Einherji


Einherji - 31.07.1969, Blaðsíða 6

Einherji - 31.07.1969, Blaðsíða 6
6 EINHER JI Samvinnustarf KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA 80 ÁRA Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga var haldinn í samkomuhúsinu Bifröst á Sauðárkróki dagana 19. og 20. júní s. 1. Fundarstjori var Gísli Magnússon, fimd- arritarar Halldór Benedikts- son og Halldór Hafstað. — Fundinn sátu, auk félags- stjórnar, framkvæmdastjora og nedurskoðenda, 10 deild- arstjórar og 46 kjörnir full- trúar. Á fundinum var all- margt gesta . Fundarstj. minntist þeirra félagsmanna, 10 alls, er lát- izt liöfðu frá því er síðasti aðalfundur var haldinn, þ. 14. og 15. júní 1968. Risu fundarmenn úr sætum í virð- ingarskyni við minningu hinna látnu félagsmanna. Formaður félagsstjórnar, Tobías Sigurjónsson, skýrði í stórum dráttum frá starf- semi félagsins á árinu 1968. Minnti hann á, að félagið væri 80 ára á þessu ári. Skýrði hann frá því í skýrslu sinni m. a., að fjárfesting hefði verið með minnsta móti á síðasta ári, svo og allar framkvæmdir. Kaup- félagsstjóri, Sveinn Guð- mundsson, lagði fram reikn- inga félagsins og greindi frá rekstri þess, svo og horfum, í mjög giöggu og ýtarlegu máli. — Framkvæmdastjóri Fiskiðjimnar h. f., Marteiim Friðriksson, skýrði frá rekstri hennar og afkomu á árinu 1968; var rekslur hennar stórum hagstæðari en 1967. 1 ræðu kaupfélagsstjóra kom fram að félagsmenn í árslok 1968 voni 1279. Á framfæri þeirra, að þeim sjálfum meðtöldum, voru 2937 manns. — Fastráðnir starfsmenn við verzlun og fyrirtæki voru 101 um ára- mót. All stóku 466 manns laun hjá félaginu. Greidd vinnulaun, svo og greiðslur fyrir akstur og þjónustu, námu á árinu 1968 kr. 29.924.822,00. Sams konar greiðslur Fiskiðju Sauðár- króks h.f. voru 7.309.849,35. Námu því launagreiðslur á vegum félagsins alls rúmrnn 37,2 milljónum króna. Opin- ber gjöld, þ. e. aðstöðugjald, eignaútsvar, eignarskattur, kirkjugarðsgjald, iðnlána- og iðnaðargjald, námu samtals kr. 1.644.319,00. Greiddur söluskattur á árinu nam alls kr. 6,4 millj. röskum, þar af greitt með vörukaupum kr. 1,4 millj. tæpar. Smásala á innlendum og erlendum vörum, ásamt um- boðssölu og þjónustu, nam kr. 128,2 millj. tæpum, sem er röskum 14 millj. kr. hærra en 1937, eða 12,26%. Söluverð landbúnaðarvara nam kr. 151,3 millj. röskum, og er það rúml. kr. 37,2 millj. kr. hærra en áður. Heildarvelta félagsins var 279,5 millj. kr. rösklega. Hækkun rúml. kr. 51,2 millj. eða 22,34%. Framleiðsla Fiskiðju Sauðárkróks h. f. er hér ekki meðtalin, en hún nam kr. 25.milljónum. Fram leiðendur fengu greitt fyrir landbúnaðarvörur 109,5 millj. kr. tæplega, eða 9,8 millj. kr. meira en árið áður. Brúttótekjur af vörusölu voi-u 17,65%. Vörubirgðir verzlana og fyrirtækja voru afskrifaðar samkvæmt venju undaníar- inna ára, og eru bókfærðar til eignar á 22,5 millj. kr. tæplega, hækkun um 7,8 millj. Er hækkunin aðallega fólgin í auknum fóðurvöru- birgðum, en samkv. áskorun hafísnefndar og búnaðar- samtakanna keypti félagið fóðurvörubirgðir um og fyr- ir áramót, sem nægja átLu til maíloka með venjulegri notkun. Bændur drógu mjög úr fóðurvörukaupum með þeim afleiðingum, að sam- dráttur varð í mjólkurfram- leiðslu fyrstu 3 mánuði árs- ins 1969 um 19,6%, mióað við fyrra ár. Fóðurvörubirgð ir eru því miklar, voru um mánaðamótin janúar—febr. að útsöluverðmæti kr. 13,2 milljónir. Álagning 10% er íalgeru lágmarki. Einnig varð aukning vörubirgða vegna tveggja nýrra verzl- ana á árinu. Útibú í Varma- hlíð hóf starfsemi sína í maímánuði. Kaupfélag Aust- ur-Skagfirðinga