Akranes - 23.04.1942, Page 6
6
A K R A N ES
Annáll Akraness
Hafnarmál.
S. 1. sumar fól hafnarnefnd Vita-
málaskrifstofunni að gera tillögu og
áætlanir um:
1. Lengingu hafnargarðsins.
2. Uppfyllingu og tvær bryggjur
framan við Síldarverksmiðjuna.
Fljótlega upplýstist að 50 m. leng-
ing garðsins mundi kosta ca. 750 þús.
kv. (Mundi nú kosta yfir 1 milljón kr.)
Nú hefir nýlega borist frá skrifstof-
unni umsögn og kostnaðaráætlun um
uppfyllinguna og 2 bátabryggjur.
Aðra 20 en hina 25 m. Áætlað verð
þeirra með 20 m. uppfyllingu er kr.
280 þús. Þrátt fyrir hve þessar bryggj-
ur eru stuttar og þar af leiðandi ófull-
nægjandi til afgreiðslu bendir skrif-
stofan sérstaklega á: ,,Ég vil þó benda
á, að meðan ekki er fullt skjól innan
við garðinn, getur verið varhugavert
að gera þar uppfyllingu og báta-
bryggju, þar sem búast má við því, að
frákast öldunnar frá uppfyllingu og
bryggjum auki ókyrð við garðinn“.
Vegna þess hve þörfin á meira
bryggjuplássi er rík, hefir hafnar-
nefnd beðið Vitamálaskrifstofuna að
rannsaka þetta mál til hlítar. Fæst
vonandi áður en langt um líður úr
því skorið hvað skynsamlegast sé að
gera til að bæta úr hinni brýnu þörf.
Vertíðin.
Framan af vertíð var mjög um-
hleypingasöm tíð og gæftir slæmar,
róðrar í janúarmán. nú aðeins 9 hjá
þeim, sem flesta róðra fór, en í fyrra
á sama tíma 18 róðrar.
Aflabrögð hafa verið hér í vetur
með betra móti, og hefir fiskurinn
jafnóðum verið seldur í erlend fisk-
tökuskip hér á staðnum.
31. marz s. 1. var lifrarmagn og
lóðrafjöldi bátanna á Akranesi sem
hér segir:
1. Eíöll Skallagrímsson ltr. 25491 róðrar 52
2. Hermóður .... — 24801 — 49
3. Ægir 23985 — 43
4. Ver 23284 — 45
5. Höfrungur . ... .... — 22909 — 46
6. Hrefna .... — 22549 — 46
7. Víkingur .... — 22634 — 46
8. Ármann .... — 21963 — 44
9. Skírnir 21633 — 43
10. Fvlkir 21381 — 36
11. Reynir 20595 — 48
12. Guðný 20293 — 48
13. Sigurfari 20065 — 40
14. Bangsi 19651 — 46
15. Sjöfn .... 19184 — 44
16. Valur 19017 — 41
17. Haraldur 17312 — 33
18. Fi'igg 16990 — 42
19. Sæþór .... — 12449 — 33
20. Sævar 10097 — 27
21. Alda .... 5641 — 13
Ltr. 411002
Á sama tíma í fyrra var lítratalan
af bátunum 358862.
1 janúarmán. síðastliðnum var aðal-
fundur haldinn í Knattspyrnufélagi
Akraness. 1 stjórn voru kosin: Sigurð-
ur Guðmundsson, Þórður Hjálmsson,
Ásmundur Guðmundsson, Aðalheiður
Oddsdóttir og Sveinn Guðmundsson.
7. apríl s. 1. hélt Knattspyrnufélagið
,,Kári“ aðalfund. í stjórn voru kosin:
Óðinn S. Geirdal, Guðmundur Svein-
björnsson, Hákon Benediktsson, Einar
Árnason og Málfríður Þorvaldsdóttir.
Tilfinnanlegur skortur hefir verið á
vinnuafli hér í vetur, þrátt fyrir all-
mikla aðsókn vinnufólks úr öðrum
landshlutum, sérstaklega af Norður-
landi. Hefir það oft valdið allmiklum
töfum víð fermingu og affermingu
skipa.
Bjarnalaug berast höfðinglegar gjafir.
Hlutafélagið Hængur á Bíldudal
hefir nýlega gefið 1500 krónur til
byggingar Bjarnalaugar, í minningu
um Bjarna Ólafsson skipstjóra.
Ennfremur hefir Kvennadeild Slysa-
varnafélags Akraness gefið til sund-
laugarinnar 1000 krónur, sem það afl-
aði sér með almennri skemmtisam-
komu, er það efndi til á annan dag
páska s. 1. — Er nú unnið að því sem
framast má, að laugin verði byggð í
sumar. Er vonandi, að útgerðin og
kaupstaðarbúar almennt, sameinist um
að styrkja þetta náuðsynjamál.
Á vegum íþróttaráðs Akraness
stendur hér yfir námskeið í íslenzkri
glímu. Þátttakendur eru um 20. —
Kennari er hinn góðkunni glímusnill-
ingur Kjartan Bergmann Guðjónsson,
glímukappi fslands.
