Akranes - 01.08.1947, Qupperneq 5

Akranes - 01.08.1947, Qupperneq 5
yfirleitt uppskera menn eftir því, hvernig þeir hafa sáð. Það verður ekki dregið í efa, að allt það böl og vítiskvalir, sem af styrj- öld leiða, eru ávextir af vanþroska, ódyggð- um og illsku mannanna. Þegar svo loks er á það litið, að hvergi gætir ósamræmis í lögmáli guðs i efnisheiminum, eða í nátt- úrunnar lögum eins og þeir munu segja, sem ekki eru guðstrúar, þá er ástæða til að halda því fram, að glötunarkenningin brjóti ekki bág við heilbrigða skynsemi. Það er ekki gagnstætt réttri hugsun að trúa því, að illra manna bíði ill tilvera annars heims og því verri og því lengur sem þeir eru verri og seinni að snúa sér til réttrar stefnu. Hitt er svo annað mál, hvernig liver og einn hugsar sér þessa tilveru. Víti og hin- um illu öflum var á öldum áður lýst og þau útmáluð á þann hátt, sem ekki getur samrýmst hugsun nútiðarmanna. Þegar þessum gömlu kenningum var ekki lengur trúað þvarr sú trú, að til væri Satan og viti. Það er ekki rétt, en liugmyndir hvers eins um þetta atriði fara eftir þroskastigi hans, hvernig hann skilur kenningu Krists um þau efni. Þetta atriði er fyrir utan svið þekkingar vorrar og sömuleiðis hitt, hvers vegna guð leyfir kvalir og vansælu þessa heims og annars.. Vér þekkjum jarð- neskt víti og vitum, að guð lætur það við- gangast. Það kollvarpar ekki guðstrú vorri. En þess er þá að gæta, að enginn grund- vallarmunur er á kvalafullu ástandi fflannssálarinnar þessa heims og annars. Guðstrú vor lokar því ekki glötunarhug- myndina úti af ofannefndri ástæðu og því síður, sem vér ekki vitum um þau tæki- færi, sem guð gefur mönnunum til að taka rétta stefnu að jarðlífinu loknu. Þetta svið er utan og ofan við þekkingu vora og skilning og það er hætt við, að heilabrot vor endi í villu og misskilningi. Vér skul- um í því sambandi minnast þess, hve sjálfir postularnir misskildu Krist, er þeir hugðu, að það yrði þegar á þeirra dögum sð Kristur kæmi í skýjum himins á degi dómsins. Það er sjálfsagt réttast, að trúa orðum Krists og láta hann um það, sem or utan og ofan við vora lillu þekkingu og skilning. Þá er að lokum sú mótbára, að hvorki sé rétt né hollt, að hræða með kenningunni um víti. Þessi mótbára er í eSli sínu staðleysa, en getur þó verið hálf- Ur sannleikur. Það má predika víti á þann liátt, að þsð sé bæði rangt og skaðlegt, og það má Vera, að andúðin gegn slíkri predikun sé ostæðan til þess, að kenningunni er nú orðið litið haldið fram. En sé það viður- kennt, að Kristur hafi talað ákveðið um þetta efni, þá er það vitanlega rangt að þegja um það og draga fjöður yfir orð hans Ulu það mál fremur en önnur. Aðferð strutsins, að stinga höfðinu í sandinn á hættunnar stund, hefir aldrei þótt vitur- AKRANES leg. Það er rangt, að loka augum manna eða leyfa þeim að loka augunum fyrir af- leiðingum og hættum hinnar öfugu og illu stefnu mannsandans frá hinu góða, frá guði. Það er álíka rangt eins og það væri, að dylja unga og gamla þeim hætt- um og því tjóni og refsingum, sem eru afleiðingar öfugs lífernis og afbrota hér í lífi. Það er ekki ráðið til þess að lækna eða koma í veg fyrir meinsemdir mannfélags- ins, að gjöra lítið úr afleiðingunum eða þegja yfir þeim. Það er ekki ráðið til að sporna við kynsjúkdómabölinu, að þegja við unga og gamla um þá afleiðingu laus- lætisins, eða láta sér nægja að mæla á þá leið, að skemmtilegra sé að vera skírlífur. Það myndi heldur ekki reynast happasælt í baráttunni gegn áfengisbölinu, að sleppa öllum umræðum og fræðslu um afleið- ingar áfengisnautnar. Baráttumenn á því sviði láta sér ekki nægja að segja, að hóf- semin sé fegurri og skapi hamingju, held- ur segja þeir sem satt er, að sá, er iðkar vínnautn, eigi það á hættu að spilla al- gjörlega lífi sínu og verða ræfill og aum- ingi. Hinu má svo ekki gleyma, að þegar barizt er gegn meinsemdum og böli mann- lífsins, verður að gjöra það ekki aðeins i fullri hreinskilni, heldur og af skynsam- legu viti og fullri sanngirni. Það á ekki sízt við um það efni, sem hér hefir verið minnst á. Það á ekki og það er engin þörf á að