Akranes - 01.08.1947, Blaðsíða 19

Akranes - 01.08.1947, Blaðsíða 19
óhappaverk, þegar stjórn félagsins var hindruð i því rétt fyrir síðasta strið, að bæta verulega flota félagsins. Enn fremur tel ég það nú mjög misráðið af stjórn fé- lagsins, að gefa ekki alþjóð — á fjárveltu- tímunum — kærkomið tækifæri til að leggja að nýju fram drjúgan skilding til varnar og vaxtar þessa mikla þjóðþrifa- fyrirtækis, sem hefur verið og verður ein megin stoð þjóðfrelsis vors. Varðstaða um þetta félag er skylda vor, um leið og það eykur þegnskap og þroska einstaklinga og þjóðarheildar. Ekki þarf að efa, að gifta „Gullfoss" hefur haft verulega þýðingu fyrir þroska og þróunarsögu Eimskipafélagsins. 1 þeirri giftu á Sigurður Pétursson vafalaust ríkan þátt. Ekki aðeins hvað viðkemur „Gull- foss“ einum. Heldur og í því mikilvæga fordæmi er hann hefur sýnt í starfi sínu, þeim er hann þjálfaði — og síðar urðu hátt settir menn í þjónustu félagsins — og annara þeirra er til starfs hans þekktu. Nú væri ef til vill rétt að spyrja: Er ahugi og skilingur alþjóðar fyrir nauðsyn og gagnsemi þessa þýðingarmikla félags- skapar eins ríkur og vakandi sem í önd- verðu? Eða höfum vér sofnað á verðinum? Til þess síðara bendir ýmislegt. M. a. þegar komið var í veg fyrir byggingar- áform stjórnarinnar fyrir stríð, og sá leið- indatónn sem við og við skýtur upp höfði opinberlega í garð félagsins. Það var hin mikla fararheill þessa félags í öndverðu, að menn af hinum ólíkustu stjórnmála- skoðunum stóðu saman sem einn maður um heill þess og heiður. Þjóðin sýndi það þá og hefur sýnt það oftar, að þegar þroski og þegnskapur hefur mátt sín mest — og sigrað — hefur þeim málefnum verið borgið. Svo verður þetta að vera áfram um Eimskipafélag fslands. Um framtíð þess verður öll þjóðin að standa vörð til hinztu stundar, með hinum sama eldi, einhug og festu sem öll þjóðin grundvall- aði það í öndverðu. Þar var um met að ræða, sem verður að munast, meðan nokkuð er ógert af því sem land og þjóð þarnast til þess að tryggja betur en orðið er mannsæmandi tilveru,* heiður og and- legan þroska. Núverandi stjórn félagsins skipa þessir menn: Eggert Claesen, formaður. Hallgrímur Bendediktsson, varaform. Richard Thors, ritari. Halldór Kx. Þorsteinsson, gjaldkéri. Guðmundur Ásbjörnsson. Jón Árnason. Ásgeir G. Stefánson. Ásmundur P. Jóhannsson. Árni Eggertsson. Sem betur fer virðist stjórnin enn vera vakandi fyrir vexti og endurnýjunarþörf skipastólsins, því nú er verið að byggja fyrir félagið 4 ný skip. Þrjú þeirra eru farmskip, með farþegarými fyrir 12 far- þega. Hið fjórða er glæsilegt þarþegaskip — aðallega. — Með rúm fyrir 214 far- þega. Má telja víst að þetta skip hljóti nafnið „Gullfoss," og er sennilegt að með þvi telji stjórnin „Gullfoss" kominn heim á ný. Gamli „Gullfoss“ var 235 fet á lengd, en þetta skip verður 330 fet. Eftir samningi átti gamla skipið að ganga 12 sjómílur á klukkustund, en þetta skip á að ganga 17V2 sjómílu. Enn munu margir óska þess og vona, að gamli „Gullfoss“ komi strax heim þegar hann hættir að sigla. Ól. B. Björnsson. B Æ K U R — Fækorn. Kristilegt Smáritasafn, I. Hinn 4. september s. 1. voru liðin 100 ár frá andláti sr. Jóns lærða i Möðrufelli. Sr. Jón var öndvegis klerkur á sinni tíð, gáfaður og vel lærður, sem bezt má marka af viður- nefni því, er við hann festist, enda kunni liann t. d. þessi tungumál: latínu, grísku, hebresku, þýzku, ensku, frönsku, sænsku og dönsku auk síns móðurmáls. Sr. Jón hafði eldlegan áhuga fyrir málefni kristindómsins. Lét hann sér ekki nægja predikun af stól í sóknum sínuin heldur fórnaði hann tíma, fé og fyrirhöfn til útgáfu kristilegra smárita til að dreifa um landið. Á þeim tíma hefur þurft meira en meðal manns kjark og dugnað til þess að koma slíku í verk, í öllu því allsleysi sem þá ríkti á landi hér, um samgöngur og hvað eina. Þegar þess er gætt að nú eru liðin 130 ár síðan sr. Jón stofnaði til sinnarsmáritaút- gáfu og mun hafa liaft um 700 kaupendur