Mjölnir - 13.05.1939, Side 1
Útgefandi: SÓSÍALISTAFÉLAG SIGLUFIARÐAR.
2. árg.
1
Siglufirði, laugardaginn 13. maí 1939.
1
10. tbl.
Far pú í friði.
Svar ti! 3óns erindreka.
Bréf þitt í Neista í gær gefur
ekki tilefni til andsvara nema að
litlu leytí og verður svarið þéss-
vegna sennilega heldur fyrirferðar-
minna, og veit eg að þú munir af
lítillæti þínu meðtaka það eigi að
síður.
Hugrekki þitt og ritsnilli dreg
eg ekki í efa, enda hefur það nú
komið í Ijós, að þú hefur — til-
neyddur þó — þorað. að kannast
við óhróðursgreinina sem varð
upphaf þessara bréfaskipta okkar.
Hitt er óráðin gáta ennþá, hvern-
ig á því stendur, þar sem þútelur
málstað þinn svona framúrskarandi
góðan, að þú — stofnandi »Þrótt-
ar« og erindreki Alþýðusambands-
ins — skildir ekki mæta á fund-
unum þar sem rætt var um úr-
sögnina úr sambandinu.
Kannske þú vantreystir sigl-
firzkum verkamönnum til þess að
skilja bjargráð Stefáns Jóhanns
þeim til handa, jafnvel þótt þau
séu útskýrð af þér?
Um »Þrótt« og atkvæðagreiðsl-
una þar get eg hlíft þér við að
fjölyrða um frekar. Það er að
fullu upplýst, að fullyrðing þín í
fyrstu grein þinni um að flokks-
menn þínir hafi ekki tekið þátt í
atkvæðagreiðslunni, voru staðlausir
stafir.
Ut af sundrungartali þínu, og
því að verið sé að draga »Þrótt«
út úr Alþýðusambandinu, er rétt
að taka fram: »Þróttur« hefur,
ásamt mörgum öðrum verkalýðs-
félögum, gert ítrekaðar kröfur til
Alþýðusambandsins um jafnrétti
fyrir alla meðlimi. 17. marz s.l. var
sambandsstjórn sent bréf um þetta
efni, þar sem tilkynnt var að ann-
að samband yrði stofnað ef ekk-
ert samkomulag næðist um þessi
mál.
Alþýðusambandsstjórn svaraði
ekki bréfi þessu, enda á þeim tíma
önnum kafin við samninga þess
efnis, að flytja skuldir Kveldúlfs
og ýmsra annara yfir á herðar um-
bjóðenda sinna og allrar alþýðu í
landinu.
Um þessar kröfur verkalýðsfé-
laganna um jafnrétti fyrir alla með-
limi sína, hafa orðið hin hörðustu
átök á mörgum undanförnum sam-
bandsþingum. Við höfum báðir
verið þátttakendur í þeim átökum.
Eg hefi verið einn af fulltrúum
»Þróttar« og ásamt meðfulltrúum
mínum af fremsta megni beitt mér
fyrir því, að þær næðu fram að
ganga.
Þú varst í haust fulltrúi Hólm-
vikinga og hefur nú sjálfur upp-
lýst, að þú hafir neitað að fara
inn á þingið með það erindisbréf
sem sýndi félagsviljann svo greini-
lega sem auðið var.
Hvers vegna?
Vegna þess að þú ætlaðir þér,
eins og kom á daginn, að berjast
á móti málstað þess félags sem
þú varst fulltrúi fyrir. Eg ætla
ekki að kalla framkomu þína í
þessu tilfelli neinu sérstöku nafni.
Þass þarf ekki — slíkt skýrir sig
sjálft.
Nýii
íbúðarhús
með öllum þægindum
til sölu eða leigu nú
þegar.
lónas Guðmundsson
Miðstræti 6.
NÝJA-BÍÓ
sýnir laugardag 13. maí kl. 8|-J
Vor í Heidelberg.
Afar spennandi og skemmti-
leg mynd, sem gerist meðal
stúdenta í þýzka háskólabæn-
um Heidelberg.
Hvernig er svo ástandið nú í AI-
þýðusambandinu?
Aðeins örlítið brot meðlimanna
nýtur fullra réttinda og brot úr því
broti hefur nú svikið þetta gamla
vígi í hendur andstæðinganna, svo
að það er nú notað beinlínis sem
árásartæki gegn alþýðunni sem
hefur skapað það.
Aldrei hefur verið eins mikil
þörf fyrir sterka og einhuga