Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Blaðsíða 24
T 24 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 Fréttir DV Stóra Beckham-málið virðist rétt vera að heQast. Rebecca Loos segist hafa átt í ást arsambandi við David Beckham, sem hefur ekki neitað þeim ásökunum heldur aðeins sagst elska konu sína og börn og að ekkert geti komið í veg fyrir það. Victoría flúði með alla Qölskylduna til Sviss til að forðast Qölmiðlafárið og þangað er David nu kominn. W li David í vandræðum David Beckliam hefur ekki neitad ad hafa átt i ástarsambandi við Rebeccu en segist elska konu sina og börn meira en allt. Fréttir af fram- hjáhaldi Davids Beckham eru áberandi í er- lendum fjöl- miðlum þessa dagana. Á sunnudag var sagt frá því í tímaritinu News of the World að hann hefði átt í ástar- sambandi við að- stoðar- mann sinn, hina 26 ára gömlu Rebeccu Loos, og síðan þá hafa fjölmiðlar keppst við að færa nýjar fréttir af málinu. Victoría flúði land í gær og Beckham elti hana. Ekkert hefur spurst til Rebeccu. Rebecca í ástarsorg „Ég svaf hjá David," var haft eftir Rebeccu í News of the World en henni mun hafa liðið mjög illa frá því að henni var sagt upp störfum hjá Beckham- hjónunum fyrir áramót. Það var gert að kröfu Vict- oríu Beckham eftir að myndir af Rebeccu og David birtust í blöðum þar sem þau sáust gera sér glaðan dag á skemmtistað á Spáni. Síðan hefur Rebecca setið í þunglyndi en fyrir skömmu játaði hún fyrir bróður sínum að hafa átt í sambandi við David Beckham. „Hún var mjög leið eftir að henni var sagt upp af Beckham. Fyrst hélt ég að það væri af faglegum ástæð- um en núna skil ég að hún var einfaldlega í ástarsorg," var haft eftir bróður Rebeccu. „Ég hafði ekki hugmynd um að þau væru saman. Þetta kom mér í opna skjöldu og foreldrum mínum líka. Ég skil samt vel að Beck- ham hafi fallið fyrir henni. Hún er greind og falleg ung kona og það hefur greinilega ekkert far- ið framhjá David." Bílstjóri staðfestir kossaflens í greininni í News of the World er meintum ástarleikjum Rebeccu og David lýst í smá- atriðum auk þess sem þar er að finna samtöl sem þau eiga að hafa átt sín á milli í síðasta mánuði í gegnum SMS-skila- boð. Samtölin eru kynferðisleg í meira lagi og fjalla að mestu um fróanir og fullnægingar. í gær birtust svo viðtöl við einn af fyrrverandi bflstjórum Beckhams. Hann staðfesti að Rebecca og David hefðu átt í ástarsambandi og sagðist hafa séð þau kyssast aftur í bflnum hjá sér. Þá sagði hann að það hefði kom- ið sér á óvart þegar Beckham bað hann eitt sinn að keyra þau.á hótel. Það kom honum þó ekki eins mikið á óvart þegar Beckham bað hann að. gera það í annað og þriðja skiptið. Bfl- stjórinn er ekki núverandi starfsmaður hjá Beckham eins og gefur að skilja en hann er einn þeirra sem voru reknir ekki alls fyrir löngu þegar at- lotsmyndir af hjónunum birt- ust í blöðum. Allir sáttir í Sviss Það nýjasta í Stóra Beck- ham-máiinu er að öll fjölskyld- an er saman komin í Sviss til þess að fara á skíði yfir pásk- ana. Victoría flúði þangað á sunnudag þegar fréttir af fram- hjáhaldinu birtust fyrst og tók hún foreldrana og systur sína með sér. David kom síðan til Sviss í gær og hitti restina af fjölskyldunni þar. Hann mun eyða tveimur dögum þar áður en hann heldur aftur til Spánar þar sem lið hans á leik um næstu helgi. Ekkert er að frétta af Rebeccu en hún mun víst fara huldu höfði einhvers stað- ar í Evrópu. Bróðir hennar spjallaði stutdega við fjölmiðla um málið í gær en lét þó lítið uppi. Víst má vera að mál- inu er ekki lokið og frekari fréttir eiga eflaust eft- ir að berast áður en langt um líður. Hverer|{e||ecca [00S? Sögusagnirsíðustu ára... Rebecca Loos, fyrrverandi aðstoðarmaður og ástkona Beckhams, þykir góður kvenkostur en hún talar fjölda tungumála og er hámenntuð. Stúlkan er 26 ára gömul - faðir hennar er hol- lenskur diplómati, móðir hennar er ensk en hún er að mestu alin upp í Madríd á Spáni. Hún gekk í enskan skóla í Madríd og þangað fór hún einmitt með David Beckham í október síðasdiðnum til þess að skoða aðstæður. Beck- ham leist það vel á staðinn að hann pantaði þegar pláss fyrir syni sína tvo. Rebecca hefur undanfarið starfað í banka og fyrir umboðs- fyrirtækið SFX. Sfðan réð hún sig til fullra starfa fyrir Beckham-íjölskylduna og var al- mannatengill hennar uns myndir af henni og David Beckham birtust á síðum blaðanna fyrir áramót. Þar sáust „samstarfsfélagarnir" vera að skemmta sér á einum vinsælasta skemmtistað Madrídar. Þetta fór illa í Victoríu, sem krafðist þess að Rebeccu yrði sagt upp störfum og lét David það efdr henni. Rebecca áttí erfitt með að sætta sig við að vera rekin frá Beckham-fjöl- skyldunni og brast í grát þegar henni voru tilkynnt tíðindin. „Hún tekur starf sitt mjög alvarlega og sætti sig illa við að vera sökuð um að hafa haldið við Beckham enda fór hún að gráta þegar hún heyrði sögusagn irnar," sagði nágranni hennar í Madríd við fjölmiðla í gær. David Beckham hefur verið orðaður við mikinn fjölda kvenna síðan hann hóf að vera með Victoríu árið 1996. Hann hefur samt alltaf neitað slíkum sögum en sjaldan hefur orðið eins mikið fjaðrafok og nú. Árið 1998 fór sá orðrómur af stað að Beckham væri orðinn óvenju náinn vinur Emmu Ryan,sem er módel af vafa- samari gerðinni. Hún hélt því fram að þau hefðu farið heim til Beckhams en ekki sofið saman þar sem Beckham tjáði henni að hann væri of ástfanginn afVict- oríu. Sama ár sögðu blöð- in frá því að Lisa nokkur^ Hames hefði sést meði stráknum en þá var Victoría á tónleikaferð j með Girls. Stuttu síðar þirtust svo frásagnir stúlku sem heitir Sandy de Palma í blöðum þar sem hún lýsti því hvernig hún og Beck- ham hefðu verið að kyssast og knúsast á næturklúbbi. Aftur á Beckham þó að hafa neitað stúlkunni um að hitta litla Beckham vegna ástar sinnar á kryddpí- unni. ( september 2003 birtust svo myndir af Beckham í spænskum blöðum þar sem hann sást á spjalli við leikkonuna Esther I Canadas í afmæli Ronaldos.Fyr- ir nokkrum vikum kom svo i glamúrmódelið Jordan fram og j sagðist hafa átt í sambandi við 1 Beckham og lofaði ítarlegum frásögnum í væntan- ri ævisögu sinni. 9 ■ 1 S 1 1 r i v 1» I __0; „Victoriu líkaði ekki við Rebeccu frá upphafi og kom því skýrt til skila að hún treystí henni ekki," er haft eftir Victoriu Beckham í gegnum náinn vin hennar. „Victoria er góð- ur mannþekkjari og hefur yfirleitt rétt fyrir sér. Þegar hún hitti Rebeccu í fyrsta skipti sagði hún við David að hann skyldi passa sig á þessum aðstoðarmanni sínum," er haft eftir sama heimildarmanni. Victoria verður þrítug um miðjan mánuðinn og mun hafa ásakað David um að hafa skemmt afmælið fyrir sér með því að láta þetta mál komast í fjölmiðla. „Ég trúi því að David sé að segja mér satt. Hann átti ekki í sambandi við Rebeccu en það var heimskulegt af honum að koma sér í þessa aðstöðu. Það er óþolandi að fólk skuli halda að hann hafi haldið framhjá - þetta hefur skemmt fyrir mér afmælið og þetta er hræði- legt fyrir krakkana okkar," sagði Victoria við annan vin sinn. Eftir að fyrstu fréttir af ffamhjáhaldi Beckhams bárust á sunnudag flúði Vict- oria til fjölskyldu sinnar til að forðast íjölmiðlamenn og ljósmyndara. Öll fjölskyldan hennar - synirnir tveir, foreldrar, systir og börnin henn- ar - héldu svo til Genfar í Sviss þar sem ætíunin var að eyða páskunum á skíðum. í flug- inu til Sviss virtist Victoria vera mjög mið- ur sín. Hún snerti ekki við máltíðinni og sást ítrekað t með höfuðið f ^ höndunum milli þess sem hún skammaði syn- ina og sagði þeim að hafa hljótt. Eftir að þau lentu í Sviss var haldið rakleiðis á hótel og ekkert hefur sést til fjöl- skyldunnar síðan. Yfirlýsing Dav- ids Beckham „Undanfarna mánuði hefég vanistþvi að lesa fáránlegri og fáránlegri fréttir af einkalifi minu. Það sem birtist núna sið- ast er gott dæmi um þetta. Sannleikurinn ersá að ég ermjög hamingjusamlega giftur maður sem á frábæra eiginkonu og tvo frábær börn. Það er ekkert sem einhver þriðji aðili getur gert til þess að breyta þessum staðreyndum," er allt og sumtsem David Beckham hefur látið hafa eftir sér varðandi mdlið.Athygli vekur að hvergi iþessari yfirlýsingu neit- ar hann að hafa átt i ástarsambandi við Rebeccu Loos. Það eina sem hann i raun segir er að sögusagnir um hann hafí aukist, að hann sé hamingjusamtega giftur og ekkert geti breytt þeirri stað- reynd. Breskir fjölmiðlar telja þetta bera þess merki að David Beckham hafi ekki alveg hreina samvisku í máiinu og vilji hafa allan varann á komi eitthvað fleiri upp áyfirborðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.