Akranes - 01.06.1944, Side 18
78
AKRANES
ANNÁLL AKRANESS
Hátíðahöldin á Akranesi
í tileíni af fullveldistökunni og 80 ára verzl-
unarafmælis staðarins, 18. júní 1944. — Dagskrá:
Kl. 10 árd. Hátíðaguðsþjónusta í kirkjunni.
Kl. 1 Mannfjöldinn safnast saman á skóla-
blettinum. Þaðan hefst skrúðganga sem flestra
bæjarbúa. Gengið verður niður Vesturgötu, um
Bárugötu, Suðurgötu á Óðinstorg og þaðan á
hátíðasvæðið á Kirkjuvallatúni. Lúðrasveitin
Svanur spilar. Þar fer þetta fram:
Fánahylling.
Lúðrasveitin: Rís þú unga íslands merki.
Ávarp bæjarstjóra.
Lúðrasveitin: Ég vil elska mitt land.
Pétur Ottesen: Fullveldisræða.
Lúðrasveitin: ísland ögrum skorið.
íþróttasýningar og kappglíma. Verðlaun afh.
Lúðrasveitin: Ó, Guð vors lands.
Kl. 9 um kvöldið í Bíóhöllinni:
Afmælisræða: Ól. B. Bjömsson.
Karlakór syngur.
Kjartan Ólafsson skáld: Kvæðaflokkur í til-
efni af afmælinu.
Fjallkonan kemur fram með börn sín.
Blandaður kór syngur.
Dansleikur í Báruhúsinu um kvöldiö.
Gjafir og greiðslur til blaðsins:
Frá Sveinsínu Sigurðardóttur 2. og 3. árg. kr.
40.00. Óskari Halldórssyni 100 krónur Guðjóni
bónda Rögnvaldssyni fjögur eintök 3. árg 100
kr. Magnúsi Þórarinssyni Reykjavík 100 kr.
Vígsla Bjarnalaugar
fór fram á sjómannadaginn 4. júní að við-
stöddu miklu fjölmenni. Athöfnin var öll hin
ánægjulegasta og fór mjög hátíðlega fram. —
Vígsluræðuna hélt Ól. B. Björnsson og afhenti
hann fyrir hönd þeirra aðila er stóðu að bygg-
ingunni, laugina bænum að gjöf, skuldlaust. —
Bæjarstjóri þakkaði fyrir hönd bæjarins með
ræðu. Guðmundur Kr. Guðmundsson formaður
íþróttanefndar ríkisins hélt ræðu og sömuleiðis
Ben. G. Waage, forseti í. S. í.
Frá þessu öllu, sem og öðrum hátíðahöldum
á sjómannadaginn hér, verður rækilega sagt í
blaðinu síðar.
Bryggjugerð i sumar
Ákveðið hefur verið að hefja byggingu báta-
bryggju innan við hafnargarðinn nú á þessu
sumri. Verkið er þegar hafið.
Samband borgfirzkra kvenna
Dagana 7.-9. júní s. 1. hélt Samband borg-
firzkra kvenna 13. ársfund sinn á Akranesi.
Fundinn sóttu 20 fulltrúar frá 12 kvenfélög-
um, en fleiri félög eru ekki í sambandinu. Auk
þess var öll stjórn sambandsins mætt, þær
Svafa Þórleifsdóttir, Akranesi, formaður, Ragn-
hildur Bjömsson, Borgarnesi, ritari og Sigur-
björg Björnsdóttir, Deildartungu, féhirðir. Á
fundinum mættu og þær Geirlaug Jónsdóttir,
formaður húsmæðraskólaráðs, Guðrún Péturs-
dóttir, Reykjavík, frá Kvenfélagasambandi ís-
lands og Aðalbjörg Sigurðardóttir, er flutti er-
indi á fundinum um skólamál.
Merkustu samþykktir fundarins, auk ýmsra
samþykkta varðandi félagsmálin voru þessar:
1. Að unnið sé kappsamlega að því, að koma
á fót fullkominni kennslu fyrir væntanlegar
kennslukonur í hagnýtri handavinnu, hlið-
stæðri eða í sambandi við húsmæðra-kennara-
skóia íslands.
2. Að íramfylgt sé ákvæðum um handavinnu-
kennslu í öllum barnaskólum landsins, og sé
kennslan kerfisbundin.
3. Að tekin verði upp kennsla í matreiðslu
fyrir fullnaðarprófsstúikur um land allt með
þvi fyrirkomulagi, er bezt hentar á hverjum
stað.
4. Að unnið verði að því að athuga mögu-
leika á stofnun og rekstri almenningsþvotta-
húsa.
5. Að unnið verði kappsamlega að útvegun
hvers konar vinnuvéla til heimilisnotkunar,
enda keppt að þvi að slíkar vélar verði laus-
ar við tolla, hliðstætt við landbúnaðarvélar,
jafnt í kaupstöðum sem sveitum.
6. Að athugaðir verði möguleikar á því að
koma upp tóvinnuverksmiðju í héraðinu.
S. Þ.
Hjónaband
Nýlega hafa verið gefin saman í hjónaband
ungfrú Steinunn Ólafsdóttir frá Reykjavík og
Egiil Jónsson frá Ársól.
Afmœli
i
Sigurbjörn Sveinsson Hlíð varð 50 ára 12.
júní s. 1.
