Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1955, Qupperneq 6

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1955, Qupperneq 6
92 TÍMARIT VFl 1955 hitt að ræða þá hlið, sem að okkur verkfræðingunum snýr í starfi okkar, og kem ég þá að efni því, sem ég hafði ætlað mér að ræða. Ekki fer hjá því að lausn flestra verkefna verkfræð- inga varðar almenning að meira eða minna leyti. Það er skylda verkfræðings að hafa þetta í huga og gæta al- menningsheilla í starfi sínu. Þetta getur verið með ýmsu móti, en hér drep ég aðeins á eina hlið þessara mála, þá hlið sem mér virðist hér á landi hafa verið alltof lítill og óviðunandi gaumur gef- inn. Hér á ég við þær breytingar, sem verkfræðilegar framkvæmdir geta haft á landslag og útsýni. Það er alkunna að miklar framkvæmdir geta gjör- breytt svip landsins við og i kringum þær. Nægir hér að benda á virkjunarframkvæmdir ýmsar, þar sem stór lón og stöðuvötn eru gerð, stíflumannvirki er loka fyrir út- sýni og margt fieira. Færri veita því sjálfsagt eftirtekt, að til þessa þarf ekki stór mannvirki. Lítil brú á læk, vegur í hlíð, hleðsla kringum tún og hús, malargryfja og mógrafir orka lika til breytingar á landslaginu sem fyrir var. Nú verður því ekki neitað að breytingin getur ann- aðhvort verið til bóta eða til hins verra, og hér lit ég aðeins á útlitsatriðið og geri ráð fyrir, að breytingin sé, hvað ábata og annað áhrærir, verkfræðilega rét.tlæt- anleg. Yfirleitt eru ekki gerðar kröfur til þess, að fram- kvæmdir lýti ekki landslag, og þess ekki getið þó að þær geri það, eins og það jafnoft er látið afskiptalaust og varla talið hrósvert, sem í þessu efni er vel gert, að minnsta kosti á opinberum vettvangi. Það er segin saga, að þegar ráðist er í framkvæmdir koma jafnframt fram kröfur fyrir landsspjöll og lög landsins sjá fyrir, að landeigendur fái þeim kröfum sín- um fullnægt. Eignarrétturinn til landsins er heilagur og lögvemdaður. Hann nær þó ekki svo langt, að það varði við lög, að aðrir en eigendur megi horfa á landið og njóta fegurðar þess. Meðan slíkt er ekki lögfest, verð- ur það að teljast hefð, að allur almenningur eigi rétt- inn til sliks. Er þá ekki jafnrétt, að hann geti gert kröfur til þess, að þessum rétti sé ekki spillt og jafnvel fengið skaðabætur, ef svo væri gert? En landsins lög ná ekki til þessa og það sem verra er, þetta virðist liggja flestum ráðamönnum þjóðarinnar í léttu rúmi og almenningsálitið er heldur ekki vakandi, að því er þetta atriði varðar. Af er sú tíð, að brjóstvitið var hiklaust tekið fram yfir verkfræðimenntina, þótt það sé ekki ýkja langt undan, svo að nú má heita að allar meiriháttar fram- kvæmdir séu unnar undir yfirstjóm verkfræðinga og með tímanum verður í fleiri og smærri greinum leitað til þeirra. Það er því ekki úr vegi, að þeirri ósk sé beint til okkar verkfræðinga, að við höfum það í huga, að okk- ur ber beinlínis skylda til að sjá um að mannvirkja- gerð sé svo af höndum leyst, að sem til minnstra lýta verði í landslagi, því ef svo verður, er gengið á rétt almennings, en heill hans á verkfræðingurinn að bera fyrir brjósti jafnt í þessurri efnum sem öðrum. Það er því síður umhendis að minna þá á þessa skyldu sína, þegar þess er gætt, að mikið mun á skorta, að þeir hafi rækt hana sem skyldi á þessu sviði og virðast jafnvel, allur þorri þeirra, ekki bera skyn á hvers verði að krefjast af þeim í þessum efnum. Það er sorgleg raunasaga, sem ég verð að kannast við um marga mína starfsbræður, að þeir virðast líta á það eitt sem sína skyldu, að gera mannvirki svo úr garði, að það sé nógu traust og fullnægi „funktion- ellum" kröfum, án þess að tillit sé tekið til útlits og annars sem augað gleður. Jafnframt skal á það bent, að til eru aðrir, en þeir eru færri, sem kunna skil á þessu atriði. Venjulegasta viðbáran, sem heyrist til að afsaka ljót mannvirki er kostnaðarhliðin. Það er talið dýrara að ganga fallega frá þeim. Það fer saman, að þetta er tíðasta afsökunin og að hún er í flestum tilfellum byggð á misskilningi. Alla jafna er það, að kostnaður er svo að segja sami, hvort búinn er til fallegur eða ljótur hlutur. Stundum getur það líka verið ódýrara að ganga fellega frá. önnur viðbáran er sú, að þetta at- riði um útlit, sé svo mikill hégómi, að ekki beri að skeyta því neinu. Ef verkfræðingur ber þessa viðbáru fyrir sig, á hann ekki sitt heiti skilið og hefur ekki fengið þá menntun, sem honum ber að hafa. Þriðja viðbáran og kannske ekki sú veigaminnsta er mörgum verkfræðingum ef til vill ókunn eða að minnsta kosti ekki sjálfráð. Það er ekki öllum gefin sú gáfa i vöggugjöf, að vera smekkmenn og yfirleitt eru menn misjafnir í þeim efnum. Hinsvegar hættir mörgum til að ofmeta dómgreind sína á þessu sviði auk þess, sem þeir hafa ekki athug- að það, að hin meðfædda dómgreind er hjá fæstum svo þroskuð og óbrigðul, að henni verði treyst. Til þess að vel sé, þarf að fara saman góð eðlisdómgreind á þessa hluti og nám í þeim sjálfum. Kannske svona t. d. 10% af dómgreindinni og 90% af þjálfuninni. Nú eru til menn, sem stund hafa á þetta lagt, arki- tektar. Að vísu verður, því miður, ekki um þá alla sagt, að þeir hafi öll þessi 100% á takteinum, en þó er þess að vænta, að langflestir þeirra skari fram úr verkfræðingum á þessu sviði jafnvel þótt eitthvað skorti upp á hvorttveggja hundraðshlutana. Þetta er stað- reynd, sem verkfræðingurinn verður að hafa í huga og viðurkenna með þvi að leita samvinnu við arkitektana. Það verður auðvitað verkfræðingsins að meta hvenær hann þarf að leita þeirrar samvinnu og við hvaða við- fangsefni. Hann getur verið jafnhreykinn af því og arkitektinn, ef eitthvert atriði er leyst vel fyrir atbeina arkitektsins, þegar það var hann, sem fann að hér þurfti hins við. Og eitt er víst, að ef verkfræðingurinn er svo hepp- inn að lenda í samvinnu við góðan arkitekt, þá nýtur hann engu síður góðs af því. Arkitektinn getur orðið honum ómetanleg stoð. Það verður því ekki ofbrýnt fyrir verkfræðingum að leita sem tíðast samvinnu við arkitekta, en treysta ekki um of á eigin dómgreind. Það vantraust, sem oft áður bryddi á hér heima, gagnvart arkitektum, á ekki rétt á sér, frekar en hitt, hve verkfræðingar voru vanmetnir. Enn er eitt, sem ég skal minnast á, er getur verið orsök til misfella. Það er ekki öllum gefið, að geta lesið svo úr uppdráttum, að þeir af þeim einum geti skynjað, hvernig hlutur eða mannvirki muni líta út í okkar þrívíða rúmi. Þessi skynskortur eða blinda er mjög algeng og getur engu síður náð til arkitekta og \erkfræðinga en annarra. En þá er hægurinn á, að láta gera eftirmynd af hlutnum, líkan eða model, og ætti yfirleitt ekki að horfa í þann kostnað, sem þetta hefur í för með sér, því allajafna er hann hverfandi hluti af heildarkostnaði mannvirkisins og mörg mis-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.