Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Síða 18
18 MÁNUDAQUR 24. MAÍ2004
Sport DV
Nfna með tvö gegn meisturunum
Nfna Ósk Kristinsdóttir skoraði tvö mörk i
3-0 leik Vals gegn Islandsmeisturum KR en
þetta var fyrsti sigur liðsins á KR i sex ár.
DV-mynd Pjetur
VALUR-KR 3-0
2. umf. - Valsvöllur -23. mal Mörkin:
1-0 Nína Ósk Kristinsdóttir 56.
skot úr markteig Vilborg (frák.)
2-0 Nlna Ósk Kristinsdóttir 74.
skot úrteig Laufey Ó.
3-0 Vilborg Guðlaugsdóttir 87.
skot úrteig Dóra S.
Boltar Valur:
(ris Andrésdóttir @
Pála Marie Einarsdóttir @
Laufey Ólafsdóttir. @
Nína Ósk Kristinsdóttir @
Boltar KR:
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir ®
Sólveig Þórarinsdóttir ®
Embla Grétarsdóttir ©
Tölfræðin:
Skot(ámark): 20-9(11-5)
Varin skot: Guðbjörg 5 - María 6.
Horn:2-l Rangstöður: 10-1
Aukaspyrnur fengnar: 9-13.
BEST Á VELLINUM:
Nína Ósk Kristinsdóttir, Val
BREIÐAB.-ÞÓR/KA/KS 3-2
2. umf. - Valsvöllur -23. mal
Mörkin:
1 -0 Dagmar Ýr Arnardóttir 18.
skot úr teig Erna Björk
1-1 Inga Birna Friðjónsdóttir 50.
skot úr teig Freydís
1- 2 Inga Birna Friðjónsdóttir 52.
viti brotið á Freydísi
2- 2 Greta Mjöll Samúelsdóttir 68.
skot úr teig frákast frá marki
3-2 Erna Björk Sigurðardóttir 83.
skot úr markteig Greta Mjöll
Boltar Breiðablik:
Erna Björk Sigurðardóttir @@
Bryndls Bjarnadóttir @@
Björg Ásta Þórðardóttir @
Ólína Viðarsdóttir @
Greta Mjöll Samúelsdóttir @
Boltar Þór/KA/KS:
Inga Birna Friðjónsdóttir @@
Sandra Sigurðardóttir @@
Þóra Pétursdóttir @
Tölfræðin:
Skot (á mark): 31-6 (14-5)
Varin skot: Elsa 3 - Sandra 10.
Horn: 11-1 Rangstöður: 3-5
Aukaspyrnur fengnar: 5-13.
BEST Á VELLINUM:
Erna Björk Sigurðard., Breiðablik
FJÖLNIR-STJARNAN 1-1
2. umf. - Fjölnisvöllur -23. maf
Mörkin:
0-1 Guðrún Halla Finnsdóttir 7.
Skot úr vítateig Lilja Kjalarsdóttir
1-1 Ratka Zivkovic 76.
Skot utan teigs vann boltann
Boltar Fjölnis:
Vajna Stefanovic
Ratka Zivkovic
Erla Þórhallsdóttir
Elísa Pálsdóttir
Krlstrún Kristjánsdóttir
Boltar Stjörnunnar:
Harpa Þorsteinsdóttir
Lilja Kjalarsdóttir
Guðrún Halla Finnsdóttir
Sarah Lentz
Tölfræðin:
Skot (á mark): 7-15(2-7)
Varin skot: Anna Rún 3 - Lára 0.
Horn:5-1 Rangstöður: 1-1
Aukaspyrnur fengnar: 13-8.
BEST Á VELLINUM:
Vajna Stefanovic
(BV 1 1 0 0 8-1 3
Valur 1 1 0 0 3-0 3
KR 2 1 0 1 3-4 3 H
Breiðablik 2 1 0 1 4-10 3
Stjarnan 2 0 2 0 2-2 2
Þór/KA/KS 2 0 1 1 3-4 1
Fjölnir 2 0 1 1 2-4 1 11
FH 0 0 0 0 0-0 0
Önnur umferö Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu hófst í gær með þremur
leikjum. Valur vann toppslaginn gegn íslandsmeisturum KR.
sigur vals
Valsstúlkur hafa ekki sótt gull í greipar KR-stúlkna undanfarin ár
og höfðu fyrir leik liðanna í gær ekki unnið þær í deildinni síðan
6. júlí 1998. Síðan þá höfðu liðin leikið ellefu leiki, KR hafði
unnið sex og fimm leikir höfðu endað með jafntefli. Það má því
segja að sigur Valsstúlkna hafi verið langþráður.
Leikur Vals og KR var þó ekki
mikið fyrir augað, sérstaklega ekki í
fyrri hálfleik. KR-stúlkur voru
markvissari fyrsta hálftímann en
náðu þó aðeins að skapa sér eitt gott
færi. Það fékk Katrín Ómarsdóttir á
11. mínútu en Guðbjörg Gunnars-
dóttir, markvörður Vals, varði vel.
Valsstúlkur komust meira inn í
leikinn eftir því sem líða tók á hálf-
leikinn og Rakel Logadóttir var
nálægt því að skora á 32. mínútu.
Hún komst ein í gegn en skaut
framhjá.
Tvö mörkfrá Nínu
Valsstúlkur komu hins vegar
sterkar til leiks í síðari hálfleik, tóku
öll völd á vellinum og höfðu, þegar
yfir lauk, skorað þrjú mörk gegn engu
marki íslandsmeistara KR. Nína Ósk
Kfistinsdóttir skorað tvö marka Vals
og var að vonum sátt í leikslok þegar
DV Sport náði tali af henni.
