Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Side 9
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 9
Gunnar Örlygsson segir þrjósku Davíðs koma í veg fyrir at-
vinnuþróun á Suöurnesjum
Flupirkjar vilja
bandarísk flugskýli
Mæður ekki
hátt launaðar
Meðalgreiðslur Trygg-
ingastoftiunar ríkisins úr
fæðingarorlofssjóði á síð-
asta ári voru annars vegar
til karla kr. 224.773 en til
kvenna kr. 135.039. Athygli
vekur að aðeins 195 manns
þáðu yfir 480 þúsund á
mánuði, 178 karlar og 17
konur. í frumvarpi félags-
málaráððherra er gert ráð
fyrir að viðmiðunarmörk
lækki niður í 600 þúsund á
mánuði en 480 þúsund er
einmitt 80% af þeirri upp-
hæð. Þessar tölur benda til
að mæður séu ekki oftnetn-
ar af launum sínum en þær
fá eins og feður 80% af
meðaltali launa síðasta
árið. Samkvæmt þessu eru
karlarnir hins vegar með
nærri hemingi hærri laun
að meðaltali og kemur
kannski engum á óvart.
„Okkar hugmyndir eru að fá eitt
af flugskýlum Bandaríkjahers und-
ir íslenska atvinnustarfsemi," segir
Guðjón Valdimarsson, formaður
Flugvirkjafélags íslands. Banda-
ríski herinn er í æ ríkari mæli að
draga úr umsvifum sínum á ís-
landi. Fjölmargar byggingar standa
því lítið sem ekkert notaðar en
Guðjón segir mikla framtíðar-
möguleika á svæðinu.
„Þarna gætu skapast hundruð
nýrra starfa," segir Gunnar örlygs-
son alþingismaður. Hann tekur
undir hugmyndir Guðjóns Valdi-
marssonar og segir í raun ekkert
standa í vegi fyrir slíkum hug-
myndum - nema kannski þrjósku
Davíðs Oddssonar.
„Að mínu mati eru fyrirhugaðar
breytingar hjá varnarliðinu eitt-
hvað sem skapar mikla mögu-
leika," segir Gunnar. „Við eigum að
líta á þetta sem samvinnuverkefni
íslenskra og bandarískra stjórn-
valda frekar en pólitískt þrætu-
epli."
Hugmyndir Guðjóns miða sér-
staklega að flugskýli 885 en þar
hefur þyrluhersveit Bandaríkjahers
lengi verið til húsa. Fáar þyrlur eru
nú á svæðinu og ekki er útlit fyrir
að mikil starfsemi verði í skýlinu á
næstu árum.
„Okkar hugmynd er að nota
flugskýlið til viðgerða," segir Guð-
jón. „Þetta er skýli sem myndi
kosta milljarð í dag að smíða og
hroðalegt ef það yrði einfaldlega
rifið." Guðjón hefur sent erindi
varðandi málið til utanríkisráðu-
neytisins en fengið lítil viðbrögð.
„Þetta er ennþá á frumstigi og eng-
in leið að segja hvað kemur út úr
þessu."
Gunnar Örlygsson Óánægður
með Davið Oddsson.
'lt
Þú vinnur allt í senn öryggi, þægindi og vellíðan
þegar þú tryggir þér Securitas öryggi áður en þú ferð í fríið.
Auk þess sem þú gætir sparað þér stórfé vegna tjóns.
• Bíllinn verður í öruggri varðveislu I Leifsstöð
og þú getur stigið upp I hann tandurhreinan við heimkomu.
• Heimili þitt nýtur gæslu gegn innþrotum, leka eða bruna.
Tryggðu þér Securitas öryggi
Eitt símtal núna, slminn er 580 7000
og við gerum okkar til þess að þú njótir góðrar ferðar.
S 1:1’ U R1TAS
ekki fara
í fríið
með áhygguur af heimili og bíl
'i *
■ ;\