Mjölnir - 14.06.1939, Page 1
Útgefandi: SÓSÍALISTAFÉLAG SSGLUF3ARÐAR.
2. árg.
1
Siölufirði, miðvikudaginn 14. júní 1939.
12. tbl.
Endurbyggin
„Rauðku“
>Rauðka gamla« eins og Sigl-
firðingar segja, er elzta Síldar-
verksmiðja á öllu landinu, enda er
hún svo útslitin, að hún verður
ekki rekin fleiri sumar nema með
stórkostlegri aðgerð eða réttara
sagt, endurbyggð.
Við þessa verksmiðju vinna 36
menn fastir og þar að auki margir
lausamenn, samtals greiddi verk-
smiðjan s.l. sumar ca. 80.000 kr. í
vinnulaun, en hagnaður af rekstrin-
um varð mörg þúsund krónur. Á
síldarvertíðinni í fyrrasumar sýndi
það sig að tilfinnanleg vöntun er
á silkarverksmiðjum, því flotinn
tapaði tugum eða jafnvel hundruð-
um þúsunda mála af síld vegna
þess hve mikið hann varð að bíða
eftir löndun, t. d. biðu stundum
allt upp í 45 skip eftir löndun hjá
Ríkisverksmiðjunum. Nú eykst
flotinnumca.30snurpunætur í sum-
ar og sennilega vérður aukningin
ennþá meiri fyrir næsta sumar.
Það er því öllum ljóst, að það er
beinlínis lífsnauðsyn fyrir síldarút-
veginn að afköst síldarverksmiðj-
anna verði aukin. Það er óum-
deilanlegt, að lóðin sem Rauðka
stendur á er heppilegasta lóðin á
állu íslandi fyrir síldarverksmiðju.
Það er líka vitanlegt, að verk-
smiðjustjórinn hjá Rauðku, herra
Snorri Stefánsson, hefir mesta
reynslu af öllum núlifandi íslend-
ingum við síldarbræðsluiðnað. Að
öllu þessu athuguðu var það ekki
að furða þó mikill áhugi kæmi upp
kér á Siglufirði fyrir því að endur-
byggja Rauðku og stækka hana
um leið svo afköst hennar yrðu
5000 mál á sólarhring, í stað 10
til 12 hundr. mál eins og nú er. Ný
5000 mála verksmiðja myndi ýta
undir virkjun Fljótaár ogsú virkjun
ætti að tryggja að þegar lýsis-
herzlustöð verður byggð á íslandi
kæmi hún hvergi nema á Siglu-
firði, en við slíka stöð yrði margra
manna vinna yfir veturinn.
Eftir nokkrar umleitanir barst
bæjarstjórn tilboð um mjög hag-
kvæmt lán til að endurbyggja og
stækka Rauðku upp í 5000 mála
afköst á sólarhring og samþykkti
bæjarstjórn með öllum atkvæðum
að undanskyldu atkvæði Þorm.
Eyólfssonar, að sækja um leyfi
ríkisstjórnarinnar til endurbygging-
arinnar. Síðan hefir það gerst í
málinu að verkamannafélagið Þrótt-
ur hefir með öllum atkvæðum á
fjöhnennum félagsfundi skorað á
ríkisstjórn að veita Ieyfið, um 1200
Siglfirðingar hafa með undirskrift
sinni lýst sig fylgjandi ákvörðun
bæjarstjórnar og skorað áríkisstjórn
að veita leyfið, um 60 útgerðar-
men* hafa sömuleiði* skorað á
ríkisstj. að veita leyfið ogFiskim.- og
farm.samb. ísl. hefir ennfr. sent
ríkisstj. samsk. áskorun. Jafn-
framt hefur það komið í ljós að
Þormóður Eyólfsson hefur gert allt
sem í hans valdi hefur staðið til
að spilla fyrir málinu og klíka sú
sem hann stendur í nánustu sam-
bandi við í Framsóknarflokknum,
Hriflu-Jónasarklíkan, hefur gert það
sama, t. d. stóð eftirfarandi klausa
í Tímanum 23. maí s.I.:
• Kommúnistar eru i meirihluta un*
■ stjórn Siglufjarðar nú sem stendur.
Þeif hafa fengið skrítna bandamenn í
atvinnumálum. Svavar Guðmundsson
á Akureyri og Helgi Guðmundsson í
Reykjavík eru svo hrifnir af fyrir-
hyggju og framsyni kommúnista í fjár-
málum, að þeir vilja, þótt af veikum
mætti sé, reyna að efla þá til að koma
upp nýrri sildarverksmiðju á Siglufirði,
þó að sú verksmiðja myndi kosta þjóð-
ina meira en hálfa miljón króna fram
yfir að stækka verksmiðjur ríkisins á
Siglufirði. Sennilega fá þessir tveir
dánumenn Leninsorðuna.«
í þessari klausu er vísvitandi
farið með hinar herfilegustu blekk-
ingar, i fyrsta lagi er þetta engan-
veginn sérmál Sósialistafélagsins
eða »kommúnista« eins ogTíminn
segir, það sýna áskoranir þær,
sem yfir ríkisstjórnina hafa dunið
og Tímanum eru kunnugar, i öðru
Iagi er það uppspuni einn að rík-
isverksmiðjurnar gætu byggt hjá
sér verksmiðjuna fyrir | miljón kr.
minna en Siglufjarðarkaupstaður,
sennilega yrði verksmiðjan engu
ódýrari hjá þeim. Ýmsir af aðal-
mönnum Framsóknarflokksins hér
hafa sýnt mikinn áhuga fyrir mál-
inu og reynt að vinna því gagn,
og sama er að segja um Sjálfstæð-
isflokkinn. Það er því ekki neitt
sérmál Sósíalista og Alþýðuflokks-
manna, heldur er þetta mál Sigl-
firðinga í heild, þó Þormóður Ey-
ólfsson sé því andvigur og hamist
gegn því með offorsi og frekj*
#ins og honum er lagið.
Tæpir tveir mánuðir eru liðnir
síðan bæjarstjórn sótti um bygg-
ingarleyfið til ríkisstjórnarinnar, en
ekkert svar hefir komið ennþá og
atvinnumálaráðherra Ólafur Thórs
telur sig og ríkisstjórnina ekki
geta gefið svar fyr en um miðjan
ágúst, en það er sama og nei, því
að bæjarstjórn verður að svara