Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004
Fréttir DV
Bíll og bátur
í árekstri
Harður árekstur varð á
Drottningarbrautinni á Ak-
ureyri um fjögurleytið í gær
þegar bátur skall
á bifreið. Að sögn
lögreglunnar
varð slysið með
þeim hætti að
tveir bílar mætt-
ust og var bátur fastur á
kerru aftan í öðrum þeirra.
Báturinn losnaði í þann
mund sem bílarnir mættust
og lenti í veg fyrir bílinn
sem kom á móti með þeim
afleiðingum að bifceiðin
stórskemmdist og er jafnvel
ónýt. Ekki hlutust meiðsl á
fólki en slysið þykir ein-
stætt.
Ölvaðir í
átökum
Lögreglunni á fsfirði
barst að morgni sunnu-
dagsins tilkynning um
að maður hefði orðið
fyrir líkamsárás í gleð-
skap sem hann var í á
ísafirði. Þar mun honum
og öðrum gesti hafa orð-
ið sundurorða og átök
brotist út.
Dagsektir á
Impregilo
Heilbrigðiseftirlit Austur-
lands ákvað um mánaða-
mótin að setja 70.000 kr.
dagsektir á ítalska verktaka-
fyrirtækið Impregilo. Ástæð-
an var ófullkominn
fr ágangur í mötu-
neyti við Kára-
hnjúka þar sem
um 700 manns
borða. Síðan í desember
hafði verið þrýst á.um end-
urbætur á aðstöðunni án
árangurs. Helga Hreinsdótt-
ir, framkvæmdastjóri heil-
brigðiseftirlitsins, segir að
henni hafi borist símtal ofan
af Kárahnjúkum í gær, sama
dag og dagsektir áttu að
hefjast. Var henni tjáð að
búið væri að ganga frá lag-
færingum. Hún segir að hún
muni heimsækja mötuneyt-
ið í dag, þriðjudag.
Samkomulag
Samkomulag náðist á
fúndi Rafiðnarsambandsins
og fulltrúa Samtaka at-
vinnulífsins í gærdag um
nýjan aðalkjarasamning.
Einnig náðist samkomulag
um lágmarkslaun fyrir
virkjanasvæðið áAustur-
landi. Samkomulagið verð-
ur kynnt stóru samninga-
nefnd Rafiðnaðarsam-
bandsins á hádegi í dag.
Guðmundur Gunnarsson,
formaður RSÍ, segir að
hann sé mjög hamingju-
samur með þetta sam-
komulag enda hafi rafiðn-
aðarmenn náð öllum sín-
um höfuðmarkmiðum.
Fimm ákæröir í Landssímamálinu fyrir fjárdrátt, hylmingu og peningaþvætti.
Sveinbjörn Kristjánsson aðalgjaldkeri ákærður fyrir að taka 261 milljón króna út
úr bókhaldi Símans. Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra. Kristjánsson fyrir að taka
við og nota 130 milljónir sem þeir hafi vitað að var illa fengið fé. Tvö ungmenni
ákærð fyrir að taka við ávísunum frá Sveinbirni og koma peningunum í umferð.
Sveinbjörn er fluttur til útlanda.
Kom heim í íermingii
íékk é sig ákæn1
Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssímans,
var í stuttu stoppi á íslandi til að ferma barn sitt en fékk þá
ákæru fyrir brot sín sem teljast stærsti fjárdráttur íslandssög-
unnar. Hann getur átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi.
Ríkislögreglustjóri gaf á miðviku-
daginn var út ákæru á hendur fimm
mönnum í Landssímamálinu, lang-
stærsta fjárdráttarmáli íslandssög-
unnar. Málið verður þingfest fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur 14. apríl.
Ákæran er ítarleg og flókin. Sjón-
varpsstjórarnir af Skjá Einum, Árni
Þór Vigfússon og Kristján Ra Krist-
jánsson, sem er bróðir Sveinbjörns,
eru ákærðir fýrir að taka við 130
milljónum af Sveinbirni og nota í
Kristján Ra. Kristjánsson BróðirSvein-
bjarnar ákeerður fyrir að taka við 130 millj-
ónum frá bróðursínum sem hann mátti vita
að hefði verið stolið.
Árni Þór Vigfússon Fyrrverandi sjónvarps-
stjóri Skjás éins ákærður fyrir að taka við og
nota 130 milljónirsem hann áttiað vita að
væru illa fengið fé.
nafni fyrirtækisins Alvöru lífsins.
Brot þeirra eru talin brjóta í bága við
254 grein almennra hegningarlaga,
sem fjallar um hylmingu, en til vara
er krafist refsingar fyrir peninga-
þvætti. Takist ákæruvaldi að sanna
það geta þeir átt yfir höfði sér allt að
fjögurra ára fangelsi. Þeir hafa hald-
ið því fram að þeir hafi litið svo á að
þeir væru að fá lánað fé frá Síman-
um en það þykir lögreglu ótrúlegt.
Menn sem væru svo vanir að leita
fjármagns ættu að vita að þeir gætu
varla fengið svo háar upphæðir frá
gjaldkera án nokkurra ábyrgða eða
trygginga.
