Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 1. NÓVEMBER 2004 Fréttír DV Síðastliðinn föstudag fóru fram umfangsmiklar lögregluaðgerðir i Reykjavík, Kefla- vík, Akureyri og á Borgarnesi. Unnið var að þvi að endurheimta vodkabirgðir sem stolið var úr verksmiðju Ölgerðar Egils Skallagrimssonar i Borgarnesi i byrjun október. Lögregla lagði hald á um helming áfengisins. Rannsókn stendur enn yfir. Verðmæti stolna vodkans er vel yfir milljón krónur. Anna Pálína látin Anna Pálína Árnadóttir, söngkona og dagskrárgerð- arkona, lést á laugardags- morgun á heimili sínu. Anna Pálina var 41 árs þeg- ar hún lést. Að því er fram kemur í frétt Rfldsútvarps- ins komu út sjö hljómplöt- ur með önnu Pálínu. Átt- undu plötuna kláraði hún í haust og er hún væntanleg á næstu vikum. Hún var menntaður kennari. Með- fram söngferlinum starfaði hún síðasta áratuginn einnig sem dagskrárgerðar- maður á Rás 1. Anna Pálína skrifaði bókina Ótuktin sem fjallaði um líf með krabbameini. Anna Pálína lætur eftir sig eiginmann og þrjú börn. Miklu meira íslenskt flug Heildarflugtímar ís- lenskra flugvéla jukust um flmmtung í fyrra miðað við árið 2002. Flug- tímarnir voru samtals 158 þús- und á árinu 2003, 25 þúsund fleiri en árið áður. Að því er segir í árs- skýrslu flugör- yggissviðs Flugmálastjórnar munar mestu um að hjá flugfélaginu Adanta bættist við 21 þúsund tími. Aukn- ingin hjá fragtflugfélaginu Bláfugli var 50% en hjá Flugleiðum var aukningin 6%. Bent er á það í ár- skýrslu rannsóknarnefndar flugslysa að ekkert banaslys var í fluginu í fyrra. Ekki meira fé í golf Það koma ekki meiri peningar á næst- unni úr bæjar- sjóði Mosfells- bæjar í uppbygg- ingu golfaðstöðu í bænum. Golf- klúbburinn Kjal- ar hafði óskað eftir viðræðum um aðkomu Mosfellsbæjar að byggingu nýs golfskála. „Bæjarráð bendir á að undirritaður var samningur milli Golf- klúbbsins og bæjarfélagsins í júlí um aðkomu sveitarfé- iagsins á uppbyggingu 18 holu golfvallar, starfs- mannahúss og annarrar aðstöðu þar sem verulegir fjármunir voru lagðir í þetta verkefhi að hálfu bæj- arfélagsins," minnti sam- hljóma bæjarráð á. Rændu 100 kössum af vodka í Bornarnesi í byrjun síðasta mánaðar var brotist inn í verksmiðju Ölgerðar Egils Skallagrímssonar á Borgarnesi og um 100 kössum af Pölst- ar-vodka var stolið. Ölgerðin framleiðir þessa tegund af vodka fyrir erlenda aðila en einnig er framleiddur íslenskur vodki í verksmiðjunni. Lögreglan á Borgarnesi rannsakar málið og hef- ur yfirheyrt eigendur hússins sem verksmiðjan er í. Lögreglan á Borgarnesi segir að tekist hafi að ná til baka hluta af ránsfengnum. Gripið hafi verið til aðgerða á föstudaginn eftir að ábendingar bárust um hvar góssið væri að flnna. Lögreglan í Keflavík, á Akureyri og í Reykjavík aðstoðuðu við aðgerðirnar sem voru umfangs- miklar. Lögreglunni tókst að endur- heimta um helming þess áfengis sem stolið var. Afgangurinn er talinn ganga kaupum og sölum á svarta mark- aðnum. Eigendur grunaðir Það var í byrjun síðasta mánaðar sem brotist var inn í verksmiðjuna á Borgarnesi. Lögregla telur að þrír „Það voru töluverð verðmætí tekin í þessu máli." menn á tveimur stórum bflum hafl verið að verki. Farið var inn í birgða- geymslur og um 100 kassar teknir, samtals um fjögur hundruð lítrar af áfengi. Rannsókn málsins fór strax í gang en það var ekki fyrr en á föstu- daginn sem reynt