Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 24. MAl2004
Fréttir TfV
Segir Davíð
játa hroka
Jóhanna Sigurðardóttir,
þingmaður Samfylkingar-
innar, segir að hót-
un forsætisráð-
herra við umboðs-
mann Alþingis í til-
efni af úrskurði
hans vegna emb-
ættisfærslu Björns
Bjamasonar við
skipan frænda for-
sætisráðherra sem
hæstaréttardómara sé
sögulegt dæmi um vald-
níðslu og yfirgengilegan
hroka í stjórnartíð Davíðs
Oddssonar. Hún segir á
heimasíðu sinni að í þetta
eina skiptið á löngum
valdaferli sínum hafi Davíð
viðurkennt að valdhrokinn
hafi borið hann ofurliði.
Jónína þögul
Að lfkindum verða
greidd atkvæði um fjöl-
miðlafrumvarpið í dag
klukkan 13:30. Sjálfstæðis-
flokkurinn er sameinaður í
að samþykkja lögin en
Framsóknarflokkurinn er
klofinn. Þannig er Kristinn
H. Gunnarsson harður and-
stæðingur og óvíst er með
afstöðu Jónínu Bjartmarz
sem látið hefur að því liggja
að hún muni sitja hjá. „Ég
gef ekkert upp," segir hún.
RÚVvísará
soraslóð
Sjónvarpið birti á
fimmtudaginn slóð vef-
síðu sem var sögð inni-
halda efni sem gæti ver-
ið skaðlegt börnum og
unglingum. Á slóðinni
mátti sjá gróft klám,
afhausun Bandaríkja-
manns í írak og fleiri af-
tökur. Um var að ræða
fyrstu ffétt RÚV.
Berum við
ábyrgð á neyð
þriðja heimsins?
bankastjóri Landsbankans.
Ríkislögreglustjóri hefur gefið út ákæru á hendur Gunnari Erni Kristjánssyni fyrr-
verandi forstjóra SÍF. Hann er ákærður fyrir brot á lögum um endurskoðendur fyr-
ir að skrifa athugasemdalaust undir reikninga Tryggingasjóðs lækna á meðan
framkvæmdastjóri sjóðsins dró sér tugi milljóna af eftirlaunum lækna. Gunnar
Örn fékk rúmlega 80 milljónir króna þegar hann hætti hjá SÍF.
Ríkislögreglustjóri hefur gefið út ákæru yfir Gunnari Erni Krist-
jánssyni fyrrverandi forstjóra SÍF og endurskoðanda Trygginga-
sjóðs lækna. Ákæran verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur í byrjun júní.
Gunnar Öm áritaði um
árabil reikninga Trygg-
ingasjóðs lækna á meðan
Lárus Halldórsson fram-
kvæmdastjóri hans dró sér
um 80 mÚljónir króna úr
bókhaldinu. Lárus og
Gunnar em gamlir vinir.
Þeir lærðu saman og unnu
síðan saman sem ungir
menn á endurskoðunar-
skrifstofu Björns Steffen-
sen.
Gunnar Örn var for-
stjóri SÍF í áratug en sagði
starfi sínu lausu í lok janú-
ar og hætti strax. Hann
verður á launum hjá SÍF fram í ágúst
2007 og fær rúmlega 80 milljónir
króna fyrir að hætta að mæta í vinn-
una. DV flutti af því fréttir í janúar að
Gunnar örn segði upp í skugga
fjársvikamáls. Nú hefur rannsókn á
því máli leitt til ákæm á Gunnar Örn.
Tugir lælcna töpuðu ellififeyrin-
um vegna fjárdráttar Lámsar sem var
framkvæmdastjóri Tryggingasjóðs-
ins í 30 ár og gera kröfu
um bætur. Ákæra á hend-
ur Lárusi hefur verið þing-
fest og tekin fyrir. Aðal-
meðferð verður í því máli í
lok júní.
