Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Page 11
DV Fréttir
Ný ævisaga um Hillary Clinton komin út. Þar kemur fram að
Bill Clinton hafi oft þurft að útskýra marbletti og sár á and-
litnu með því að segja að hann hafi gengið á hurð. Hið sanna
er að frúin lagði oft hendur á hann og henti í hann þungum
hlutum í bræðisköstum vegna framhjáhalda hans.
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulagsáætlanir
og breytingar á deiliskipulagsáætlunum
í Reykjavík
Barði torsetann eins og
harðflsk í Hvrta húslnn
Bill Clinton fyrmm forseti Bandaríkjanna þurfti oft á tíðum að út-
skýra marbletti og sár á andlit sínu með því að segja að hann hefði
rekist á hurð. Hið sanna er að frúin, Hiilary Clinton, barði hann
eins og harðfisk á stundum meðan þau dvöldu í Hvíta húsinu.
Þetta kemur fram í nýrri ævisögu
sem komin er út í Bandaríkjunum
og ber titilinn: „Bandarfsk Evita, leið
Hillary á toppinn." í bókinni stað-
hæfir höfundurinn, Christopher
Andersen, að Hillary hafi ekki bara
lagt hendur á forsetann heldur
einnig kastað þungum hlutum í
hann í mestu bræðisköstunum. Og
þótt Bill hafi haft á takteinum fleiri
skýringar en vandræði með hurðir
var það samt algengasta útskýring
hans á mari og sárum. Og orsök
þessa voru „fleiri hundruð framhjá-
höld forsetans," skrifar Anderson.
Og til að hefna sín á Bill segir
Anderson að forsetafrúin sjálf hafi
staðið í ástarsambandi við annan
mann meðan hún dvaldi í Hvíta
húsinu. Það mun hafa verið Vince
Foster lögfræðingur frá Arkansas en
hann framdi sjálfsmorð árið 1993 í
kjölfar hins svokallaða Whitewater-
máls þar sem forsetahjónin voru
m.a. ásökuð um fasteignabrask.
Monica og fleiri mál
Það var ekkert leyndarmál alla
forsetatíð Biils Clinton að hann var
fjölþreyfmn til kvenna,
bæði innan og utan
Hvíta hússins. Fræg-
asta dæmið var
Monica Levin-
sky, einn af
starfsmönnum
hans, en hann
átti í ástarsam-
bandi, eða
raunar kyn-
lífssamandi,
við hana í
nokkurn
tíma. Þekkt er
sagan af því
að hann naut
þess að reykja
stóra vindla eftir
að Monica hafði
sett þá á ónefnd-
an stað í líkama
sínum.
Aðrar þekktar ást-
konur Bills voru m.a.
Gennifer Flowers og
Elanor Mondale en sú síð-
arnefnda er dóttir annars
forsetaframbjóðenda,
Walters Mondale. Mun Bill hafa átt
stutta „fundi" með henni að lokn-
um tennisleikjum á lóð Hvíta húss-
ins.
í hinni nýju ævisögu sem nú er
komin út staðhæfir höf-
undurinn svo að Bill
Clinton eigi sér
nýja ástkonu
þessa dag-
Deilt um náttúrulyfið Ginkgo sem varað er við
Viðvörunin sögð vera alvarleg
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til
kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum og breytingum
á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
Gufunes, útivistarsvæði.
Tillagan tekur til svæðis sem afmarkast af Strandvegi til
austurs, fyrirhuguðum Hallsvegi til suðurs, fyrirhugaðri
Sundabraut til vesturs og að komuvegi að Áburðar-
verksmiðju til norðurs. Tillagan gerir ráð fyrir að svæðið verði
nýtt sem fjölbreytt og aðgengilegt útivistarsvæði fyrir alla
aldurshópa. Þar er m.a. gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
íþróttafélagið Fjölni (tveimur fótboltavöllum), fjölnota gras-
völlum sem nýtast munu almenningi og áhugamannahópum,
golfæfingarsvæði, brennustæði, skrúðgarði með ræktun
fjölbreytts gróðurs, reitum til starfsemi fyrir tómstunda- og
félagasamtök. Svæðið tengist stofnstígum borgarinnar um
fyrirhuguð undirgöng undir Hallsveg til móts við Hamra-
hverfi. Gert er ráð fyrir möguleikum á byggingu vallarhúss, á
einni hæð allt að 200 m2 við gervigrasvöll og golfæfingas-
væði. Þá er gert ráð fyrir mögulegri stækkun Gufunes-
bæjarins.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Gufuneskirkjugarður, breyting á
deiliskipulagi.
Tillagan gerir ráö fyrir stækkun lóðar garðsins til suðvesturs
um 1020 m2. Þá gerir tillagan ráð fyrir að heimilt verði að
byggja sáluhlið við aðkomu garðsins frá Hallsvegi (Gagn-
vegi).
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Grafarholt, atvinnusvæði Vínlandsleið 1,
breyting á deiliskipulagi.
Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr.
