Jónas fylkti liði framfara- manna í stjórnmálum og var á þeim vettvangi, sem og öðrum, hugsjónaríkari, hug- kvæmari og áræðnari en aðr- ir forystumenn. Þess vegna varð framkvæmd hans svo stór og afköst mikil á stutt- um valdatíma. Að sjálfsögðu tók Jónas þátt í flokkadeilum síns tíma Hann var dáður og hataður meira en aðrir samtíðar- menn. Fer svo oft um stór- brotna foringja. Sjálfur var hann svo vopnfimur og á- ræðinn, að hann vann í hverri orrustu. Og nú er Jónas frá Hriflu allur, en verk hans og hug- sjónir munu lifa og hann hjá þjóðinni í þeim. Við frá- fall Jónasar sér Framsókn- arflokkurinn á bak sterk- asta stofnanda sínum og stór bro'tnasta foringja. En þjóð- in kveður mann, sem var sterkari áhrifavaldur í lífi hennar, hugsjónum og fram- förum en flestir aðrir. um: alhliða góðhestar og klárhestar með tölti. Af al- hliða góðhestum dæmdust beztir: 1. Tvistur Eysteins Jóhannessonar, Stokkhólma, einkunn 8,50, 2. Hrani Krist- ínar Jóhannsdóttur, Tyrf- ingsstöðum, einkunn 8,0, 3. Tvis'tur Eyjólfs Pálssonar, Starrastöðum, einkunn 7,30. Af klárhestum með tölti: 1. Glanni Friðriks Stefáns- sonar, Glæsibæ, einkunn 7,75, 2. Gulltoppur Halldórs Sigurðssonar frá Stokkhólma einkunn 7,47, 3. Skjóni Ingi- mars Pálssonar, Litladal, einkunn 7,40. Dómnefnd góðhesta skip- uðu: Einar Höskuldsson, Mosfelli, Þorvaldur Ásgeirs- son, Blönduósi og Stefán Framh. á 6. síðu J. Þ.

x

Einherji

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.