„Það er alltaf gaman að byrja vel
og tvö mörk í fyrsta leik eru ekki slæm
byrjun. Við spiluðum ekki vel í fyrri
hálfleik og ég verð að viðurkenna ég
var orðin svoh'tið stressuð eftir fyrri
hálfleikinn því að það gekk ekkert
upp hjá okkur. Þetta batnaði í síðari
hálfleik, við erum búnar að losa
okkur undan KR-grýlunni og ætlum
að vera í toppbaráttunni í sumar,"
sagði Nína Ósk.
María B. Ágústsdóttir, mark-
vörður KR, sem kom frá Banda-
rfkjunum nokkrum tímum fyrir leik,
var ósátt í leikslok.
„Þetta var ekki nógu gott hjá
okkur og alls ekki það sem við
ætluðum að gera. Við erum margar
að koma frá Bandaríkjunum og það
tekur tíma að púsla liðinu saman en
við verðum að spila betur en þetta,"
sagði María eftir leikinn.
Sanngjarnt jafntefli
Fjölnir og Stjarnan gerðu mjög
sanngjarnt jafntefli, 1-1, í fyrsta
heimaleik nýliðanna úr Grafarvogi.
„Þetta var baráttustig og á eftir að
skipta sköpum fýrir okkur í
fallbaráttunni. Við fengum á okkur
mark í upphafi og vorum ekki með í
fyrri hálfleik. Stjömuliðið var mjög
hreyfanlegt og við komumst ekki í
takt við leikinn. Þetta var allt annað í
síðari hálfleik og mínir leikmenn
vom ákveðnir f að sleppa ekki
Stjörnunni héðan með þrjú stig,“
sagði Andrés Ellert Ólafsson, þjálfari
Fjölnis eftir leikinn.
Vranja Stefanovic átti stórleik í
miðju Fjölnisvamarinnar og fyrir
vikið komust Garðabæjarstúlkur lítið
áleiðis þrátt fyrir að hafa verið meira
með boltann. Bæði lið fengu góð
tækifæri til að stela sigrinum í lokin
en úrshtin vom sanngjörn.
Erna tryggði sigurinn
Ema Björk Sigurðardóttir tryggði
Blikum nauman sigur á Þór/KA/KS í
Kópavogi í gær. Blikar réðu lögum og
lofum í fýrri hálfleik en tókst aðeins
að skora eitt mark. Norðan-stúlkur
mættu grimmar til leiks í síðari
hálfleik og komust yfir með tveim
mörkum frá Ingu Birnu Frið-
jónsdóttur á 50. og 52. mínútu. Fyrst
skoraði hún auðveldlega eftir
stungusendingu en seinna markið
kom úr vítaspyrnu.
Blikar bim í skjaldarrendur og
Greta Mjöll jafnaði á 68. mínútu og
Ema skoraði svo sigurmarkið sjö
mínúmm fyrir leikslok.
Margréti Sigurðardóttur, þjálfara
Breiðabliks, var létt í leikslok. „Við
áttum von á mjög erfiðum leik og það
varð raunin. Þær beijast grimmilega
og bíta vel frá sér og við fengum að
kenna á því í dag. Við hefðum í raun
átt að klára leikinn í fyrri hálfleik því
við óðum í færum en það gengur illa
að klára þessi færi. Ég veit ekki hvað er
að en þetta þarf að laga. Ég get ekki
neitað því að mér leið hræðilega
þegar þær komust yfir en sem betur
fer klámðum við dæmið og tókum
þrjú Stig." oskar@dv.is, ÞAÞ, henry@dv.is
Mónakókappaksturinn fór fram í gær
Fyrsti sigurTrullis
ítalski ökuþórinn Jarno Trulli,
sem ekur fyrir Renault, kom, sá og
sigraði í Mónakókappakstrinum í
Formúlu 1 í gær. Tnilli vann sinn
fyrsta sigur á ferlinum en hann hafði
komist þrívegis á verðlaunapall í 118
keppnum fram að þessu.
Trulli var fyrstur í rásröðinni í
fyrsta sinn á ferlinum og hann hélt
forystunni frá upphafi til enda ef
undan er skilinn smátími þegar
hann fór inn í þjónustuhlé. Þá náði
Michael Schumacher, sem hafði
unnið fimm fyrstu keppnir
tímabilsins, forystunni en hann
þurfti að hætta á 46. hring þegar
hann keyrði utan í vegg og missti
nánast hjólið undan bílnum.
Schumacher tók þessu óhappi illa
og lét öllum illum látum inni á
viðgerðarsvæði Ferrari -liðsins.
Sigur Trulli var þó ekki í höfn fyrr
en hann komst yfir endalínuna því
Bretinn Jenson Button, sem ekur
fyrir BAR-liðið, var aðeins 0,4
sekúndum á eftir Trulli. Ferrari-
ökumaðurinn Rubens Barrichello,
sem átti 32 ára affnæli í gær, varð í
þriðja sæti.
Trulli var afskaplega ánægður
með sigurinn eftir keppnina og
sagðist hafa beðið lengi eftir
sigrinum.
oskar@dv.is
Trulli á toppnum Italski ökuþórinn Jarno Trulli fagnar hérsigri slnum iFormúlu 1
kappakstrinum i Mónakó i gær. Reuters