Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Side 2
2 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjóran
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
Jónas
Hallgrímssou
1. Hvar fæddist hann?
2. Hvaða dag?
3. Hverju er fæðingardagur
hans tileinkaður?
4. Hvað nam hann í Kaup-
mannahöfn?
5. Hver skrifaði ævisögu
hans?
Svör neðst á síðunni
Góður er
Drottinn
þeim er á hann vona, og
þeirri sál er til hans leitar.
Gott er að bíða hljóður
eftir hjálp Drottins.
Gott er fyrir manninn að
bera ok í æsku.
Hann sitji einmana og
hljóður, af því að Hann hef-
ir lagt það á hann.
Hann beygi munninn
ofan að jörðu, vera má að
enn sé von.
Brot úr biblíunni
Harmljóðin 3,25-32
Hann bjóði þeim kinn-
ina sem slær hann, láti
metta sig með smán.
Því að ekki útskúfar
Drottinn um alla eilífð,
heldur miskunnar hann
aftur, þegar hann hrellir,
eftir sinni miklu náð.
Eddur
Þetta nafn virðist fyrst
koma fyrir sem skírnarnafn
hérlendis í manntalinu
1910. Þá bar það ein kona
en á næstu áratugum juk-
ust vinsældir þess verulega
þannig að 705 konur báru
það sem eina, fyrra eða síð-
ara nafn fyriraldarfjórð-
ungi. Sænskar
konur hafa borið
nafnið frá því um
miðja 19. öld. Edda merkir
langamma og erl Rígsþulu,
Heimdallur, sem nefndist
Rígur var á leið um sjávar-
strönd Áa og Eddu, Afa og
Ömmu,Föður og Móður.
Frá þeim er komið allt kyn
manna, æðra sem lægra.
Málið
Svörviöspumlngum
1. Hrauni í Öxnadal. 2.16. nóvember. 3. Is-
lenskri tungu. 4. Náttúrufræði. 5. Páll Vals-
son.
Fallinn á fyrsta prófinu
Þegar tilkynnt var að rúásstjórnin ætl-
aði að setja lög til að binda enda á
kennaraverkfallið önduðu lfklega
flestir léttar. Þótt lagasetning sé ævinlega
neyðarúrræði til að ljúka verkföllum, þá
var neyðarástand löngu skollið á og ekki
vansalaust fyrir rfldð að hafa ekki komið til
skjalanna fyrr - og þá með öðrum hætti en
lögum um gerðardóm.
En fyrst svona var komið, þá virtust lög-
in um gerðardóm vera skárra en ekki neitt.
Skárra en að bömin í landinu væru svipt
lögbundnum rétti sfnum til skólagöngu og
þeim mannréttindum að fá að læra.
Og ekki seinna vænna að Halldór Ás-
grfmsson léti að sér kveða. Upphaf sfðbií-
inna afskipta hans var einkennilegt. Hann
boðaði með viðhöfn blaðamannafund og
héldu allir að þar ætlaði hann að tilkynna
lagasetningu eða aðrar ráðstafanir sem
bundið gætu enda á þráteflið.
En það var nú eitthvað annað. Fundur-
inn var boðaður til að láta vita að daginn
eftir hefði Halldór boðað fund með deil-
uaðilum. Allt og sumt.
Maður klóraði sér í kollinum yfir þessu
en reyndi svo að telja sér trú inn að þetta
væri lfldega bara til marks um vandaðan
undirbúning hins nýja forsætisráðherra.
Hann ætlaði ekki að flana að neinu og lát-
um þá vera þótt undirbúningurinn virtist
jafhvel einum of.
Svo komu ráðstafanirnar, gerðardómur-
inn, að lokum; báðir deiluaðilar mótmæltu
náttúrlega en því mátti búast við. Formleg-
um mótmælum. En maður hlaut að ætla að
jafnvel þeir gerðu sér grein fyrir að eitthvað
varð að gera og myndu sætta sig við orðinn
hlut.
Aðeins fáeinum dægrum sfðar er komið
á daginn að lagasetning Halldórs Ásgríms-
sonar er með þvílíkum eindæmum að
kennarar eru bókstaflega miður sín. Hóp-
uppsagnir eru yfirvofandi, það eru haldnar
bænastundir f kirkjum nú í morgun og
þeim finnst þeir hafa verið svívirtir. Við
þurfum ekki að vera sammála kennurum í
hverju smáatriði - hér skiptir mestu máli
að öðrum deiluaðila f mjög erfiðu máli
finnst í fyllstu einlægni að hann hafí verið
svívirtur.
Þetta er árangurinn af hinum „vandaða
undirbúningi" Halldórs Ás-
grímssonar.
Og ekki veit það á gott.
Halldór varð ekki for-
sætisráðherra af því að
einhver stór hluti þjóð-
arinnar vildi það. Hann
varð forsætisráðherra
eftir hrossakaup við
Davíð Oddsson. Honiun
ber því sérlega mikil
skylda til að sýna
að hann eigi emb-
ættið skilið.
En er kolfall-
inn á fyrsta
prófinu sínu.
Ulugijök-
ulsson
r
Dauðinn i neinni
og annað grín og glens úr íslensku samfélagi
A FÖSTUDAGSKVÖLD fór ég í Stúd-
entaleikhúsið að sjá sýninguna Þú
veist hvernig þetta er. Og hef ekki
gengið svo kátur út af íslenskri
leiksýningu um skeið.
