Akranes - 01.11.1945, Qupperneq 7

Akranes - 01.11.1945, Qupperneq 7
AKRANES 127 21. Ævilok Heilsufar Geirs Zoega hafði jaínan verið hið bezta, og mátti með engum rétti segja að honum yrði kvellisamt um dagana. Þótt hann hefði jafnan starfað af kappi og áhuga, tekið daginn snemma og ekki hlíft sér á neinn hátt, var svo að sjá sem hann mundi furðu lengi standast fangbrögð- in við Elli kerlingu. Og þótt hann yrði hálf-níræður, virt- ust þess engar líkur, að hún kæmi honum bráðlega á kné. Hinn 22. dag febrúarmánaðar 1917 hélt Geir silfurbrúð- kaup sitt öðru sinni. Þá var hann vel ern og hinn hressasti, þótt kominn væri nokkuð á 87. aldursárið. í tilefni af deginum héldu Geir og kona hans veizlu góða. Var þeim hjónum sýndur margvíslegur virðingar- vottur. Færðu Oddfellowar þeim að gjöf málverk af Ei- ríksjökli, eftir Þórarinn B. Þorláksson málara. Fáum dögum eftir hófið tók Geir að kenna mikillar van- heilsu. Voru það blöðrusteinar, sem að honum gengu, en jafnframt þjáðist hann af gömlu kviðsliti. Tók hann út þrautir miklar og þótti brátt sýnt, að uppskurður væri eina vonin, ef um líf ætti að vera að ræða. Var þó talin á því tvísýna mikil, hvort Geir þyldi stóran uppskurð, svo gamall maður og slitinn sem hann var orðinn. Hinn 11. marz var uppskurðurinn gerður, og fram- kvæmdi hann Guðm. prófessor Magnússon. Tókst skurð- urinn allvel, miðað við það sem við mátti búast. Geir var að vísu mjög þungt haldinn á eftir, en að viku liðinni frá uppskurðinum virtist hann á allgóðum batavegi. Litlu síð- ar fékk hann lungnabólgu og var þá brátt sýnt að hverju fór. Hinn 24. marz var hann orðinn rænulaus að mestu og hættur að njóta svefns án meðala. Að morgni var sunnu- dagur. Var vakað yfir honum um nóttina, og andaðist hann í morgunsárið. Lauk þar ævi þess athafnamannsins, sem hvað mikilhæfastur hafði verið í allri sögu Reykjavíkur fram til þess tíma. „Gamli Geir“ var hniginn í valinn. Öll blöðin í Reykjavík og flest blöð landsins minntust Geirs og ævistarfs hans með lengri eða skemmri greinum. Ummæli blaðanna sýna glögglega hversu mikils álits Geir hafði notið meðal samborgara sinna, og hverja dóma ævi- starf hans fékk hjá mönnum með ólíkar stjórnmálaskoðan- ir og mismunandi viðhorf til lífsins. Verða hér tekin upp nokkur atriði úr ýmsum þeim blöðum, sem minntust Geirs látins. Eru einkum valdir þeir kaflar, þar sem gerð er til- raun til að lýsa Geir og gefa mynd af skapferli hans og skoðunum. ísafold birti góða og ítarlega grein um Geir, þar sem sagt er frá ævi hans í stórum dráttum. í greinarlok er komist svo að orði: „Þegar Geir Zoéga fæddist, voru íbúar höfuðstaðarins eitthvað um 700, þegar hann tók verulega til starfa í bæn- um milli 1860 og 1870 voru íbúar bæjarins 1500, en eru nú við ævilok hans 15000. Því nefnum vér þessar tölur, að líklega á enginn einn maður jafnmikinn þátt í þessum mikla vexti og viðgangi höfuðstaðarins eins og Geir Zoéga. Um langt árabil var hann mestur atvinnurekandi bæjar- ins — og alls landsins um leið — og hann er það, eins og áður er tekið fram, sem markað hefur aðalatvinnuveg bæj- arbúa. Hafi nokkur Reykjavíkurborgara á seinni árum verðskuldað heiðurshorgara nafnið, þá var það „gamli Geir.“ Og framar öðrum innfæddum Reykvíkingum ætti hann að sjást, er stundir liðu, í eirmynd, sem þá ætti að búa stað einhvers staðar við höfnina. Hér stóð vaggan — hér stóð vorið, hér stóð sérhver raun. Enginn hefur bænum borið betri fósturlaun, var ort til Geirs á áttræðisafmæli hans 1910. Nú við lát hans, hins elzta innfædda Reykvíkings, mun Reykjavíkur- bær taka undir þessi réttmætu orð. Geir Zoéga var að sjálfsögðu, svo mikill athafnamaður, riðinn við ýmis önnur mikilvæg störf en útgerð sína og verzlun. T. d. átti hann sæti í bæjarstjórn um hríð. En við landsmálum gaf hann sig ekkert opinberlega, þótt vissu- lega hefði hann sínar ákveðnu skoðanir. Var sú lund hans, Framh.

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.