varð að hætta starfsemi í nóvember- mánuði vegna fjárhagseríið- leika. Kaupfél. Skagfirðinga leigði verzlunarhús félags- ins, keypti vörubirgðir og opnaði þar verzlun 3. des. Þessi þjónusta var veitt samkvæmt eindreginni ósk stjórnar Kf. Austur-Skag- firðinga og stjórnar S. 1. S. Er nú unnið að sameiningu félaganna. Afskrift vörubirgða nam alls kr. 13,26 milljónum. — Bókfærð fjárfesting á árinu var 3,5 millj. kr. Afskrift umfram fjárfestingu um 1,3 millj. kr. Innstæður í við- skiptareikningum nema rösk lega 20,6 millj. kr. Innláns- deild 34,5 millj. kr. Buridið fé í Seðlabankanum vegna Innlánsdeildar tæpar 7 millj. kr. Skuldir viðskiptamanna nema alls kr. 22,6 mihj. tæpum. Hagur félagsins út á við hefur batnað, m. a. vegna þess, að birgöir Mjólkursamlagsins hafa minnkað og fjárfesting ver- ið lítil. Fasteignir félagsins, sem eru að fasteignamati tæpl. 3,4 millj. kr., en að bókfærðu verðmæti kr. 26,6 miilj. rösklega, eru brunatryggð- ar fynr kr. 103,5 millj. tæp- iega. Eins og fyrr var greint, nam rekstrarhagnaður K. S. á árinu 1968 kr. 978.619,59. Var honum ráðstafað þann- ig, samkv. tihögum stjórnar og ályktun aðalfundar, að í Varasjóð voru lagðar kr. 500.000,00, í Menningarsjóð kr. 120.000,00, í Ferðasjóð kvenna kr. 50.000,00, afhent Héraðssjúkrahúsi Skagfirð- inga til kaupa á lækninga- tækjum kr. 300.000,00 og yfirfært til n. á. kr. 8.119,59 Kaupfélag Skagfirðinga er 80 ára á þessu án, stofnað 23. apríl 1889. I kaffihléi hinn fyrra fundardag flutti Gísli Magnússon afmæiis- ræðu. Að kvöldi þess sama dags var fulltrúum og gest- um sýnd kvikmyndin „79 af stöðinni“, fyrsta kvikmynd, sem gerð er út af skáldsögu eftir skagfirzkan höfund. ! Frú Hólmfríður Jónasdótt ir á Sauðárkróki flutti fé- laginu ljóðakveðju ágæta, og frú Hulda Sigurbjörns- dóttir, bæjarfulltrúi, flutti kveðjur og árnaðaróskir frá verkakvennafélaginu Öld- unni og verkamannafélaginu Fram á Sauðárkróki. Úr félagsstjóm átti að ganga Gísli Magnússcn í Ey- hildarholti. Var hann endur- kjörinn. Aðrir stjórnarnefnd armenn eru: Tobías Sigur- jónsson í Geldingaholti, for- maður, Jóh. Salberg Guð- mundsson á Sauðárkróki, ritari, Björn Sigtryggsson á Framnesi og Jón Eiríksson í Djúpadal, meðstjórnendur. Árni Gíslason, Eyhildarholti var endurkjörinn endurskoð andi, en ásamt honum gegn- ir því starfi Vésteinn Vé- steinsson, Hofstaðaseli. Á aðalfundinum voru að venju samþykktar ýmsar tillögur. En eigi er þess kostur, sakir rúmleysis, að rekja þær hér. G. M. SkoðanakönnuR, prófkjör, sem undir- búningur við val á mönnum á fram- boðsiista til apngiskosninga. Á kjördæmisþingi 1968 var kjörin tíu manna nefnd er tilnefna skyldi aht að 20 menn, er tækju þátt í próf- kjöri til framboðs við næstu aiþmgiskosningar. Formað- ur nefndarinnar var Gísh Felixson, Sauðárkróki. Neínd in sldlaði hsta til formanns kjördæmisstjórnar með 17 nöfnum. Kjördæmisþingið samþykkti síöan framlagð- an hsta. Þingið kaus síðan nýja prófkjörsnefnd og lagði hún íram eítirfarandi áiykt- un, er þingið samþykkti: „Almenn skoðanakönnun skal viðhöfð, sem undirbún- ingur við val á mönnum á framboðslista flokksins fyrir næstu kosmngar ú kjördæm- inu, og skal henni hagað sem hér segir: 1) Lagður skal fram listi, samþ. af kjördæmisþingi, meö nöfnum aht að tuttugu manna, er samþ. hafa að taka þátt 1 siikri könnun. Nöfnum þessum sé raðaó á listann eftir stafrófsröð. 