Akranes - 01.08.1947, Page 7
Úr dagbókum Sveins Guómundssonar
III.
Þetta var ritað í okt. 1907: — Ef við
tækjum nú þegar það ráð, að hætta öllum
aðflutningi á ónauðsynlegum vörum, svo
sem víni og glysvarningi, en legðum aftur
meiri kraft á framleiðslu, sérstaklega fiski-
afla, þá mundi hér strax sjá staði. Gullið
okkar er ísl. vara, land- og sjávarafurðir.
Auðvitað verðum við nú sem stendur að
stoppa ýmsar verklegar framkvæmdir, á
meðan bankar okkar eru tómir. Það er
nauðverja. En að leggja kapp á fram-
leiðslu, er að grafa upp gull. Þetta verðum
við að hafa hugfast nú um tíma og sjálf-
sagt ætíð að spara útgiftir sem ekki bera
arð.
Um þessi áramót, 1907 og 1908, er
Sveinn ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Borgfirðinga og ákveðið að setja upp sölu-
deild á Akranesi.
3. apríl 1908. — Halldór Einarsson á
Bakka jarðsettur.
31. des 1909 dó Björn Böðvarsson.
22. júni 1910 kaupir Sv. G. Efrigötu af
Magnúsi gamla Jónssyni fyrir 900 kr.
1. okt. 1910 stofnað Isfélag hér. 19 hlutir
á 500 kr. hver. Þar af á Thomsen 10, sem
er andvirði allra eigna hans hér.
Þeir, sem fórust héðan á kútter Svanur-
inn 17. apríl 1912: Magnús Ólafsson,
Bjargarsteini, Magnús Magnússon, Sjávar-
borg, Sigurmundi Helgason, Vigfús Magn-
ússon, Austurvöllum, Bjarni Guðmunds-
son, Sveinn Sveinsson, Litlubrekku, Teitur
Gíslason, Ármóti.
31. desember 1912. — Aftansöngur fór
ágætlega. Ólafur Björnsson, Litlateig, tón-
aði og fór það mjög vel.
20.—28. febr. 1913. — Dóu eftirfarandi
4 persónur: Bjarni Guðmundsson, Sól-
mundarhöfða, Kristín Magnúsdóttir, Upp-
koti, Halldóra Ásmundsdóttir, Bæjarstæði,
Kristín Teitsdóttir, Nýlendu. Allt vandað
og gott fólk.
20. des. 1913. Um nóttina strandaði hér
gufuskip á Fuglaskeri, fram undan Elínar-
höfða. Skipið heitir „Forrce,“ og var með
3. Kona ófrísk eða með barn á brjósti.
Verndandi fæða: Mjólk 1 líter, kjöt eða
fiskur 120 gr., 1 egg, ostur 30 gr., græn-
meti 100 gr., kartöflur 250 gr., baunir 10
gr., lýsi 1 barnaskeið. Ávextir eða hrátt
grænmeti (t. d. 100 gr. appelsínur eða
sítrónur). Orkugefandi fæða: Fita, mjöl-
efni (mn 250 gr.) og sykur. Verndandi
fæða alls um 1550 hitaein., en dagsfæði
3000—3500 hitaein. (eftir vinnunni).
Orkugefandi fæðan, sem einkum fer til
brennslunnar, verður aðallega mjölmeti
(brauð og grautar), feiti og sykur, og verð-
akranes
3000 skpd. af saltfiski. Björgunarskipið
var í Reykjavík, og var fengið til að bjarga,
en það gekk allt mjög böngullega. Að skip-
ið strandaði kom til af því, að bæði var
það bilað og áttavitinn skemmdur.
6. janúar 1914 var haldið 11 ára afmæli
Bárumanna. Á vertiðinni 1914 eru héðan
um 90 manns i Sandgerði.
Á jólum 1914 tónaði Einar Einarsson
Kvaran. Gott.
Að árslokum 1914. Sjávarafli hefur ver-
ið í meðallagi og verð á fiski mjög hátt,
frá 80—100 kr. skpd., en striðið hefur tept
samgöngur svo að fiskur hefur ekki verið
sendur fyrr en rétt fyrir áramót, og þó ekki
almennt eða að fullu. Síðan stríðið byrjaði
hefur öll vara verið að stíga í verði, bæði
útlend og innlend og höfum við því fengið
vörur okkar vel borgaðar. T. d. haustull
verið seld hér á 1.20 pr. pund. Hross hafa
verið borguð afar háu verði. Verzlun til
áramóta er því ekki stórþvingandi fyrir
landið, en það lilýtur að koma fram á kom-
andi ári, og það tilfinnanlega, jafnvel þó
stríðið hætti, sem ekki er útlit fyrir.
Það sem okkur snertir og er stór eftir-
tektarvert, það eru lögin um algert vín-
sölubann hér á landi. Við efum ekki að
þau færa frið og blessun á hvert heimili
og umskapa landslýðinn í hugsunarhætti
og færa hann í ný föt sem fara honum
betur. Þeir, sem lifa eftir 12 ár, munu sjá
í þessu falli mikil og stór umskipti.