var að endur- heimta þýfið. Lögreglan staðfesti að eigendur hússins sem verksmiðjan er í hefðu verið yfirheyrðir og eru grunaðir um verknaðinn. Borgarnes Lögreglan á Borgarnesi telurstuld á 100 kössum af Pölstar-vodka úr verksmiðju í bænum vera upplýstan. Eigendur byggingarinnar sem hýsir verksmiðjuna liggja undir grun. Dapurlegt mál Andri Þór Guðmundsson hjá Öl- gerð Egils Skallagrímssonar segir þetta hið dapurlegasta mál. Pölstar-vodka Talið er að þrír menn á tveimur bílum hafí stolið Pölstarvodkanu i Borgarnesi og selt hluta þess á svörtum markaði. „Það voru töluverð verðmæti tekin í þessu máli,“ segir Andri. „Þetta var Pölstar-vodki sem við ffamleiðum fyrir erlenda aðila. Hann er í 200 milli- Ktra flöskum, en flöskur af þeirri gerð eru ekki á markaði hérlendis.“ Andri telur að verðmæti þess áfengis sem var stolið sé vel yfir eina milljón króna. „Það er alltaf leiðinlegt þegar svona gerist," segir Andri. Eðalvodki Pölstar-vodki er þekktur út um all- an heim sem eitt af stóru merkjunum á eftir Smimoff- og Absolutevodka. í áfengisverslun rfldsins er hægt að kaupa Pölstar red-vodka í 700 milli- h'tra flöskum á 2800 krónur. Samkvæmt heimildum DV er verðið á svarta markaðsvodkanu þó eitthvað undir verðinu hjá ÁTVR. Lögreglan á Borgamesi segir málið í sjálfu sér upplýst. Það á þó enn eftir að klára máÚð og koma sökudólgun- um bak við lás og slá. simon@dv.is Friðrik Þór hefur misst kjarkinn Svarthöfði hefur fylgst af mikl- um áhuga með umræðum um til- nefningar til Edduverðlaunanna í ár. Þar er fyrirferðamestur Friðrik Þór Friðriksson en hann og félagar hans hóta að draga kvikmyndina Næsland úr keppni. Af því að hún fær ekki nógu margar tilnefningar. Eða öllu heldur af því að hún fær ekki jafn margar tilnefningar og hinar bíómyndirnar. Það hefur verið sagt frá þessari hótun Frið- riks á síðum DV. Svipað og þegar sagt var frá hótun Friðriks Þórs um að hann ætlaði að kæra þann þekkta handrukkara, Annþór Krist- Svarthöfði ján Karlsson, fyrir líkamsárás en Friðrik hélt því fram á síðum DV að þessi piltur hefði barið hann í tætl- ur á Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Það hefur hinsvegar komið á daginn að Friðrik Þór þorir ekki að kæra. Þess vegna telur Svarthöfði litlar líkur á að Friðrik láti verða af því að draga Næsland úr Eddu- verðlaununum. Hann skortir kjarkinn. Enda kannski enginn jafnaðarmaður í sér, kallinn. Vill Hvernig hefur þú þad? „Ég hefþað bara fínt takk,"segir Kalli Bjarni ldol-stjarna.„Enda er ég búinn að vera að klára alia enda i sambandi við útgáfu nýju plötunnar og að undirbúa smá ferð þar sem ég kynni plötuna. Síðan ég vann Idolið hefég lítið komið við sjómennskuna en stokkiö í allan fjandann annan eins og að mála báta og beita línu. Platan á samt hug minn allan þessa dagana." leyfa þeim sterku að berja á þeim sem aumari eru og vill að góðar myndir fái einfaldlega minna lof en hinar slæmu. Svarthöfði hefur skemmt sér yfir þessu undanfarið og vonar að gamanið frá Friðrik Þór haldi áfram. Hann er auðvitað listamað- ur, gamli maðurinn, og í honum togast skemmtilegar andstæður. Þetta er í raun eins og að vera í bíó, stundum, og fyrir það getum við þakkað Friðrik Þór. Nú er því bara að bíða eftir næstu frétt. Næstu hótun Friðriks Þórs sem hann stendur ekki við. Allt er þegar þrennt er. Svarthöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.