Læknamir treystu á að
endurskoðandi sjóðsins
kæmi auga á misfellur í
bókhaldinu en Gunnar
Örn er ákærður fyrir að
hafa brugðist því trausti
og brotið með því lög sem
gilda um endurskoðendur
og ábyrgð þeirra. Rfkislög-
reglustjóri krefst þess að
Gunnar Örn verði sviptur
endurskoðendaréttindum sínum.
Síðasta uppgjör sem Gunnar Örn
áritaði fyrir Tryggingasjóðinn var fyr-
ir árið 2000. Reikningarnir fyrir það
ár vom lagðir fram í júfi 2001. Þá
hafði hann verið forstjóri SÍF í sjö ár.
Hann hélt áffarn að árita reikning-
ana þótt hann hefði hætt rekstri end-
urskoðendaskrifstofu sinni árið 1993
til að taka við starfinu hjá SÍF.
Lárus Halldórsson
Ákærður fyrir að draga sér
80 milljónir afeftirlaunum
lækna. Gunnar örn átti að
fylgjast með bókhaldinu
fyrir sjóðfélaga.
Læknarnir treystu á að endurskoðandi sjóðs-
ins kæmi auga á misfellur í bókhaldinu en
Gunnar Örn er ákærður fyrir að hafa brugðist
því trausti og brotið með því lög sem gilda um
endurskoðendur og ábyrgð þeirra.
Samkvæmt heim-
ildum DV var bókhald
sjóðsins í rúst þrátt
fýrir að Láms og
Gunnar séu báðir
menntaðir endur-
skoðendur og hafi átt
að gæta þess að bók-
haldið væri í lagi.
Láms sem er lög-
giltur endurskoðandi
var framkvæmda-
stjóri Trygginga-
sjóðsins í meira en 30 ár. Hann gaf
sig fram við lögreglu snemma á árinu
2002. Hann viðurkenndi að hafa
dregið sér 27 milljón
ir króna frá sjóðn-
um á tíu ára
tímabili og
greiddi þá
upphæð til
baka. Þegar
málið var
rannsakað
kom í ljós að
fjárdrátturinn
var nær því að
vera um 80 millj-
ónir.
Sjóður-
inn, sem
lækn
F
S
£1
Si
(•snf*
Frétt DV í janúar
DV sagði frá því að
Gunnar Örn segði
upp hálaunastöðu
sinni í skugga millj-
ónasvika hjá Trygg-
ingasjóði lækna þar
sem hann skrifaði upp
á reikninga árum
saman á meðan vinur
hansdrósérfé.
stofnuðu til að eiga
fé til elliáranna, var
tæmdur. Einstakir læknar hafa tapað
allt að 6,3 milljónum króna á
fjársvikum Lámsar. 84 læknar lýstu
kröfum í sjóðinn og gera kröfu
um bætur. Flestar kröfurnar em
vegna tapaðrar inneignar upp
á nokkur hundmð þúsund
krónur.
kgb@dv.is
Gunnar Örn Kristjánsson
Ákæra á hendur honum hefur verið
gefin út. Hann fékk riflega 80 millj-
óna króna starfsloka-
samning hjá SlF.
Skoðanakönnun Vef-Þjóðviljans
Margir vilja hafna fjölmiðlalögum
Ríkisstjórnin mælist fallin
20.000 hafa skorað
„Við berum ekki beint ábyrgð
á þessu en okkur ber siðferðis-
leg skylda til, eins og öðrum
ríkum þjóðum, að hjálpa til I
samræmi við efni og aðstæður
hverju sinni. Alveg eins og við
myndum vilja að okkur væri
hjálpað efþörfværi á."
Hann segir / Hún segir
„Við berum ábyrgð að þvileyt-
inu til að þetta kemur okkur
við. Við erum öll samábyrg því
sem er aö gerast. Efþað er ein-
hvers staðar neyð í heiminum
getum við ekki látið eins og
við vitum ekki afhenni."
Ingibjörg Sólrún Gfsladóttlr
þingmaður Samfylkingarinnar.
Frjálshyggjumiðillinn Vef-Þjóð-
viljinn lét markaðsrannsóknafyrir-
tækið ParX viðskiptaráðgjöf fram-
kvæma fyrir sig skoðanakönnun á
þekkingu fólks um fjölmiðlafrum-
varpið. í könnuninni svömðu 604 því
hversu vel eða illa þeir hefðu kynnt
sér fjölmiölafrumvarpið. Sögðust
tæp 30 prósent hafa kynnt sér það
mjög vel eða vel, 29 prósent höfðu
kynnt sér það frekar illa og 18 prósent
mjög illa eða alls ekki. Þá sögðust 24
prósent hvorki hafa kynnt sér það vel
né illa. Þetta túlkaði Vef-Þjóðviljinn í
grein sinni í gær sem svo að einungis
29,1 prósent landsmanna hefðu
kynnt sér frumvarpið svo heitið gæti.
„Niðurstaðan af þessum könnunum
er sú að innan við 30 % kjósenda hafa
kynnt sér fyrirliggjandi fjölmiðla-
fhunvarp og verður allt tal um „gjá
milli þings og þjóðar" að skoðast í
samhengi við það,“ segir þar.
Þá var spurt hvaða flokk fólk
myndi kjósa og sögðust rúm 30,6
prósent myndu kjósa Sjálfstæðis-
flokk, 29,9 prósent Samfylkinguna,
Mótmæli á Austurvelli Vef-Þjóðviljinn lét
markaðsfyrirtæki gera skoðanakönnun fyrir
sig. Aðstandendur vefsins túlka niðurstöð-
urnar með þeim hætti að þeir sem hafi
hvorki kynnt sér fjölmiðlafrumvarpið „vel“ né
„illa“hafi alls ekki kynntsérþað.
13,7 prósent Vmstri græna, 12 pró-
sent Framsóknarflokk, 5,6 prósent
Frjálslynda og um 8 prósent vildu
kjósa annað. Þar með væri ríkis-
stjómin fallin ef gengið hefði verið til
kosninga á þeim tíma sem könnunin
var gerð, en það var í síðustu viku.
„En þetta er auðvitað aðeins skoð-
anakönnun. Þær mæla ekki annað en
stundarviðhorf þeirra sem svara,“
segir Vef-Þjóðviljinn.
jontrausti@dv.is
á forseta
Tæplega tuttugu þúsund manns
hafa skráð nöfn sín í rafrænni undir-
skriftasöfnun á heimasíðunni askor-
un.is. Þar er Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti íslands, hvattur til að
neita að staðfesta íjölmiðlalögin og
skjóta þeim þar með til þjóðar-
atkvæðagreiðslu. í áskoruninni segir
meðal annars: „Við undirrituð, ís-
lenskir ríkisborgarar, skorum á for-
seta íslands að staðfesta ekki lög um
eignarhald á fjölmiðlum. Fjölmiðlar
eru mikilvægur hluti lýðræðis,
menningar og daglegs lífs.“
Tíu dagar eru liðnir síðan söfn-
unin hófst og segir Róbert Marshall,
formaður Blaðamannafélags íslands
að kippur hafi komið í söfnunina
fyrir helgi. „Það er eins og almenn-
ingur hafi þá áttað sig á því að lögin
gætu orðið að veruleika. Enn er tími
til stefnu þangað til forsetinn fær
Róbert Marshall, formaður Blaða-
mannafélagsins. Enn er tími til stefnu.
undirskriftalistann í hendurnar. Við
ætlum að hafa heimasíðuna opna
eins lengi og við getum" segir Ró-
bert. Fjölmiðlasambandið hefur
umsjón með síðunni og eftir að list-
inn hefur verið afhentur Ólafi Ragn-
ari, verður henni lokað og gögnum
eytt. í Fjölmiðlasambcmdinu eru Fé-
lag bókagerðarmanna, Blaða-
mannafélag íslands, Rafiðnaðar-
samband fslands og Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur.