Akranes - 01.08.1947, Page 22

Akranes - 01.08.1947, Page 22
T ílkynníng frá fjárhagsráði. Fjárhagsráð hefir ákveðið, að frestur til að skila um- sóknum um fjárfestingarleyfi til hvers konar fram- kvæmda á árinu 1948 skuli vera til 1. desember n. k. í Reykjavík, Seltjarnarneshreppi og Hafnarfirði og 15. desember n. k. annars staðar á landinu. Umsóknirnar skulu vera á sérstökum eyðublöðum, sem hægt er að fá í skrifstofu ráðsins í Reykjavík og hjá bæjarstjórum og oddvitum í öllum verzlunarstöðum úti um land. Sérstök athygli skal vakin á þvi, að allir þeir, er sent hafa um- sóknir um fjárfestingarleyfi á þessu ári, verða að endur- nýja umsóknir sinar, svo framarlega sem framkvæmdum verður ekki lokið fyrir áramót, alveg án tillits til þess hverja afgreiðslu umsóknin hefir fengið hjá fjárhagsráði eða umboðsmönnum þess. Frekari skýringar á umsókn- um um fjárfestingarleyfi verða veittar í sérstakri grein- argerð frá fjárhagsráði, er lesin verður í útvarpinu, og verður nánar auglýst um það. Umsóknirnar skulu send- ast til skrifstofu fjárhagsráðs, Tjarnargötu 4, Reykjavík. Reykjavík, 13. nóvember 1947. Fjárhagsráð. j I l---------------------------—-----------— r--------------------------------—---—— Leyíísveítíngum lokið á árinu 1947. Engin gjaldeyris- og innflutningsleyfi verða veitt héðan í frá á þessu ári, nema um sé að rœða aðkallandi nauðsynjavörur til útflutn- ingsframleiðslunnar. Umsóknir um aðrar vörur er því þýðingarlaust að senda nefnd- inni, og telur hún sér ekki skylt að svara þeim. Samkvœmt þessu ber þeim, sem eiga óaf- greiddar umsóknir hjá nefndinni, að líta svo á, að þeim umsóknum sé synjað með þessari auglýsingu. Verði hins vegar um einhverjar leyfisveit- ingar að ræða í sambandi við þau lönd, er ísland hefir samning við um gagnkvæm vöruskipti (clearing), mun það tilkynnt með auglýsingu eða á annan hátt, eftir því sem við á. Reykjavik, 17. nóv. 1947. Viðskiptanefndin. :----------------------- 106 Auglýsing nr. 21,1947 frá skömmtunarstjóra Viðskiptanefndin hefir samþykkt að heimilaskömmt- unarskrifstofu ríkisins að veita aukaúthlutanir á vinnu- fatnaði og vinnuskóm samkvæmt sérstökum umsóknum til þeirra er þurfa á sérstökum vinnufatnaði eða vinnu- skóm að halda, vegna vinnu sinnar. Aukaskammtar þessir eru bundnir við það, að keypt- ur sé aðeins fatnaður, sem framleiddur er úr nankin eða khaki, eða þá trollbuxur, svo og vinnuskór úr vatnsleðri með leður- eða ti botnum. Bæjarstjórum og oddvitum hafa nú verið sendir sé'r- stakir skömmtunarseðlar í þessu skyni, svo og eyðublöð undir umsóknir um þessa aukaskammta. Geta því þeir, er telja sig þurfa á þessum aukaskömmtum að halda, snúið sér til þessara aðila út af þessu. Þessa sérstöku aukaseðla getur fólk ekki fengið utan þess umdæmis (bæjar- eða hrepps) þar sem það á lög- heimili (er skráð á manntal) nema það sanni það með skriflegri yfirlýsingu viðkomandi bæjarstjóra eða odd- vita, að það hafi ekki fengið þessum sérstöku seðlum úthlutað, þar sem það á lögheimili. Heimilt er að úthluta þessum aukaseðlum á tímabil- inu til 1. jan. 1948, en þann dag missa þeir gildi sitt sem lögleg innkaupaheimild í verzlunum. Þær verzlanir, sem telja sig þurfa á fyrirfram inn- kaupsleyfum að halda til kaupa á umgetnum vörum í heildsölu, geta snúið sér til skömmtunarskrifstofu ríkis- ins með beiðni um slík leyfi og tilgreint hjá hverjum þeir óska að kaupa vörurnar. Innlendum framleiðendum og heildsölum er óheimilt að afhenda umræddar vörur til smásöluverzlana nema gegn þessum sérstöku inn- kaupsleyfum eða þá skömmtunarseðlum þeim, sem gefn- ir hafa verið út í þessu skyni, og gilda slíkar innkaupa- heimildir aðeins til 1. janúar 1948. Reykjavík, 20. nóvember 1947. Skömmtimarstjórinn. T ílkynníng frá Skömmtunarskrifstofu ríkisins. 1 sambandi við auglýsingu skömmtunarstjóra nr. 22/ 1947 um skömmtun á kolum, skal sérstaklega á það bent, að auðveldast mun að framkvæma kolaskömmtun- ina þannig, að notendur snúi sér til kolasala með beiðni sína um kolakaup, en kolasalinn útvegi sér svo heimild bæjarstjóra eða oddvita til afgreiðslunnar samkvæmt tvírituðum lista, sem kolasalinn leggi fram. Þetta fyrir- komulag gæti losað einstaka notendur við það ómak að sækja um innkaupaheimild hver fyrir sig. Sama fyrir- komulag getur að sjálfsögðu verið við innkaupaheimild- ir handa skipum og öðrum þeim, sem nota kol til annars en venjulegrar heimilisnotkunar. Reykjavík, 19. nóvember 1947. Skömmtunarskrifstofa ríkisins. AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.