Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Síða 21
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 6.APRÍL 2004 21 Vonast eftir Ljungberg og Reyes Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, hefur ekki gefið upp alla von um að Svíinn Freddie Ljung- berg og Spánverjinn Jose Antonio Reyes Verði orðnir klárir fyrir leikinn gegn Chelsea í kvöld en þeir meiddust báðir í undan- úrslitaleiknum gegn Man- chester United á laugar- dagitm. Ljungberg braut tvö bein á hendi en Reyes meiddist á hné eftir tækl- ingu frá Paul Scholes. „Þeir æfðu báðir í dag en hvort þeir verða klárir verður að koma í ljós," sagði Wenger í gær. Ferguson færfjóra leiki í bann Duncan Ferguson, framherji Everton, var í gær dæmdur í fjögurra leikja bann og gert að greiða tíu þúsund pund í sekt fyrir að hafa tekið Steffen Freund, leik- mann Leicester, háls- taki í leik Uðanna 20. mars síðastliðinn. Ferguson mun missa af fjórum síðustu leikjum Everton á tímabilinu. Hræddur um að detta út Roy CarroU, sem hefur staðið á miUi stanganna hjá Manchester United undan- farna þrjá leiki, hefur þung- ar áhyggjur af því að hann verði tekinn út úr Uðinu fyrfr bikarúrslitaleikinn gegn MiUwaU 22. maí næst- komandi. „Ég tek einn leik fyrir í einu en það er erfitt að halda jafn góðum mark- verði og Tim Howard lengi úti. Ég verð að nota tæki- færi sem ég fæ eins vel og ég get og vona það besta," sagði Carroll. Millwall græðir á bikarnum Theo Paphitis, stjórn- arformaður MillwaU, sagði í gær að gott gengi félagsins í enska bikarn- . um hefði sldlað um 2,5 mUljónum punda í sjóði félagsins. Paphitis sagði þó að sætið í Evrópu- keppninni sem MiUwall tryggði sér með sigrin- um myndi ekki endUega skUa hagnaði vegna breytts fyrirkomulags. Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Chelsea mæta Arsenal í seinni leik lið- anna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Highbury í kvöld. Fyrri leikur liðanna endaði með jafntefli en leikmenn Chelsea mæta óhræddir til leiks. Eiður Smári Guðjohnsen, framherji Chelsea og fyrirliði íslenska landsliðsins, leikur einn sinn mikilvægasta leik á ferlinum í kvöld þegar hann og félagar hans í Chelsea sækja Arsenal heim á Highbury í seinni leik liðanna í átta liðum úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikur liðanna endaði með jafntefli, 1-1, þannig að það er á brattann að sækja Chelsea en leikmenn liðsins eru þó hvergi bangnir. „Það þýðir ekkert annað fyrir okkur en að koma í þennan leUc með því að hugarfari að við getum komist í gegnum þetta verkefni. Það þýðir ekkert að koma á Highbury með einhvern varfærnishugsunarhátt því að við þurfum að skora í leiknum. Við ætlum að setja þá undfr pressu og ekki leyfa þeim að spUa sinn venjulega leUc. Hins vegar verðum við að gæta að okkur því að Arsenal er sennUega eitt besta skyndisókna- lið sem tU er og leikmenn eins og [Thierry] Henry og [Robert] Pires eru sniUingar að nýta sér færi sem gefast til að sækja hratt," sagði Eiður Smári Guðjohnsen, framherji Chelsea, í samtali við DV Sport í gær en hann var þá að búa sig undir að fara á æfmgu á Highbury, heimaveUi Arsenal, þar sem leikurinn í kvöld fer fram. Býst við að byrja inni á Eiður Smári sagði að tUhlökkunin væri mikU enda Utí hann svo á að þetta væri stærsti leikurinn á ferlinum tíl þessa. „Þeir gerast ekki mikið stærri leikirnir heldur en þessi. Það er mUdð undir og það væri ekki nema við kæmumst áfram í keppninni eða að ísland kæmist í lokakeppni stórmóts sem leUdrnir yrðu stærri. Það eru svona leikir sem ég vil spUa og ég vona svo sannarlega að ég verði í byrjunarliðinu á morgun [í kvöld]. Annars veit maður aldrei en miðað við það sem ég hef heyrt er lúdegast að ég og Jimmy [Floyd Hasselbaink] byrjum inni á,“ sagði Eiður Smári og viðurkenndi að