Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST2004
Fréttir DV
igurjón Gunn-
teinssonkennlr
joxFluttimeðSai
/ariinn325grómm
afkókalni.Þeirvoru
heimagerðumMd'
liðsbúningum tyn'
landsliðiðfbox^
Salvar Halldór Björns-
*®n Fdr ti' SpánarogTög-
ekkj’umh6n'St^ita
toSZZ?*™
Uggurhjá
herfolki
fslenskir starfsmenn
bandaríska hersins á Kefla-
víkurflugvelli búa sig nú
undir enn frekari uppsagnir
um næstu mánaðamót.
Vamarliðið hefur boðað
menn til funda í dag og
væntanleg er fréttatilkynn-
ing um uppsagnirnar, sam-
kvæmt heimildum DV.
Friðþór Eydal upplýsinga-
fulltrúi vamarliðsins segist
ekkert geta sagt um vænt-
anlegar uppagnir, ef af
þeim verði, verður það til-
kynnt. Vamarliðið hefur
sagt upp hátt í 200 manns á
síðustu mánuðum. Fyrst
um 100 manns og svo 40
manns í tveimur lotum.
Verðbólgan
tvöfaldast
Verðbólga hér á landi
mælist nú 2,8% og hefur
hún nær tvöfaldast frá ára-
mótum samkvæmt sam-
ræmdri vísitölu neyslu-
verðs sem Hagstofan birti í
gærmorgun. Eftir að hafa
haldist lág og undir meðal-
talsverðbólgu í viðskipta-
löndum okkar allt frá lok-
um árs 2002 hefur þróunin
snúist við og mæhst verð-
bólgan hér á landi nú meiri
en í ESB-rikjunum og á
evrusvæðinu annan mán-
uðinn í röð. Greining ís-
landsbanka segir frá.
Ekki
skynsamlegt
Kristinn H. Gunnarsson
þingmaður Framsóknar-
flokksins segir
það ekki
skynsamlega
leið að hafa
færri en tvær
konur í fimm
manna hópi.
Honum þykir
einnig
ákvörðun
Halldórs Ás-
grímssonar
um að boða breytingar á
ríkisstjórninni síðar, ekki
skynsamleg. „Ég sé ekki
kostinn í því að viðhalda
óvissunni," segir hann.
Þannig sé búin til spenna
þar sem menn viti ekki
hvar þeir standa og um-
ræðan sem fram hafi farið
verði dregin á langinn.
Ekki hefur tekist að birta ákæru á hendur Salvari Halldóri Björnssyni sem ásamt
Sigurjóni Gunnsteinssyni flutti inn 325 grömm af kókaini til landsins innvortis. Enginn
veit með vissu hvar Salvar er en talið er að hann sé á Spáni. Verjandi Salvars heyrir
ekkert frá honum. Ákærandinn lætur rannsaka hvar Salvar heldur sig. Mál á hendur
Salvari og Sigurjóni, fyrrum landsliðsmönnum í hnefaleikum, verður flutt í dag.
KókaíÉoxarinn Salvar
llýr réttvísina til Spónar
í dag stendur til að flytja mál á hendur Salvari Halldóri Björns-
syni og Sigurjóni Gunnsteinssyni fyrir að flytja 325 grömm af
kókaíni til landsins í desember. Efninu höfðu þeir komið fyrir í
endaþarmi, báðir með svipað magn. Óvíst er um framvindu
málsins þar sem ekki hefur tekist að birta Salvari ákæruna. Hann
er sagður vera á Spáni en hvorki ákæruvaldið né verjandinn vita
um hann.
„Ég hef ekki náð sambandi við
hann,“ segir Sveinn Andri Sveinsson,
verjandi Salvars, en hann hefur ekk-
ert heyrt frá skjólstæðingi sínum frá
því snemma í sumar.
Sveinn Andri segist hafa heyrt að
Salvar væri á Spáni en vissi það ekki
fyrir víst. Sveinn Andri mætir í réttinn
í dag en skjólstæðingur hans er víðs
fjarri.
Vill selja hús á Spáni
Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi
sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli,
sem er sækjandinn í málinu, segist
vera að láta rannsaka hvar Salvar
haldi sig. Ekki hafi tekist að birta
honum ákæruna en rannsókn máls-
ins er löngu lokið hjá embættinu.
„Hann á aö mæta fyrir dóm,
þannig að við þurfum að komast að
því hvar hann er svo unnt sé að birta
honum ákæruna," segir Eyjólfur.
DV hefur heimildir fýrir því að
Salvar hafi farið til Spánar í mars en
hann kom aftur. Hann hefur síðan
farið af landinu á ný. Salvar hefur
tengst Spáni og stefndi ásamt Sigur-
jóni á að selja klendingum fasteignir
á Spáni. Til þess höfðu þeir fjárfest í
húsnæði við Suðurgötu 3 í Reykjavík
og lagt mikla vinnu í innréttingar og
endurnýjun húsnæðisins.
Gætu klárað þátt Sigurjóns
Þegar rannsókn mála lýkur með
ákæru er ákæra send til dómstóla til
að þeir geti birt hinum ákærðu sakar-
efnin. Málið er síðan þingfest fyrir
dómi.
í þessu máli hefur þingfesting
þegar farið fram, en hún var 10.
ágúst. Salvar mætti ekki. Mæti hann
ekki í dag er líklegt að málinu verði
skipt upp, þáttur Sigurjóns verði
kláraður og þáttur Salvars bíði eftir
því að hann komi til landsins.
