Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Blaðsíða 32
 I—* i i J a jjfoxm5xot Við tökum við I fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar | nafnleyndar er gætt. i ^ > r-/ r \ C \ t \ ■— zjzjU zJUjJD SKAFTAHLÍÐ24, 105REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS50S000 • Flótti er ríkjandi meðal emb- ættismanna í ráðhúsinu. Fyrstur til að fara var Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson borgarlög- maður sem þoldi ekki við oghætti.Áhæla hansfór Bjömlngi Sveinsson borgarverk- fræðingur sem hættir eftir rúmlega ársstarf til að taka við starfi sparisjóðsstjóra. Hann mun hafa sagt að hann þyldi ekki lengur ráðhúsklíkuna. Helga Jónsdóttir borgarritari, Sigurður Snævarr borgarhag- fræðingurog Kristín Einarsdótt- ir, framkvæmdastjóri miðborgar- stjómar, em öll í flóttahug ef marka má að þau hafa öll sóst eftir starfi utan ráðhússins. Talað er um valdhroka „litlu ljótu klíkunnar" sem stjórnað sé af Degi B. Eggertssyni, formanni stjómkerfisnefndar og Þórólfi Ámasyni borgarstjóra... Snýr maður þá sjónvarpinu öfugt? 3 Rokklingurinn orðinn stór Byggir blokkir og eignast barn „Mig minnir að ég hafi byrjað í Rokklingunum árið 1989, þá var ég 9 ára,“ segir Thorberg Einarsson, fyrrverandi Rokklingur og núverandi byggingarverkamaður. Thorberg, eða Tobbi eins og hann er gjarnan kallaður, var einn aðalliðsmanna Rokklinganna, söngsveitarinnar sem gerði garð- inn frægan í lok níunda áratugarins og náði miklum vinsældum. Tobbi segir tímann með Rokklingunum hafa verið skemmtilegan, enda nóg að gera við söng og dans á þeim tíma. Tobbi vakti athygli margra á plötum Rokklinganna fyrir bros sitt og skemmtilegan söng. „Þetta var að minnsta kosti gott fyrir egóið,“ segir Tobbi og hlær. „Þetta var gaman og ég sé ekki eftir því að hafa prófað þetta," segir hann, en Tobbi komst í Rokkling- ana þegar hann fór í söngprufu sem Birgir Gunnlaugsson, betur þekktur sem B-ið og G-ið í BG, og Ingibjörg héldu. Thorberg var á þessum árum búsettur í Grindavík og hann og Júlíus Daníelsson sveit- ungi hans fengu báðir inn í þessa vinsælu söngsveit. Lítið hefur farið fyrir þeim félögum síðan Rokkling- Tobbi og Rokklingarnir Rokklingarnir slógu Igegn um miðjan niunda áratuginn og Tobbi fann fyrirþví. Hafði gaman aföllu saman og útiiokar ekki frekari sigra á söngsviðinu. Thorberg er þriðji frá vinstri í neðriröð. arnir liðu undir lok í byrjun ársins 1991 en Júlíus hefur snúið aftur í Idol-stjörnuleit þar sem honum hefur gengið vel að heilla Bubba og félaga. „Nei ég hef nú lítið komið fram síðan Rokklingarnir hættu,“ segir Tobbi sem nú starfar við húsbygg- ingar hjá Pallaþjónustunni. „Það er einna helst að ég syngi í sturtunni. Svo er ég líka helvíti góður í bíln- um,“ segir Tobbi sem undanfarin ár hefur stundað sjóinn af kappi. Hann er nú nýkominn í land og í byggingarvinnuna. „Ég á von á barni með kærust- unni minni, Júlíönnu Ólafsdóttur, 5. nóvember svo það er nóg að gera,“ segir Tobbi sem segir að hann myndi hiklaust leyfa barninu sínu að ganga í Rokklingana gæfist til þess tækifæri. „Og að því gefnu að barnið vilji það sjálft," segir Rokklingurinn fyrrverandi sem enn er rokkari. Á von á sínu fyrsta barni Thorberg hefur fengist við ýmislegt frá þvihann yfirgaf Rokklingana, t.d. verið á sjó og byggthús. Biður núíofvæni eftir sínu fyrsta barni sem væntanlegt er Iheiminn