Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST2004 Fréttir DV Raðmorðingi í Nepal Meintur raðmorðingi, Frakkinn Charles Sobhraj, var dæmd- ur sekur í Nepal fyrir morð á tveim bakpokaferðalöng- um í landinu árið 1975. Sobhraj hefur verið bendlaður við allt að 20 morð sem framin voru á áttunda ára- tugnum í íjölmörgum lönd- um Asíu. Þetta er hins veg- ar í fyrsta skipti sem hann hefur verið fundinn sekur um morð. Sobhraj sat í fangelsi í Indlandi í 20 ár vegna fíkniefnabrota og fyrir að ræna ferðamenn. Hann var dæmdur í lífstíð- arfangelsi. Mögnuð menningarnótt Menningarnótt verður haldinn í níunda sinn 21. ágúst næstkomandi og eru atriðin yfir 200 talsins. Menningamótt vex ár frá ári, dagskráin verður líka þéttari með ári hverju og framboð af viðburðum íyrir börn og unglinga hefur aldrei verið meira. Tóniist- in mun breiða sig eins og hlýtt teppi yfir miðborg Reykjavíkur þegar kvölda tekur. Af óvenjulegri við- burðum má nefna heilgrill- að naut við undirleik Smaladrengjanna, Brúar- landsbongó og ekki má gleyma Tilfinningatorginu, sem er verðlaunahugmynd Elísabetar Jökulsdóttur úr hugmyndasamkeppni Landbankans. Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, segir að ekki verði viðskiptalegar forsendur til að selja sterk eða styrkt vín í nema einni búð á landinu ef sala á léttvíni og bjór verði gefin frjáls. Áfengi er þegar selt í blómabúðum og barnafataverslunum út um alla landsbyggðina. Brennivín í barnafata- verslun on bókahúð Undanfarin ár hefur sölustöð- um ÁTVR fjölgað hratt. Stofn- unin sjálf rekur ekki vínbúðirn- ar heldur er reksturinn boðinn út og ýmsum rekstraraðilum falin salan á víninu. Þessir rekstraraðilar eru af ýmsum gerðum og tala margir um tví- skinnung. Á meðan bannað er að selja áfengi í matvöruversl- unum á höfuðborgarsvæðinu er það selt á ólíklegustu stöð- um annars staðar á landinu. í minni bæjum á landsbyggðinni er ÁTVR með útibú á furðulegustu stöðum, svo sem á bensínstöðvum, í matvöruverslunum, fatahreinsun- um, blómabúðum og meira að segja í bamafataversluninni Þóru í Ólafsvík. Mörgum þykir mikill tvískinnung- ur í því að ekki megi selja áfengi í sér- stökum deildum í matvöruverslun- um á höfuðborgarsvæðinu á meðan áfengi er meira að segja selt í barna- fataverslun úti á landi. Koníak með póstkröfu „Flutningur sölu á áfengi fráÁTVR yfir í einkareknar verslanir yrði að vera alger. Allt áfengið eða ekkert áfengi," sagði Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR. „í þessu tilviki þarf að fjalla um alla áfengissölu en ekki bara bjór og léttvín af því að rfldð færi aldrei í samkeppni við einkaaðila í sölu á léttvíni og bjór. Sterk og styrkt vín eru einungis 6% af heildarsölu vínbúðanna, þannig að ef sala á létt- víni og bjór yrði gefin frjáls þá væm ekki forsendur fyrir rekstri nema einnar rfldsrekinnar áfengisverslun- ar." Höskuldur segir að þetta bitni á þeim sem búa utan höfuðborgar- svæðisins þar sem áfengisverslanir á landsbyggðinni séu þegar, með örfá- um undantekningum, reknar á núlli eða jafri- vel með tapi. „Ef maður á Þórshöfh langaði í koníak eða viskí þyrfti hann að panta það í póstkröfu. Ég veit ekki hvernig það yrði," segir Höskuld- I son Þingmaður Siálf- «*ðisflolcks/„ssSoð, , I fullkomnum heimi væri engm rfkisverslun. M&W Blönduós - Tryggingamiðstöðin (áður fatahreinsun) Búðardalur - hárgreiðslustofa Dalvík- fatahreinsun Djúpivogur - Kaupás (til endurskoðunar) Fáskrúðsfjörður - bókhaldsskrifstofa (til endurskoðunar) Grindavík-faótobúð Grundarfjörður - blómabúö og gjafa- vöruverslun Hólmavík Kaupfélagið, matvöruverslun Húsavík - fatahreinsun H vammstangi - Kaupfétag Vestur- Húnvetninga (byggingavörudeild) Hvolsvöllur - Veitingaskálinn Hliðarendi (Esso bensínstöö) Höfn i Hornafirði - vörubilafyrirtæki Kirkjubæjarklaustur - Skaftárskál- inn (Esso benslnstöð) Neskaupstaður - Samvinnufélag út- gerðarmanna (fata og veiðafærabúö) Ólafsvík - Barnafataverslunin Þóra Patreksfjörður - byggingavöruverslun Seyöisfjörður-veitingaskáli (Shell bensinstöð) (i október) Siglufjörður - Ijósmyndaframköllun (til endurskoðunar) Stykkishólmur - verkfæraverslun Vik i Mýrdal - Vikurskálinn (Esso bens- Instöð) Vopnafjörður- Kaupfélagið (bygg- ingavörudeild) Þórshöfn - Matvöruverslunin Lónið (þó I annarri byggingu) Þorlákshöfn - ESSO bensinstöð Einkavæðing skref fyrir skref „Mér finnst mjög sérstakt hvernig áfengisverslunum er stillt upp úti á landi en það sýnir bara að tímamir em að breytast. Sem sagt að það þurfi ekki að vera að stilla þessum búðum upp eins og einangmðum virkjum. Ég sé ekki forsendur fyrir mismunun á Iitlum bæjum úti á landi, þar sem verið er að selja áfengi í matvöm- verslunum og bókabúðum, og á höf- uðborgarsvæðinu," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Um röksemda- færslu Höskuldar segir Sigurður: „Um þetta er tvennt að segja, ann- ars vegar það að ef sala á létt- víni og bjór yrði gef- in frjáls útilokaði það ekld sölu rflds- ins á bjór og létt- Höskuldur Jónsson for- stjóri ÁTVR Segirað efsala á léttvíni og bjór veröi gefin frjáls verði ekki forsendur fyrir npmn pinni brennivínsbúð víni og annars vegar ef rfldseinokun- arsala á sterku víni stendur ekki und- ir sér þá er það bara eitt sem kemur til greina. Það er að gefa frjálsa sölu á öllu áfengi. I hinum fullkomna heimi væri náttúrlega engin rfldsverslun en við viljum gera þetta í minni skrefum og leyfa fólki að aðlagast." Annað frumvarp á leiðinni Sigurður segir þróunina undan- farin ár vera til marks um það að mál- in séu hægt og rólega að breytast og segir að ATVR sé búið að vera að undirbúa sig fyrir markaðsvæðingu í sölu á áfengi. „Hér áður fyrr vom áfengisverslanir mjög fáar, merktar kuldalega með skammstöfuninni ÁTVR og rimlar í öllum gluggum. Núna hefur verslununum fjölgað svo um munar, nafninu á þeim breytt í Vínbúðin, opnunartíminn orðinn rýmri og gluggamir rimlalausir með öllu. Þetta sýnir bara að málin em að þróast í rétta átt. Við sjálfstæðismenn höfum lagt fram fumvarp um frjálsa sölu á léttvíni og bjór og vonandi taka kollegar okkar í öðmm flokkum undir með okkur nú eins og síðast en þá vom þingmenn úr Framsóknar- flokknum og Samfylkingunni með okkur en málið var ekki tekið fyrir.“ rap@dv.is Landsíminn Y i „Staðan er góö í Grímsey en þó er leiðindaþoka en blanka- logn og blfða. Menn stunda sjóinn grimmt,“segir Sigurður Bjarnason, vélstjóri og þúsundþjalasmiður, í Grfmsey. „Hérhiakka menn mikið tilára- mót- anna um næstu mánaðamót. Þá leggst af dagakerfi smá- bátanna og allir fara á kvóta. Það er mönnum léttir. Hér eru framkvæmdir í hámarki á öll- um sviðum og við Grímseying- argleðjumst. Við viljum kom- astyfir íbúamúrinn. Ég vona það besta og hvet karlmenn í eyjunni til að iáta vel að kon- um sínum sem oftast til aö stuöla að fjölgun. Sjálfur er ég búinn að skila mfnu enda þriggja barna faðir," segir Sigurður. í beinni á Hard Rock cafe í kvöld Föstudagskvöld, milli kl. 22.00 og 24.00 Carlsberg á krana með 20% afslætti LOVE ALL SERVE ALL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.