Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Qupperneq 24
24 MÁNUDAGUR 1. NÚVEMBER 2004 Menning DV Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is Seiðandi tangókvöld í Iðnó á þriðjudagskvöld Tangósveit lýðveldisins hefur staðið fyrir mánaðariegum tangókvöldum i iðnó í rúmt ár. Þriðjudaginn 5. nóvem- ber verður þriðja kvöld þessa vetrar. Þá geta tangóþyrstir dans- arar, leikir og iæröir, fengið leiðsögn í þessum seiðandi dansi og notiö tónlistar frábærra tónlistarmanna. Húsiö verður opnað kl. 20.00, fyrsta klukkutimann er boðið upp á leiðsögn en kl. 21.00 stlgur Tangósveit lýð- veldisins á stokk og leikur til kl. 23.00. Sveitin erskipuð þeim Hjör- leifi Valssyni fiðluleikara, Tatu Kantomaa bandoneonleik- ara, Ástvaldi Traustasyni harmónikuleikara, Vigni Þór Stefánssyni píanóleikara og Gunnlaugi T. Stefánssyni kontrabassaleikara. Miðaverðerkr. 1.000. Sýning á handverki og hönnun Á laugardag opnaði Handverk og hönnun sýningu á nytjahlutum úr textíl i sýningar- sal sínum í Aðaistræti 12. Sýningin er hald- in I kjölfar samkeppni sem fjölmargir tóku þátt í og valdi dómnefnd muni frá sextán aðilum til sýningar.Á sýningunni eru fjöl- breyttir hlutir úr textil. Þeirsem sýna eru.Anna Guðmundsdóttir, Ásdls Birgisdóttir, Birna Friðriksdóttir, Björg Eiríksdóttir, Fríða S. Kristinsdóttir, Guðlaug Halldórsdóttir, Guðný Maria Höskulds- dóttir, Helga og Agnes Aspelund, Helga Björg Jónasardóttir, Herdís Tómasdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jóhanna G. Jó- hannesdóttir, Rósa Helgadóttir, Sigríður Ásta Árnadóttir, Sigríður Elfa Sigurðardótt- ir og Snjóiaug G. Sigurjónsdóttir. Sýningin stendur frá 30. október til 14. nóvember í Aðalstræti 12oger opið alla daga frá kl. 13.00 til 17.00 nema mánu- daga. Sinfóniuhljómsveit íslands. Einsöngvari: G uðrún Jóhanna Ólafsdóttir. Stjórnandi: Gerrit Schuii. Efnisskrá: Óperuforieikir og ari- ur eftir Mozart, Rossini, og Luna, Divertimento eftir Mozart, Les préludes eftir Liszt. Háskólabíó 28. október. Tónlist Guðrún Jóhanna og Gerrit Schuil Sigurður Þór Cuðjónsson fór að hlusta á björtustu von þjóðar- innar i óperuheimi útlanda G uðrún Jóhanna Ólafsdóttir sannaöi fjöl- hæfni sína á þessum tónleikum. Hún er jafnvíg á dýpt og óumræðilegan þokka Mozarts, sprikiandi fjör og tækniþrautir Rossinis og ástríðuþrungna gamansemi spænsku zarzueia-óperettunar. Ailar gerðir óperunnar hófMozart i æðra veldi, jafnvel hina gamaldags atvariegu óperu,„opera seria“en hann samdi þá sið- ustu afþeim öllum,„La Ciemenza di Tito" (Mildl Títusar), sem fjallar um ýmsar ástar- flækjur í lifí Títusar keisara f Róm. Frægasta arian í óperunni,„Parto, parto" er sungin af viniTítusar sem heitirSextus og varhlut- verkið upphaflega samið fyrir getdings- rödd enernú yfirleitt sungiö af messósópranrödd.Arian varfallega sung- in en þvi er ekki að leyna að alræmdur hljómburður hússins var upp á sitt versta hvað sönginn varðaði. En þróttmikill klar- inettleikur Sigurðar Ingva Snorrasonar komstveltilskila. Konsertaria Mozarts K505 hefur verið köll- uð ástarjátning I tónum. Hún varsamin fyrir Nancy Storace sem fyrst söng Súsönnu f Brúðkaupi Flgarós. Þetta er dúett milli söngraddar og einleikspfanós með stuðningi hijómsveitar. Mozart lék á píanóiö þegar verkið var frumfiutt og Nancy söng. Þetta er ekki virtúósaverk heldur innileg tónlist, þrungin þeirri hlýju, nærgætni og viðkvæmni sem sprettur upp þegar„skyldar sálir“ fá aö njóta sin saman. Flutningurinn var svo sannfærandi að gagnrýnandinn leyfði sér eitt andartak að veröa svo sentimental að fmnast Mozart sjálfur sitja við flygilinn ogNancyað slá honum slna hjartanlegustu gullhamra. Sjaldgæfsamvinna, næmi og tilfinning f flutningi. Forleikur óperunnar var hins vegar fremur daufgerður og sömuleiðis divertimento Mozarts K138, nema hægi kaflinn sem var fallega spiiaður. Forleikurinn að Sem- iramide eftirRossini varleikinn einkenni- lega hrjúft en samt rffandi skemmtilega. Verkiö eftir Liszt var flutt með stll, þunga og krafti. Gáskafullur hraðinn, ísmeygileikinn og flugeldasýningarnar f söngnum t hinni frægu aríu„Une vocepoco fa“úrRakar- arnum I Sevilla eftirRossini varsem léttur leikur fyrir Guðrúnu Jóhönnu og hljóm- sveitin varsannarlega með á nótnum. Hámark tónleikanna var þó spænska óperettulagið eftir Pablo Lunaen þessi tónlist er lítt kunn hér á landi. Söngurinn var afburðallflegur og skemmtilegurog tæknin fin. Og viti mennlVarekki enn þá skemmtilegra aukalag sem varalgjör rúsína f pylsu- endanum. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Hafir þú í hyggju að kála þér, en veist ekki alveg hvaða aðferð væri best að nota þá er hægt að komast í sýnikennslu í Þjóðleik- húsinu því þar eru íslensku aðferðirnar tíundaðar. Ég segi ís- lensku aðferðirnar því gasinu er sleppt enda ákaflega óíslensk aðferð við að drepa sig. Á einum og hálfum klukkutíma drepast flestar persónurnar sem til verksins eru kynntar, detta niður af svölum, reyna að ganga í sjóinn, skera sig á púls, bruna hratt á mótór- hjóli inn í vegg, snaran stendur fyrir sínu að ógleymdri afsöguðu hagla- byssunni sem ein óhamingjusöm sál treður upp í sig og þeytir heilanum á sér í slettum upp á vegg í nokkuð flottu litasjói. Klisjur og frasar Klisjur og frasar á örþunnum lín- um er uppistaða persónusköpunar Hrafnhildar Hagalín í leikritinu Norður sem frumsýnt var í Þjóðleik- húsinu á föstudagskvöld. Salt og pip- ar, svart og hvítt, hátt og lágt. Maður getur ímyndað sér að höf- undur hafi setið með stórt hvítt blað fyrir framan sig og tengt saman tvo og tvo punkta, dregið örþunna línu á milli þeirra og fundið upp á því að allir sem fara á flugstöð eru pör af einhverju tagi. Ungt par sem getur ekki lengur verið saman og heldur ekki sundur. Gamalt par sem er eins og ein heild. Hjón sem geta alls ekki verið hjón vegna þess að hann er í öðru pari sem hún veit ekki að hann tilheyrir. Úps þá er kominn þríhymingur í stað línunnar á blaðinu hjá höfúndi. Vasaljósaleikurinn Framhjáhaldaparið er eins og keyptur kækur úr bíómynd ffá 1969 þar sem leikstjórinn hefði líklega val- Elísabet Brekkan fór að sjá nýja leikritið hennar Hrafnhildar Hagalín og hefur margt um það að segja. Leiklist ið Peter O’Toole í aðalhlutverk. Frásagan fjallar sum sé