Hasselbaink væri sá framherji sem honum þætti best að spUa með. „Við höfum spUað lengi saman og gjörþekkjum hvorn annan. Hinir eru frábærir fótboltamenn en það tekur tíma að byggja upp skilning og þann tíma hef ég ekki fengið með Crespo eða Mutu. Ég verð samt að viðurkenna að það skiptir mestu máli að ég sé inni á, hver er með mér ffamrni er aukaatriði." Þjálfararnir skilningsríkir Eiður Smári var ekki með íslenska landsliðinu gegn Albaníu á miðvikudaginn í síðustu viku vegna meiðsla í nára sem hann varð fyrir gegn Wolves fyrir rúmri viku. Eiður Smári sagðist enn vera stífur í náranum en viðurkenndi að hann hefði ekki spilað gegn Tottenham um helgina ef hann hefði farið í landsleikinn gegn Albaníu. „Þetta voru ekki alvarleg meiðsli en ég er afskaplega þakklátur fyrir skUinginn sem landsliðsþjálfaramir Ásgefr og Logi sýndu mér. Ég hefði hugsanlega getað spUað leikinn en það hefði þýtt að ég hefði verið frá í töluverðan tíma. Það er mikið af mikUvægum leUcjum fram undan hjá Chelsea og ég er viss um að ég hefði ekki spilað gegn Tottenham á laugardaginn ef ég hefði farið tU Albaníu." Ólíkt hugarfar Eiður Smári sagði að liðin litu töluvert öðruvísi á þennan leik að hans mati. „Arsenal hefur verið á frábærri siglingu í vetur og það er eðlUegt að gerðar séu kröf- ur um titU þegar svo er. Þeir em þegar bún- ir að missa af einum titli og ætla væntanlega ekki að missa af öðrum strax. Það er því mikU pressa á þeim. Við mæt- um hins vegar með það hugarfar að allt sem gerist hér eftir er bónus. Við vUjum að sjálfsögðu vinna alla leUd sem við spilum en það er enginn heimsendir ef við töpum. Forráða- menn félagsins gera sér grein fyrir því að það tekur tíma að byggja upp lið og það er engin pressa frá þeim að vinna allt sem í boði er. Við emm hins vegar aUir metnaðarfullir og teljum að við eigum góða möguleika á að slá Arsenal út - það sást á laugardaginn að þeir eru langt frá því að vera ósigrandi," sagði Eiður Smári í gær. oskar@dv.is „Það sást á laugardaginn að þeir eru langt frá því að vera ósigrandi." Stærsti leikurinn á ferlinum Eiður Smári Guðjohnsen um Sol Campbell, varnarmann Arsenal, sem hann mætir að öllum líkindum í kvöld Hrikalega erfiður við að eiga Ekkert lamb að leika sér við EiðurSmári Guðjohnsen segir að Sol Campbell, varnar- maður Arsenal, sé erfíður við að eiga. Eiður Smári Guðjohnsen fær það erfiða verkefni að berjast við hina stóm og sterku miðverði Arsenal, Kolo Toure og Sol CampbeU, á Highbury í kvöld. Eiður Smári virðist þó kunna vel við sig gegn þeim félögum því hann hefur skorað í tveimur síðustu leikjum sínum gegn Arsenal. Eiður Smári sagði í samtali við DV Sport í gær að hann gæti ekki kvartað yfir gengi sínu gegn Arsenal að undanförnu en viðurkenndi jafnframt að þeir félagar Toure og CampbeU væru mjög erfiðir við að eiga. Eitt sterkasta miðvarðaparið „Það leUcur enginn vafi á því að þeir eru eitt sterkasta miðvarðapar í ensku úrvalsdeUdinni. Kolo Toure hefur blómstrað í vetur og hefur margvíslega hæfileUca. Hann er mUciU íþróttamaður, fljótur og grimmur og mjög fljótur að snúa. Mér finnst samt sem áður aUtaf hrikalega erfitt að eiga við Sol CampbeU. Hann er mjög líkamlega sterkur og það er enginn hægðar- leikur að halda boltanum frá honum þegar hann er í bakinu á leik- mönnum. Hann les leikinn hka vel og er fljótur enda er hann einn af betri varnarmönnum heims í dag," sagði Eiður Smári. Hugsa lítið um mótherjana Hann sagðist samt sem áður ekki missa svefn yfir því að mæta Toure og CampbeU. „Ég hugsa yflrleitt lítið um það hverjum ég mæti í hverjum leik fyrir sig. Ég hugsa mest um sjálfan mig og reyni að gera það sem ég get. Ef ég hugsaði of mikið um mótherjana myndi það koma niður á mér í leiknum," sagði Eiður Smári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.