Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 24. MAÍ2004 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjórar. Illugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjóran ReynirTraustason Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýslng- ar: auglysingar@dv.is. - Drelflng: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Isafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins f stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hva^veist þúum Troiu«? 1 í hvaða landi eru rústir Tróju taldar vera? 2 Hvað hét gríski kóngurinn sem stýrði herferð þangað? 3 Hvað hét mesta hetja Grikkja? 4 Hvað hét mesta hetja Trójumanna? 5 Hvaða kappi fann að lok- um upp á þeirri brellu sem varð Trójumönnum að falli? Svör neðst á síðunni Tattú Beckhams í leiðara Observer í London var fjallað um nýjasta tattú Davids Beck- The Observer ham. „Margir ku hafa áhyggjur af þessari nýjustu viðbot á renniiegum skrokki Beckhams - tattú á hálsin- um sem sýnir kross með englavængi. Er þetta sagt eiga að vera „vemdargripur" fyrir 19 mánaða son Beck- hams, Romeo. Staðsetningin vekur áhyggjur sumra og aðrir telja hann kominn í dgöngur með Iíkamsskreyt- ingar sínar. Er ein af stór- stjömum knattspyrnunnar orðinn eins og hver annar plebbi? Mun þetta hafa áhrif á siðferði unga fólksins og fótboltinn aftur kútveltast niður á stig fótboltabullunn- ar? Nei, nei og neL Þeir dag- ar era liðnir þegar tattú vora tabú. Einu sinni vora það vissulega fyrst og fremst sjó- menn og gíæpamenn sem skörtuðu þessu punti en nú er einn af hverjum fimm Bretum með einhvers konar tattú. Og hvað tatttú á háls- inum snertir, þá hefur Mich- ael Schumacher, Britney Spears o.fl. tekist að lifa sæmilega eðlilegu lífi með slíkt á sér. Aðdáendur Spears eða Formúlu 1 ganga ekki af göflunmn og meiða annað fólk vegna þess. Auk þess hefði tattú Beck- hams getað verið svo miklu verra. „Dave“ og „Vick“ á hnúum hvort annars er enn möguleiki..“ Jónína Máliö Jónína Bjartmarz er í sviðs- Ijósinu á Alþingi vegna þess aö hún vill ekki styðja fjöl- miðlafrumvarp Davíðs þótt ekki sé enn Ijóst hvort hún muni sitja hjá eða greiða atkvæði á móti. Jónína er tiltölulega nýtt nafn, í Nöfn- um Islendinga eft- ir Guðrúnu Kvar- an kemur fram að í mann- tali 1801 hafi engin kona heitið þessu nafni en 1845 hafi þær allt í einu verið orðnar 31. Árið 1910 hétu 996 íslenskar konurJónína ogþávarþað orðið 10. vin- sælasta kvenmannsnafn Is- lands.Árið 1982 höfðu vin- sældirþess minnkað nokk- uð hratt og það var komið í 31.sæti. 1. Tyrklandi -1 Agamemnon - 3. Akkiles - 4. Hektor - 5. Ódysseifur. «3 *o £ *o cu -X. <v £ 'O Sögulegur dagur Það verður sögulegur dagur í dag. Upp úr hádeginu verður tekið til atkvæða- greiðsiu á Alþingi frumvarp til Davíðslaga um fjölmiðlun sem allir vita að mjög stor meirihluti þjóðarinnar er á móti. Lög sem allir vita ennfremur að eru ómöguleg, illa samin, lítt eða ekki ígrunduð og eingöngu sett til höfuðs þeim andstæðingum sem for- sætisráðherra þjóðarinnar hefur kosið sér af einhverjum dularfullum hvötum. Lög sem allir vita líka að myndu ekki eiga sér viðreisnar von innan rfkisstjórnarflokk- anna nema af því að formenn þeirra beggja hafa lagst á menn sína og beinlínis skipað þeim að samþykkja það, hvaða efasemdir sem þeir kunna að hafa. Lög sem allir vita að ætti að vísa út í hafs- auga, ef einhver glóra væri innan ríkisstjóm- arflokkanna, og