Hér var um eitt skeið mjög iðkuð ís-
lenzk glíma; var þá starfandi glímu-
félagið Hörður Hólmverji. Átti það
félag ýmsa efnilega glímumenn, er
gátu sér góðan orðstír á glímumótum.
Er nú með þessu námskeiði gerð til-
raun til þess að endurvekja og glæða
áhuga manna fyrir hinni fögru og
þjóðlegu íþrótt.
HJutafélagið Víðir lœtur byggja
90—100 tonna vélskip.
Um s'íðast'liðin mánaðamót var hafin
bygging á 90—100 tonna vélskipi í
Dráttarbrautinni hér. Eigandi þess er
h.f. Víðir. Yfirsmiður er hinn góðkunni
skipasmiður Eyjólfur Gíslason frá
Reykjavík. Verður þetta stærsta skip,
sem nokkuru sinni hefur verið byggt á
Akranesi.
Hótel Akranes hefir enn verið
stækkað að mun. Er það eflaust eitt
með vistlegri hótelum utan Reykjavík-
ur. Einar Magnússon og kona hans
ráku það um langt skeið með prýði.
En 1. sept. 1941 keypti Guðmundur
Sve;nbjörnsson hótelið; hefir hann
stækkað það, eins og fyr segir, og rek-
ur það með sama fyrirkomulagi og áð-
ur.
Haustið 1940 ónýttust af eldi tal-
myndatæki Ytri-Akraneshrepps, en
þau voru í Báruhúsinu. Nú hefur hinn
nýi eigandi hússins, Guðmundur Egils-
son, loftskeytamaður fengið nýjar vél-
ar og eru sýningar þegar byrjaðar.
Hann hefur og látið gera við húsið, og
eru salakynni hin vistlegustu.
Mannalát.
Hinn 26. jan. s. 1. andaðist hér í bær'
að heimili sínu Mörk, frú Guðlaug Sig-
urðardóttir, kona dr. med. Árna Árna-
sonar héraðslæknis.
Sama dag vildi það sorglega slys til,
að tvo menn tók út af vélbátnum Val,
sem var í fiskiróðri. Tókst skipverjum
fljótlega að ná aftur öðrum mannin-
um, Albert Einvarðssyni. Bjargaði
hann sér á sundi að bátnum. Hinn mað-
urinn, Jóhannes Júlíus Ásgrímsson,
drukknaði. Hann var ókvæntur og á
bezta aldri.
8. febr. andaðist að heimili sínu
Söndum ekkjan Jakobína Jónína
Magnúsdóttir; hafði hún um langt
skeið átt við vanheilsu að búa.
Hinn 1. marz fórst vélbáturinn
Ófeigur frá Vestmannaeyjum með
allri áhöfn. Meðal þeirra var einn
Akurnesingur, Guðmundur Júlíus
Karlsson ; hann var fóstursonur þeirra
Guðmundar Narfasonar og konu hans
Júlíönu Jónsdóttur á Völlum. Lík Guð-
mundur sál. rak þ. 6. marz í Þykkva-
bæ og var jarðsett hér á Akranesi þann
20. sama mánaðar.
6. marz s. 1. ók vörubifreið yfir 6
ára gamlan dreng. Var það fyrir fram-
an húsið Efranes við Sleipnisveg. Mun
slysið hafa viljað til með þeim hætti,
að drengurinn kom hlaupandi út á
götuna, en vegna steinsteypugirðing-
ar, sem þarna er með veginum, mun
hann ekki hafa orðið bifreiðarinnar
var. Fékk hann mikinn áverka á höfði
og andaðist þegar. Foreldrar litla
drengsins, sem hét Margeir Steinar,
voru þau Daníel Friðriksson bilavið-
gerðarmaður og Rósa Benónýsdóttir.
— Það skal tekið fram, að bifreiðar-
stjórinn ók ekki ógætilega, að dómi
þeirra, er nærstaddir voru.
10. apríl s.l. andaðist Pétur Daniels-
son að heimili sínu Sjóbúð.
Bœ j arst jórnarkosningamar.
25. janúar s.l. fóru fram bæjar-
stjórnarkosningar á Akranesi. A-listi
(jafnaðarmenn) fékk 312 atkvæði og
3 menn kosna. B-listi (framsóknar-
menn) fékk 115 atkvæði og 1 mann
kosinn. C-listi (sjálfstæðismenn) fékk
405 atltvæði og 5 menn kjörna.
Fyrstu bæjarfulltrúar Akraness-
kaupstaðar eru þessir:
Af A-lista: Hálfdán Sveinsson, Guð-
mundur Kr. Ólafsson og Sveinbjörn
Oddsson. Af B-lista: Þórhallur Sæ-
mundsson. Af C-lista: Guðmundur
Guðjónsson, Haraldur Böðvarsson, Jón
Árnason, Jón Sigmundsson og ólafur
B. Björnsson.
Forseti bæjarstjórnar var kosinn
Ólafur B. Björnsson.
Ritari bæjarstjórnar var kosinn Jón
Sigmundsson.
Bæjarstjóri var kosinn Arnljótur
Guðmundsson.