Einherji - 31.07.1969, Side 1
<£<$•
Blaö Framsóknarmanna í Norðurlandskjördœmi vestra.
5. tölublað.
Fimmtudagnr 31. júlí 1969
• Samvinnan skapar
betri lifskjör.
• Verzlið við sam-
vinnufélögin.
• Samvinnufélögin
skapa sannvirði á
vöru og auka öryggi
livers byggðarlags.
• Gangið í sam-
vinnufélögin.
38. árgangur.
Nýtt frystihús tekur til
starfa í Siglufirði -j<
Framleiddi fyrir 4 millj. kr. fyrsta mánuðinn. -
Útborguð vinnulaun 1,2 millj. kr. á sama tíma.
Sá ánægjulegi atburður * " / 'r
skeði í Siglufirði s. 1. vetur, í - !' '.~Si
:að stofnað var nýtt hluta-
félag til kaupa og starf-
rækslu á ,,lsafoldar“-eign-
inni, sem áður var eign Þrá-
ins Sigurðssonar, en ekki
verið starfrækt sem frysti-
hús um allmörg ár. Nú starf
ar frystihúsið af fullmn
krafti og veitir atvinnu milli
60—70 manns.
Einherji hitti að máli niðri
í „ísafold", þ. 16. júlí, þá
Skúla Jónasson framkvæmda
stjóra og Daníel Baldursson
verkstjóra .
Kjördœmisþing
1969
— Segðu mér, Skúli, hvað
heitir nýja félagið?
Það heitir Isafold h. f.,
eins og félagið sem áður átti
eignina.
— Hvenær, og í hvaða til-
gangi var félagið stofnað ?
Það var stofnað 4. febr.
s. 1. til þess að kaupa og
starfrækja „Isafoldar“-eign-
ina, sem Þráinn Sigurðsson
átti, eða Isafold s. f. Kaup-
verðið var 4,2 millj. króna.
— Þurfti ekki húsið að-
gerðar og endurbóta við?
Jú. Við fengum tækni-
mann frá Sölumiðstöðinni
til að skoða húsið og gera
áætlun um viðgerð og end-
urbætur. Áætlunin var upp
á 3,2 millj. og við erum að
vona að hún standist nokk-
urn veginn.
— I hverju voru endur-
bæturnar fólgnar?
Það má segja að það hafi
farið fram algjör endurbygg
ing innan húss, einkum á
frystiklefum og vélabúnaði.
— Hvar fenguð þið fé til
endurbótanna ?
Ritstjóri Einherja rœðir við framkv.stjóra og verkstjóra Isafoldar.
Fyrir milligöngu atvinnu-
málanefndar fengum við úr
Átvinnujöfnunarsjóð um 3
millj. kr.
— Daníel. Hvenær hóíst
vinnsla í húsinu?
7. júní, og síðan hefur
verið unnið svo til hvern
virkan dag og stundum um
helgar. Og núna höfum við
þegar tekið á móti 350 tonn-
um af fiski.
— Hvernig er fiskurinn?
Hvaða skip leggja upp hjá
ykkur?
Við höfum verið heppnir
með hráefni. Það hefur ver-
ið gott. Húni n. leggur upp
hjá okkur. Hann er á tog-
veiðum. Tjaldur er með nót.
Hann landaði nú í gær 27 t.
Auk þess eru smærri bátar
(trillur). Svo höfum við tek-
ið fisk af aðkomubátum og
ögn af togaranum Hafhða.
— Þú hefur áður fengizt
Kvenfólk að störfum I hraðfrystihúsi Isafoldar.
við verkstjórn í frystihúsi,
Daníel?
Já, ég var aðstoðarverk-
stjóri hjá frystihúsi S. R.
í 4—5 ár áður en við byrj-
uðum hér.
— Hvað vinnur margt
fólk hérna núna?
66 manns, þar af 19 karl-
menn. Nokkrar stúlkur
vinna hálfan dagixm.
— Hvert fer framleiðsl-
an?
Öll á Ameríkumarkað.
