Ísfirðingur - 02.10.1990, Blaðsíða 2
2
ÍSFIRÐINGUR
m
Útgefandi:
Kjördæmissamband Framsóknarmanna á Vestfjörðum.
Blaðstjórn:
Pétur Bjarnason, ritstjóri (ábyrgðarmaður)
Anna Lind Ragnarsdóttir, Guðmundur Jónas Kristjánsson,
Kristjana Sigurðardóttir, Magni Guðmundsson,
Sigríður Káradóttir.
Pósthólf 253, ísafirði
Prentvinnsla ísprent.
Leiðari
Löngum hafa stjórnmálamenn talað fjálglega um byggða-
mál, fólksflóttann og nauðsyn þess að snúa þessari þróun við.
Erfiðleikarnir hafa meðal annars verið taldir liggja í einhæfni
atvinnu, vöntun nýrra atvinnutækifæra og fleira í þeim dúr.
Hvað gerist síðan þegar tækifærið berst þeim upp í hendurn-
ar í formi nokkur hundruð nýrra starfa við og í tengslum við
álvinnslufyrirtæki?
Það virðist ákveðið að nota þetta tækifæri til þess að auka
enn á þensluna á suðvesturhorninu í stað þess að grípa tæki-
færið og setja álverið niður á Reyðarfirði, þar sem það hefði
getað aukið stórle^a möguleika Austfirðinga til nýrrar sóknar,
mannfjölgunar og þannig möguleika á stórbættri þjónustu,
með þeim atvinnumöguleikum sem þar fylgdu.
Pau rök sem færð hafa verið fram um áætluð hafnargjöld,
kostnað við aðflutning fólks og margt fleira af sérfræðingi sem
reiknaði arðsemi þeirra staða sem í boði hafa verið eru harð-
lega gagnrýnd af Austfirðingum, enda ekki í samræmi við
raunveruleikann.
Álver við Reyðarfjörð, alþjóðlegur flugvöllur á Egils-
stöðum, útflutningshöfn með styttri siglingaleið til Evrópu en
annars staðar frá landinu er þjóðhagslegur ávinningur.
Það sem er þó erfiðast að sætta sig við er viðhorf ráðamanna
í þessum efnum. Menn fara að trúa því að byggðastefna sé
orð, einkum ætlað fyrir dreifbýlinga til að nota í orðræðum
sín á milli og fyrir stjórnmálamenn þegar rætt cr við dreifbýl-
inga. Alls ekki stefna sem eigi að hrinda í framkvæmd þó
tækifæri komi upp í hendurnar.
Reyndar má ekki gleyma skuggahliðum þessa máls, þeirri
mengun sem óhjákvæmilega fylgir stóriðju. Vaxandi kröfur
og stöðugt batnandi tækni í mengunarvörnum ættu þó að
tryggja það að slík mengun yrði í lágmarki.
Aðalatriði þessa máls er sú sorglega staðreynd, að örfáir
ráðamenn hafa vald til að klúðra stórmálum sem þessu sem
hér um ræðir á þann veg, að óbætanlegur skaði kann að
hljótast af.
Er enn of seint að snúa við blaðinu?
PB.
Skoðanakönnun meðal félags-
bundinna framsóknarmanna
Svo sem frá er greint á for-
síðu var á kjördæmisþingi kos-
in framboðsnefnd til að gera til-
lögur til aukakjördæmisþings
að framboðslista til næstu Al-
þingiskosninga.
Ákveðiö hefur verið að við-
hafa skoðanakönnun meðal
félagsbundinna framsóknar-
manna á Vestfjörðum til leiö-
beiningar fyrir framboðsnefnd
viö uppstillingu listans.
Á baksíðu er birt auglýsing
framboðsnefndarinnar, en
framboðsfrestur cr til 15. þ.m.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN
Á ÍSAFIRÐI
LÆKNARITARI
50% starf læknaritara er laust til umsóknar nú þegar. Góð
vinnuaðstaða.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri eða framkvæmda-
stjóri í síma 4500 virka daga.
W_0m^A FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
f m Á ÍSAFIRÐI
RÆSTING OG BUR
70 % starf við ræstingu og búrstörf er laust nú þegar. Vinnu-
tími frá kl. 11.00 til 19.00.
Hreinleg og góð vinnuaðstaða.
Upplýsingar gefur ræstingastjóri í síma 4500 fyrir hádegi.
=- Póstur ^ og sími
LAUSTSTARF
Laus er til umsóknar 50% staða póstafgreiðslu-
manns við pósthúsið á ísafirði.
Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjóri.
Stöðvarstjóri.
Blaðamaður
Blaðstjórn ísfirðings
auglýsir eftir fjölhæfum
starfsmanni til að vinna
við Isfirðing í vetur.
Helstu verkefni verða:
Öflun efnis og auglýs-
inga í blaðið, frágangur
blaðins til prentunar,
innheimta auglýsinga,
og önnur störf í þágu
blaðins.
Æskilegt væri að við-
komandi tæki til starfa 1.
nóvember n.k.
Launakjör eftir sam-
komulagi.
Upplýsingar gefur Pétur
Bjarnason í síma 94-
4684 og vinnus.94-3855.
Ennfremur aðrir blað-
stjórnarmenn (sjá blað-
haus).
Blaðstjórn ísfirðings.
FLUGLEIDIR
VETRARAÆTL UN
GILDIR FRÁ 10. SEPTEMBER TIL 19. MAÍ.
REYKJAVÍK - ÍSAFJÖRÐUR - REYKJAVÍK
GILDISTÍMI TÍÐNI FRA REK TIL IFJ FRA IFJ TIL REK
10/9-28/10
og 11/2-19/5 MÁN/ÞRI/MIÐ/FIM/FÖS 08.30 09.15 09.45 10.30
10/9-19/5 SUN 09.45 10.30 11.00 11.45
29/10-10/2 MÁN/ÞRI/MIÐ/FIM/FÖS 09.45 10.30 11.00 11.45
10/9-19/5 LAU 11.15 12.00 12.30 13.15
29/10-10/2 DAGLEGA NEMA LAU 15.00 15.45 16.15 17.00
10/9-28/10
og11/2-19/5 DAGLEGA 16.30 17.15 17.45 18.30
Flugfélag Norðurlands
AKUREYRI - ÍSAFJÖRÐUR - AKUREYRI
FRÁ TIL FRÁ TIL
GILDISTÍMI TÍÐNI AEY IFJ IFJ AEY
10/9-19/5 MÁN/MIÐ/FÖS 12.30 13.20 13.50 14.50
10/9-10/2 SUN 12.30 13.20 13.50 14.50
17/2-19/5 SUN 17.30 18.20 18.50 19.50
FLUGLEIDIR
11
Passið
ykkurá
myrkrinu!
Il
UMFEROAR
RÁÐ