1 við Vínlandsleið. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að norðurhorn
lóðarinnar skerðist vegna legu aðreinar frá Vesturlandsvegi
og er lóðin í stað þess stækkuð til norðausturs. Byggingar-
reit á lóðinni er breytt þannig að í stað vinkillaga byggingar-
reits með jafn breiðum örmum er byggingarreitur samsíða
Reynisvatnsvegi breikkaður en reitur samsíða Vesturlands-
vegi mjókkaður. Skilmálum fyrir húsbyggingu er einnig breytt
lítillega en hámarkshæð húss og nýtingarhlutfall lóðarinnar
verður óbreytt.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
öm í Hellsuhúslnu Segir
lyfjastofnun hafa bannað
margt sem ekki sé bannað í
öðrum löndum.
Rannveig hjá
lyfjastofnun
Segir ofmikia
verkun lyfsins
hafa i för með sér
aukna blæðingar-
hættu fyrirsjúk-
iinginn.
„Þetta er virk jurt sem engan hef-
ur drepið hingað til," segir Örn Svav-
arsson í Heilsuhúsinu um náttúru-
lyfið Ginkgo Biloba sem Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin hefur varað
fólk við. Fram kom í DV í fyrradag að
tvö dauðsföll mætti
rekja til notkunar á
lyfinu og það væri
sérstaklega hættu-
legt þeim sem
tækju það inn með
blóðþynningarlyfj -
um. Örn hefiir
kannað þetta bæti-
efni eins og hann
kallar það og segir
þetta aðeins vera
tvö tilfelli af millj-
ónum notenda sem
verið sé að skoða.
„Þegar fólk lést án
skýringa fyrir svona tíu árum síðan
og í ljós kom að viðkomandi væri að
borða 4-5 lyf og bætiefni líkt og
þetta, var bætiefnið útilokað og
skýringa leitað annað.
Þetta hefur snúist við
í dag og nú er bæti-
efninu kennt fyrst
um.“
Örn segir þessa
jurt auka blóð-
streymi og sé þess
vegna vinsæl hjá
fólki sem þjáist af
kulda og öðru slíku.
„Almenningur er
mjög hrifinn af
náttúrulækningum
ogég heldaðástæð-
an sé sú að lækna-
vísindin hafa ekki
svör við öllum
spurningum sjúklinga. Fólk sem
þjáist af krónískum sjúkdómum svo
sem gigtar- og magasjúkdómum á
oft erfitt með að fá svör í hefð-
bundnum lækningum" segir Örn.
Hann segir Lyfjastofnun hafa vilj-
að túika þetta mjög þröngt og hafi
lagt stein í götu náttúrulækninga
með því að banna margt sem ekki sé
bannað í öðrum löndum.
ur varað við lyfinu.
Rannveig Gunnarsdóttir hjá
Lyijastofnun segir Ginkgo vera skráð
náttúrulyf en einnig vera til sem
náttúruvara sem geti verið milli-
verkandi á önnur lyf og rannsóknir
hafi sýnt fram á það. Rannveig segir
ekki rétt hjá Erni að þetta sé saklaust
bætiefni sem ekki skuli taka alvar-
lega. „Þetta ber að taka alvarlega,
sérstaklega vegna þess að hér er um
að ræða milliverkun við blóðþynn-
ingarlyf sem nauðsynlegt er að
skammta mjög ná-
kvæmlega.
Mikilvægt er
að taka tillit til
allra þátta sem
geta haft áhrif á
verkun lyfsins en
lyfið er meðal
annars gefið í þeim
tilgangi að hindra
blóðtappa. Of mikil
verkun lyfsins hefur i
för með sér aukna
blæðingarhættu fýrir
sjúklinginn."
breki@dv.is
Háskólasvæði vestan Suðurgötu, milli
Suðurgötu, Hjarðarhaga, Dunhaga,
Birkimels og Hringbrautar.
Tillagan tekur til svæöis sem afmarkast af Suöurgötu til
austurs, Hjaröarhaga til suðurs, Dunhaga og Birkimels til
vestur og Hringbraut til Norðurs, að undanskildum lóðum
fjölbýlishúsanna á horni Dunhaga og Hjarðarhaga. Um er að
ræða nýtt deiliskipulag fyrir svæðið en á því standa m.a.
Háskólabíó, Hótel Saga og Þjóðarbókhlaðan. Tillagan
skilgreinir lóðamörk og byggingarmöguleika á svæðinu til
framtíðar. Auk möguleika á viðbyggingum við Þjóðarbók-
hlöðuna og Hótel Sögu gerir tillagan ráð fyrir að heimilt verði
að byggja 4 nýbyggingar á 2-3 hæðum meðfram Suðurgötu.
Þá gerir tillagan ráð fyrir neðanjarðartengingu milli svæðanna
austan og vestan Suðurgötu auk þess að Hagatorgi verður
breytt og það svæði sem Hótel Saga hefurtil umráða, vestan
við húsið, stækki.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 08:20 -
16.15, frá 7. júlí til og með 18. ágúst 2004. Einnig má sjá
tillögurnar á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal
skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 18. ágúst
2004.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 7. júlí 2004
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur