Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 6.APRÍL 2004 Sport DV Candace Parker, 17 ára og 191 sm körfuboltastelpa frá Illinois í Bandaríkjunum, gerði sér lítið fyrir og vann troðslukeppni á Stjörnuleik bandarísku menntaskólanna, þá sömu og kappar eins og Jerry Stack- house, Vince Carter og LeBron James hafa unnið á síðustu árum vanalega aðeins fyrír strákana en nú kom stelpa öllum á óvart og vann. 17 ára bandarísk stelpa sló í gegn í troðslukeppni bandarísku menntaskólanna sem fram fór í síðustu viku en Candace Parker gerði sér þá lítið fyrir, tók þátt í troðslukeppni með fimm bestu karlkyns troðurunum á sama aldri og vann. Kvennakarfan hefur ekki þótt geta boðið upp á sömu tilþrif og karlarnir hvað varðar troðslur og önnur skyld háloftatilþrif en sigur Parker er kannski fyrsta skref körfuboltastelpnanna til að breyta því. „Ég vona að þetta þyki ekki merkilegt eftir tíu ár. Það er draum- ur minn að eftir tíu ár muni þrjár eða fjórar stelpur taka þátt í þessari troðslukeppni. Mér finnst að fólk megi ekki missa sig þótt að ég hafl náð að vinna þessa keppni," sagði Parker eftir að hún hafði fengið 79 af 80 stigum fyrir lokatroðsluna þar sem hún tróð með annarri hendi og hélt hinni fyrir augunum. Vann verðandi NBA-leikmenn En hverja vann stelpan? Jú, þama var Josh Smith, sem verður væntan- lega valinn með þeim fyrstu í nýliða- vali NBA-deildarinnar í sumar og einnig Darius Washington, sem verð- ur ömgglega líka valinn í fyrstu um- ferð NBA-nýliðavalsins. Þá má ekki gleyma J.R. Smith sem spilar með Norður-Karólínu-háskólanum á næsta vetri en hann hefur verið áhtin besti troðarinn í bandaríska háskóla- boltanum síðasta áratuginn. „Þetta kom mjög á óvart. Ég lagði bara áherslu á að ná að minnsta kosti einni troðslu og gera mig ekki að fífli," sagði Candace, sem opnaði ófá augun þegar hún gekk út á völlinn til að reyna sína fyrstu troðslu og troðfullur salurinn áttaði sig á því að þar væri stelpa að taka þátt í troðslukeppninni. Það fýlgir þó sögunni að Parker notaði kvennabolta í sínar troðslur, en sá bolti er aðeins minni en þeir sem karlarnir reyndu sig með. Þá má heldur ekki líta framhjá þeirri stað- reynd að strákarnir reyndu oft mun erfiðari troðslur sem oft mistókust. Parker fór hins vegar ömggu leiðina og troðslur hennar vom líklegri til að ganga upp. Parker tók þó tvær áhættutroðslur sem báðar gengu upp, þá fyrri þar sem hún lék boltan- um kringum sig áður en hún tróð og svo sigurtroðsluna þar sem hún hélt fyrir augun er hún tróð. Eina stelpan stal athyglinni Eitt er víst, það var eina stelpan á stjörnuleilcnum sem tók alla athyglina frá þeim 12 leilcmönnum sem vom mættir til að sýna sig og sanna enda margir þeirra að stefna beina leið inn í NBA-deildina án viðkomu í háskóla eins og Kobe Bryant, Tracy McGrady, Kevin Gamett og Lebron James hafa sýnt að gefi góða raun. En hér hefur ekki öU sagan verið sögð. Parker hefur troðið boltanum í langan tíma og áður en að hún sleit lcrossbönd í vinstri hné sýndi hún ótrúleg tilþrif þegar kom að því að „Ég vona að þetta þyki ekki merkilegt eftir tíu ár. Það er draumur minn að eftir tíu ár muni þrjár eða fjórar stelpur taka þátt í þessari troðslu- keppni." troða boltanum í körfuna. Það em að- eins noklcrar vikur síðan hún komst aftur á fuUa ferð en hún hefur þó þeg- ar troðið tvisvar í leik í menntaskóla þrátt fyrir að hafa nýlega yfirstigið þessi krossbandaslit í hné. Parker spUar enn með hnélilíf en þegar hún losnar við hana og vinnur sig að fuUu út úr þessum erfiðu meiðslum verður spennandi að sjá hversu hátt hún kemst. Hún er í fararbroddi að breyta ímynd kvennakörfunnar, sem hefur aUtaf verið undir hring. Parker mun spUa með Tennessee- háskólanum á næsta tímabili en hún er afar fjölhæfur leikmaður og getur spUað aílar fimm stöðurnar á veUin- um. Parker er sú eina sem hefur tvisvar sinnum verið valinn leikmað- ur ársins í bandaríska mennta- skólaboltanum og hefur vakið þjóð- arathygli fyrir tilþrif sín inn á vellin- um. En hún er líka frábær námsmað- ur og frábær fyrirmynd fyrir stelpur í Bandaríkjunum, sem em margar farnar að stefna hærra en áður og í meiri mæli inn í keppni karlanna, eins og sést á þeim fjölmörgu golf- konum sem hafa tekið þátt í karla- mótum undanfarið ár. Örfáar troðslur í sögunni Troðslur em ekki algengar í kvennakörfuboltanum í Bandaríkj- unum og í sögunni hafa aðeins verið ftmm slíkar í háskólaboltanum og aðeins ein í WNBA-deildinni. Hana á Lisa Leslie, leikmaður Los Angeles Sparks síðan 2002. Parker gæti vissulega hækkað þessa tölur tals- vert, fyrst með Tennessee í háskóla- boltanum næstu fjögur árin, eða styttra fari hún strax í atvinnu- mennsku og svo í WNBA-deildinni, bandarísku atvinnumannadeild kvenna, sem er spiluð yfir sumar- tímann og verður vinsælli með hverju árinu. Troðslur eru ekki algengar í kvennakörfubolt- anum í Bandaríkjunum og í sögunni hafa að- eins verið fimm slíkar í háskólaboltanum og aðeins ein í WNBA-deildinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.