um miðjan mánuð- inn. - En varstu ríkur afþessu? „Nei það varð ég ekki,“ segir Tobbi og brosir. „Ætli mig hafi ekki vantað umboðsmann til þess,“ bætir hinn verðandi faðir við. Sjónvarp fyrir samkynhneiqða Þorvaldur Kristinsson formaður Samtakanna 78 segir að hann eigi ekki von á að sérstök sjónvarpsstöð verði sett á laggirnar fýrir samkyn- hneigða hérlendis. Nýlega fór slflc stöð, Pink TV, í loftið í Frakklandi og svipaðar stöðvar er nú að finna í Bandaríkjunum, Kanada og Ítalíu. „Þetta hefur aldrei komið til um- ræðu í okkar hóp hér heima á ís- landi," segir Þorvaldur. „Hins vegar gerir alþjóðavæðingin á þessum vett- vangi það að verkum að við eigum auðvelt með að nálgast þetta efni. Til dæmis má nefna að margir þættir af þessum sjónvarpsstöðvum ytra em fáanlegir á DVD-diskum.“ Sjálfur hefúr Þorvaldur séð efni frá þessum stöðvum, einkum frá Evr- ópu, og hann segir að margir þætt- Þorvaldur Kristinsson „Hins vegar gerir alþjóðavæðingin á þessum vett- vangiþað að verkum að við eigum auðvelt með að nálgast þetta efni. imir séu mjög áhugaverðfr. „Þeir hafa svo aftur góð áhrif á okkar menningu hér heima. Það er alltaf athyglisvert að fýlgjast með hvað okkar fólk ytra er að stússa þá og þá stundina," segir hann. Allt óruglað um helgina Stöð 2 og Fjölvarpið vom ómglaðar um helgina. Ástæðan var prófanir á hinu nýja digital-kerfi sem Islenska útvarpsfélagið er að taka í notkun. Þeir sem ekki em áskrifend- ur gátu því horft á fjölda erlendra stöðva auk Stöðvar 2 og Sýnar. „Vonandi er þetta búið núna,“ segir Pálmi Guðmundsson markaðs- stjóri hjá íslenska útvarpsfélaginu. Hann segir prófanir á hinu nýja digital-kerfi ástæðu þessarar óvæntu kjarabótar fyrir sjón- varpsáhorfendur. Pálmi segir jafnframt að byrjað verði að afhenda hina nýju mynd- lykla eftir helgi. Hann reiknar með sex vikum í að afgreiða póstnúmer frá 101 til 260. Fólk á vegum ís- lenska útvarpsfélagsins muni banka upp á og skipta um myndlykla en þeir sem ekki geta beðið mega koma upp á Krókháls og fá sér nýjan lykil. „Þetta mun skýrast betur á næstu vikum,“ segir Pálmi. Hann býst ekki við því að Stöð 2 verði órugluð næstu daga en vonar að þessi stutti tími sem áhorfendur fengu Stöð 2 frítt muni selja einhverjar áskriftir. Pálmi Guðmundsson markaðsstjóri Segir prufanir á nýjum myndlyklum ástæðuna fyrir þessari óvæntu sjónvarpshelgi. Retís ehf. 201 Kópavogt S S44 8855 F 544 8854 retis@retis.is www.retis.is Kassakerfi Touch-store afgreiðslukerfið er eitt öflugasta kerfi sinnar tegundar á markaðnum í dag. íslenskt kerfi með frábæra eiginleika. Tekur sölumann aðeins 30 min að læra á grunneiginleika kerfisins. i n v e n t SNERTA Fjöldinn allur af viðbótareiningum fáanlegur og tenging möguleg við öll helstu fjárhagskerfi. Viðskiptahugbúnaður dk viðskiptahugbúnaður byggir á heildstæðu kerfi, þar sem notendaviðmót er samræmt á milli allra kerfishluta. Kerfið er mjög notendavænt, myndrænt og hægt að vera með marga óskylda glugga opna samtímis. Kerfið er byggt upp af mörgum kerfiseiningum sem velja má saman eftir þörfum. Alltaf er hægt að bæta við kerfiseiningum á þægilegan máta. í þjónustu erum við best 3 «0 (0 c £ > ■ t Q) X <0 (fí Ifí ra * i lm 3 *0 (0 c v3 .Q Ul 3 £ fO +•* CL X (fí <0 > c <fí 3 GS L. C3 T3 X 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 •-sr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.