3. janúar 1915. Sigurhátið okkar templ-
ara fór fram með tveim ræðum í kirkj-
unni, sem þeir fluttu Oddur Sveinsson og
Gísli Hinriksson. Þeim mæltist vel. Þar
var æfður og góður söngur. Eftir það sam-
sæti, kaffi og súkkulaði. Ræður og söngur
i skólanum. Allt fór vel fram.
16. apríl. „Gullfoss“ er kl. 9 f. h. að
hafna sig í Reykjavík, og eru það mikil
tiðindi fyrir Islendinga. Honum hefur
verið eins og vera bar mjög vel fagnað, og
vona allir hins bezta af þessu fyrirtæki.
Hamingjan fylgi blessuðu skipinu.
17. júni. Hefi byggt Geirmundarbæinn,
ur sú viðbót að vera því meiri, sem vinn-
an er erfiðari. Þessar fæðutegundir eru
ödýrari og mörgum munntamari. Hvítt
hveiti og póleruð hrísgrjón eru bætiefna-
snauð og ber því að nota rúgmjöl og heil-
hveiti. Galli hvíta hveitisins og sykursins
er annars einkum sá, að mönnum hættir
til að neyta minna af verndandi fæðu, er
þeir neyta hveitis og sykurs verulega.
Þessar fjörefnasnauðu tegundir verða því
gauksunginn i hreiðrinu, til heilsuspillis
einkum börnum og unglingum.
Árni Árnason.
og flytur fjölskylda Gísla Hinrikssonar í
hann i dag.
Ingunn og Haraldur giftu sig 6. nóvem-
ber 1915.
24. desember. Ágætur aftansöngur, Öl.
B. Björnsson tónaði.
Við áramót. — Á þessu ári byrjum við
að sigla okkar eigin skipum milli landa.
Gullfoss og Goðafoss. Þessi skip bæði eru
góð, og vel útbúin að öllu og hæfilega stór.
Við þurfum aðeins að stækka þennan út-
veg því að hann er svo áríðandi.
8. nóv. 1916. Byrjuðum að virða hér
hús fyrir Brunabótafélag Islands.
20. nóv. Erum að virða hús, fólk óánægt
með lög þessi. (Brunabótalögin).
13. jan. 1917. Það slys vildi til í nótt, að
1 maður, Sig. Sigurðsson í Hjallhúsi, kafn-
aði inni af lampaljósi. Hjá honum var
kærasta hans og systir hennar. Voru þær
með lifsmarki, en mjög hæpið að þær lifi.
(Þær dóu báðar).
8. sept. 1917. Verð á kartöflum nú 30
—32 kr. pr. íoo kg. Það er eins og annað
afar dýrt. Hervald Björnsson verður kenn-
ari haustið 1917.
Við árslok 1917. — Afurðum okkar er
nú mjög erfitt að koma á erlenda markaði.
Þó tekur út yfir með saltfiskinn. Verzl-
unarhorfur allar ískyggilegar. Salt er um
300 kr., kol sama. Járn og kopar að sama
skapi. Grjón 1.20 kg„ og allt þar eftir.
7. apríl 1918. Vantar 2 báta. Odd í
Presthúsum með 3 mönnum, og Valdimar
í Innsta-Vogi með 2 menn.
1918 kemur Guðmundur Björnsson,
sýslumaður.
11. sept. 1918. Nú er 60 ára afmæli
Jóns prófasts Sveinssonar. Kom af hend-
ingu til hans og sagði hann mér það þá.
Hann er lang merkasti maður þessa pláss
og djúphyggnasti, en beitir sér of lítið, þvi
friðsemin er takmarkalaus.
Oddgeir Ottesen dó 1918 í nóv.
21. april 1919. 1 dag er stofnað hér félag
í því skyni að koma á fót blaði, sem konn
út einu sinni á mánuði. 1 framkvæmda-
nefnd voru kosnir þeir: Þorsteinn Jónss-
son, Ólafur B. Björnsson, Níels Krist-
mannsson, Þórður Ásmundsson, Jón próf.
Sveinsson og Sveinn Guðmundsson.
8. maí 1919, komu hingað Sigurður
Kjartansson og Eiríkur Hjartarson. (Þeir
komu til að leiða rafljós — frá mótor — í
Hoffmannshús og Litlateig).
27. júní 1920. Iþróttamót hér. Hall-
grimur Jónsson (á Miðteig) vann glímu-
skjöldinn.
12. maí 1920 er Sveinn Guðmundsson
settur hreppstjóri.
31. des. 1920. Saltfiskur í góðu verði, eða
sem svarar 250 kr. skpd. Kartöflur 50 kr.
tunnan.
2. jan. 1921, deyr Jóhann Björnsson,
hreppstjóri. Þar fellur frá merkur maður
og réttlátur. 22. maí dó sr. Jón Sveinsson
91