Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Blaðsíða 32
-T* jf1 ^ í í íJjjj í 0 t Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^nafnleyndarergætt. r-> i—' r \ r-1 50 50Í)U SKAFTAHLÍÐ24, W5REYKJAVk[STOFNAÐ 19W J SÍMiSSOSOOO • Það var mikið fjör á tónleik- um rapparans 50 Cent í Laugar- dalshöll á miðvikudagskvöldið. Minnstu munaði að ungmenni træðust undir fremst við sviðið og ekki varð atgangurinn minni þegar goðið henti skónum sín- um út í sal og fengu þar færri en vildu. Allt ætiaði þó um koll að keyra þegar rapparinn til- kynnti aðdáendum sínum að hvergi í heiminum hefði hann fengið betra marijúana en í Reykjavík - og grasið væri heimaræktað. Hefur 50 Cent þó víða farið og marga jónuna reykt svo ekki sé minnst á önn- ur og harðari efni... Kvenremba! Milljónerar íá fjármálaráðgjöf Karlmenn of bældir lil að gléðjast yfir Lottá-vinningum Öllum vinningshöfum í Lottó hjá íslenskri getspá er boðið upp á ráðgjöf varðandi fjármái hjá endur- skoðunarfyrirtækinu KPMG. Það er að segja ef þeir vinna milljón eða meira. Það er Aðalsteinn Hákonar- son hjá KPMG sem veitir ráðgjöfina en hann hefur orð á sér fyrir að vera einn slyngasti fjármálaráðgjafi þjóðarinnar. „Við bjóðum upp á þessa ráð- gjöf ókeypis enda veitir stundum ekki af,“ segir Guðbjörg Hólm, þjónustufulltrúi hjá íslenskri get- spá, en það er einmitt hlutverk hennar að hringja í vinningshafa og færa þeim gleðitíðindin um pen- ingana sem í vændum eru: „Það er mikill munur á því að hringja í konur eða karla sem vinna. Konurnar taka þessu alltaf fagnandi og kunna þá list að gleðj- ast yfir því sem þær fá. Karlmenn- irnir eru hins vegar alltof bældir til að gleðjast og sleppa sér aldrei. Biðja mig yfirleitt kurteislega um að leggja þetta inn á reikninginn og þakka svo pent fyrir sig,“ segir Guð- björg sem játar því að fjármálaráö- gjöfin sem í boði er sé yfirleitt nauðsynleg. Stóru vinningshafam- ir viti yfirleitt ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Lottóvinningarnir hjá fslenskri getspá em aldrei greiddir út fyrr en mánuði eftir að þeir falla. Er það bæði gert vegna kæmfrests sem nauðsynlegur er og svo hins að safna verður saman fénu svo hægt sé að greiða út vinningana: „Það er mikill kostur að greiða þetta ekki út fyrr en mánuður er liðinn frá vinn- ingi. Það gefur fólki tíma tti að jafna sig og ná áttum og reyndar má líta á þennan mánaðartíma sem áfalla- hjálp í sjálfu sér.“ Eins og fram kom í DV í gær fékk tveggja barna húsmóðir í Reykjavflc 40 milljón króna lottóvinning á dögunum. Eins og aðrir fær hún peningana ekki útborgaða fyrr en í september og á meðan getur hún sótt góð ráð hjá Aðalsteini endur- skoðanda hjá KPMG. Húsmóðirin hélt þó upp á daginn samstundis með því að bjóða fjölskyldunni í bíltúr og bjóða henni upp á rjóma- ís. Þykja það nokkuð yfirveguð við- brögð við stórtíðindum eins og þeim sem yfir hana dundu. ALLT í SKÓLANN Allir Velkomnir Barbie töskur,pennaveski & bækur í miklu úrvali. Skólatöskur Bugs Bunny frá 299kr til 1699kr Mikið úrval stílabóka, möppur, penna veski og margt fleira á góðu verði. Tweety bækur & möppur verð frá 169kr Batman bakpoki stækkanlegur á3990kr Allt í skólann á frábæru verði Grípiö & Greitt m Skútuvogi 4 • 104 Reykjavík • Slmi 575-2200 • Myndsfmi 575-2210 *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.