að þessum ritum sínum, sannar það glögg- lega það sem hér var áður sagt um dugnað Jóns og atorku í þessu máli, og hinsvegar, að ekki getur hjá því farið að útbreiðslan hafi verið svo mikil vegna þess að ritin hafi verið vel þegin. Til þessarar starfsemi sinn- ar gaf sr. Jón og stofnaði 1000 ríkisdala sjóð, sem var mikið fé á þeim tíma. Meðan honum entist aldur, gaf hann út kristilegt smárit enbjó auk þess 13 undir prentun. Voru ritin einu sinni ekki prentuð hér inn- an lands, heldur úti í Kaupmannahöfn. Nú hafa nokkrir kristnidómsvinir, undir forustu Ölafs Ólafssonar kristniboða, hafið nýa smáritaútgáfu í anda sr. Jóns lærða, og nefna „Frækorn l.“ Hefst þetta fyrsta hindi á æfisögu sr. Jóns lærða í Möðrufelli. Annað efni þessa bindis er þetta: Einvígi milli sannleikaog lýgi. Eftir sr. Jón lærða . Vegur guðs. Eftir Árna Árnasson. Bróðir Daníel. Eftir Ó. Ó. Að ýmsu leiti ætti nú að vera hægara um vik og útgáfu slíkra rita sem hér um ræðir. Þó munu nú á þvi meir erfiðleikar þrátt fyrir allt.Ekki síst um lestur slíkra rita hlutfalislega við það sem gerðist á hinum miklu þrengingatímum með þjóð vorri. Sjálfsagt er og ekki minni þörf kristilegra rita með þjóð vorri nú en áður var. ★ Eiríkur á Brúnum. Vilhjálmur Þ. Gíslason sá um útgáfuna. Útgefandi: Isafoldarprentsmiðja h. f. 1946. Eiríkur á Brúnum var einn af sérkenni- legustu inönnum sinnar samtíðar. Hann var greindur fróðleiksmaður. Iljá honum bjó rík útþrá eins og mörgum landa fyrr og síð- ar. 1 samræmi við það eðli sitt, ferðaðisl hann mikið. Til kóngsins Kaupmannahafn- ar, þar sem hann lieimsótti Kristján konung IX. og Valdimar prins son hans, og þá af þeiin góðar gjafir. Þegar Kristján konungur níundi kom hingað til lands 1874 kynnt- ist Eiríkur konungi og syni hans lítillega á ferðalögum hans uin landið. Enda reið Valdimar hesti sem Eiríkur átti og keypti konungur hann fyrir 60 dali og hafði hann með sér lieim. Telur Eiríkur að sá rauði hafi þekkt hann er liann kom til að skoða klár- inn í Kaupmannahöfn tveim árum síðar. Frá öllu þessu segir Eiríkur vel og skil- merkilega, með dálitið einkennilegum blæ og stílmáta, en skemmtilega og af mikilli eftirtekt á þvi sem fyrir eyrun bar. Einnig ferðaðist Eirikur til Ameríku. Gerðist mormóni og dvaldi í landi mormón- anna í nokkur ár. Hann gafst upp við það, og taldi það síðar „villu.“ Kom aftur til Is- lands og settist að í Reykjavík, og dó þar 14. október árið 1900. Meðan Eirikur var mormóni ferðaðist liann hér nokkuð. Varð liann þá fyrir nokkru aðkasti vegna trúar- skoðana sinna, og mjög einmana. Tók hann öllu þessu með stillingu og jafnaðargeði. Hann var einkennilegur hæfileikamaður, sem liafði marga góða kosti, en misskilinn eins og margir. Hann tróð heina braut sinna eigin hugsana og ákvarðana, og varð því oft fremur einangraður en uinvafinn, en lét það allt furðu lítið á sig fá. Bók þessi er um margt merkileg og skemmtileg. Hún er skrifuð af mikilli ber- sögli og nákvæmni hins eftirtökusama manns, sem segir frá á látlausu, en allgóðu alþýðumáli þess tíma. Ó. B. B. ★ Nýtt ársrit. Arngrímur Fr. Bjarnason, kaupm. á Isa- firði, hefur nú í þriðja sinn gefið út ársrit, er hann hefur valið nafnið „17. júní,“ enda gefið út í tilefni þjóðliátíðardags okkar. Rit þetta er smekklegt, prentað á góðan pappír, með inörgum ágætuin greinum og hugvekj- um, og prýtt myndum. í riti þessu hefur Arngrímur sett sér það mark, að hafa a. m. k. eina, — helzt ræki- lega grein — úr atvinnusögu Vestfjarða. Að þessu sinni er þarna all rækileg grein um vöxt og viðgang Patreksfjarðar. Er þetta mjög vel til fundið, góður og gagnlegur sið- ur, sem fleiri héruð eða fjórðungar mættu gjarnan taka eftir Arngrími. Fleiri góðar hugvekjur og gagnlegar eru í ritinu. Bera þær allar með sér áhuga og einlægni útgefandans fyrir andlegum þroska og verklegri þróun með þjóð vorri, sem hvort tveggja verði að fylgjast að, ef vel á að fara. AKRANES 103

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.