Akranes - 01.08.1947, Blaðsíða 17

Akranes - 01.08.1947, Blaðsíða 17
þangað. Urðu ýmsir danir mjög reiðir út af þessu tiltæki framkvæmdastjórans. Var víst reynt að halda þvi fram að þetta væri runnið af stjórnmálalegum ástæðum, og verið beitt. áhrifum á Nielsen i þessu efni. Birtust um þetta efni nokkrar greinar í dönskum blöðum. Þá þegar sýndi Nielsen þann drengskap að birta opinberlega í dönskum blöðum yfirlýsingu þess efnis, að „Enginn Islendingur, hvorki stjórn- endur félagsins eða einstakir menn, hefðu látið nokkra ósk í ljósi við mig, að málað yrði yfir flöggin. Það var ég einn, fram- kvæmdarstjóri félagsins, sem skipaði þannig fyrir. Ástæðan til þess var sú, að „Gullfoss“ var hið fyrsta skip, er til Is- lands hefur komið svo, að það væri smíðað fyrir islenzkt fé eingöngu. Fyrirtækið var svo algerlega þjóðlegt, að hver maður, jafnt ríkur sem fátækur, hefur lagt á sig þungar byrðar og sýnt hina mestu ósér- plægni í þessu máli. Það hefði því verið næsta óviðfeldið að koma með varúðar- merkin og „Danmark" málað á skipshlið- ina, þegar fyrsta íslenzka skipið kom til Islands. önnur ástæða mín var sú, að varúðarmerkin gera það að verkum, að skipið sýndist minna en það í raun og veru er. En ég vildi auðvitað að þetta snotra og rennilega skip, liti eins fallega út og unnt væri, er það kæmi heim til sín. Fólk tók „Gullfossi" alls staðar með áköfum fögn- uði, en allt var það laust við pólitískar æsingar." Svona drengilega og rækilega gerði Emil Nielsen hreint fyrir dyrum í dönskum blöðum, út af árásum sinna eigin landa. Afstaða hans í þessu máli — þó ekkert stórmál væri — lýsir vel, allt frá uppafi, hvernig Nielsen hefur hugsað sér að þjóna félaginu og þvi landi sem hann tókst á hendur að vinna fyrir. Hann hefur sýnilega ætlað sér að láta starfið mótast af nauðsyn og þörfum Eimskip og Islands. Meira að segja á undan hans eigin föðurlandi. Slík var réttlætiskennd fyrsta framkvæmdarstjóra Eimskipafé- lagsins. Einn skipstjóri alla tíð. Glæstur ferill „Gullfoss“ í tuttugu og fimm ár sýnir að félagið hefur verið liepp- Jð í valinu um skipstjóra. Hann var hinn farsæli fyrirmyndarmaður, sem ekki mátti vamm sitt vita. Honum var starfið °g hamingja skipsins og heill félagsins allt. Sigurður Pétursson, skipstjóri, er fædd- ur 12. ágúst 1880 og uppalinn í Hrólfs- skála á Seltjarnarnesi. Sonur Péturs Sig- urðssonar bónda Ingjaldssonar. Höfðu forfeður hans búið í Hrólfsskála í marga ættliði. Höfðu þeir stundað búskap til sjós °g lands. Kona Sigurðar Ingjaldssonar hét Sigríður Pétursdóttir Guðmundssonar bónda í Engey. Móðir Sigurðar, og kona Péturs Sigurðssonar, var Gauðlaug Páls- dóttir, snikkara Pálssonar prófasts í Hörgs- akranes Þýzkur kafbátur stöSvar „Gullfoss“ í fyrra stríSinu. dal á Síðu, Pálssonar. En móðir Guðlaug- ar, ömmu Sigurðar, var Guðrún, systir Péturs organleikara Guðjohnsen. Kona Sigurðar skipstjóra er Ingibjörg Ölafsdótt- ir, Guðmundssonar frá Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi. Eiga þau yndislegt heimili í Pálsbæ á Seltjarnarnesi. Hugur Sigurðar hneigðist fljótt til sjáv- arins. Ákvað hann ungur að fara á sjó- mannaskólann hér og innritast á hann aðeins 18 ára gamall, og líkur prófi þaðan i8gg. Af ýmsu má ráða að Sigurður hafi snemma verið farið að óra fyrir og dreyma um auknar siglingar Islendinga. Því ein- göngu við það miðast ákvörðun hans um að ganga enn á stýrimannaskóla i Kaup- mannahöl'n. En þaðan tók hann próf eftir D/2 ár. Hann vissi að ef Islendingar eign- uðust einhvern tíman stærri fiskiskip, eða skip til að lialda uppi eigin siglingum milli landa, þyrfti til þess meiri menntun og frekari réttindi en stýrimannaskólinn hér veitti i þá daga. Eitthvað sigldi Sigurður á dönskum skipum, en kom fljótlega heim og gerðist skipstjóri fyrir föður sinn á kútter „Milly.“ Var hann þar til 1907 er hann fór sem stýrimaður á flóabátinn „Ingólf“ og var það frá 1907—08. Þaðan fer hann sem 1. stýrimaður á „Austra," strandferðaskip Thorefélagsins 1910. Þar var hann í 3 ár, en fer þaðan á „Mjölnir,“ eftir að „Austri var seldur. Þar var hann svo til vors 1914, er hann ræðst enn til náms á Radioskólann í Svendborg, og tek- ur þaðan próf sem loftskeytamaður. Eftir þennan undirbúning. þar sem hann í starfi hafði sýnt árvekni og sam- vizkusemi, var hann í febrúar 1915 ráð- inn skipstjóri á hið nýja skip Eimskipa- félagsins, sem nú var verið að byggja. Sigurði fannst hér áreiðanlega í mikið ráðist af svo ungum manni. Þess heldur sem engin hliðstæð skipsstjórn hafði þekkst á Islandi. Hugurinn snerist því óaflátan- lega um það, að allt í sambandi við þetta nýja og mikla ábyrgðarstarf færi helzt meira en sæmilega úr hendi. Annars yrði þetta svo mikið áfall fyrir framtið ís- lenzkra millilandasiglinga, er þær væru nú hafnar að nýju eftir margra alda uppi- hald. Sigurður Pétursson er dulur maður og hefur sig lítt i frammi utan þess verka- hrings sem hann á að sjá um. Þegar liann er spurður, og beðinn að segja frá ein- hverju merkilegu sem skeð hafi á „Gull- foss“ þau 25 ár, sem hann hafði þar yfir- stjórn, segir hann ofur rólega, að þar hafi ekkert merkilegt gerst. Þetta sýnir bezt lyndiseinkunn hans ög hlédrægni. Því nærri má geta hvort t. d. í fyrra stríðinu hafi ekki ýmislegt komið fyrir öll árin sem frásagnar væri vert, og hafi á þeim tíma haldið vöku fyrir svo samvizkusömum manni. Því það skauzt upp úr Sigurði, að í raun og veru hafi hann vanrækt allt sitt, næstum að segja sitt eigið heimili, af um- hugsuninni og áhyggjum fyrir þvi að „halda skipinu á floti“ án þess nokkuð yrði að, eða komið gæti fyrir sem ylli skipi, skipshöfn, farþegum eða félaginu tjóni á einhvern veg. 1 fyrra stríðinu fór „Gullfoss" 14 ferðir milli Islands og New York. Þótti Ameríku- mönnum það alveg furðuleg sigling á svo litlu skipi á öllum árstíðum svo langan veg, og það á stríðstímum. Á fullveldis- daginn 1918 var „Gullfoss" kominn lang- leiðina til Ameríku. Hinn 3. desember voru þeir í New York, og var þann dag í fyrsta sinn á „Gullfossi“ dreginn að hún utan íslenzkrar landhelgi hinn íslenzki fáni. Hefi ég heyrt Gisla Jónsson, alþm., sem þá var vélstjóri á „Gullfoss,“ lýsa þeirri hrifni sem það vakti. Þetta litla ein- falda atvik skapaði auðsjáanlega hátíðlega stund, sem þeim er viðstaddir voru, muni seint úr minni líða. Þar var um hollan þjóðarmetnað að ræða, þar sem enn eitt spor var stigið í áttina til fullkomins frelsis. Þennan dag vakti það mikla eftir- tekt að sjá hinn nýja fallega fána á svo lítilli „skel“ við hlið alls hins tröllaukna í hinni víðlendu voldugu álfu. I tilefni af þessum atburði og vegna fullveldisdagsins, hafði Sigurður skipstjóri boð inni — í skipinu — fyrir alla Islend- inga sem til náðist og vitað var um í New York. Var þar mikill gleðskapur allan þennan dag og margar ræður fluttar. Tvisvar var „Gullfoss“ slöðvaður af þýzkum kafbáti í fyrra stríðinu. Fylgir þessari grein mynd af öðrum kafbátnum. Fór skipsbátur frá „Gullfossi“ til viðtals við kafbátsforingjann. Spurði hann „Gull- foss“-menn ýmsra spurninga, en sagði þeim loks að halda áfram ferð sinni, en taka upp i leiðinni skipshöfn á litlum bát er þeir myndu fljótlega mæta. En hún var af Eistnesku skipi er kafbáturinn hafði ])á nýlega sökt. Var það gert, og þeim skilað í enskt eftirlitsskip nálægt Hjaltlandi. Engar aðrar hættur mættu þeim á sigl- ingu þeirra öll stríðsárin. Aldrei telur Sigurður skipstjóri að 101

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.