2) Kjósandi skal velja með númeraröð aht að fimrn nöfnum, er - á hstanmn standa, eða annarra er hann vill að skipi efstu sætin og skal talningu haga svo, að fyrsti maður fær heilt atkv., annar maður 4/5, þriðji 3/5 o. s. frv. 3) Rétt til þátttöku í skoð anakönnun þessari hafa all- ir flokksbundnir Framsókn- armenn í kjördæminu, sem náð hafa kosningaaldri er skoðanakönnunin fer fram, svo og þeir er gefa yfiríýs- ingu um stuðning við flokk- inn. 4) Undirbúningur skoð- anakönnunarinnar er í hönd- um fimm manna yfirkjör- stjórnar, er kosin er af kjör- dæmisþingi, skal hún annast um framkvæmd hennar, annast talningu og úrvinnslu og skila síðan niðurstöðum til framboðsnefndar. Skoð- anakönnun þessari skal lok- ið fyrir næsta kjördæmis- þing. 5) Kjördæmisþingið kýs 110 manna framboðsnefnd er vinni úr niðurstöðum skoð- anakönnunar og leggi fram rökstuddar tillögur um fuil- skipaðan framboðslista til kjördæmisþings th fullnaöar samþykktar.“ Vinafundur samlanda úr tveímur helmsáifum Útibú K. S. í Varmahlíð, liggur um þjóðbraut þvera. Frostastöðum, 12. júlí SíðastUðiim föstudag kom í heimsókn hingaö til Skagafjarðar hópur Vestur-Islendinga, undir leiðsögn og forystu Gísla Guð- mundssonar. Voru ferðamennirnir á ýmsum aldri, aUt frá unglingum upp í níræða öldunga. Er ellin þeim eklú þung, sem leggja í þvílíkt ferðalag eftir 90 ára jarð- vist. Hópurinn gisti á Blönduósi nóttina áður, ltom við í byggða- safninu í Glaumbæ, ók svo til Sauðárkróks, Hóla, út Skaga- fjörð austanverðan, til Óiafs- fjarðar, fyrir Múlann og tU Ak- ureyrar. Lét ferðafólkið vel yfir komu sinni í Skagafjörð, þótt á skyggði nokkuð, að veður var ekki sem bezt. Þokulaust var að vísu og fremur hlýtt, en gekk á með rigningarhryðjum. Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu og bæjarstjóm Sauðárkrókskaup- staðar buðu ferðafólkinu til há- degisverðar að Hótel MælifeUi á Sauðárkróki. Mættu þar sýsiu- maður,, bæjarstjóri, nokkrir sýslu nefndar- og bæjarstjórnarmenn ásamt frúm, — og Stefán Eiríks- son í Djúpadal, sem árum sam- an dvaldi í Kanada og fann nú þama ýmsa fomkunningja. Jóhann Salberg Guðmundsson, sýslumaður, bauð gesti velkomna með stuttu ávarpi. Gísll Magnús- son í EyhUdarholti flutti stutta héraðslýsingu, minnti á helztu merkisatburði í sögu héraðsins og gat þeirra manna sem hæst ber í skagfirzltri „mannkyns- sögu“. GísU Guðmundsson túUi- aði síðan ræðu nafna síns, því að sumir ferðamennirnir sldldu ekld íslenzku, sér til gagns a. m. k. Á. Basmussen frá Van- couver þakkaðl móttökur fyrir hönd Vesur-íslendinga. Því næst var haldið heim tU Hóla. Skammvinnur en skemmti- legur vinafundur samlanda úr tveimur heimálfum var að baki. mhg— (Jnglingavinna 1 júnímánuði fór fram athug- un á því, hvað margir unglingar væru atvinnulausir. Kom þá í ljós að hér var um stóran hóp að ræða, aðaUega á aldrinum 15—18 ára. Eitthvað af þessum unglingum fékk vinnu er frysti- húsið Isafold tók tU starfa. Var þá ákveðið af bæjarstjórn, að Siglufjarðarbær reyndi að hefja unglingavinnu, tU að veita nokkra úrlausn í þessu mikla vandamali. Bærinn fékk 400 þús. kr. lán hjá Atvinnumálanefnd gegn jafnháu framlagi frá bænum, þannig að unnið yrði fyrir um 800 þús. kr. Hófst sú vina upp úr miðjum júni og stendur enn. Verkefnin, sem helzt var unnið við, voru: Girða bæjarlandið, girðing um svæði fyrir tjaldstæði og með- fram Fjarðará. Þá er ráðgert að girða flugvöllinn og reisa skýU þar. Húsmæður Orlofsefnd húsmæðra í Siglu- firði gengst fyrir orlofsferð um miðjan ágúst n.k. Farið verður með Esju 16. ágúst austur um land tU Beykjavikur og land- leiðina til baka. IJmsóknir um þátttöku þurfa að berast fyrir 5. ágúst n. k. TJpplýsingar í síma 714 83 og 7 12 24. Orlofsnefnd húsmæðra

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.