Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004
Fréttir 0V
Borðar
of mikið
ruslfæði
Samkvæmt læknum átti
óhollt mataræði Bills Clint-
on fyrrverandi Bandaríkja-
forseta stóran þátt í hjarta-
áfalh hans í síðustu
viku. í símaviðtali við
spjallþáttastjórnand-
ann Larry King sagði
Clinton að
hann yrði að
slaka á í
skyndibit-
unum.
Fyrrum
forsetinn
var hress þeg-
ar hann tal-
aði við King frá sjúkrahus-
inu. „Það eru ekki bara
repúblikanar sem fá fjögur
ár í viðbót," sagði Clinton
við sjónvarpsstjörnuna.
Bæði Hiilary og Chelsea
dvelja hjá honum á sjúkra-
húsinu þar sem Bill gengst
undir hjartaþræðingu.
Naut lentu
íbílslysi
Nautgripaflutninga-
bifreið fór út af veginum
neðst í Hjallhálsi við
Þorskafjörð á suðurhluta
Vestfjarða aðfaranótt
föstudags. Mildi þykir að
hvorki ökumanni né
nautgripum hafi orðið
meint af vegna útafakst-
ursins, en gripirnir voru
fluttir í aðra fluminga-
bíla. Tildrög slyssins eru
óljós, en þau eru f rann-
sókn lögreglunnar á Pat-
reksfirði. Eitt naut slapp
úr bifreiðinni og gekk
laust í tæpa þrjá tíma
áður en það fannst og
var rekið inn í girðingu.
Gullæði á
Grænlandi
Gullæði hefur gripið
um sig í Grænlandi en þar
hefur verið opnuð ný gull-
náma. Ekki hefur verið
stundaður námugröftur á
eyjunni síðan sínk-, blý-
og silfurnámunni Svarta
englinum var lokið í Maar-
morilik árið 1990. „Opnun
námunnar hefur ákaflega
mikla þýðingu fyrir Græn-
lendinga," sagði félagi sós-
íaldemókrataflokksins Siu-
mut. Náman hefur þegar
skapað um 80 störf. Þar af
er helmingurinn Græn-
lendingar en aðrir frá
Kanada, Ástralíu, Dan-
mörku, Svíþjóð og Noregi.
Vonir eru um að náman
skapi um 500 störf í við-
bót.
Fjárfestar bíöa á hliðarlínunni eftir að ríkisstjórnin ákveði hvernig eigi að standa
að sölu Simans. Rikisstjórnin virðist samhent út á við en enn eru lausir endar og
flokkarnir eiga eftir að semja um hvort fyrirtækið verði selt einum eða fleirum eða
hvort það verði selt í heilu lagi eða bútum. Einn fjárfestir segir aðra ætla að keppa
um að græða sem mest á Símanum.
Mikil spenna er í viðskiptalífinu um það hvernig staðið verði að
sölunni á Símanum. Veltur spennan á því hvort einhverjar kvað-
ir verði á sölunni til hins nýja kaupanda og hversu mikið verði
selt af fyrirtækinu í einu eða hvort það verði selt í heilu lagi til
eins fjárfestis.
Þeir fjárfestar sem DV ræddi við
sögðu flestir að ríkið yrði að gæta
þess að reyna ekki að fá of mikinn
pening fyrir Símann. Eðlilegast
væri að söluverðið yrði á bilinu 50-
60 milljarðar króna. Síðast þegar
reynt var að selja Símann var verðið
um 40 milljarðar en markaðurinn
var ekki tilbúinn að greiða svo mik-
ið fyrir félagið þá. Núna er hins veg-
ar allt annað landslag á hlutabréfa-
markaði og félög hafa hækkað ört í
verði.
Helsta samkeppnisfyrirtæki
Símans, Og Vodafone, er metið á 12
milljarða króna.
Fjárfestar vilja græða á Sím-
anum
Einn fjárfestir segir menn vera
hrædda við að ríkisstjórnin verði of
gráðug. Hins vegar geti stjórnin gert
þau mistök að fá hátt verð fyrir 51%
í fyrirtækinu en sitja síðan uppi
með afganginn og neyðast til að
skila honum eins og síðast.
Annar fjárfestir tekur öðruvísi á
málinu og segir að það væri hægt
að fá 80 milljarða fyrir Símann ef
rétt væri staðið að sölunni. Þess
vegna séu fjárfestar á hliðarlínunni
því þeir sjái fyrir sér að hægt sé að
kaupa Símann á 50 milljarða og
selja hann áfram á 80 og græða
þannig þrjátíu milljarða á rfldnu.
