Sjómannablaðið Nútíðin - 01.07.1938, Blaðsíða 4

Sjómannablaðið Nútíðin - 01.07.1938, Blaðsíða 4
4 Guð sér allt Tvö smásystkini, drengur og stúlka, voru að leika sér í her- bergi, þar sem mamma þeirra hafði skilið eftir fulla kökukörfu. „Sjáðu hvað þær eru fallegar“, sagði Karl og rétti til hendinni til þess að taka eina kökuna. „Æ, nei, snertu ekki á þeim“, sagði systir hans. „Manstu ekki að hún mamma sagði að við ættum að láta þær vera?“ „En hún taldi þær ekki, og hún sér ekki þó ég taki eina“, sagði Karl. „En mundu það, Karl, að Guð telur þær, og hann sér hvað þú gerir“. Karl lét kökuna vera og sagði: „Þú hefir rétt fyrir þér, Guð telur þær víst, það stendur í Biblí- unni að hann telji stjörnurnar og að öll vor höfuðhár séu talin“. Stúlka óskast á Sjómannaheimilið Ksmpvangsstræti t. \T t'l 'T' f T \J Athugið allur skófatnaður frá skóverksmiðjunni Iðunni hefir LÆKKAÐ UM 1.0 PRC. Kaupfélag Eyfirðinga. Skódeildin. Auálýsin um skoðun bifreiða og bifhjóla í Eyja- fjarðarsýslu og Akureyrarkaupstað. Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hér með, að skoðun bifreiða og bifhjóla fer fram fyrir yfirstandandi ár, sem hér segir: Hinn 4. júlí mæti A 1 til A 50 — 5. — — A 51 til A 100 — 6. — — A101 til A 150 — 7. — - A151 til A 185 — 8. — — E 1 til E 55 Ber öllum bifreiða- og bifhjólaeigendum að mæta með bifreiðar sínar og bifhjól þessa tiiteknu daga við slökkviliðsstöðina á Torfunefi hér í bæ, frá kl. 9—12 árdegis og 1—6 síðdegis. Peir, sem eiga farþegabyrgi á vörubifreiðar, skulu koma með þau til skoðunar ásamt bifreiðum sínum. Bifreiðaskattur fyrir skattárið frá 1. júlí 1937 til 1. júlí 1938, skoðunargjald og iðgjöld fyrir vátryggingu ökumanns verður innheimt um leið og skoðun fer fram. Sýna ber vátryggingarskírteini fyrir sérhverja bifreið, svo og ökuskírteini hvers bifreiðastjóra. Vanræki einhver að koma með bifreið sína eða bifhjól til skoðunar og tilkynni eigi gild forföll, verður hannn látinn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögunum. Petta tilkynnist hér með öllum þeim, sem hlut eiga að máli, til eftirbreytni. Akureyri 10. júní 1938, Bæjarfógetinn á Akureyri. Sig. Eggei z.

x

Sjómannablaðið Nútíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Nútíðin
https://timarit.is/publication/868

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.