Akranes - 01.02.1944, Qupperneq 1

Akranes - 01.02.1944, Qupperneq 1
111, úrgangur Februar 1944 2• tölublað „Leyfið börnunum að koma til mín . . Eftir séra Þorstein Lúther Jónsson i. „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því að slíkra er guðsríkið. Sannlega segi ég yður: hver, sem ekki tekur á móti guðsríki eins og barn, mun alls eigi inn í það koma.“ — Þessum orðum mælti Jesús til læri- sveina sinna, einhverju sinni þegar feð- ur og mæður komu með börnin sín til hans til þess að hann snerti þau. Mikil hefur trú þeirra verið á Jesú, þessara feðra og mæðra, og mikils hefur þeim fundizt um það vert, að hann fengi að snerta þau, hin hjartfólgnu afkvæmi sín. Þetta fólk, sem þarna var saman komið, vildi fela honum börnin sín, að sjálf- sögðu í þeirri bjargföstu trú, að það mundi verða þeim til ævinlegrar bless- unar. Allir þeir, sem eiga börn eða umgang- ast þau, vita, að ekkert er dýrmætara hér í heimi en barnið, sem þeim hefur verið trúað fyrir. Og heilbrigðir foreldr- ar geta öllu fórnað fyrir barn sitt. Við það eru bundnar hinar dýrmætustu von- ir þeirra. Sakleysi þess og hreinleiki lað- ar fram allt það bezta og göfugasta í sál- um þeirra og blessunaróskir þeirra og bænir fyrir framtíð og hamingju barns- ins eru svo djúpar og innilegar, að eng- um orðum verður komið að til að lýsa því. Þessi atburður lýsir þá tvennu: Traust- inu á drottinlegan mátt Jesú og tak- markalausri ást til barnanna. En það hlýtur öllum að vera ljóst, að þeir, sem færðu börnin til Jesú hafi gert það af ást til þeirra. Óhjákvæmilega hljótum vér að skilja af frásögninni, að ekkert gæti verið eftirsóknarverðara fyrir þau en að þau yrðu helguð honum og bless- uð af honum. Við það hlaut líf þeirra að fá meira gildi, vonirnar verða ríkari og fegurri, framtíðin bjartari og vissari og eilíf verðmæti óhagganlega bundin hon- um og helguð. Síðan Jesús mælti hin ógleymanlegu orð: „Leyfið börnunum að koma til mín“ og er hann hafði blessað þau, þessar saklausu og ómótuðu sálir, hafa læri- sveinar hans á öllum öldum kostað kapps um að helga þau honum og uppfræða í hans anda. Og þetta hefur verið gert allt til þessa og verður enn haldið áfram. Allir trúaðir foreldrar og uppalendur leggja megin áherzlu á það í uppeldi barna sinna að innræta þeim kristna trú svo, að hún megi gegnsýra allt hugarfar og breytni þeirra. Og þetta er ekki gert út í bláinn, heldur af því að reynslan sjálf hefur skorið úr um það, að ekkert er hollara né haldbetra fyrir manninn sjálfan og þá, sem með honum eru, en einmitt þetta: að eiga Jesú að leiðtoga lífs síns. Hvort sem maðurinn er snort- inn hinni innilegustu gleði eða sleginn hinni dýpstu sorg, hvort sem hann bað- ar í rósum eða á í hinum mestu erfið- leikum, og hvort sem hann er heilbrigð- ur eða sjúkur, reynist þetta ávallt hinn dýrmætasti fjársjóður. í meðlætinu verður gleði vor ávallt sönn og upp- byggileg, og í erfiðleikum og and- streymi verðum vér sterk og hugrökk. í uppeldi barna og unglinga var þetta takmark haft fyrir augum, með upp- fræðslu munnlegri og bóklegri og kristi- legu fordæmi. Og vér minnumst e. t. v. sjálf kyrrlátra kvöldstunda, þegar oss voru flutt heilög vísdómsorð í einföldum stefjum. Vér eigum slíkum stundum mikið að þakka, meira en vér vitum sjálf, því að þá var sá grundvöllur lagð- ur, er vér máttum hiklaust byggja á, þegar vér fórum að lifa lífinu á eigin spýtur og bera sjálf ábyrgð á gjörðum vorum. Þessi grundvöllur, sem varð oss þá, er mest reið á, veiga mesta stoðin til að byggja líf vort á persónulegri reynslu um eilíf sannindi. En þó að slík sé reynsla fjölda margra á öllum öldum, er það hinsvegar stað- reynd, að margir eru þeir, sem ekki vilja viðurkenna þetta og vinna markvíst að því að uppræta öll kristileg áhrif á upp- eldi barna og unglinga. Á síðustu ára- tugum hefur verið unnið að því að grafa undan trúarlífi manna opinskárra en nokkru sinni áður — unnið að því í létt- úð og skammsýni. Ávextir þessa starfs eru að koma í ljós og það víðar en varir. Og þetta hefur borið þann árangur, að það er ekki laust við að margir þeirra manna, sem sáð hafa til trúleysis og frá- hvarfs, skelfist þegar þeir sjá ávexti síns eigin sæðis. Menn predika frelsi af klafa fornra og úreltra hugmynda. Ávextirnir eru taum- leysi og virðingarleysi fyrir sjálfum sér og öðrum. Menn predika, að hin fornu boðorð skuli úr gildi felld — hinn nýi og upplýsti maður skal engin boðorð þurfa. Ávextirnir eru fótum troðin lög Guðs og manna, ábyrgðarleysi gagnvart skyldunum við heildina, stjórnleysi í kröfum til annarra, lágmarkskröfur til sjálfs sín. Menn predika ný viðhorf í hjúskapar- og ástamálum. Ávextirnir eru sundruð heimili. Þetta er ljót saga, og það nýtur þess enginn að hún sé rifjuð upp hér, en hitt er annað mál, að alvörumenn, sem ekki láta sér á sama standa, að komandi kyn- slóð farist í léttúð og andvaraleysi, hafi þetta í huga svo að þeir sjái betur, hvert stefnir. Það er því ekki óeðlilegt, þó að þetta mál sé hugleitt og rætt, fund eftir fund, af þeim mönnum, sem sjá hvílíkur voði er hér á ferðum og vilja að eitthvað sé gert til að afstýra honum og bjarga því, sem bjargað verður. Og voðinn er meiri og afdrifaríkari fyrir það, að nið- urrifsmenn vorra tíma túlka lífsskoðun sína fyrir börnum og unglingum — hin- um ólífsreyndu og ómótuðu einstakling- um þessarar þjóðar —, sem er eins og leir í höndum mannsins, sem á að vera kominn til vits og ára. En sá leir getur orðið að hreinasta listaverki í höndum þess, sem vill móta hann með allri gát og fullri hollustu við allt það göfugasta og bezta í tilverunni, en sem hinsvegar getur orðið að fullkomnum óskapnaði í höndum afvegaleiddra og óhlutvandra manna. „Leyfið börnunum að koma til mín“, sagði Jesús forðum. Það gerðu menn og reyndu, að það hafði hin blessunarrík- ustu áhrif í bráð og lengd, og undir öll- um kringumstæðum. Og mér er óhætt að

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.