Akranes - 01.07.1944, Blaðsíða 1

Akranes - 01.07.1944, Blaðsíða 1
///. argangur Júlí—ágúst 1944 7.—8. tölublað Island frjálst Hinn 17. júní s. 1. var á Þingvelli lýst yfir lýðveldisstofnun á íslandi, að und- angenginni þjóðaratkvæðagreiðslu um sambandsslit við Dani og um lýðveldis- stofnunina. Þátttakan í þessum kosn- lngum var einstæð og athyglisverð, og lofar vonandi góðu um að svo fagurlega °g í einingu andans verði allt gert af þeim sama fjölda til að standa vörð um hið endurheimta frelsi þessarar litlu ^enningarþjóðar. Ef vér ekki gerum Það, bregðumst vér sjálfum oss, land- lnu og öllum þeim, sem öfluðu oss frels- isins á ný og einnig Guði vorum. A þessum sama stað var því yfir lýst af fjölda erlendra ríkja, að þau myndu virða þessa frelsisyfirlýsingu vora, og viðurkenndu þetta litla ríki sem jafn- rettháan aðila sjálfum þeim til þess að þ&fa áhrif á gang mála á ráðstefnum ri"kj a hér eftir. Á þessum fornhelga stað var og í fyrsta sinn kosinn af Alþingi Forseti ís- iQnds. Til þess veglega starfs var kosinn herra Sveinn Björnsson, er verið hafði rikisstjóri íslands frá því er Danmörk var hernumin. Sveinn Björnsson hafði glæsilegan starfsferil að baki, margháttaða reynslu °§ þekkingu til þessa veglega og vanda- sarna starfs, er hann nú var kjörinn til. Hann er viðurkenndur gáfmnaður, mannkostamaður og kristinn maður. Sumar af stórþjóðum heimsins hafa fyrr og síðar lagt megináherzlu á þessa þrjá meginkosti sinna forystumanna. Slíkir kostir voru snemma lagðir til grund- vallar veglegra embætta á landi hér og verður vonandi lengi enn.

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.