Einar Gíslason Akurprýði verður 75 ára 17.
þ. m.
Júlíus B. Benediktsson ívarshúsum verður 50
ára 4. júlí n. k.
Frú Guðrún Jónsdóttir Vesturgötu 45 verður
85 ára 4. júlí n. k.
Árni Bergþórsson Ráðagerði verður 70 ára 8.
júlí n. k.
Frú Kristín Guðnadóttir Óðinsgötu 3 verður
50 ára 13. júlí n. k.
Frú Þórunn Sigurðardóttir Melkoti verður
80 ára 20. júlí n. k.
Gjafir og áheit til Bjarnalaugar:
Áheit frá h.f. Víðir 2000 kr. Gjöf frá Árna
Guðnasyni 100 kr. Frá Óskari Hallórssyni 1000
kr. Petrínu og Pétri Ottesen 500 kr. Knatt-
spyrnuíélagi Akraness 1500 kr. Hljómsveit
Akraness 1030 kr. H.f. Hængúr kr. 5135.40. Frá
Margréti Nikulásdóttur til minningar um for-
eldra hennar og ömmu 1000 kr. Árna Kristins-
syni 1000 kr. Ólafi Ásmundssyni til minningar
um föður hans, sem andaðist á síðastliðnum
vetri 93 ára að aldri 1000 kr. Gísla Vilhjálms-
syni 200 kr. Önnu Jónsdóttur Bjargi 50 kr. Til
minningar um Þorvald heitinn Ólafsson, konu
hans Sigríði Eiríksdóttur og son þeirra Tómás,
frá börnum þeirra hjóna 2500 kr. Frá Þóroddi
Oddgeirssyni 1000 kr. Til minningar um Sigurð
heit. Jóhannesson og konu hans Guðrúnu Þórð-
ardóttur frá börnum þeirra 2000 kr. Sóffaníasi
Guðmundssyni 100 kr. Frá Einari Ólafssyni til
minningar um föður hans Ólaf Árnason, sem
varð bráðkvaddur í róðri 1886, og til minning-
ar um bróður hans, Pál, sem drukknaði á
Reykjavíkurhöfn árið 1900 kr. 500.00. Frá ó-
nefndum 120 kr. Frá Guðmundi Bjarnasyni
Minni-Borg 50 kr. Birni Lárussyni Ósi 100 kr.
Til minningar um Bjarna Ólafsson og Þórð Ás-
mundsson frá Ólafi Finsen lækni 500 kr.
Innilegustu þakkir.
Níels Kristmannsson. Axel Sveinbjörnsson.
Ól. B. Björnsson.
Þakkir
Hjartans þakkir til allra, nær og fjær, sem
auðsýndu mér vinarhug með heimsókn, gjöfum
og skeytum á 70 ára afmæli mínu þann 31. maí
1944. — Guð blessi ykkur öll.
Guðjón Sigurðsson Dægru.
Leiðrétting
í síðasta blaði hefur fallið niður nafn Kol-
beins ívarssonar, þar sem talað er um börn
ívars Helgasonar. Kolbeinn var hér bakari síðar
og mun verða getið í því sambandi.
Söngskemmtun í Bíóhöllinni
Með Bíóhöllinni hefur aðstaða batnað mikið
til þess að geta notið listræns flutnings söngs og
leikja. Gagnvart leikflutningi má þó segja, að
enn sé þetta ofmælt, þar sem leiksviðið hefur
ekki verið útbúið fullkomlega til þeirra hluta,
en vonandi verður fljótlega úr því bætt. Þegar
því þessi bætta aðstaða er fengin, er það sorg-
legt, ef Akurnesingar notfæra sér ekki þann
menningarauka, sem í því felst að geta hlustað
á góðan söng, sem þar kann að vera boðinn,
hvort sem fluttur er af heimafólki eða aðkom-
andi.
Hinn 7. maí s. 1. hélt ungfrú Anna Þórhalls-
dóttir frá Reykjavík söngskemmtun í Höllinni.
Ungfrúin hefur mjög laglega rödd, og fer eink-
ar smekklega með verkefnin. Voru þó sum lög-
in allerfið. Undirleik annaðist ungfrú Anna
Péturss af mikilli smekkvísi.
Því miður var skemmtun þessi líklega illa
auglýst, enda voru þar mikils til of fáir. Fólk
á að sækja þær skcmmtanir, sem hafa eitthvert
menningarlegt gildi, a. m. k. til jafns við það
lélega, annars getum við orðið samdauna sorp-
inu.
Barnaskólanum
hér var sagt upp laugardaginn 29. apríl s. 1.
Alls stunduðu nám í skólanum 292 börn. Braut-
skráð voru að þessu sinni 46 börn.
Við skólauppsögn barst fullnaðarprófsbörn-
um 500 kr. í ferðasjóð sinn frá Bókaverzlun
Andrésar Níelssonar. Síðastliðið vor, 1943, gaf
sami maður fullnaðarprófsbörnum 300 krónur
í ferðasjóð. Mun þetta vera fágæt rausn við
skólabörn hérlendis.
„Vorið skrifar völl og hlíð . . .“
Við megum ekki spilla vorsins yndi og feg-
urð sumarsins með alls konar óþrifnaði og
kæruleysi. Prýðum bæinn okkar, sem mest við
megum, því það veitir okkur ánægju og kem-
ur öðrum til að feta í fótspor okkar.
J