Alþýðublaðið - 07.11.1919, Síða 2

Alþýðublaðið - 07.11.1919, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ St. jeaue í’yírc. Eftir Marlc Twain í Harpers Magazin. Lausl. þýtt. (Frh.). Það sem hún sagði var þetta: „Ríðið niður Englendinginn!" — og pað gerði hún líka sjálf. En pegar hún var spurð um það, með mjög móðgandi orðum, hvers vegna hennar stríðsfáni hefði frem- ur fengið pláss í dómkirkjunni í Rheims, þegar konungurinn var krýndur, heldur en fánar hinna hershöfðingjanna, þá sagði hún þessi hrífandi orð: „Hann nafði borið byrðina, hann hafði nnnið til heiðursins", — orð, sem hrukku ósjálfrátt af vörum bennar, en sem eru svo látlaus og yndislega fögur, að ekkert málskrúð fær yf- irstigið þau. Þrátt fyrir það, að ákæran varð- aði líf hennar, þá var hún samt hið eina vitni, sem leitt var fram í málinu; hið eina vitni sem stefnt var til þess, að gefa upplýsingar og skýringar fyrir dómstóli, sem settur var í þeim ákveðna tilgangi: að dæma hana seka, hvort sem hún var það eða ekki. Það átti að dæma hana eftir eigin fram- burði, þar eð það var eina leiðin til þees, að koma dóminum í kring. Allir þeir yfirburðir, sem þekking- in hefir yfir fávísina, ellin yfir æskuna, lífsreynslan yfir skamm- sýnina og kænskan yfir einfeldn- ina, yfirleitt alt það sem mann- vonzka og undirferli skarpskygnra heilá gat tekið í þjónustu sína móti þeim sem ekki er á varð- bergi — því var öllu beitt kinn- roðalaust gegn henni. En þegar þessi brögð og vélræðí ónýttust hvert af öðru, fyrir hinni undra- verðu dómgreind hennar og and- ríki. Þá tókst Cauchon biskup á hendur hið svívirðilegasta níðings- verk, sem er niðurlæging fyrir mannlegt mál að lýsa. Dulbúinn prestur, sem þóttist koma frá héraðinu sem hún var úr, og lést vera henni vinveittur og vilja hjálpa henni með.ráð og dáð, var látinn fara inn í klefann til henn- ar, og tókst honum að vinna svo traust hennar, að hún trúði hon- um fyrir því, sem „raddirnar" höfðu sagt henni, að hún yrði að þegja yfir, og sem ofsækjendur hennar höfðu svo lengi og árang- urslaust reynt að fá hana til að láta uppi. Annar maður var hafð- ur í leyni í nánd við Jeanne, og ritaði hann niður alt sem hún sagði og afhenti hann síðan Cau- chon leyndarmál hennar, en hann notaði þau til þess að fá hana dæmda. Við öll réttarhöldin var snúið út úr öllu, sem hið fyrirfram dæmda vitni sagði, og öllum hugs- anlegum brögðum var beitt, til þess að gera hana tvísaga; en þau svör hennar, sem ómögulegt var að aíbaka, var bannað að bóka. Það var við eitt þess háttar tæki- færi, að hún mælti þessum ásök- unarorðum við Cauchon: „Þér skrifið alt sem mælir á móti mér, en þér viijið ekkert bóka af því, sem er mér til málsbóta/ (Frh.). Xosningarnar. Bráðum fara alþingiskosningar í hönd. Þá eigum við, alþýðukon- urnar, sem kosningarrétt höfum, að ganga að kjörborðinu og kjósa fulltrúa til alþingis. Eg vona, að okkur sé það öllum ijóst, hverja tvo af þessum fimm frambjóðend um við eigum að kjósa. Það ætt- um við að skilja, að það er skylda okkar, bæði gagnvart sjálfum okk- ur og okkar eigin flokk, að fylkja okkur um okkar eigin fulltrúa. Við eigum vel að athuga það, hverjir eru líklegastir til að berj- ast fyrir málum alþýðunnar. , Við vitum líka, að tveir af hin- um þremur frambjóðendum eru boðnir fram af félagi, sem mynd- að var eingöngu til þess að drepa Alþýðuflokkinn. Priðji frambjóð- andinn er að líkindum utan flokka; hann spratt upp alt í einu eins og skollaflngur í rakri jörð. En hvaðan sem hann er, þá vitum við það, að hann vinnur á móti okkar ílokki, eins og hinir. Eg skora því fastlega á allar þær konur, sem fylgja Alþýðu- flokknum að málum og eru 37 ára (því yngri hafa ekki kosning- arrétt), að kjósa okkar eigin full- trúa, og fylgja svo fast eftir, að við komum þeim báðum að. Það er Alþýðuflokknum í lófa lagið, einasta að við svíkjumst ekki undan merkjum þegar mest á liggur. Verum nú duglegar og samtaka, konur, og gerum nú alt sem við getum. Sitjum ekki heima kosn- ingadaginn. Förum og kjósum fulltrúana okkar: Ólaf Friðriksson og Þorvarð Þorvarðsson og kom- um baðum að. Þá er betur farið en heima setið. P. „Reykjavik brennur". Hr. ritstjóri Ólafur Friðriksson f Viljið þér gera svo vel að ljá eftirfarandi línum rúm í heiðruðu blaði yðar. í Alþýðublaðinu dags. 1. nóv. þ. á. er grein með yfirskriftinni „Reykjavík brennur". Vegna þess að grein þessi virð- ist vera persónuleg árás á Pétur nokkurn Ingimundarson, eins og „Húseigandi" hinn skriftlærði kemst að oiði, get eg ekki leitt hjá mér að svara henni nokkrum orðum. Eg hefi aldrei verið sótari hér í bænum og býst ekki við að verða. það. — Það sem mér sem slökkviliðsstjóra ber að gera við- víkjandi sóthreinsun hér í bænum, er samkv. „Bi unareglugerð Reykja- víkur" 24. júní 1913, sem hér segir: 27. gr. um skoðun eldfæra og reykháfa. Slökkviliðsstjóri skal- einu sinni á ári hverju í október- mánuði, skoða eða láta skoða eld- færi og reykháfa í öllum húsum í bænum, og líta eftir að þau séu útbúin lögum samkvæmt, og að reykháfar hafi verið tilhlýðilega. hreinsaðir o. s. frv. Þessa, og einskis annars við- vikjandi sót.hreinsun krefst reglu- gerðin af slökkviliðsstjóra. í sam- bandi við þetta vil eg geta þess, að nú í októbermánuði hafa þrír menn farið um bæinn að skoða eldfæri og reykháfa. Við skoðun- ina hefir komið í Ijós, að sót- hreinsunin er ekki í eins góðu lagi sem skyldi, enda áður komn-

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.