Akranes - 01.07.1944, Page 10

Akranes - 01.07.1944, Page 10
94 AKRANES HEIMA OG HEIMAIV Sigurður hómópati var einn af þeim mörgu íslendingum sem í æsku var ekki fengið til umráða „búið skip“. Einn af þeim sem allt frá æsku varð að brjótast áfram á eigin spýtur án þess „hlaðið væri undir“, ef hann vildi koma hug- sjónum sínum eða hugðarefnum í fram- kvæmd. Að ytra útliti var Sigurður víkingur, sem og að afli og áræði. Þó var hann svo lipur að hann var talinn afburða glímumaður. Þrátt fyrir þetta var hug- ur hans og hjarta bljúgt og barnslegt, sem ekkert aumt mátti sjá, og sem fyrst og fremst vildi láta gott af sér leiða, t. d. með því að af fremsta megni að leysa menn úr álögum veikindanna. Það er margsagt og sannreynt, að hann bar oft giftu til að gera gagn í þessum efn- um, og löngu viðurkennt svo sem kvæði þau sína sem hér koma á eftir. Sigurður andaðist í Lambhúsum 23. júní 1926 rúmlega 83 ára að aldri. Hann var síungur fram undir það síðasta, kátur og hress en þó saddur lífdaga. Hér fara á eftir tvö eftirmæli um Sig- urð hómópata: Það er svo ólal margt að minnast á, er mannsins ævibraut er litið yfir, og þó að imóðurmoldin hylji ná, þitt mannorð gulli dýrra hjá oss lifir. Þín læknislist og bróðurandans afl var alþekkt víða meðal landsbúanna. Við dauðann lékstu löngum örðugt tafl og leikinn vannstu oft. Það margir sanna. Og þegar læknar aðrir urðu mát og öll var þrotin vizka þeirra og dáðin, þá breyttirðu oft í gleði þungum gráti, og gáfust bezt þín lyf og hollu ráðin. Þess finnast dæmi fjöldamörg og skýr af fimmtíu ára læknisstörfum þínum. Því mun þinn lifa hróður hreinn og dýr og hinir græddu þakka lækni sínum. í vinahóp þú fluttir líf og fjör, menn fagna að sjá og heyra gesti slíka, því með þér gleði og geislar voru í för. Þú gladdir jafnt þann snauða og hinn ríka Og er þú varst af víni lítið ör, þá var þér löngum hnyttin staka á munni. En þótt þér stundum mættu misjöfn kjör, þú möglaðir ekki yfir tilverunni. Þú varst hetja, hetja í sjón og raun svo hugprúður og sannur Islendingur, og þú varst ei sem barn að blása í kaun, Þótt blési að þér heimsins frostnæðingur, en hjarta barns í brjósti þínu sló, svo blítt og hlýtt sem vorsins mildi andi og hugur þinn um víða veröld fló og vængi breiða að fræðálulindum þandi. Þú fóstru vorrar fúa græddir sár, jafn fús og okkar bræðra og systra þinna. Þau verk þín munu lifa um ótal ár og um þinn dugnað mæla þau til hinna, sem koma og fara fram hjá gróðurreit, er fyrrum vannstu úr hrjóstur móa gráum og blómlegasta býli þar í sveit, sem bautastein þinn einn við lengi sjáum. Eg veit þú kysir sízt að sorgaróð við syngjum yfir þér í kveðjuskyni, en gæti einhver kveðið kraftaljóð og kvatt til starfs og dáða landsins syni, Fáheyrð rausn við lítið blttð Nýlega afhenti maður einn úr Reykjavík mér 1000.00 — eitt þúsund krónur — að gjöf til blaðsins. Eg var undrandi yfir þessum óvenju- lega drengskap, þeirri rausn, velvilja og viður- kenningu — til blaðsins —, sem í þessu felst. Þessi ágæti maður (E. H., er ekki Akurnesing- ur, og nefur tiltölulega lítið haft saman við þá að sælda) segir, að þetta sé gert í viðurkenn- ingarskyni við blaðið. Fyrir það, sem það hafi þegar flutt af ágætu efni, og alveg sérstaklega fyrir, hvernig það taki á málunum yfirleitt, og með hverjum hug þau séu rædd, velvilja og skilningi. Þessi ágæti maður bannaði að láta nafns síns getið. Það verður því vitanlega ekki gert. Hins- vegar vil ég þrátt fyrir bannið geta þessa hér og þakka honum hjartanlega fyrir þennan ein- staka höfðingsskap, sem er blaðinu vitanlega þú mundir vilja heldur heyra það, því hugur þinn æ sannri framsókn unni. Þú fús þeim jafnan fylgdir málum að, sem fyrir ísland vildi og berjast kunni. Við sjáumst