Söluverð þeirrar vöru er við
höfum unnið til þessa, er
um ein millj. kr. á viku.
— Skúh. Er ekki ætlunin
að starfrækja húsið allt ár-
ið?
Jú, við munum reyna það,
ef hráefni fæst. Á því bygg-
ist rekstur hússins fyrst og
fremst.
— Er fyrirhuguð einhver
frekari starfræksla en nú
er?
Já, við munum salta síld
ef tækifæri gefst, því að hér
er sæmileg aðstaða til þess.
Og svo salta fisk, ef ekki
er hægt að anna vinnslu á
annan hátt. Hér eru líka
hús til þess.
— Hverjir eru hluthafar
hins nýja félags?
iVið erum 8. Sex ungir
Siglfirðingar og Þráinn Sig-
urðsson, sem átti „lsafoíd“
áðxrr og Bjöm Pálsson alþm.
Skúli Jónasson er fram-
kvæmdastjóri, Bjami Þor-
steinsson form. félagsstjórn-
ar, Daníel Baldursson vara-
formaður og verkstjóri í
frystihúsinu. Stefán Þór
Haraldsson, Hinrik Andrés-
son og Hilmar Steinólfsson.
Kjördæmisþing Framsókn-
armanna í Norðurlandskjör-
dæmi vestra var haldið í
Siglufirði 19. og 20. júní s. 1.
Þingið setti formaður sam-
bandsins, Guttormur Ósk-
arsson, Sauðárkróki. Fund-
arstjóri var kjörinn Jóhann
Þorvaldsson, Siglufirði. —
Fundarritarar Ámi Gísla-
son, Eyhildarholti og Kristó-
fer Kristjánsson, Köldukinn.
Þingið hófst kl. 17 á laug-
ardag 19. júní og var lokið
kl. 20 á sunnudagskvöld.
Þingið sátu 53 fulltrúar frá
flokksfélögum í kjördæminu.
Þar af vom 14 fulltrúar frá
félögum ungra manna. Auk
þess 7 manna kjördæmis-
stjórn, 3 þingmenn Fram-
sóknarfl. í Norðurlandskjör-
dæmi vestra: Skúli Guð-
mundsson, Ólafur Jóhannes-
son og Bjöm Pálsson. Þá
sátu þingið: Þráinn Valdi-
marsson framkvstj. Fram-
sóknarfl. og Tómas Karls-
son, ritstjórnarfulltrúi, auk
nokkurra gesta. Á þinginu
störfuðu eftirtaldar nefndir:
Prófkjörsnefnd (11 menn),
kjördæmisnefnd (13 menn),
Skipulags- og blaðnefnd (10
menn), Landsmálanefnd (13
menn). Dagskrá var þann-
ig. Fyrri dagur: 1. Skýrsla
stjórnar og blaðið Einherji.
2. Stjómmálayfirlit og um-
ræður .Síðari fundardagur:
1. Álit og tillögur nefnda,
mnræður og afgreiðsla. 2.
Ýmsar kosningar.
Stjómmálayfirlit og
umræður.
Að lokinni skýrslu stjóm-
ar kjördæmissambandsins
flutti Ólafur Jóhannesson,
alþm., formaður Framsókn-
arflokksins, ýtarlegt erindi
um landsmálin og atvinnu-
málaþróunina í kjördæminu
Keypt hefðu verið skip til
Sauðárkróks og Skagastrand
ar og væntanlegt nýtt skip
til Hofsóss. Frystihús ena-
urbætt á Siglufirði og einn-
ig gangsett frystihús á
Sauðárkróki og Hofsósi, og
fleiri atvinnutæki sett á
stofn og væntanleg, svo sem
sútunarverksmiðja á Sauð-
árkróki. Þá ræddi hann um
hafnarbætur og skólamál og
fjárframlög til þeirra. Gat
um Norðurlandsáætlun og
hvernig hún væri til komin,
en þrátt fyrir gefin loforð
og ítrekaðar eftirgrennslanir
væri áætlunin ekki enn fram
komin. En væntanlega yrði
fé, sem áætlunin hefði yfir
að ráða, úthlutað á þessu
ári, — en þá af ríkisstjórn-
inni. Taldi Ólafur það var-
hugaverða braut, sem á síð-
ustu árum hefði verið farið
inn á, þegar ríkisstjórnin
sjálf væri farin að úthluta
á eigin spýtur himdruðum
milljóna af því fé, sem frarn-
kvæmdaáætlanir ættu að
hafa til umráða. Benti Ólaf-
ur síðan á ýmislegt, sem úr-
skeiðis hefði farið og hvaða
leiðir Framsóknarflokkurinn
vildi fara, til þess að leysa
ýmis vandamál, sem við er
að etja.
