Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Side 32
c
Pféttcmk0 tmmumvm
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^jnafnleyndar er gætt. r-i ' f ) r~1 f \ C
JZi
-jOfj
SKAFTAHLÍÐ 24, 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS505000
• Ýmsum þykir
mikið í lagt þegar
Landssíminn fjár-
festir í Skjá einum
fyrir hálfan millj-
arð án þess að
spyrja kóng né
prest. Sérstaklega í
ljósi þess að
Sveinbjöm Kristjánsson, fyrmm
aðalféhirðir Símans, var búinn
að sprauta þrjú
hundruð millj-
ónum úr sjóð-
um Símans inn
í Skjá einn. Svo
virðist sem
Brynjólfur
Bjamason, for-
stjóri Símans,
hafi ekki séð
aðra leið færa til að endur-
heimta féð en kaupa sjónvarps-
stöðina, ná í peningana og flýta
sér svo út aftur. Snjallt ef satt
er...
Ég vil frekar uppstúf
en upphlut!
Upphiuturinn, hátíðar-
klæðnaður ísienskra
kvenna, hefur að undan-
förnu komið róti á huga
þeirra sem til þekkja og
eiga best að vita hvernig
hann skuti notaður. Fyrst
þegar Dorrit Moussaieff
forsetafrú birtist í honum
við innsetningarathöfn
eiginmanns síns í sumar
og svo við opnun Þjóð-
minjasafnsins á dögun-
um þar sem konur
skreyttu sig upphlutn-
um með ýmsum hætti
og notuðu þá hluta
hans að vild.
Dóra lónsdóttir á
Frakkastíg 10 hefur
lengi látið sig upp-
hlutinn varða. Hún
gladdist eins og aðr-
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra Msstti
við opnun Þioðminjasafnsins i upp-
hlut an þess að vera með skotthúfu.
ir íslendingar þegar Þjóðminja-
saftiið var opnað en í yfirlýs-
ingu sem Dóra hefur sent frá
sér segir meðal annars:
„Það voru því mörgum
vonbrigði og það mikil
vonbrigði að sjá óvirð-
ingu og vanþekkingu,
sem þjóðbúningnum
var sýndur við opnun
safttsins og það af bæði
ráðherra og ráðamönn-
um safnsins."
Tók Dóra þarna
undir orð Ragnhildar H.
Ingólfsdóttur, húsfreyju
á Eyvík á Tjörnesi:
„Annað hvort nota
konur upphlutinn
allan eða ekki. það er
vanvirðing við bún-
inginn að nota aðeins
hluta hans. Svona
svipað og að klippa þjóð-
fánann í búta.“
Það sem helst fór fyrir
brjóstið á konunum var
að menntamálaráðherra
skyldi ekki bera skott-
húfu í stfl við upphlutinn
þegar Þjóðminjasafnið
var opnað. Þá var sýning-
arstjóri safnsins aðeins í
bolnum af upphlutnum
en sleppti öðru.
Þegar Dorrit
Moussaieff birtist í
upphlutnum á svölum
Alþingishússins fór
um ýmsa þingmenn.
Töldu þeir ekki við
hæfi að erlendur
ríkisborgari kæmi
fram í upphlutn-
um. Alþingis-
konurnar Jón-
mi j
á
Dorrit Moussaieff forsetafru
Mætti við innsetningarathöfn
forsetans i upphlut ón þess oó
vero með isienskt rikisfang.
ína Bjartmarz og Sólveig Péturs-
dóttir voru meðal þeirra sem
tjáðu sig um málið:
„Forsetafrúin tók sig sérlega
% vel út í búningnum en þetta
i ji leiðir hugann að því hvort
forsetafrú íslands eigi ekki
að vera fslenskur ríkisborg-
ari. Sjálfri finnst mér eðlilegt að
forsetafrúin sé íslenskur ríkis-
borgari, sérstaklega nú þegar
fólk getur haft fleiri en eitt rík-
isfang," sagði Jónína Bjart-
marz. Sólveig Pétursdóttir var
á svipuðum nótum, spurð
um samspil ríkisborgararétt-
ar forsetafrúarinnar og há-
tíðarklæðnaðarins: „Hvort
forsetafrúin vill gerast ís-
lenskur ríkisborgari
hljóta hún og forseti ís-
lands að gera upp við sig
í góðu tómi."
Svona á hann að vera
Að gefnu tilefni
birtist hér skýringar-
mynd af upphlutn-
um, hátíðarbúningi
íslenskra kvenna,
þannig að öllum sé
ljóst hvernig hann á
að vera. Samkvæmt
reglum er óheimilt
að nota hluta upp-
Jilutsins með öðrum
klæðnaði því það
flokkast undir van-
virðingu við menn-
ingararf þjóðarinnar
sem hafa skal í há-
vegum.
Skýringarmynd Upphluturinn f heild. Notist allur eða alls ekki.
„Kartöflugrösin eru að falla í
Borgarfirði og bláberin að skemmast
vegna næturfrosta," segir Sigurður
Þ. Ragnarsson veðurfræðingur en
haustið kom í gær. Skömmu fyrir
hádegi rigndi líkt og í Flórída í vest-
urbænum og rigningin umbreyttist í
hagl. Urðu svalir og gangstéttar al-
hvítar í mínútu. Svo búið.
„Annars geta komið haglél allt
árið um kring. AUt sem þarf er há-
reist ský sem hellir úr sér,“ segir Sig-
urður veðurfræðingur, sem spáir þó
filýindum um miðja vikuna. Það
verður þó engin blíða því Jútanum
fýlgir rok og rigning. „Annars er ís-
lenska birkið besti mælikvarðinn á
árstíðaskipti. Birkið lætur ekki plata
sig og þegar það gulnar er komið
haust. Þegar það svo laufgast á ný er
komið vor. Gljávíðirinn á það hins
vegar til að gulna í tíma og ótíma
vegna sveppasýkingar og því ber að
treysta litbrigðum hans varlega."
Enchiladas kr. 599 stk.
4stk. Enchiladas kr. 1.699
Borið fram með kryddhrísgrjónum, taco mole ósamt sýrðum rjóma
LATPJ SJA MG
TexMex er lítilf og lilýlecjur
'eitincjastabur þar sem notalecjt
er a.<5 tylla sér niður.
Langholtsvegi
»