ÞAÐ ER EKKI af því að þar væri
boðið upp á fágaða listræna sýn-
ingu þar sem af smekkvísi, ein-
lægni og djúphygli væri skyggnst
niður í hin leyndu djúp mannssál-
arinnar og dregin upp svo átakan-
lega fögur og ljúf mynd af sam-
skiptum einstaklinganna and-
spænis yfirþyrmandi veruleika lífs-
ins ... ekki neitt svoleiðis.
Þvert á móti.
Ef ég ætti til að mynda að láta
mér detta í hug einhver persóna
sem líkja mætti þessari sýningu
við, þá væri það helst Sigurjón
digri úr samnefndu Stuðmanna-
lagi:
Ruddaleg týpa,
með vonlausan tónlistarsmekk.
ÞETTA ER SAMANSAFN af „skets-
um“ úr íslensku þjóðlífi og farið
yfir sviðið cillt frá ættjarðarljóðum
til anórexíu til klíkuskapar og spill-
ingar og frá friðargæslu í Kabúl til
sjálfsmorða... Mikið af pólitík. Öllu
hrært saman - minnir á Spaugstof-
una ... í tíunda eða tuttugasta
veldi. Því það er gengið svo miklu
miklu lengra en Spaugstofumenn
myndu nokkru sinni láta sér detta í
hug. í ósvífni, fyrst og fremst. Því
þetta er verulega ósvífin sýning.
Hún er gróf og hún er klúr og hún
sneiðir vandlega hjá öllum fi'nleg-
um blæbrigðum í
Jýsingum
^sínum á
ríslensku
3^þjóðlífi.
Það er öllu
sullað saman á groddalegan hátt,
margir hnífar á lofti þar sem leikið
er á fjórum dimmum og ljótum
svæðum kringum áhorfendur sem
standa eins og illa gerðir hlutir í
miðjunni og æpt yfir þá og rassinn
rekinn framan í þá.
Þú veist hvern
«9 Þetta erJ
ALLT FREKAR ÓSMEKKLEGT og ekk-
ert heilagt. Það er meira að segja
grínast með krabbamein Davíðs
Oddssonar sem er auðvitað
smekklaust (þótt hann hafi reynd-
ar sjálfur gert það, mjög smekldega
og ... já, karlmannlega, í þættinum
hjá Gísla Marteini) en smekkleysan
Leikhópurinn „Og strax hvarfl
aði náttúrulega að manni þessi
hugsun:Hvers vegna gera stóru
leikhúsin ekki eitthvað á þessa
iundi" _______
.
Hver faer aö fremja sjálfsmorð?
Sjónvarpsþáttastjórnandi I ham.
Fyrst og fremst
fellur í skuggann af feginleikanum,
ósvficnum feginleikanum yfir því
að þetta unga fólk skuli - undir
leiðsögn leikstjórans Jóns Páls Eyj-
ólfssonar - hafa séð ástæðu til að
bregða hnífum sínum á loft og
skera í samfélagið allt eins og það
leggur sig.
0G ÞA FÉKK ÉG nánast tár í augun
þegar þau sungu sína útgáfu af
„Ríðum, ríðum“ - reyndar á mjög
áhrifamikinn hátt - og það helltist
yfir mig feginleiki.
Yfir því að unga fólkið skuli láta
sig samfélagið svo miklu varða sem
þessi söngur og leikurinn allur gaf
,til kynna.
Aftur var ég reyndar nærri því að
tárast, en þá úr hlátri, þegar sýndur
var sjónvarpsþátturinn Dauðinn í
beinni - eitthvert fýndnasta og
naprasta atriði sem ég hef séð.
Og strax hvarflaði náttúrlega að
manni sú hugsun, hvers vegna gera
stóru leikhúsin ekki eitthvað á
þessa lund? - bregða upp fyrir okk-
ur þessari nístandi spegilmynd af
okkur sjálfum og því kraðaki sem
við höfum hrúgað upp í lcringum
okkur. Þau gera kannski svipaða
hluti á sína lund, en má ekld stund-
um leggja fagmennskuna á hilluna?
Láta bara vaða? Skjóta af öllum sín-
um byssum samtímis, eins og
Steppenwolf orðaði það?
EÐA AÐRIR LISTAMENN þessa lands.
Þessi sýning hefur ekki farið
mjög hátt og það eru víst bara þrjár
sýningar eftir. Ég veit varla hvernig
fólk verður sér úti um miða en
þetta er sýnt úti á Granda. Það er
ástæða til að hvetja fólk til að láta
þetta ekki framhjá sér fara.
Hópur Stúdentaleikhússins hef-
ur með þessari sýningu fest fras-
ann, sem þau nota fýrir nafn á sýn-
ingunni, í sessi sem hina endan-
legu skýringu á mestöllu bjástri ís-
lendinga - HaUgrfmur Helgason
sýndi á sínum tíma fram á að við
trúum því í lengstu lög að „þetta sé
allt að koma", en allt sem afiaga
fer, öll spilling, öll valdníðsla, það
er lflca í góðu lagi því „þú veist
hvernig þetta er".
Illugi Jökulsson