predika það þannig, að valdið geti bölsýni eða hugsýki. Það á að ráðast á syndina en ekki syndarann. Þá er að lita á hina hliðina, björtu hlið- ina, því að hún er lika til. Það er til friður og sátt, gleði og hamingja í lífi einstak- linga og þjóða, og það er von mannkyns- ins, að sú stefnan fái sigur. Því er þó ekki að neita, að margir eru bölsýnir. Þeir lita svo á, að mannlífinu verði ekki breytt til batnaðar. Þetta vonleysi og trúleysi, eða öllu heldur vonleysi trúleysisins geta kristnir menn ekki fallizt á. Vér kristnir menn erum þess fullvissir, að til er leið, sem mönnunum er fær, að þvi takmarki, sem öllum á að vera sameiginlegt, en það er mannfélag, sem er bræðralag, byggt á réttlæti og kærleika, guðsríki á jörðu. Til þess að breyta mannlífinu á þenna hátt, þarf að grafast fyrir rætur bölsins og útrýma því. En við athugun málsins verður niðurstaðan einmitt sú, að rótin er í mönnunum sjálfum, þar er að leita or- sakarinnar. Þá liggur það líka i augum uppi, að mennirnir þurfa að breytast. Ráðið er fyrst og fremst það, að bæta mennina. En verður þeim breytt? Margir efast um það. En þó er það vitað, að menn- irnir hafa breytzt mjög mikið frá því t. d., er þeir voru frumstæðir og það hafa orðið breytingar á mönnum og þjóðum á skemmri tíma, þeim tíma, sem sagan nær yfir. Sagan getur líka um ákveðnar hugar- farsbreytingar á vissum tímum, er ákveðn- ar stefnur og andlegir straumar fóru yfir löndin. Enn er á það að líta, að þótt fjöldi manna og margar þjóðir standi á lágu menningarstigi, þá er til fjöldi góðra og göfugra manna með mörgum þjóðum og sumar þjóðir eru komnar á allhátt stig manngöfgi og siðgæðis. Nú á vorum dög- um eru t. d. til þjóðir, sem ekki myndu hefja stríð að fyrra bragði í þvi einu skyni, að undiroka aðrar þjóðir og brjóta undir sig lönd þeirra. Þær breytingar, sem orðið hafa á mönn- um og þjóðum, eru að vísu mestar og á- þreifanlegastar á einn veg. Mennirnir hafa vaxið að þekkingu. Þeir hafa öðlazt stórfenglega kunnáttu i mörgum greinum, náð taumhaldi á náttúruöflunum og gjört jörðina sér undirgefna. Mannlífið hefir tekið miklum breytingum til batnaðar á þeim sviðum, þar sem kunnátta og tækni ráða mestu eða öllu. Mannvit og þekking hafa leyst margar gátur og ráðið fram úr mörgum vandamálum. Þeir eru líka marg- ir, sem einblina á þessar framfarir og af- rek vitsmunanna og hafa fengið ofbirtu í augun af ljósi vísindanna. Þeir eru sann- færðir um, að þekking og vísindi séu ein- fær um að skapa hamingju i heiminum og halda henni við. Það sé aðeins undir því komið, að þekkingin sé nægilega mikil, því að þá sjái menn og skilji orsakir og eðli mannlegs böls og muni afstýra því. Kristnir menn líta öðruvísi á. Að visu dregur enginn það i efa, að vitsmunir og þekking eru dýrmæt andleg verðmæti, sem hafa orðið og geta orðið til mikillar blessunar. Vitsmuna og þekkingar er þörf,. til þess að sjá og skilja rætur og orsakir meinsemda mannfélagsins og hvernig úr þeim verði bætt. En tíðindi þau, sem gjörst hafa í þeim löndum, sem talin eru mikil menningarlönd og mesta eiga þekkinguna, sýna átakanlega, að mannvit og þekking eru ekki einhlít. Það fer meira að segja svo, að þessi dýrmætu vopn snúast öfug í höndum liinna vitrustu manna og valda hinni mestu bölvun. Það þarf annað og meira til en vit og þekkingu, til þess að skapa hamingju þjóðanna og gjöra menn- ina sæla. Þar verða önnur andleg verð- mæti að koma til. Þessi verðmæti eru mannkostirnir, dyggðirnar. Þau verðmæti eru hin mikilvægustu og þau eru torfengn- ari en þekkingin, en þau verður mann- kynið að eignast í nægum mæli, til þess að skapa heill og hamingju einstaklinga og þjóða, það er óumflýjanlegt. Það er skilyrðislaus krafa. Það eru þessi verð- mæti, sem Kristur lagði áherzlu á. Hann vann að þvi, að efla þau og breiða þau út meðal mannanna. Það er einnig stað- reynd, að þegar óhamingja steðjar að, og við ei Ithvert böl er að stríða, þá er flúið til þessara verðmæta, þessara andlegu gæða, og þar er leitað lækningar einstak- lingum og þjóðum. Fjöldi vitrustu og beztu 89

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.