Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ2004 Fréttir DV meðal annars kærður af Félagi einstæðra foreldra fyrir bragðið Svo virðist sem jörðm hafi gleypt 33 ara, þnggja barna móður, eftir að hún heimsótti fyrrum eigin mann sinn og barnsföður í Stórholtið á sunnudaginn. Hann var handtekinn síðdegis í gær. Viða- mikil rannsókn er hafin á hvarfi Sri Rahmawati sem er frá Filippseyjum. Hún þurfti endurtekið að þola barsmíðar og ofbeldi af hendi fyrrum eiginmanns síns sem var rjaldað í Stórholti Elginwaður móðurinnar er I halá ögreglu. Idag verður tekin ákvörðun um hvort krafist /erði gæsluvarðhalds yfir honum. Hákon Lydaler 45 ára og hefur komið við sögu lögreglu vegna ofbeldis en banner sagður hafa barið Sri og valdið skemmdum á húsnæði Félags einstæðra foreldra._______________ Storholt Olduqata Lögreglan í Reykjavík hefur hafið leit að Sri Rahmawati, 33 ára konu frá Filippseyjum, sem hvarf sporlaust frá þremur börnum eftir heimsókn til fyrrverandi eiginmanns síns á sunnudaginn. Síðdegis í gær var Hákon Eydal fyrrum eiginmaður Sri handtekinn. Ákvörðun verður tekin um það í dag hvort gæsluvarðhalds verður krafist. Ekkert hefur spurst til Sri og er fjölskylda hennar áhyggjufull og harmi lostin. Óttast menn hið versta enda hafði eiginmaðurinn fyrrverandi margsinnis hótað Sri lífláti og gengið í skrokk á henni þar sem hún dvaldi á heimili Félags einstæðra for- eldra þegar það var til húsa að Öldugötu 11. „Fyrst var Hákon mjög vingjarnlegur og góður við okkur öll en eftir að Sri varð ófrísk byrjaði hann að berja hana,“ segir Díana, systir hennar, og lýsir barsmíðum Hákons leikrænt með handahreyfingum. „Við þurftum öll að horfa upp á þetta. Það var hræðilegt." Barsmíðar eiginmannsins íyrrverandi Ieiddu til þess að Sri flutti í húsnæði Fé- lags einstæðra foreldra á Öldugötu 11: „Sri bjó hjá okkur frá því í júlí 2002 og fram á haust 2003. Á þeim tíma þurftum við að kæra fyrrum eiginmann hennar fyr- ir skemmdir á húseigninni þegar hann gekk í skrokk á Sri. Sjálf kærði hún hann fyrir barsmíðarnar en ég veit ekki hvemig það mál endaði," segir Ingimundur Péturs- son, formaður Félags einstæðra foreldra, sem hefur áhyggjur af afdrifum Sri eins og aðrir. Sri kom til landsins ásamt fyrrum eiginmanni sínum og átti þá tvö börn fyrir. Með Hákoni Eydal, sem er 45 ára gamall múrari, átti hún svo eitt barn fyr- ir tveimur árum. Eldri börn Sri eru fjórt- án og fjögurra ára. Síðast þegar Ingi- mundur vissi starfaði Sri í bakaríi Myllunnar. Vitað er að Sri heimsótti fyrmm eigin- mann sinn á heimili hans á sunnudaginn og síðan ekki söguna meir. í gær var húsið þar sem eiginmaðurinn fyrrverandi býr, Stórholt 19, afgirt og rannsókn sett í gang á vettvangi. Það var Maricel, mágkona Sri, sem síð- ast sá hana: „Við fórum út að skemmta okkur á laugardagskvöldið og ég skildi við hana um hálfsexleytið á sunnudagsmorg- uninn. Síðan hef ég ekki séð hana.“ Talið er líklegt, og vinnur lögreglan út frá þeirri tilgátu, að þá hafi Sri farið á heimili fyrmm eiginmanns síns: „Það get- ur vel verið að hún hafi farið til hans en ég veit það ekki fyrir víst," segir Maricel. Böm Sri em í gæslu hjá ættingjum hennar og vinum. í gær var fjórtán ára sonur hennar að vinna en yngri börnin tvö heima hjá Maricel: „Við söknum mömmu og viljum fá hana aftur," sögðu þau bæði og sorgin leyndi sér hvorki í augum né í ungum barnsröddunum. Fyrmm eiginmaður Sri hefur verið búsettur í Stórholti 19 í Reykjavík en þaðan hefur verið rekin gluggaþvotta- og hreingerningarþjónusta. Eiginmaðurinn fyrrverandi er múrari og hefur einnig rek- ið fyrirtækið Múrarameistarann ehf. Um kvöldmatarleytið í gær bám lögreglu- menn haglabyssur og fleiri vopn út úr húsinu að Stórholti 19. Allir sem þekktu til Sri Rahmawati og DV ræddi við í gærkvöldi vom á einu máli: „Þetta er skelfllegt. Við emm lengi búin að óttast eitthvað þessu l£kt.“ Logregla ber út byssu Um kvöldmatar- leytið ígær bar lögreglan þessa byssu út úr Stórholtinu þar sem fyrrverandi eiginmaður Sri er busettur. Sjálfur var hann fhaldi lögreglu. Tvö yngri börn Sri Irmawadi Nína og Amanda Ade. Yngra barnið er dóttir Hákons Eydal. Áhyggjufull Ættingjar Sri bíða og vona á Grettisgötu I gærkvöldi. Stórholt 19 Þarna býr Hákon Eydat, fyrrverandi eiqinmaður Sri. Tæknideild lögreglunnar I Reykjav/k tjaldaðiyfir garðinn tilþess að verja vettvang rannsóknarinnar. Enginn uppgroftur átti sér stað en ýmislegt afheimilinu var gert upptækt. Grettisgata 66 Börn Sri bíða hjá systur hennar í miðbæ Reykjavikur. Jórufell 4 Hingað flutti Sri eftir að hafa dvalið I húsnæði Félags einstæðra foreldra. Hvarf sporlaust eftir heimsókn til á*í íyrrverandi eiginnf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.