setjast síðan niður í róleg- heitum og gnifla í hvaða lög raunverulega kann að vera þörf á að setja um fjölmiðla á fslandi. Og skapa um það sátt og samstöðu en ekki efna til einhverra fáránlegustu deilna sem lýðveldissagan kann frá að greina. En þrátt fyrir þetta em því miður allar lík- ur á að frumvarpið verði samþykkt. Aðeins einn þingmaður stjórnarflokkanna, Kristinn H. Gunnarsson, hefur þegar tilkynnt að hann muni greiða atkvæði á móti því. Og er hann maður að meiri fyrir vikið. Annar þing- maður, Jónína Bjartmarz, hefur gefið til kynna að hún kunni að sitja hjá. Hún ætti auðvitað að greiða atkvæði á móti en bjargar samt örlitlum hluta af andlitinu með hjá- setu. Allir hinir þingmenn stjórnarflokkanna munu hins vegar tapa andlitinu, vegna þess að þeim á að vera Ijóst - og er eflaust flestum Ijóst - að frumvarpið er ótækt. Sennilega er það aðeins einn maður á öllu Alþingi sem trúir því í einlægni að þetta séu góð og vel gerð og nauðsynleg lög. Datdð Oddsson forsætisráðherra. Og til að fara að vilja hans ætla allir að beygja sig, nema þau tvö ofannefndu. Vonandi er að einhverjir fleiri uppgötvi bein í nefi sér áður en að atkvæðagreiðsl- unni kemur. Gerist það ekki verður skömm þeirra lengi uppi. Og þá verður það forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem verður hetja dagsins þegar hann neitar að skrifa undir þessi ólög og vísar þeim til þjóðarinnar. í öllu falli, sögulegur dagur. Illugtjökulsson HELDUR ÞYKIR 0KKUR sem lítið púður sé nú orðið eftir hjá vini vorum Hannesi Hólmsteini Giss- urarsyni en sú var tíðin að hann hefði verið fremstur í flokki þeirra sem brugðið hefðu skildi fyrir for- sætisráðherra í þeim raunum sem hann glímir nú við og heita mega óþekktar á ferli hans. En hann hef- ur þessa dagana fátt fyrir stafni nema að veifa hinum gamla rauða fána Halldórs Laxness úr Sölku Völku gegn „Bogesenunum", það er að segja Baugi. Og vantar lítið á að Hannes fari að skreyta sig til- vitnunum í Kommúnistaávarpið. Eins og kunnugt er mælist Dav- íð nú óvinsælli en nokkur forsætis- ráðherra fyrr og síðar - að minnsta kosti síðan mælingar hófust, eins og þar stendur. Jafnframt hefur ríkisstjórn hans hrunið í áliti þjóð- arinnar og Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með eitthvað um 25% fylgi þjóðarinnar, sem er náttúr- lega einsdæmi. Meira að segja eft- ir að Albert Guðmundsson klauf flokkinn var hann ekki svona sárt leikinn, þótt við gerum okkur auð- vitað grein fyrir því að skoðana- kannanir eru ekki kosningar. ÞAÐ ER EINMITT sá punktur sem Hannes sér sem einu huggunina í viðtali við Fréttablaðið um helg- ina, en annars liggja skýringar þær sem hann hefur upp á að bjóða fyrst og ffemst í því að hinir vondu fjölmiðlar Norðurljósa hafi afflutt og rangfært hið góða mál sem Davíð hefur fram að færa, þjóðinni til heilla. Það er nú meira hvað fjölmiðl- amir geta stundum verið valda- miklir. Ef Davíð og strákarnir njóta vinsælda og gengur vel, þá er það þeirra eigin verðleikum að þakka. En ef á móti blæs, þá er það alltaf fjölmiðlunum að kenna. Og reyndar bara sumum fjölmiðlun- um. Við héldum nú satt að segja að prófessor í stjórnmálafræði Og er það ekki aðeins ofeinföld skýring að vondir fjölmiðlar slái ryki í augu þjóðarinn- ar? Eru Hannes og strákarnir svona sannfærðir um að fólk sé fífl - það sé enginn vandi fyrir fjölmiðla að afvega- leiðaþað? Hrafn íformi eins og Hannes ætti að vita betur en svo að taka alltaf fram þá bil- legu klisju að ráðast að fjölmiðl- unum. FYRRUM VOPNABRÓÐIR HANNESAR, Guðmundur Magnússon, sem nú er blaðamaður á Fréttablaðinu, bendir hins vegar á í grein í blað- inu á sunnudaginn að efnahags- ástand sé gott í landinu og í raun- inni séu við lýði öll skilyrði til að ríkisstjórnin ætti að njóta vin- sælda. En einmitt þá hrapar hún niður úr öllu valdi. Og er það ekki aðeins of einföld skýring að vondir fjölmiðlar slái ryíá í augu þjóðarinnar? Eru Hannes og strákarnir svona sann- færðir um að fólk sé fífl - það sé enginn vandi fyrir fjölmiðla að af- vegaleiða það? Getur ekki bara verið að þjóðin hafi myndað sér sjálfstæða skoðun? Nei, segja þeir, þetta hlýtur að vera fjölmiðlunum að kenna. HRAFN JÖKULSS0N ædar sem kunnugt er að tefla mikið skák- maraþon um næstu helgi þegar hann hyggst tefla sleitulaust í 30 klukkustundir gegn aUt að 200 áskorendum og er þetta liður í mikilii ijáröflunarherferð sem skákfélag hans, Hrókurinn, stend- ur fyrir þá helgina. Er þar um að ræða tilraun til að koma hinu merkilega barnastarfi Hróksins á fastari grunn en verið hefur og tryggja að áfram verði byggt á þeim frábæra árangri sem náðst hefur nú þegar. Um fjáröflunina og skákmaraþonið má lesa á heimasíðu Hróksins, hrokur- inn.is, en persónulega virðist Hrafn í fantaformi fyrir þolraun- ina miklu. Um helgina gerði hann sér nefnilega lítið fyrir og skaust upp á milli frægra stórmeistara sem annars röðuðu sér í efstu sæt- in á alþjóðamóti sem Hrókurinn hélt á ísafirði í samvinnu við UMFf. Þar urðu þeir Jóhann Hjartar- son og Þröstur Þórhallsson efstir og jafnir með 7 og hálfan vinning en síðan kom Hrafn í þriðja sæti ásamt stórmeisturunum Henrik Danielsen frá Danmörku og Tom- f leiðara á laugardag var fjallað á villandi hátt um afstöðu Jóns Stein- ars Gunnlaugssonar til hins svo- nefnda málskotsréttar forseta ís- lands þegar gefið var til kynna að hann væri sammála Þór Vilhjálms- syni um að málskotsrétturinn væri f reynd ekki til staðar. Þegar að er gáð hefur Jón Steinar aldrei haldið þvf fram, að forseti fslands hafi ekki að réttum stjórnlögum heimild tll að synja lagafrumvörpum staðfestingar án atbeina ráðherra. Hann hefur að- eins sagt að ákvæðin um þetta f stjórnarskránni séu alltof óskýr og brýn þörf sé á að bæta þar úr, ann- aðhvort fella málskotsréttinn niður eða þá setja um hann nákvæm ákvæðl viljl menn halda f hann. Þess má geta að prófessorinn hefur lýst þeirri persónulegu skoðun sinni, rétt eins og leiðarahöfundur DV gerði, að fella ætti þennan mál- skotsrétt niður þótt ekki vitum við til að hann hafi tekið af- stöðu til þeirrar skoðunarokkar að f staðinn yrði þá að koma ákveðinn réttur til þjóðarat- kvæðagreiðslu um umdeild mál, ef ákveðinn hluti kosningabærra manna fer fram á það. as Oral frá Tékklandi. Ættu and- stæðingar Hrafns í maraþoninu því að hafa allan vara á sér þótt hann kunni vissulega að vera orð- inn nokkuð þreyttur er á líður. Neðar voru kunnir kappar eins og Jón L. Ámason stórmeistari, Ró- bert Harðarson, Regína Pókoma og Ingvar Asbjömsson sem fékk verðlaun fyrir bestan árangur 15 ára og yngri. Mótið kom í kjölfar vel heppnaðrar ferðar Hróks- manna um Vestfirði þar sem fagn- aðarerindi manntalsins var boðað með þeim ár- angri að segja má að skák- æði hafi brotist út fyrir vestan. Fyrst og fremst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.