Sveinbjörn Kristjánsson er
ákærður fyrir fjárdrátt og peninga-
þvætti en hann dró sér 261 milljón
króna þegar hann var aðalgjaldkeri
Landssímans. Mestu stakk hann
undan árið 1999 þegar fjárdráttur-
inn nam 96 milljónum króna, sem
eru átta milljónir á mánuði. Árið
2002 hafði gjaldkerinn af Símanum
38 milljónir króna. Auk þessara
þriggja er Ragnar Orri Benediktsson,
frændi Sveinbjörns, ákærður fyrir að
hafa tekið við peningum af Svein-
birni. Síminn hefur lagt fram skaða-
bótakröfu sem fýlgir ákærunni, þar
sem hann er krafinn um 32 milljónir
króna. Þá er einnig ákærð stúlka sem
starfaði á Prikinu en hún er ákærð
fýrir að taka við tveimur ávísunum
upp á á fjórðu milljón króna. Ragnar
sagði við DV að hann botnaði ekkert
í kröfu Símans. „Ég sé ekki hvernig
þeir ættu að fá mig dæmdan," sagði
hann í síðustu viku en hann átti ekki
von á því að vera ákærður.
Sveinbjörn er fluttur af landi
brott og starfar nú við smíðar og við-
„Fyrírgefíð mér. Það
er það eina sem ég
get sagt og hefur
lengi langað til að
segja. Orðum mínum
beini ég til þeirra sem
ég hefvaldið skaða,
hryggðeða sorg."
hald gamalla húsa í Edinborg en
hann er menntaður múrari. Svein-
björn hefur dvalið í Edinborg und-
anfarna mánuði en þar hefur fýrrum
eiginkona hans og barnsmóðir verið
við nám. Auk smíðanna hefur Svein-
björn gætt barna sinna á meðan
móðir þeirra hefur stundað nám sitt
og leigt sér íbúð í nágrenni við fjöl-
skyldu sína fyrrverandi.
Eitt barna þeirra Sveinbjörns og
fyrrum eiginkonu hans var fermt í
fýrradag og kom þá öll fjölskyldan
hingað til lands. Að sögn eiginkon-
unnar fyrrverandi flaug SveinbjÖrn
aftur út til Edinborgar í gær þar sem
hann ædar að búa og sinna þeim
verkefnum sem hann hefur þegar
orðið sér úti um ytra.
Þegar DV náði sambandi við
Sveinbjörn í haust bað hann alla þá
fýrirgefningar sem hann hefði valdið
skaða. „Fyrirgefið mér. Það er það
eina sem ég get sagt og hefur lengi
langað til að segja. Orðum mínum
beini ég til þeirra sem ég hef valdið
skaða, hryggð eða sorg,“ sagði
Svein-
björn. Ragnar Orri Bene-
diktsson
Ákærður og
krafinn um
32 milljónir
króna fyrir
peninga sem
hann tók við
afSvein-
birni.
Stóra Beckham-málið
Svarthöfði
Svarthöfði verður hreinlega að
taka ofan fyrir þessum Beckham.
Ekki það að framhjáhald sem slíkt sé
merkilegt, alla vega ekkert merki-
legra en hvað annað. En aldrei hefði
Svarthöfði trúað því að viti borinn
kvenmaður liti við þessum heila-
dofna sparkara. Því hann er nú ekki
beint nein mannvitsbrekka, hann
Beckham, þótt hann sé næstum því
guðdómlega fallegur og brjálæðis-
lega góður að taka aukaspyrnur.
Hingað til hafa líka konurnar í lífi
hans verið einhvern veginn allt
diplómata og enskri hástéttarkonu.
Ógurlega fínt fólk allt saman. Soldið
merkilegt fyrir lida Beckham sem
getur varla sagt heila setningu rétt á
eigin tungu.
Það er líka fátt um svör frá hon-
um þessa dagana. Hann neitar því
hvorki né játar en poppdívan hans
segist trúa því þegar hann neití
hvorki né játi og er mest svekkt yfir
því að Beckham hafi látíð þennan
kjánaskap komast í fjölmiðla. Af
því að hún á bráðum afmæli,
verður þrítug, og vill ekki láta
skemma fyrir sér veisl-
una. Þess vegna voru hennar fýrstu
viðbrögð að skamma
Rebeccu og reka
hana.
Þetta er allt
hið ólíklegasta
mál og Svart-
höfði fylgist
spenntur með
framhaldinu.
Svarthöfði
„Ég hefþað gott og er vel undir næstu daga búinn, að minnsta kosti í andanum,"
segir séra Jakob Hjálmarsson dómkirkjuprestur, sem á í vændum strembna daga.
Séra Jakob segirað að vísu hrjái hann hæsi sem hann vonast til að verða búinn að ná
úr sér fyrirpáska.„Um bænadagana er nóg að starfa og fermingar hafnar. Þeim fer að
vísu fækkandi börnunum I sókninni en það er eins og fólk flytji úr miðbænum þegar
börnin eldast. I fyrra voru fermingarbörnin um 80 en i ár eru þau aðeins í kringum 50,"
segir sérJakob, vel undirbúinn fyrir annir páskanna.
öðruvísi en þessi Rebecca Loos sem
hann er sagður hafa sofið hjá. Þær
eru meira sætar en sniðugar. Posh
Spice, nektarmódelið Emma Ryan,
leikkonan Esther Canadas og sjálf
strípidrottningin Jordan sem er víst
fræg fyrir að vera fræg af endemum.
En svo vaknar Beckham kallinn
allt í einu í rúmi einhverrar Rebeccu,
sem sögð er kunna fjölda tungu-
mála og komin af hollenskum
Hvernig hefur þú það?