Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Qupperneq 31
DV Síðast en ekki síst
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 31
Misskilinn töffaraháttur
„Þegar Pútín forseti ávarpar síðan þjóð sína er
boðskapurinn ekki ósvipaður og hjá mönnum
Bush í New York nokkrum dögum áður. Við
í síðustu viku missti George W.
Bush það út úr sér að stríðið gegn
hryðjuverkum yrði ekki unnið.
Næsta sólarhringinn á eftir voru all-
ir aðstoðarmenn hans og ráðherrar
önnum kafnir við að leiðrétta um-
mælin: þetta væri misskilningur,
Bush ætlaði sér að vinna stríðið! Á
flokksþingi Repúblíkanaflokksins í
New York kepptist enda hver ræðu-
maðurinn á fætur öðrum við að lýsa
því hvernig harðjaxlinn Búsh
myndi vinna stríðið, en kellingin
Kerry klúðra málum. Tortímandinn
Arnold frá Kalíforniu sagði að Bush
myndi tortíma hryðjuverkamönn-
unum og hvatti landslýð til að vera
ekki girly-men. Hernaðarandinn
sveif yfir vötnum: sannir karlmenn
myndu útrýma hinu illa með ein-
beittum vilja, hugrekki
og öflugum vopnum.
Hrakfarir Pútíns
Varla höfðu
Repúblíkanar slitið
flokksþinginu er ólýs-
anlegur harmleikur
hófst í rússnesku borg-
inni Breslan. Hópur
hryðj uverkamanna
hertók skóla og tók vel á
annað þúsund gísla.
Tveimur dögum
síðar lágu
yfir
Birgir Hermannsson
skrifar um stríðið við
hryðjuverk sem hann segir
að muni ekki vinnast með
hernaðarmætti.
300 í valnum, þar af minnst 150
börn. Myndir af börnum á flótta,
sumum alblóðugum, eru skelfilegar
og ógleymanlegar. Gíslatakan í
Breslan var hápunkturinn á öldu
hryðjuverka sem skollið hefur á
Rússlandi síðustu vikurnar. Nú síð-
ast var tveimur rússneskum far-
þegaflugvélum grandað stuttu eftir
flugtak frá Moskvu og bílsprengjur
sprungu á götum
Moskvuborg-
ar. Rúss- /'V,.? r:
land
virðist
al-
veg varnarlaust gegn hryðjuverkum
og almenningur er óttasleginn.
Þegar Pútín forseti ávarpar síðan
þjóð sína er boðskapurinn ekki
ósvipaður og hjá mönnum Bush í
New York nokkrum dögum áður.
Við höfum sýnt af okkur veikleika,
sagði hann, og þeir sem eru veikir
fyrir verða fyrir barðinu á hryðju-
verkamönnum. Nú skyldi því bar-
áttan efld um allan helming og
harkan sex sýnd í öllum samskipt-
um við iUvirkjana. Það var heldur
innantómt tómahljóð íviðbrögðum
Pútíns. Allir vita að hryðjuverkin í
landinu tengjast stríðinu í
Tsjetsjeníu, en leið Pútíns til valda
er órjúfanlega tengd átökunum þar
og hryðjuverkum Tsjetsjena í
Moskvu og víðar. Pútín var fulltrúi
hörkunnar í Tsjetsjeníu. í
tvennum kosningum hefur boð-
skapurinn verið sá sami: Pútín
er maðurinn sem ber niður
hryðjuverkjalýðinn með járn-
hnefanum og tryggir öryggi
Rússlands. í Tsjetsjeníu eru, ef
litið er á stærð landsins og
fólksfjölda, hlut-
höfum sýnt afokkur veikleika, sagði hann, og
þeir sem eru veikir fyrir verða fyrir barðinu á
hryðjuverkamönnum. Nú skyldi því baráttan
efld um allan helming og harkan sex sýnd í öll-
um samskiptum við illvirkjana."
fallslega helmingi fleiri hermenn en
Bretar og Bandaríkjamenn hafa í
írak. Ekki hefur ástandið batnað við
það.
Nú hljóma stóru orðin innan-
tóm og fölsk. Pútín lítur út sem
hinn veiki og varnarlausi og boðar
meira af því sama.
Shkt mun ein-
ungis hafa
þveröfug áhrif.
Stefna Pútíns
L hefur fjölgað
hryðjuverka-
mönnum og
ýtt undir
öfgar,
Putin, Bush og bin Laden „Varla höfðu
Repúbiikanar siitið flokksþinginu erólýs-
anlegur harmleikur hófst i rússnesku
borginni Breslan. Hópur hryöjuverka-
manna hertók skóla og tók vel á annað
þúsund gísla. Tveimur dögum síöar lágu
yfir300 i valnum, þar af minnst 150 börn.“
óöryggi og vonleysi. Rússland er
ekki öruggara fyrir vikið, heldur
þvert á móti. Hryðjuverkamenn
geta athafnað sig að vild í landinu,
almenningi til skelfingar.
Ráðast þarf að rótum vand-
ans
Lærdómurinn af óförum Rússa er
ekki sá að þjóðir heimsins eigi að
leggja árar i bát í viðureigninni við
Osama bin Laden og aðra af sama
sauðahúsi. Auðvitað er rétt og sjálf-
sagt að auka eftirlit og öryggi þar
sem það á við. Hitt er þó alveg aug-
ljóst að stríðið við hryðjuverk verður
ekki unnið með hernaðarmætti,
enda er það ekkert stríð í venjuleg-
um skilningi. Stríðið í írak hefur ekki
gert heiminn öruggari eða betri, þó
gott hafi verið að losna við Saddam.
Irak er nú gróðrarstía og þjálfunar-
búðir fyrir hryðjuverkamenn.
Til að ná árangri í baráttunni
við hryðjuverk þarf að ráðast að
rótum vandans. Sádi-Arabía og
| Afganistan voru (og eru) ekki bein-
línis fyrirmyndarsamfélög, víð-
tækar umbætur þarf til að svipta
óværuna súrefni. Hernaðarmáttur
dugar þar skammt. Skipti Banda-
ríkjamenn ekki um stefnu með því
að skipta um forseta í nóvember fer
eins fýrir Bush og Pútín félaga hans
í Rússlandi. Stóryrðin og töffara-
talið verða á endanum að hlálegu
veikleikamerki.
>
• Dómsmálaráðherrann
Bjöm Bjamason segir á
heimasíðu sinni, bjorn.is, að
hann hafi fylgst vandlega
með flokksþingunum
repúblikana og demókrata í
Bandaríkjunum með hjálp
veraldarvefsins. „Fyrir til-
stuðlan veraldan'efjarins er auðvelt
að nálgast ræður á flokksþingunum
og eftir að hafa lesið lykilræður af
báðum þingum, er ég ekki í
nokkrum vafa um að sóknarkraftur-
inn er mun meiri hjá repúblíkön-
um. Þeir standa hiidaust að baki
sfnum manni og hann er sjálfum
sér samkvæmur,“ segir Björn um
George W. Bush, sem nýlega
átti fund við Davíð Oddsson
forsætisráðherra. Björn kem-
ur líka inn á lélegar þýðingin-
ar í einni af forystugreinum
Morgunblaðsins, sem hann
er einmitt hluthafi í. „í for-
ystugrein Morgunblaðsins í
morgun, laugardaginn 4. septem-
ber, er stefna Bush í innanríkismál-
um, sem er skýrð á ensku með orð-
unum compassionate conservat-
ism, kölluð „brjóstgóð íhaldssemi."
Þetta er ekki góð þýðing," er meðal
þess sem Björn segir og er gott til
þess að vita að hann vaki vel yfir
sínum mönnum á Mogganum...
Idol í Eyjum Árni ekki með
Simmi og Jói Fóru til Eyja
að leita ad stjörnum og dóm
nefndin hleypti átta manns
áfram ínæstu umferð.
Eitthvað virðast Vestmannaeyj-
ingar hafa guggnað á þátttöku sinni
í Idol-keppninni í ár en þau Bubbi,
Sigga Beinteins og Þorvaldur Bjarni
mættu öll á föstudaginn til Eyja
ásamt Jóa og Simma til þess að finna
mögulega keppendur fyrir Idolið,
sem er nú komið á fullt flug. Um 60
manns höfðu upphaflega skráð sig
til leiks en þegar á reyndi voru þeir
ekki nema 30 sem mættu til þess að
reyna að heilla dómarana upp úr
skónum. Af þeim komust átta áfram
í næstu umferð og halda Vest-
mannaeyingar því enn í vonina um
að næsta Idol-stjarna verði þeirra en
eins og margir vita kemur margt
frambærilegt tón-
listarfólk frá
Eyjum. Hæst
ber að sjálf-
sögðu fyrr-
verandi al-
þingis-
manninn
Árni Johnsen
sem hefur
sínum ferli
sent frá
sér
Árni Johnsen Eroröinn ofgamallfyrirldol
en strangar reglur gilda i keppninni.
fjölda laga og gert brekkusönginn að
því sem hann er í dag. Árni fékk þó
ekki að taka þátt í Idol-keppninni að
þessu sinni enda er hann orðinn of
gamall en eins og fólk veit gilda
strangar reglur í
keppninni og
skemmst að
minnast
þess þegar
einn kepp-
endanna var
rekinn í fyrra
fyrir að brjóta
fjölmiðla-
bann.