Sjómannablaðið Nútíðin - 01.07.1938, Qupperneq 1
Opinbert málgagn hins Kristilega sjómannafélags Nútíðin.
3. blað
Stofnandi: Boye Hoim. Akureyri, júíi 1938
Aöalstöö: Hafnarstr. 102 V. árg.
AUGIJ MIN HAFA SÉÐ
HJÁLPKÆÐI ÞITT
(Lúkas 2, 25.—32.).
Lúkasarguðspjall skýrir frá um
.Símeon, gamla manninn, sem á
elliárum sínum fyltist gleði og
undrun yfir að hann skyldi fá að
~sjá Jesú, áður en hann dæi.
"Gamli Símeon var réttlátur og
guðrækinn maður, sem vænti
huggunar ísraels, og Heilagur Andi
Var yfir honum. Honum hafði ver-
ið birt það af Heilögum Anda,
að hann skyldi ekki deyja, fyr en
hann hefði séð Drottins Smurða.
Símeon trúði á Guð og hans
orð, og um komu Frelsarans til
jarðarinnar, til að gera mennina
glaða og blessa þá; en hann fann,
að þetta var ekki nægilegt, hann
þráði persónulega að þekkja hann,
og nú var hann í helgidómnum.
! að tillaðan Andans. Hann gleymdi
því, sem var bak við, og lét ekkert
hindra sig; hann hafði aðeins
þetta eina takmark — að sjá Jesú.
Símeon var hlýðinn, hann leidd-
ist af Guðs anda og ávextir þess
Urðu þeir, að hann fékk að sjá
Jesú, sem hann í mörg ár hafði
þráð; áreiðanlega hefir þetta ver-
ið bæn hans: „Drottinn, sýn mér
vilja þinn og kenn mér að breyta
eftir honum, ekki sem ég vil,
heldur sem þú vilt“.
Þegar íoreldrarnir komu inn með
barnið Jesú, til þess að fara með
það eftir reglu lögmálsins, tók
Símeon það í fang sér, lofaði
Guð og sagði: „Nú lætur þú, herra,
þjón þinn í friði fara, eins og þú
hefir heitið mér, því að augu mín
hafa séð hjálpræði þitt“. Halle-
lúja! —
Nú, dag, þakka ég Guði fyrir,
að hann hefir leitt mig inn á
veg sannleikans. Eg hafði lengi
þráð að losna undan bölvun synd-
arinnar, og ég bað líkt og Jakob:
„Eg sleppi þér ekki, nema þú
blessir mig“, og hann blessaði
sálu mína með frelsi. —
Ef jólin eiga að færa þér gleði,
þarft þú að opna hjarta þitt fyrir
Jesú. Þú hefir máske oft fundið
að þú ættir að gera það, en samt
sem áður slegið því á frest og
sagt eins og svo margir aðrir:
Það er nógur tími. Vinur, minstu
þess að eiiífðin bíður þín — glat-
aðu ekki sálu þinni.
í dag talar Guðs Andi tíL þín, á
sama hátt og til Símeons; ef þú
ert lilýðinn og segir: „Herra, hér
er ég“, tekur hann á móti þér.
Láttu þessi jói verða úrslitastund
um afstöðu þína til Guðs.
Þú veitst, að það er alvarlegt
að vera einn með Guði, því að
þar mætir þú sannleikanum, fyrst
og fremst sannleikanum um þitt
eigið ástand, sem þú til þessa
heíir flúið, og þar næst sannleik-
anutn um kærleika Guðs og kraft.
— Minsíu þess, að þótt sannleik-
urinn sé óttalegur, þá, veltur allt
á honum, velferð sálar þinnar —
því að sannleikurinn mun geraþig
frjálsan; og þegar þú ert orðinn
frjáís, getur þú t'agnað líkt og
gamli Símeon. Hallelúja!
Augu mín hafa séð :hjálpræði
þitt.