Þeir sem talað er um að hafi
áhuga á Símanum eru S-hópurinn,
Björgólfsfeðgar, hugsanlega í sam-
vinnu við aðra, Straumur og Trygg-
ingamiðstöðin, Baugsmenn og svo
er gert ráð fyrir að KB banki safni
saman hópi fjárfesta. „Það er nóg til
af peningum til að kaupa Símann á
skynsamlegu verði," segir einn
viðmælenda blaðsins.
Ekki byrjað að ræða pólitík-
ina
Rfldsstjómin er ekki byrjuð að
ræða einstaka atriði í sambandi við
söluna á Símanum. Einar Oddur
Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, hefur lýst þvf yfir að
hann telji að rétt sé að selja Símann
fyrir áramót og Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra sagði í fréttum um
helgina að kaup Símans á hlut í Skjá
einum flýti fyrir sölu á fyrirtækinu.
Ljóst er að það er skoðun margra
sjálfstæðismanna að nú sé rétti
tíminn til að selja, helst án nokk-
urra kvaða og láta markaðinn
keppa um verðið. Framsóknar-
menn hafa á hinn bóginn lagt mikla
áherslu á að ekki megi taka áhætt-
una á að þjónusta við landsbyggð-
ina skerðist við einkavæðingu Sím-
ans. Valgerður Sverrisdóttir og
Hjálmar Arnason sögðu í viðtölum
að ekki stæði á þeim að selja Sím-
Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson
Fjárfestar biða eftir því að þeir ákveði sig um
sölu Símans.
ann en Kristinn H. Gunnarsson
lýsti andstöðu sinni og Jónína
Bjartmarz sagði að fyrst þyrfti að at-
huga ákveðin atriði.
Staðan nú er því þannig að rflds-
stjórnarflokkarnir þurfa að koma
sér saman um hvernig standa eigi
að sölunni. Einkavæðingarnefnd
útfærir síðan málið og býður Sím-
ann til sölu. Þá fer eftir því öllu
hvernig fjárfestarnir bregðast við og
hversu mikið þeir eru tilbúnir að
bjóða.
kgb@dv.is
Ruslfæði varð Clinton að falli
Já, þær eru slæmar fréttirnar
sem dynja sífellt á Svarthöfða. Fyrst
kom þessi McDonald’s-maður til
landsins og níddi skóinn af þessum
frábæru borgurum. Sagðist hafa
prófað að éta skyndibitann þeirra í
mánuð og var víst næstum því
dauður. Ja, ekki hefði Svarthöfði
saknað hans.
Síðan kom Clinton og reyndi að
lifa á Bæjarins bestu pylsum á með-
an hann dvaldi hér. En þangað
hafði Svarthöfði einmitt snúið sér
eftir að McDonald’s-maðurinn
rændi af honum allri ánægjunni af
Big Mac. Og það var ekki Clinton
sem var fyrstur til að fá sér eina
bara með sinnepi. Svarthöfði var
löngu byrjaður á því. Og Svarthöfði
fékk sér líka stundum eina bara
með remúlaði, eða bara með túmat
og bara lauk og steiktum. Svart-
höfði hafði í raun bragðað allar út-
gáfur og þær eru óteljandi margar.
Það er alltaf hægt að gera eitthvað
nýtt með pylsu í brauði og Bæjarins
bestu björguðu Svarthöfða frá því
að hella sér í hyldýpi þunglyndis
eftir heimsóknina frá McDonald’s-
manninum vonda.
En þá hrundi Clinton niður og
fékk hjartaáfall. Hann þarf víst að
fara í aðgerðir og mikla endurhæf-
ingu. í fyrstu ákvað Svarthöfði bara
að glotta út í annað og neitaði að
sjá einhver tengsl á milli hjarta-
áfallsins og pylsu bara með
sinnepi. En birtist þá ekki sjálfur
Bill Clinton hjá Larry King á CNN
um helgina og segist hafa fengið
hjartaáfall af því hann borðaði svo
mikið af skyndibita. Gat nú skeð.
Ekki hann lflca!
Nú bíður Svarthöfða ekkert
nema hyldýpi þunglyndis.
Svarthöfbi
I
aaoi
„Ég hefþaö alveg ágætt þó ég hafi lítið sofiö undanfarið," segir Auður Laxness, sem
opnaði heimili sitt að Gljúfrasteini fyrir almenningi um helgina.„Hefverið svolítið
stressuð. Þetta hefur allt tekist óskaplega vel. Hvort þetta er ofmikiö veit ég ekki.
Þetta var falleg athöfn."