um hóp manna sem staddir em á flugstöð á leiðinni norður en það verður seink- un á vélinni og því tækifæri til þess að lyfta fram örlögum þeirra sem bíða. Aðferðin er svolítið lík vasaljósa- leiknum þar sem hópur stendur á víð og dreif í myrkri og einn beinir svo vasaljósinu og sá sem lendir í geisl- anum á að segja eitthvað spekings- legt. Formtilraun Það er alveg greinilegt að Hrafn- hildur Hagalín hefur hér verið að gera formtilraun og það er góðra gjalda vert. Það má vera að þessi formtilraun hefði skilað sér betur hefði nálgun leikstjórans verið önn- ur. En sem formtilraun þá er þetta nú ansi hreint erfitt leikrit. Eða sem leik- rit er þetta nú ansi hreint erfið formtilraun. Allt þetta fólk á þessari flugstöð er ffústrerað og óhamingjusamt. Nema hugsanlega afgreiðslustúlkan sem var í flugfreyjubúning frá gamla Loft- leiðatímabilinu og Edda Amljóts- dóttir glæddi spaugilegu ltfi og var unun á að horfa. Á flugstöðinni biðu ýmis pör, gömlu hjónin sem voru á leiðinni norður til þess að láta jarða son sinn sem hafði dáið á óeðlilegan hátt. Lít- ill drengur var á leiðinni til pabba síns þar sem hann fer svo í ökutúr sem endar með dauða þeirra beggja. Ungt par vafrar um stöðina: hún er á förum vegna þess að hún þarf að hugsa sig um. Hann lyftir henni svo ffam í salinn þar sem hún er alblóð- ug og steindauð búin að skera sig á púls fyrir norðan. Mykur og snjókoma Þegar norður kemur ráfar gamla Erlingur Gíslason og Margrét Guðmundsdóttir Náttúrulega snillingar. Halldóra Björnsdóttur og Þröstur Leo Gunnarssonar Komu klisjunni ákaflega vel tilskila. konan út í myrkrið og snjókomuna og sest á bekk og verður úti, miðaldra framhjáhaldaparið lendir í þvi að hann fleygir sér fram af svölum ó ó ó líka fýrir norðan, og hjónin þar sem eiginmaðurinn átti við kyn-áttunar- erflðleika að stríða skaut sig með af- sagaðri haglabyssu, tæknilega smart. Kona mannsins sem notaði byssuna hleypur svo niður í fjöru en er svo heppin að henni er bjargað. Svona efúr á að hyggja hefði verið hægt að gera margt sniðugt úr þessu handriti, því það getur ekki verið að höfundur hafi séð eða sjái tilveruna svona bókstaflega, sé svo þá þarf hún náttúrulega að leita læknis. Hvar var leikstjórinn? Leikstjórinn hefur greinilega gleymt að velja sér einhverja leið til að fylgja og einhvern veginn ekki ákveðið sig hvað hann vildi með verkinu. Það var greinilegt að þeir leikarar sem vanastir voru gátu stjórnað sér sjálfir og leitað í sfna reynslukistu með það hvernig karakterinn ætti nú að vera, en það kom svo niður á yngstu leikurunum sem einnig vom með úr mirmstu að moða í texta og heildarpersónusköpun að leikstjórn- arhlutinn var svona gloppóttur. Eins og alltaf nú til dags var þykkt hljóðteppi eða svo kölluð hljóðmynd yfir öllu, svona einhvers konar púls- tónar. Þessi hljóðmotta var svo sem í lagi en það er misskilningur að halda að hljóð og myndir og ál-flugtröppur sem hægt er að hlaupa í, bjargi sýn- ingum. Leikstjórinn hefði reyndar átt að eyða aðeins meiri tíma í leikarana í stað tímans sem ábyggilega hefur farið í vafstur kringum leikmyndina sem var ekki aðeins ljót