Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1936, Page 10
24
TlMARIT V. F. í. 1 93 6.
9. mynd. Frá byggingu Skjálfandafljótsbrúar.
Með því að mjókka hita og liafa þrjú járnalög, er
liægt að ná nokkru stærra hafi en með tveimur járna-
lögum og hreiðari hila, en hrátt kemur þó aftur að
þvi, að of mikinn liluta burðarinagns þarf til að hcra
eiginþunga hita, ef ckki má hjóða steypunni meiri
raun en 40—50 kg/cm.2 Liggur ]tá einna beinast við
að fá steypu með auknu burðarþoli.
Það reynist gagnslítið að gcra steypuna sterkari
með þvi að nota meira sement, ]jví við það verða of
miklar togspennur frá samdrætti sleypu og mynd-
asl við það rifur, svo járnum er hætta búin af ryði.
Um eiíl skeið var reynt að vinna bug á erfiðleik
þessum mcð þvi að leggja spíralheygð járn, cfst í
hita á þvi svæði sem þrýstispennur eru. Yar það gert
ekki einungis í bitum, heldur einnig i hogum og
einna lielsl í stoðum. Halda spíralarnir steypunni
saman, hindra hana í að þenjast út á þverveginn og
auka með því burðarþol steypunnar. Gcrðu menn
sér miklar vonir um góðan árangur af notkun sjnr-
aljárna lil að auka burðarþol steypu, svo ná mætti
meiri bita og bogahöfum og sérstaklega fá með þessu
grennri stoðir, sem hefir hina mestu þýðingu í húsa-
gerðum, þegar um marglyft hús er að ræða, l. d. 5—
10 hæðir. Brátt kom þó að þvi að hina lærðu greindi
á um hve mikið spiraljárn auka hurðarþol steypu;
jafnvel margir töldu að ekki mætli treysta á meira
10. mynd. Frá byggingu Skjálfandafljótsbrúar.
en 20% burðarþolsauka í hitum, en nokkru mcira
í stoðum.
Þegar tókst að framleiða sementstegundir, er gcfa
steypu með mun hærra burðarþoli en áður þekktist,
var að mestu hælt að nola spíralbeygð járn nema í
stoðum. Af shkum sementstegundum má t. d. nefna
Al-sement, er oft getur gefið 550 kg/cm2, þegar eft-
ir 24 klukkustundir og mun meiri styrkleik eftir 28
daga. Sementstegund þessi er mjög frábrugðin
venjulegu Portlandsementi, liefir minna kalk en
meira aluminum. Er þó ekki mikið notuð vegna
þess að sementið er dýrt. Meira eru notuð svonefnd
„special sement“ sem flest eru Portland sement, en
fá meiri styrkleika við að efnin eru brennd við hærri
liita og siðan möluð enn fínna, en venjulegt Portland
sement, en hvorttveggja verður til þess að meiri
styrkleiki næst; þannig á samkvæmt fyrirskriftum að
niást þessi styrkleiki: eftir 3 daga 250 kg/sm2 og eftir
28 daga 500 kg/sm2, en venjulegt Portland sement á
að gefa 275 kg/sm2 cftir 28 daga.
Eins og sést á tilgreindum tölum um styrkleika,
er aukning styrkleika mun meiri en hægt er að fá
með spíralbeygðum jiárnum, enda er það aðal ástæð-
an til að liætt er að mestu að nola spíralbeygð járn,
að minnsta kosti í bitum. Ilinn tilgreindi styrkleiki
á þó aðeins við um þrýsting, en ekki tog og geta má
þess að mjög erfiðleg'a hefir gengið að gera sement
svo úr garði að meira þol náist en 30—40 kg/cm.2,
sem togspenna, en það er aðeins lítið eitt liærra en
við venjulegt Portland scment.
í flestum löndum eru fyrirskriftir (normur) um
járnbenta steypu, er að sjálfsögðu hafa inni að lialda
ákvæði um leyfilega þrýstispennu i steypu. Allar
eru fyrirskriftirnar endurskoðaðar á vissra ára fresti
og þá um leið venjulega eitlhvað breytt og auknar.
Breytingar á ákvæðum um Ieyfilega spennu í steypu,
hniga allar í þá átt að hækka leyfilega spennu og cr
það beili afleiðing Jieirrar reynslu sem með árunum
befir fengist um járnbenta steypu, ennfremur í sam-
ræmi við það að flestar sementsverksmiðjur trjrggja
nú meiri gæði sements en áður, tryggja nú brot-
spennu 275 kg/cm.2 i stað 200 kg/cm.2 eins og áður
var um margra ára skeið og loks af því miklar fram-
farir hafa orðið i allri tækni við að framleiða steypu
svo segja má, að með mikilli öryggi sé nú liægl að
framleiða steypu með ákveðnum gæðum. Flestar
fyrirskriftir miða nú leyfilega spennu eingöngu við
vissan bluta af þeirri brotspénnu sem fæst í próf-
bitum eða prófteningum, en margar nema burtu
efri takmörk leyfilegrar spennu. Til dæmis var fyrir
1930 leyfileg spenna við beygju samkv. dönskum
fyrirskriftum % af fvrstu 200 kg brotspennu + Vío
af þeim hluta brotspennu sem var milli 2 og 300
kg/cm2, þ. e. lcvfileg brotspenna var milli 40 og 50
kg/cm.2, því gera verður ráð fyrir að naumast sé
notað lakara efni, en sem svarar brotspennu 200