Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ2004 Fréttir DV Fólk stal kríuungum Seint á mánudagskvöld var tOkynnt til lögreglunn- ar í Keflavík að sést hefði til fólks sem reyndi að handsama kríuunga við bæinn Ásgarð í Sandgerði. Uppi eru skilti við bæinn þar sem segir að eggjataka sé bönnuð á landinu. Að sögn lögreglu leikur grun- ur á hver þarna var á ferð. Þjófur í hettupeysu Lögreglunni í Keflavik var tilkynnt um innbrot í fjölbýlishús við Máva- braut í upphafi vikunn- ar. Þar hafði verið farið inn um glugga skömmu eftir að íbúar höfðu farið úr íbúðinni um eittleytið á mánudag. Hafði verið rótað í ýmsu en einskis er saknað. Var svalahurð opin er íbúðareigandinn kom heim. Vitni hafði séð grannan karlmann í hvítri hettupeysu fara inn um gluggann en talið að hann ætti heima þarna. Nýtt fjölmíðla- frumvarp Sigurður Kári Kristjánsson þingmaöur sjálfstæðisflokksins „Þaö er reynt aö koma á móts viö þær athugasemdir og þau sjónarmiö sem komu íIjós á þinginu I vor og í samfélaginu. Meö þvf aö auka heimildir markaösráöandi fyrirtækja um aö eiga i fjölmiðlum og fresta gildistökunni fram yfír kosningar. Fulltrúar sjórn- málaflokkanna á þingi, hags- munaaðilar bæöi talsmenn blaðamanna og eigendur miöla eru sammála um aö það þurfí aö setja lög um eignarhald á fjölmiölum". Hann segir / Hún segir „Þetta þing sem hefur veriö kallaö saman núna er kallað saman með einn tilgang sam- kvæmt forsetabréfí. Það er til þess að fjalla um tilhögun at- kvæðagreiðslunnar sem ríkis- stjórnin var búin að ákveða aö yrði á grundvelli forsetabréfs- ins. Ekki til þess aö ræða nýtt fjölmiðlafrumvarp. Ég segi þvi við rlkisstjórnina aö nú skul- um við halda okkur við þaö sem forsetabréfíö fyrirskipaöi okkurog fjalla um væntan- lega þjóðaratkvæðagreiðslu." Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður vinstri grænna Menntamálaráðherra hefur gefið grænt ljós á að nýr íþróttaháskóli muni rísa í Reykjanesbæ. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir skólann verða mikla lyftistöng fyrir bæinn. Geir Sveinsson handboltakappi hefur unnið að undir- búningi verkefnisins og er orðaður við skólastjórastöðu hins nýja háskóla. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla íslands, gagnrýnir áformin. Geir Sveinsson skólastjóri í nýjum íþróttahóskóla Þetta er stórkostlegt tækifæri sem við ætlum að nýta,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Nýr íþróttaháskóli mun rísa í bænum. Gert er ráð fyrir að fyrstu nýnemarnir verði teknir inn árið 2005. Menntamálaráðuneytið hefur gefið grænt ljós á verkefnið. Kostnaður við skólann verður ekki undir 400 milljónum króna. Forstöðumaður íþróttaháskólans á Laugarvatni og rektor Kennara- háskóla íslands gagnrýna áformin. „Ég hreinlega trúi ekki að ráðu- neytið hafi gefið grænt ljós á þetta,“ segir Er- lingur Jó- hanns- son, forstöðumaður íþróttafræðaseturs Háskólans á Laugarvatni. „Það er enginn grundvöllur fyrir tvo íþróttaháskóla á íslandi enda þörf- in fýrir íþróttakennara ekki það mikil." Erlingur segir fjármunum ríkis- valdsins væri betur varið í þarfari verkefni en nýja stofnun. „Við á Laugar- vatni erum dótt- urfyrirtæki menntamála- ráðuneytisins og Þorgerður Katrín er með þessu að grafa undan sinni eigin starf- semi. Stutt er síðan skóla- garðar fyr- ir um 350 milljónir voru reistir á Laugar- vatni og ég á eftir að sjá þingmenn Suðurkjördæm- is samþykkja þetta.