aftur ungir, vinur minn, við eilífð himinglaða og sólarbjarta, er Drottinn blíður ástararminn sinn þar ellimóðu lætur svala hjarta. Þar verður gott að syngja nýjan söng í sólarroða Guðs í dýrðarhæðum. Þar verður andinn ekki í neinni þröng, þvíandiguðsþarstjórnarsöng og kvæðum. Þau kveðja þig nú blessuð börnin þín, þau blessa og signa kistu þína yfir, og heilagt Ijós í hjarta þeirra skín um hreina minning þína er eftir lifir. Þau blessa og þakka þér frá fyrstu stund, er þau á jörðu dagsins birtu sáu. Þau "bíða, þrá og fagna þínum fund í faðmi Guðs í dýrðarljósi háu. Sumarliöi Halldórsson. Fylking þynnist, fækkar einum fósturjarðar góðum syni, manni af eldri menntagreinum, merkum og af hefðarkyni. Vaxinn upp í veðrabrigðum vetrarríku átthaganna, bóndasonur búinn dyggðum beztu sinnar þjóðar manna. Logaði í sálu listaneisti, læknisgáfa manninn prýddi, þyngstu sjúkdómsþrautir leystir, þar með eðlisgöfgi hlýddi. Veikindanna í voða hótum varð því mörgum létt að rata, sendast eftir sárabótum Sigurðar til hómópata. Þæg er hvíldin, þyngist fæti, þegar hallar ævidegi. Gott færð þú hjá Guði sæti, genginn dauðans huldu vegi. Verkin góðu, varðinn bezti við þér blasir fyrir stafni. Veglegt er þitt veganesti. Vertu sæll í Drottins nafni. Kjartan Ólajsson. ómetanlegur styrkur í baráttunni fyrir lífinu. Það er takmark þess og mesta áhugaefni að komast sem fyrst í kynni við svo marga kaup- endur, að því sé fjárhagslega borgið með réttu og sléttu árgjaldi hvers eins. Til þess vantar það enn 500—1000 kaupendur. En slíkar stórgjafir sem þessar, er því fullkomin trygging fyrir því, að svo muni um síðir verða, því þær byggj- ast vitanlega á „óskiljanlegum" vinsældum, sem einhverntíma hljóta að fjölga kaupendunum svo að dugi. Um leið og blaðið þakkar innilega þessum ágæta manni og öðrum stuðningsmönn- um þess, allan velvilja og beinar gjafir, treyst- ir það öllum vinum sínum að útvega því fleiri góða kaupendur. Vinsamlegast. Ó. B. B. Karl Georg Krisljánsson Fœddur 7. október 1926. — Dáinn 9. jebr. 1944. Þegar björt sígur sól í æginn svartnættið hylur lífsins frjó. Sonar er missir sorg í bæinn sækir, þá hverfur gleði’ og ró. Kátur þú varst og viðmótsgóður, vildir mörg reyna þroskastig, föðursins aðstoð, yndi móður, allir, sem þekktu trega þig. Hetju í brjósti huga barstu, hrönn þó samt varð ei hvíla þín. Fyrimynd ungra fögur varstu, forðaðist tóbaksnautn og vín. Andlega dimmir yfir mönnum æskunnar bjartri vona sól efnivið þegar eytt er sönnum, en þannig snýst oft tímans hjól. Minning þín geymist mörgu’ í hjarta, mætast við fáum aftur brátt fögru á ljóssins landi bjarta lífsins þar ekkert hindrar mátt . Karl sálugi var nýkominn úr sjóferð, og var að ganga heim frá sjónum með föður sínum, (er lengi hafði verið aflasææll formaður á v.b. Draupnir frá Súgandafirði). Á leiðinni heim mættu þeir unglingum, sem voru að renna sér. Karl fékk lánaðan einn sleðann og renndi sér oían sömu leiðina, en þótti ekki hafa tekist nógu vel, fór því upp aftur, talsvert hærra, og missti þá stjórnina af of mikilli ferð á sleðan- um, svo að hann lenti á girðingarstólpa, er stóð upp úr gaddinum, með þeim afleiðingum, að hann beinbrotnaði og bilaði svo innvortis, að hann lézt litlu seinna. Minningarorð frá mömmu. , • H. O. Snmgöngurnar við Reykjavík Nú um stund hefur Akranes haft góðar sam- göngur við Reykjavík. Eru farnar minnst þrjár og stundum fjórar ferðir daglega á 100 tonna bát. Nú getur fólk komist suður tímanlega að morgni og aftur til baka seint um kvöldið. Not- ast þannig dagurinn fullkomlega til starfs í Reykjavík. Sérstaklega er þetta hentugt nú í gistihúsvandræðunum i Reykjavik. Og jafnvel Framhald á blaðsíðu 102.

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.