Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Blaðsíða 10
10 MÁNUDACUR 4. OKTÓBER 2004
Fréttír DV
Smári Gicsson
Smári býr yfir gríðarlegri
reynslu. Hann þykir hafa gott
pólitískt nefog vinna vel á bak
við tjöldin. Hann hefur sterkt
bakland sem nær langt út fyrir
hans sveitarfélag. Hann er vel
lesinn og talinn gríöarlega
vandvirkur. Hann þykir sann-
gjarn og auðveldur í sam-
starfi.
Smári er óþolandi mikill
diplómat og sagður hafa
kastað fyrir róða flestu því
sem hann barðist fyrir á
yngri árum í staO praktísk-
ari atriða. Hann er sagður
geta verið stjórnsamur úr
hófí fram og stundum erfíð-
ur í aO treysta fólki I sam-
starfí fyrir verkefnum. Smári
heldur meO Crystal Palace.
„Smári er þægilegurl
samstarfi og einn afokk-
ar reyndustu sveitar-
stjórnarmönnum og því
er mjög gott áðhafa
hann méðsérieffiðum
málum. Hanrier grlðarlega
dipló sem er kostur.Sá sami
kostur getur reyndar llka verið
galli hjá honum stundum.'
GuOný BJötg Hauksdóttir, btcjarfulltrúi
FJarðallsta I Fjarðabyggð.
„Smári er drengur göður,
samviskusamurog um-
fram allt með húmorinn
ílagi.Góðurfélaglog
traustur mjög. Kynnir sér
mályfirleitt vel. Gallarnir eru
þeir að hann hefur áhuga á
meiru en hann hefur vit á, sam-
anber knattspyrnuna. Það er
kostur og galli um leið hversu lítt
tæknilega sinnaður hann er.“
Einar Már Siguröarson, þlngmaður
Samfylkingarinnar.
m
„Hann Smári hefur
marga kosti. Hann held-
ur með Crystal Palace,
sem óhætt er að telja
merki um dómgreindar-
skort. Klókur pólitlkus og
góður skólamaður eru réttnefni
á kappann. Hann er góður
drengur hann Smári.“
Magnl Krlstjánsson, bæjarfulltrúi sjálf-
stæöismanna í Fjaröabyggö.
Smári Geirsson er fæddur I Neskaupstað 17
janúar 1951. Hann nam viö Menntaskól-
ann á Laugarvatni, Háskóla Islands og Há-
skólann í Björgvin. Smári starfar sem kenn-
ari við Verkmenntaskóla Austurlands en
gegndi þar áður stöðu skólameistara við
skólann. Hann erforseti bæjarstjórnar
Fjarðabyggðar og hefur setið I bæjarstjórn,
fyrst I Neskaupstaö en slðan Fjarðabyggð
frá árinu 1982. Hann er giftur Marlu Jór-
unni Hafsteinsdóttur en þau eiga tvö börn.
Fáðu flott
munnstykki
^Lyf&heilsa
ww w. nícorette ís
Júlíus Þorbergsson verslunarmaður í Draumnum við Rauðarárstíg bíður nú vænt-
anlega ákæru í kjölfar húsleitar lögreglu á fjórum stöðum í Reykjavík um helgina.
Júlli í Draumnum segist vera látinn liða fyrir góðmennsku sína í garð útigangs-
fólks og vísar því alfarið á bug að hann hafi óhreint mjöl í pokahorninu.
„Þetta voru bara djöfulsins bölvuð læti, það er lítið annað hægt
um þetta að segja annað en að ég ætla að kæra þetta," sagði Júlí-
us verslunarmaður í versluninni Draumnum við Rauðarárstíg en
lögregla gerði á föstudagskvöld húsleit í versluninni þar sem lagt
var hald á áfengi, sígarettur, lyf og kjötvörur. En auk þess að gera
húsleit í verslun Júlíusar var gerð húsleit á heimili hans við Heið-
arás, á bónstöð hans og á heimili kærustu Júlla við Skúlagötu.
Verslunin umdeilda Nágrannar hafa lengi haft horn Is/ðu Júlla og verslunar hans vegna
viðskiptavina hans sem oftar en ekki eru ofdrykkjumenn sem fá kardimommudropana slna
hjájúlla.
„Þetta eru ekkert annað en of-
sóknir af hálfu lögreglu," sagði Júlli í
Draumnum í samtali við DV í gær-
morgun. „Það er greinilega einhver
sem er eitthvað illa við mig sem
hefur logið einhverju í þá og þess
vegna er þessi rassía gerð nú,“ segir
Júlli, sem segir ekkert óhreint i sínu
pokahomi.
Sökuðu soninn um dópsölu
Júlíus segir lögreglu hafa komið í
búð sína um klukkan fjögur síðdegis
á föstudag og þá sakað son hans sem
er að vinna hjá honum um að hafa
selt kannabisefni til viðskiptavinar
verslunarinnar.
„Hann hafði afgreitt einhvern
strák um sígarettur og lögreglan full-
yrti við hann að hann hefði selt hon-
um hass eða eitthvað álíka, sem er
auðvitað bara þvæla og ekkert sem
lögreglan gat staðið við," segir Júlli,
eins og Júlíus er jafnan kallaður.
Fljótlega eftir að sonur hans kom
til baka úr yfirheyrslum frá lögreglu
mættu fulitrúar frá tollinum á vett-
vang með húsleitarheimild og hófu
að sögn Júlla að róta öllu og tæta.
„Þeir fúndu héma 25 neftóbaks-
dósir sem ég á sjálfur enda fæ ég mér
annað slagið í nefið,“ segir hann en
fljótlega komu svo starfsmenn heil-
brigðiseftirlits líka á vettvang og hófu
að kanna vömr í búðinni.
„Þeir fundu hér eitthvað af út-
mnninni matvöm sem mestmegnis
var hér á bak við, eins og mjólk sem
Samsalan tekur til baka ef ekki selst
fyrir dagsetningu," segir hann.
Líður fyrir vinskap við úti-
gangsmenn
Lögregla gerði einnig húsleit á
heimili kæmstu Júlla við Skúlagötu.
Þar var lagt hald á tölvu og kvik-
myndavél sem Júili sver að sé sín
eign.
„Þeir iögðu hald á hluti eins og
borvél sem ég keypti dýrum dómum
fyrir nokkrum ámm, fartölvuna
mína, kvikmyndavél sem ég á og kjöt
sem ég geymdi hér í frysti en seldi
ekki. Sömu sögu er að segja af riffil-
skotum sem ég hafði geymt hér á bak
við í búðinni, ég hef öll leyfi fyrir
þeim. Þessi lyf sem lögreglan lætur
hafa efdr sér í fjölmiðlum að hafi
fundist hér var einn apótekarapoki
sem einhver hafði gleymt hér og ég
geymdi, það er nú allt og sumt,“ seg-
ir verslunareigandinn, sem eyddi að-
faranótt laugardags í yfirheyrslum
hjá lögreglu.
Að gefast upp
Aðspurður um hvort ekki væri
rétt sem fram hefði komið að lagt
hefði verið hald á áfengi í verslun-
inni sagði Júlli: „Þeir tóku hér rauð-
vínsflösku, eina konfak og bjór-
kassa, en þetta átti ég allt sjálfur og
hafði átt lengi. Ég hlýt nú að mega
geyma hér annað á bak við en það
sem er selt hér,“ spyr Júh'us. „Þeir
voru nú svo áfjáðir í að leggja hald á
allan fjandann hér að þeir tóku
meira að segja sígarettur sem ég
keypti í Ríkinu og má því selja en
þær voru í nýjum pakkningum og
því töldu þeir að um eitthvert smygl
væri að ræða," segir hann og full-
yrðir að eyða hafi þurft lunganum
úr laugardeginum í að taka til eftir
heimsókn lögreglunnar. Verslunin
hafi einnig verið lokuð í langan tíma
auk þess sem Júlli telur að háar fjár-
sektir geti riðið verslun hans að
fullu. „Ég er að gefast upp á því
hvemig þetta samfélag er farið að
virka og þetta verður mér dýrt.
Svona h'til fyrirtæki þola ekki svona
áfall. Kannski er ég bara of góður,"
segir verslunarmaðurinn umdeildi
sem rekið hefur verslun sína í 16 ár f
miðbæ Reykjavíkur. heigi@dv.is
Ekkert einelti í garð Draumsins, segir Geir Jón
Kærastan fákk áfall þegar lögga leitaði
„Ég ætla
að kæra
þetta á
morgun,
enda skil ég
ekki hvers
vegna í
ósköpunum
Geir Jón Þórisson
grun liggja að baki hús-
ieitunum I Draumnum og á heimilum I
bænum. Segir aö lagt hafi verið hald á
áfengi og tóbak sem grunur leiki á að sé
smyglað. Segir ákæru að öllum llkindum
verða birtaJúlíusiá næstunni.
þeir komu hingað og sneru öllu
við,“ segir Inga, kærasta Júlla, sem
sagðist hafa fengið hálfgert áfall
þegar hópur lögreglumanna birtist
heima hjá henni með heimild frá
Gretu Baldursdóttur héraðsdóma
um að leita mætti í híbýlum hennar.
„Þeir fóru í allt hérna," segir Inga
og auðheyrt er að henni er brugðið.
„Þeir fóru í veskið
mitt og hreinan
þvott sem ég ætlaði
að fara að strauja,"
segir Inga.
Hún segir lög-
reglu hafa gefið
henni þær skýringar
á leitinni að verið væri að leita að
þýfi. Inga segir ekkert slíkt vera
heima hjá sér.
Hún sagðist jafiiframt hafa þurft
að taka allt til og þrífa eftir atgang
lögreglu í íbúð sinni, sem lögregla
heimsótti að sögn vegna vinskapar
hennar við Júlla, sem er kærasti
hennar og hefur verið um nokkurt
skeið.
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni í Reykjavík,
segir tilefni húsleitarinnar vera
grunsemdir um að Júlíus væri að
selja ólöglegan varning og í því
skyni hafi áður verið farið í verslun-
ina við svipaðar aðstæður.
í þvottinum
„Við fundum þarna ólöglegan
varning," segir Geir Jón, sem segir
að þar hafi verið um að ræða tóbak
og áfengi auk þess sem verslunin
hafi verið innsigluð af heilbrigðis-
eftirliti. „Það er verið að ganga frá
málinu og ákæra verður líklega gef-
in út í framhaldinu," sagði Geir Jón,
sem vísar því alfarið á bug að um
einelti hafi verið að ræða af hálfu
lögreglu eins og Júlíus heldur fram.
„Þetta er ekki einelti en rökstuddur
grunur liggur að baki þessum hús-
leitum enda vitum við að nágrönn-
um hefur blöskrað það sem þarna
gerist," sagði Geir Jón Þórisson yfir-
lögregluþjónn.