Þá reynir á hvort verjendum takist
að sýna fram á að einungis sé hægt
að dæma mennina fyrir það magn
sem þeir voru með hvor í sínu lagi.
Ákæruvaldið á eftir að reyna að
sanna að Salvar og Sigurjón hafi sam-
mælst um að flytja saman öll fíkni-
efhin til landsins og að báðir verði
dæmdir fyrir allt magnið.
landsliðsbúninga hnefaleikamanna
með fslenska fánanum á.
Auk þess að reyna að smygla
kókaíni höfðu þeir meðferðis ýmiss
konar tollskyldan búnað fyrir hnefa-
leika. Þeir borguðu skatt af hluta
búnaðarins áður en þeir voru hand-
teknir, en hluta reyndu þeir að
smygla.
Fíkniefnin, samanlagt 325 grömm
af kókaíni, sögðu þeir til eigin neyslu.
Töluðu gegn dópi en fluttu
það inn
Auk þess að hafa starfað saman að
hnefaleikum komu Salvar og Sigur-
jón á fót Samtökum gegn sjálfsvíg-
um.
Sigurjón lýstí því í viðtali við tíma-
ritið Félagstíðindi í desember fyrir ári
síðan hvemig fíkniefni getí verið
skaðleg. Þar talaði hann sem formað-
ur Samtaka gegn sjálfsvígum:
„Stærsti hlutinn af þeim sem
hringja eiga við einhverskonar vímu-
efnavandamál að stríða... Fólk sem er
djúpt sokkið í neyslu lendir oft úti í
homi og sér enga aðra leið en að
stytta sér aldur."
kgb@dv.is
Suðurgata 3 Hér
höföu Salvar og Sig-
urjón fjárfest f hús-
næöi og ætluðu aö
selja Islendingum
fasteignirá Spáni.
Kókaínsmokkar í endaþarmi
Hnefaleikamennimir Salvar og
Sigurjón komu úr einni af mörgum
Hollandsferðum sínum í
byrjun desember með sex
kókaínfyllta smokka hvor í
endaþarmi. Þeir hafa verið í
framvarðarsveit þeirra sem
berjast fyrir ólympískum
hnefaleikum á íslandi, og
stóðu að keppninni ísland -
Danmörk í Laugardalshöll í
mars.
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli
stöðvuðu Salvar og Sigurjón við
reglubundið eftirlit, vegna þess að
þeir þóttu hegða sér grunsamlega.
Þeir voru klæddir í heimatilbúna
Demantur frá Dorrit finnst í Eyjum
Svarthöfða brá heldur betur í
brún er hann las fréttír í gær. Þar
stóð skrifað að þýskur jarðfræðingur
hefði rekist á heilan demant í nýja
hrauninu í Vestmannaeyjum. Ja,
detti af manni allar! Það er búið að
flnna demanta í Eyjum! Þvílíkar
fregnir. Eftir allt sem Eyjamenn hafa
þurft að þola í gegnum tíðina. Tyrk-
ina, Árna Johnsen og blindfulla
Reykvíkinga sem ryðjast inn á þá
fyrstu helgina í ágúst og drekka frá
sér allt vit, nauðga og berja.
Já, þetta leit vel út í fyrstu. Lands-
menn allir trúðu því (og flestír trúa
því enn) að nú verði Eyjamenn ríkir.
Svarthöfði
Að þeir hafi nú loksins eflii á því að
segja sig úr lögum við land og þjóð;
ísland. Eyjamenn ættu nú að eiga
fýrir því að byggja alþjóðlegan flug-
völl og fá leiguliða til að sjá um land-
varnir. Gætu jafnvel tekið upp sitt
eigið tungumál og gert Árna Johnsen
að keisara yfir Vestmannaeyjum og
leyft ungum mæðrum að skíra syni
sína Einsa kalda. Mannanafnanefnd
í Reykjavík næði ekki til þeirra.
Síðan runnu víst tvær grímur á
Hvernig hefur þú það
Ég hefþað bara mjög flnt," segir Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari i knatt-
spyrnu.„Ég er mjög ánægður meö miðvikudagskvöldið. Leikurinn á örugglega eftir
aða fara I sögubækurnar, það var slegið aðsóknarmet og svo skemmdi ekki fyrir að við
unnum. Á Laugardalsvellinum var frábær stemning og ég held að allir hafi verið mjög
sáttir við kvöldið."
marga jarðfræðinga sem tróðu sér í
blöðin og sögðu að þetta væri örugg-
lega eitthvert grín í Eyjamönnum.
En þeir eru víst mjög fyndnir, Vest-
mannaeyingar, og sannast það best
á því hvaða þingmenn hafa komið
þaðan. Og því var þessu tekið sem
léttu djóki og í gær gengu sögur á
mifli vinnustaða um það að Dorrit
hefði átt þennan demant. Hún hefur
víst komið til Eyja og er mikfl dem-
antaprinsessa. Þetta gætí því allt
eins hafa verið Moussaieff-demant-
urinn fr ægi sem hún hefur glatað
þarna en ekki sagt neinum ís-
lendingi frá því af því hún er
hvorki með íslenskan ríkis-
borgararétt né heimilistrygg- ,
ingu. /
Sú saga þykir Svarthöfða '
líklegust. Að Dorrit eigi
demantínn.
Svaithöföi