“ Árni Sigfússon er á öðm máli; segir næga þörf fyrir nýjan íþróttaháskóla - skól- inn sé byggður í einka- Geir Sveinsson hand- boltakappi Verður trúlega skólastjóri hins nýja háskóla. framkvæmd en ríkið greiði með hverjum nemenda. „Það er ljóst að stofnun af þessu tagi verður ekki reist fyrir minna en 400 milljónir. Bærinn og einkafyrir- tæki munu kosta bygginguna. Á endanum mun þetta líka skila bæj- arfélaginu miklu. Mun meim en eitt stykki verksmiðja." Nýi háskólinn í Reykjanesbæ mun ganga undir nafninu íþrótta- akademía íslands. Einn af þeim sem hefur komið að verkefninu er Geir Sveinsson MBA. Hann hefur verið orðaður við skólastjórastöðu hins nýja háskóla. „Geir þykir mjög áhugaverður kostur," segirÁrni Sigfússon. „Þetta framtak Reykjanesbæjar finnst mér frábært," segir Geir Sveinsson. „Ég hef tekið þátt í undir- búningsvinnunni en það á eftir að ganga frá endanlegri ráðningu." „Þorgerður Katrín er með þessu að grafa undan sinni eigin starfsemi Nú þegar hafa fyrstu drög að byggingu hins nýja háskóla verið lögð fram. Páll Tómasson arkítekt ber hitann og þungann af hönnun- inni. Gert er ráð fyrir að ein nýbygg- ing rísi í grennd við nýju íþróttahöll- ina. Ólafur Proppé, rektor Kennara- háskóla íslands, segist ekki telja að þörf sé á tveimur íþróttaháskólum hér á landi. „Það hefur ekkert samráð verið haft við okkur," segir hann. „Það er alltaf betra ef fólk hefur samráð." simon@dv.is Færeysku börnin lugu upp á foreldra sína Færeyska konan sem afplánaði tveggja ára dóm fyrir meinta kyn- ferðismisnotkun á þremur barna sinna hefur skipt um eftirnafn og farið í felur. Hún hefur tekið nafnið Nina Maria Kruse og var síðast skráð með leyninúmer í Esbjerg. Því núm- eri hefur nú verið lokað og vita lög- fræðingar hennar í Færeyjum ekki hvar hún er niður komin. Hér á íslandi fara börnin hennar líka huldu höfði en fóstra þeirra, Jonna Vágseið, sem býr á íslandi er sögð hafa neytt stúpbörn sín til að ffemja meinsæri gegn móður sinni. Jonna sagði við DV í gær að hún væri sak- laus. Réttað verður í málinu aftur í haust og í framhaldi þess kemur í ljós hvort stjúpan í Garði og börnin fá fangelsisdóm fyrir meinsæri. Móðirin með nýtt eftirnafn Nokkur barna Ninu búa á fs- landi en þau vöru tekin úr forsjá stjúp- unnar og föður barnanna og komið fyrir víða um land. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra breytir heimasíðunni sinni Björn ítilraun með brellu Einn helsti „bloggari" landsins, Bjöm Bjamason dómsmálaráðherra, hefur verið staðinn að því að breyta heimasíðu sinni eftir að ríkisstjómin ákvað að fella fjölmiðlalögin úr gildi og komast þannig hjá því að halda þjóðar- atkvæðagreiðslu um þau. Málið snýst um texta á heimasíðu Bjöms frá 3. júní sl. Þar svarar hann hugmyndum Sigurðar Lín- dal lagaprófessors um að einfalt væri fyrir Alþingi að breyta þess- um lögum og komast þannig hjá þjóðaratkvæðagreiðsl- unni. „Ef slíkum brellum yrði i beitt er ég hræddur um að einhvers staðar mundi heyrast t hljóð úr homi." Sigríður D. Auð- unsdóttir blaðamaður á Frétta blaðinu stóð í bréfaskiftum við Bjöm um þessi orð hans og túlkun á þeim og tók efúr í framhaldinu að ráðherrann hafði breytt textanum á þann hátt að hann felldi fyrst út orðið brelfur, setti það síð- an innan. gæslalappa en hefur nú að lokum fært textann í upprunalegt horf. Bjöm segir sjálfur að þessar breyt- ingar hafi verið tiiraunastarfsemi af sinni hálfu og þar sem hann hafi fengið á tilfinninguna að tekið yrði til við að vitna til þessara orða _____hans. Svo varð raunin og telur Bjöm að það JHI sýni „... hve mikils síða mín er metin... “ Björn Bjarnason Áhuginn á breytingunni„ ...sýnirhve mikils siða min er metin..."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.