Akranes - 23.04.1942, Side 2
2
AKRANES
Fluttar kr. 210.000,00
Gufubaðstofa ........ — 5.000,00
Verkamannaskýli .... — 5.000,00
Kvennaskólabygging . — 1.000,00
Samtals kr. 221.000,00
Nú skal gerð stutt grein fyrir þess-
um • framkvæmdum.
Vatnsveitan. Árið 1941 var byrjað
að leggja vatnsleiðslu hingað til bæj-
arins. Verk þetta mun að sjálfsögðu
verða mjög kostnaðarsamt. V$ga-
lengdin frá vatnsgeymi til bæjarins
eru rúmir 5 km. og innanbæjarlagnir
um 8 km. Kostnaðaráætlun, sem gerð
var árið 1936, eftir því verði, sem þá
var á efni og vinnu ,var kr. 358.000,00.
í áætluninni voru ekki teknar með all-
ar þær götur, sem nú er nauðsynlegt
að leggja í, né brunahanar. Áætlunin
var því sýnilega of lág. Fjár hefir ver-
ið aflað til þessa fyrirtækis þanúig, að
tekið var á s. 1. ári skuldabréfalán til
30 ára að upphæð kr. 250.000,00, en
hreppssjóður lagði það ár fram kr.
42.000,00. Fjárhagsáætlunin fyrir ár-
ið 1942 gerir ráð fyrir kr. 25.000,00
framlagi til vatnsveitunnar, en auk
þess greiða húseigendur 5% af fast-
eignamatsverði húsanna óafturkræft,
og mun sú fjárhæð nema um kr.
130.000,00. Allar þær fjárhæðir, sem
hér hafa verið taldar, nema samtals
kr. 447.000,00. Af þessari háu fjárhæð
þarf vatnsveitan ekki að standa undir
öðru en skuldabréfaláninú eða kr.
250.000,00, og er hinn árlegi vatns-
skattur, miðaður við það, en hann
verður 1% af fasteignaverði húsanna í
bænum.
Holræsagerð. Árni Böðvarsson, ljós-
myndari, flutti skólppípnamót til bæj-
arins árið 1925 eða um það leyti. Sjálf-
ur lagði hann skolpveitu í allmörg hús,
en auk þess fóru þá ýmsir bæjarbúar
að leggja skolpveitur í hús sín. Árið
1938 fór hreppurinn að leggja skólp-
veitukerfi í götur bæjarins, þótt í smá-
um stíl væri fyr^tu þrjú árin. Á s. 1.
ári keypti bærinn pípnamót Árna og
lagði meira kapp á þetta verk en áður,
svo nú er skólpleiðsla komin í all-
margar götur. Eins og fyrr segir verð-
ur kr. 20.000,00 verið til þessa verks
þetta ár.
Gamalmennaheimili. Hreppsnefnd
Ytri-Akraneshrepps kom upp elliheim-
ili árið 1938. Hæli þetta hefir komið
að góðu haldi, en það var af vanefn-
um reist, og þörfin fyrir betra og full-
komnari hæli er augljós. Hin rausnar-
legja gjöf Haraldar Böðvarssonar og
konu hans, frú Ingunnar Sveinsdóttur
hefir mjög ýtt undir byggingu nýs elli-
heimilis. Á f járhagsáætluninni eru
veittar kr. 50.000, til byggingarinnar,
og eru því kr. 150.000,00 handbærar
til hennar. Haraldur Böðvarsson hefir
oft látið þá skoðun sína í ljósi, að nauð-
synlegt væri að byggja elliheimilið svo,
að ekki hvíldu á því skuldir. Þetta er
hyggilega ráðið. Rekstur elliheimilis
verður alltaf kostnaðarauki fyrir bæj-
arfélagið, ekki sízt ef vaxta- og af-
borgunargreiðslur yrðu verulegar.
Bæjarstjórn hefir því hugsað sér að
byggður yrði nokkur hluti hússins nú
þegar, eða svo fljótt sem unnt er, en
síðar yrði byggingin fullgerð. Bygging
elliheimilis er fyrsta og nauðsynlegasta
framkvæmd bæjarfélagsins til þess að
koma framfæri gamalmenna í gott
horf, en síðar verður væntanlega fram-
hald á þessum framkvæmdum.
Framræsla Garðalandsins. Til fram-
ræsJu Garðalandsins eru veittar kr.
30.000,00, en væntanlega styrkir
Framfærslumálanefnd ríkisins þessa
framkvæmd með kr. 10.000,00. Um
gagnsemi 'þessarar framkvæmdar þarf
ekki að fjölyrða. Hér er verið að skapa
Akurnesingum skilyrði til jarðyrkju,
og landareignin er svo stór, að hún
mun nægja þeim um margra ára skeið.
Gagnfræðaskólabygging. 1 fjár-
hagsáætluninni er kr. 20.000,00 fram-
lag til gagnfræðaskólabyggingar. Þá
eru nokkrar líkur til þess, að kr.
10.000,00 til kr. 20.000,00 fáist ann-
arsstaðar frá, en ríkissjóður greiðir
2/5 hluta byggingarkostnaðarins. Ekki
hefir enn verið tekin ákvörðun um
það, hvort nokkur hluti byggingárinn-
ár verði byggður þegar í stað. eða
byggingu skólans frestað fyrst um
sinn, þar til meira fé er fyrir hendi. Ef
gagnfræðaskólabygging verður ekki
reist fyrir haustið, verður reynt að fá
leigt sæmilegt húsnæði fyrir skólann.
Stofnun gagnfræðaskóla er eitt mik-
ilvægasta nýmæli fjárhagsáætlunar-
innar. Bæði er það ódýrara fyrir Akur-
nesinga að sækja skóla á Akranesi, en
skóla utan kaupstaðarins, en hitt er
þó þýðingarmeira, að skólastofnun
þessi verður sennilega til þess, að fleiri
ungir Akurnesingar afli sér fram-
haldsmenntunar, en nú gerist. Framtíð
sk.ólans veltur mjög á því, að til hans
veljist ágætur skólastjóri, og mun bæj-
arstjórnin að sjálfsögðu gera sitt til
þess, að svo verði.
Vegagerðir. Á f járhagsáætluninni
eru veittar kr. 40.000,00 til vegagerða.
Enn er ekki ráðið hvað unnið verður
að þessum málum, en bæjarbúar munu
skilja, að ekki er unnt að koma öllum
endurbótum á vegum fram í einu. Síð-
ar verður gerð nákvæmari grein fyrir
þessu máli.
Leikfimishúsið. Þær kr. 15.000,00,
sem veittar eru til þessarar byggingar
eru lokagreiðsla vegna hennar. Þrátt
fyrir það, að leikfimishúsið hefir orð-
ið mun dýrara, en upphaflega var
gert ráð fyrir, hvíla nú engar skuldir
á því.
Fangahús. Á f járhagsáætluninni eru
veittar kr. 10.000,00 til fangahúss-
byggingar. Bæjarstjórnin hefir skrif-
að erindi til Alþingis, þar sem farið
er fram á kr. 15.000,00 fjárveitingu til
þessa máls. Bæjarfógetinn hefir kvart-
að mjög undan erfiðleikum sínum og
lögreglunnar í viðskiftum þeirra við
drukkna menn, hvort heldur sem er á
götum úti eða í heimahúsum. Þá sé
ekki hægt að koma lögum yfir erlenda
sjómenn, sem brjóta lög hér á staðn-
um. Lokd telur hann, að nauðsyn geti
borið til þess, að setja menn í gæslu-
varðhald, nn erfitt sé að koma þessu
við nema fangahús verði byggt. Bæj-
arfógetinn telur nægilegt að bj'-ggðir
verði þrír fangaklefar. Heppilegast
mun vera að koma klefum þessum fyr-
ir í öðru húsi, enda þurfa þeir að vera
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiilliimiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiir.
I. AKRANES |
| ÚTGEFENDUR: Nokkrir Akurnesingar. =
| RITNEFND: Arnljótur Guðmundsson. |
| 01. B. Björnsson. =
= Ragnar Asgeirsson. 1
1 GJALDKERI: Óðinn Geirdal. 1
| AFGREIÐSLUMAÐUR: Jón Árnason. |
| Blaðið kemur út 10 sinnum á ári. |
| Áskriftargjald: 8 kr. árgangurinn. |
| fsafoldarprentsmi&ja h.f.
-niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
upphitaðir, og geðslegast er að sem
minnst beri á þeim. Bæjarstjórnin varð
að viðurkenna þessa nauðsyn, þótt
æskilegast sé að sem fæstir gisti stað
þennan.
Um byggingu gufubaðstofu, verka-
mannaskýlis og kvennaskóla er ekkert
ráðið enn, en gerð verður nánari grein
fyrir þessum framkvædum þegar það
er tímabært.
3. Afborgun lána og
Framfaras óður Akraness.
Þrátt fyrir allar þær framkvæmdir,
sem taldar eru hér að framan, hefir
verið ákveðið að greiða upp allar
skuldir bæjarsjóðs, sem nema með
vaxtagreiðslum kr. 112.000,00, en hér
eru ekki taldar skuldir hafnarinnar
eða Garðalandsins. Þetta er gert til
þess, að betur verði hægt að mæta erf-
iðu árunum, er þau koma. Það verður
ef til vill gengið feti framar, ef til-
laga Ólafs B. Björnssonar o. fl. um að
stofnaður verði einskonar varasjóður
bæjarins, „Framfarasjóður Akraness",
verður samþykkt. Þessari merkilegu
stjóðsstofnun er lýst á öðrum stað hér
í blaðinu.
Þetta stutta yfirlit yfir fyrstu fjár-
hagsáætlun Akraness kaupstaðar gef-
ur Akurnesingum nokkra hugmynd
um þá stefnu, sem tekin hefir verið í
bæjarmálum. Þegar þess er gætt, að
íbúar Akraness eru ekki enn 2000
að tölu, verður því ekki neitað, að í
mikið hefir verið ráðist, en þrátt fyrir
þetta verða allar skuldir bæjarsjóðs
greiddar að fullu, jafnvel stofnaður
varasjóður, án þess að nokkurt nýtt
lán sé tekið. Ef sömu stefnu verður
fylgt framvegis, má telja víst, að nauð-
synjamálum bæjarins verði hrundið í
framkvæmd smátt og smátt, án þess
að afkomu bæjarbúa verði stefnt í
voða.
Akurnesingar
ungir og gamlir, hvar sem þér búið.
Það eru vinsamleg tilmæli vor til
yðar, að þér lánið oss gömul skjöl
snertandi Akranes eða Akurnesinga.
Ræður og ritgerðir, svo og gámlar eða
nýjar myndir af hverju sem er. Enn-
íremur ef þér eigið í fórum yðar sagn-
ir eða munnmæli snertandi Akranes,
cöa fólk þaðan. Allt slíkt, sem áskotn-
ast, munum vér varðveita vandlega.
Skila því aftur eftir að hafa unnið úr
því í samráði við eigendur eða þá, sem
upplýsingarnar gefur í hverju tilfelli.
Yirðingarfyllst.
Útgefendur.