Að loknu erindi Ólafs tók
Skúli Guðmundsson alþm. til
máls. Gat um hina gífurlegu
hækkun, sem orðið hefði á
erlendum skuldum þjóðar-
innar, og þá hættu, sem af
því stafaði. Ræddi um raf-
væðingu sveitanna og átaldi
hversu seint gengi að ljúka
henni. Miklar umræður fóru
síðan fram að framsöguer-
indum loknum og tóku 11
fundarmanna til máls, auk
frummælanda.
Samþykktir og kosningar.
Seinni fundardaginn lögöu
nefndir fram ályktanir og
tillögur, sem voru mikið
ræddar og síðan afgreiddar
og vísast til þeirra á öðrum
stað í blaðinu.
Síðan fóru fram kosning-
ar. Kosin var stjórn kjör-
dæmasambandsins, en hana
skipa 9 menn. 7 menn í mið-
stjórn Framsóknarflokksins.
5 menn í kjörstjórn og 10
menn í Framboðsnefnd.
Á sunnudagskvöld lauk
þingið störfum. Fundarstjori
Jóhann Þorvaldsson þakk-
aði þingfulltrúum og öðrum
gestum komuna til Siglu-
fjarðar og góð og mikil
þingstörf. Guttormur Ósk-
arsson mælti lokaorð. Taldi
þing þetta hafa unnið vel og
hvatti Framsóknarmenn til
sóknar hér í kjördæmmu.
Þakkaði starfsmönnum þings
ins góð störf. Siglfirðingum
góðar móttökur. Óskaði öll-
um góðrar heimferðar og
sagði þingi slitið.
Auk þeirra Þráinn og Björn,
eins og áður er sagt.
Einherji þakkar þeim Skúla
og Daníel samtalið og upp-
lýsingamar, og áttmenning-
unum fyrir þeirra lofsverða
framtak til atvinnuuppbygg-
ingar í Siglufirði. J. Þ.
Afli fogara og
togveiðíbáta mun
meiri en í fyrra
Sigluf., 23. júli
Aflabrögð fyrir Norður-
landi á togurum og togveiði-
bátum hafa verið mun betri
það sem af er þessu ári en
á sama tíma í fyrra. Hafliði
landaði í gær 225 lestum og
hefur þá fiskað 2600 tonn
síðan um áramót, þar af
landað á Siglufirði um 2500
tonnum. Er það um 700
tonnum meira aflamagn en
á sama tíma í fyrra. Tog-
bátarnir Siglfirðingur og
Margrét hafa einnig fiskað
vel. Aftur hefur afli smæiri
báta (trillur og htlir dekk-
bátar), sem eru með hand-
færi, verið minni en í fyrra.
Gæftir hafa verið stopular
og afli rýr. Frá Siglufirði
stunda nú handfæraveiðar
20 opnir vélbátar (trillur)
og 5 tíu til tólf tonna dekk-
bátar. Auk aðkomubáta er
leggja hér upp við og við.
Frystihús S.R. hefur þeg-
ar tekið á móti mun meiri
afla en í fyrra og 15. júlí
hafði það framleitt 42 þus.
kassa eða um 1100 tonn af
frystum flökum. Frá því
frystihúsið ísafold tók til
starfa 7. júlí s. 1. hafði bað
tekið á móti um 350 tonm
um um miðjan júlí.