heldur líka furðulega óhentug. Kjöt og bein Þetta em þaulvanir og góðir leik- arar sem þurfa ekki annað en að leita í gullkistu reynslu sinnar til þess að hlaða örlitlu kjöti utan á þessar ör- þunnu beinagrindur. Leikstjómarhluti verksins er sum sé mjög óskýr. Hvert vill leikstjórinn fara með þessari sýningu? Hvað er hann að segja og hvaða aðferðum beitir hann? Manni er næst að halda að leikar- ar hafi valsað meira og minna frjáls- ir, og þess vegna verður unga parið Norður eftir Hrafnhildi Haga- lin. Leikstjóri: Viðar Eggerts- son. Leikarar: Guðrún S. Gísla- dóttir, Sigurður Skúlason, Edda Arnljótsdóttir, Erlingur Gisla- son, Margrét Guðmundsdóttir, Halldóra Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, ívar Örn Sverrisson, Baldur Trausti Hreinsson, Björgvin Franz Gíslason, Þór- unn Lárusdóttir, Rafn Kumar Bonifacius, Sigurður Stefán Flygenring, Valdimar Örn Flygenring. Lýsing: Páll Ragn- arsson. Búningar: Filippía I. Elísdóttir. Leikmynd: Rebekka A. Ingimundardóttir Hljóðmynd: Jón Hallur Stefáns- son. Frumsýning á Stóra sviði Þjoðleikhússins 29. október 2004. Leiklist nokkuð ótrúverðugt þótt Vigdís Hrefna Pálsdóttir hafi virkilega lagt sig alla fram við að vera ung, sorg- mædd og taugaveikluð þá var mót- leikari hennar ívar Örn Sverrisson alls ekki að fatta af hverju hann var þarna. Það hefði verið betra að láta Björgvin Frans Gíslason leika kærastann því Björgvin hefur nær- vem og það hafði hann svo sannar- lega í sínu litla hlutverki unga dópsalans eða hvað hann var þessi sautján ára strákur sem var enn ein klisjan. Hann var í símanum með fráhneppta úlpu, nennti ekki að passa ókunnan strák og reykti, sem- sagt fullkominn eiturlyijasali. Lögg- urnar tvær vom nú svolítið Kalla Blómkvistlegar, enn ein klisjan. Tvær löggur á innanlandsflugvelli að leita að dópsala, sem þær finna svo. Erlingur snillingur Erlingur Gíslason er auðvitað snillingur og í sínum gamla sarpi á hann fullt af góðum köllum sem hann dregur bara upp úr pússi sfnu og einn slíkan góðan og blíðan feng- um við að Sjá svo fullkomlega áreynslulaust. Sama má segja um Margréti Guðmundsdóttur. Guðrún Gísladóttir fór á kostum í sveiflunum sem einkenndu frústrer- uðu eiginkonuna sem vissi ekki en grunaði þó að maðurinn hennar væri ekki allur þar sem hann var séð- ur. Sigurður Skúlason leikur eigin- mann hennar og samspil þeirra er mjög trúverðugt. Framhjáhaldaparið er í höndum þeirra Halldóm Björns- dóttur og Þrastar Leós Gunnarssonar og þau komu klisjunni ákaflega vel til skila. Þómnn Lámsdóttir var frábær í litlu hlutverki sem einstæða móðirin. Rembast eins og rjúpur Þannig að þegar á heildina er litið þá gerðu leikarar allt sem þeir gám, rembdust eins og rjúpur við staura og lögðu líf sitt í hættu en engu að síður vom fagnaðarlæti áhorfenda ákaflega hljóðlát. Það er eins og formtilraunin sé ekki lengur í gildi eftir að handritið lendir í fangi leikstjórans. Hvort er hér verið að lyfta tóm- hyggju á stall eða berjast gegn henni? Kannski er þetta bara tómhyggju- sýning. Svona er tómhyggjan, haha nú vitið þið það!!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.